31.01.1978
Sameinað þing: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1847 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)

48. mál, þjóðaratkvæði um prestkosningar

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Till. sú, sem ég mæli hér fyrir, var flutt á síðasta þingi, en varð þá ekki útrædd. Ég stilli því í hóf framsögu að þessu sinni.

Till. mælir svo fyrir, að ríkisstj. láti fara fram þjóðaratkv. jafnhliða næstu alþingiskosningum um það, hvort afnema skuli beinar almennar prestskosningar.

Það er ekki að ófyrirsynju að till. þessi er fram borin. Á síðari árum hefur komið fram ákveðinn vilji af hálfu forystumanna þjóðkirkjunnar að beinar og almennar kosningar skuli ekki fara fram um veitingu prestakalla, svo sem lög nr. 32 1915, um veitingu prestakalla, kveða á um. En málið hefur ekki náð fram að ganga. Engin ríkisstj. hefur sýnt því áhuga og Alþ. ekki fallist á það.

Frá því árið 1962 hefur fjórum sinnum verið lagt fram á Alþ. frv. til l. um veitingu prestakalla, þar sem gert er ráð fyrir afnámi beinna og almennra kosninga. Frv. þetta hafði verið undirbúið og samþykkt af Kirkjuþingi. Í þrjú skipti komst frv. þetta ekki nema til 1, umr., en í fjórða skipti, sem frv. var lagt fram á A1þ., 1973–1974, fékk það loks afgreiðslu. Frv. var tekið til alvarlegrar meðferðar í menntmn. Ed. N. leitaði umsagnar um frv. hjá guðfræðideild Háskólans, Prestafélagi Íslands, Félagi guðfræðinema og próföstum með ósk um að þeir kynntu málið í söfnuðunum í prófastsdæmunum.

Umsagnir bárust aðeins frá guðfræðideild Háskólans og Prestafélagi Íslands, sem mæltu með samþykkta frv., og átta prófastsdæmum, þar sem fram komu meðmæli og þá ekki síður andmæli. Virtist svo sem ekki væri almennur áhugi á afnámi prestskosninga og ekki jafnmikil eining innan þjóðkirkjunnar og af hafði verið látið.

Menntmn. Ed. taldi eðlilegt, að gerðar yrðu breytingar á 1. nr. 32 frá 1915, um veitingu prestakalla, með hliðsjón af óánægju með prestskosningar sem virtist vera ríkjandi meðal presta og ýmissa kirkjunnar manna. Hins vegar gat n. ekki fallist á það skipulag, sem fólst í frv. Kirkjuþingsins, að afnema beinar og almennar prestskosningar. Í trausti þess, að ríkisstj. legði fram frv. um breytingar á lögum um veitingu prestakalla, að höfðu samráði við Kirkjuþing og biskupsembættið og að fengnu áliti almennra safnaðarfunda, lagði menntmn. til að frv. yrði vísað til ríkisstj. Þessi till. menntmn. var samþykkt shlj, vorið 1974.

Ekki gat það verið óeðlileg afgreiðsla Alþ. að vísa málinu til ríkisstj. með framangreindum rökstuðningi. Engin ríkisstj. hafði tjáð sig fylgjandi afnámi beinna og almennra prestskosninga. Engin ríkisstj. hafði léð máls á því að gera frv. Kirkjuþings að sínu máli með því að flytja málið sem stjfrv. Í öll skiptin hafði þess verið farið á leit við menntmn. viðkomandi þd. að flytja frv. án skuldbindingar um stuðning við það.

Það var augljóslega ekki þingfylgi fyrir því að afnema prestskosningar. Spurningin var sú, hvort ríkisstj. mætti takast að endurskoða lög um veitingu prestakalla að höfðu samráði við Kirkjuþing og biskupsembættið, en á grundvelli beins og almenns kosningarréttar. Í trausti þessa var málinu vísað til ríkisstj. Annað mál er það, að ríkisstj. hefur ekki treyst sér til að flytja frv. um þetta mál, og segir það sína sögu. Það er því eðlilegt að leita nýrra leiða í málinu.

Mál þetta kom næst fyrir á Alþ. 1975–1976 í formi till. til þál. um n. til að endurskoða lög um veitingu prestakalla. Var þar lagt til að Alþ. kysi n. 7 þm. er hafi það verkefni að endurskoða lög um veitingu prestakalla. Till. þessi hlaut ekki afgreiðslu og var endurflutt á síðasta þingi, en var þá ekki heldur útrædd. Í bæði skiptin sem till. þessi kom til umr. á Alþ. snerust umr. ekki fyrst og fremst um nefndarskipunina sjálfa, heldur hverja efnisbreytingu ætti að gera á lögum um veitingu prestakalla. Menn deildu um hvort halda ætti beinum, almennum prestskosningum, sem við höfum búið við, eða afnema þessa skipan, eins og frv. Kirkjuþings gerði ráð fyrir. Þetta var ekki óeðlilegur umræðugrundvöllur, því að mergurinn málsins er hvort hafa skuli beinar almennar prestskosningar eða ekki. Allar breytingar á lögum um veitingu prestakalla hljóta að mótast af því, hvaða leið er valin í þessum efnum, og breytinga virðist þörf, hvor leiðin sem valin er. Það verður ekki séð að nein n. verði þess umkomin að skera úr þeim djúpstæða ágreiningi sem hefur verið milli Kirkjuþings og Alþ. undanfarin 15 ár um gildi prestskosninga. En þegar úr þessum ágreiningi hefur verið skorið er þess að vænta, að endurskoðunarnefnd laga um veitingu prestakalla geti unnið verk sitt, en s.l. sumar skipaði ríkisstj. slíka nefnd.

Þetta mál er því í sjálfheldu nú á sama hátt og var á síðasta þingi þegar þessi þáltill. var lögð fram í hið fyrra sinn. Við flm. þessarar till., ég ásamt hv. 1. þm. Vesturl. og hv. 5. þm. Reykv., endurflytjum því nú till. í trausti þess að hún nái nú fram að ganga.