26.01.1978
Sameinað þing: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1804 í B-deild Alþingistíðinda. (1515)

108. mál, rekstrar- og afurðalán til bænda

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil hafa sama háttinn á og þeir sem tóku til máls við fyrri umr., þ.e.a.s. þegar þessi till. var lögð fram á síðasta þingi, og lýsa eindregnum stuðningi mínum við þessa till. þeirra Eyjólfs K. Jónssonar og Jóhanns Hafsteins. Ég ætla ekki að gera það í löngu máli, tel það óþarfa, en mér finnst hér vera angi af gríðarlega stóru máli, angi af sjálfstæðisbaráttu bænda. Bændur eru að mínu áliti ekki sjálfstætt fólk að þessu leyti en þeir átta sig fljótlega á því, hvað hér er á ferð, ef þeim er gefinn tími til að kynna sér málið og málið verður rætt vítt og breitt um landið. Það getur verið að það taki einhvern tíma, því að bændur hafa ekki þekkt fullt frelsi í eigin fjármálum um langan tíma. En mér er ekki nokkur leið að skilja málflutning þeirra sem telja sig bændafulltrúa hér á þingi, því að þeir tala frekar sem fulltrúar þeirra sem sjá um umboðssöluna, heldur en bænda sjálfra.