31.01.1978
Sameinað þing: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1861 í B-deild Alþingistíðinda. (1566)
48. mál, þjóðaratkvæði um prestkosningar
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Hér er til umr. till. til þál. um þjóðaratkvæði um prestskosningar, og hún er flutt af hvorki meira né minna en öllum þrem aðalforsetum þingsins. Hér á að láta til skarar skríða. Mikils þykir nú við þurfa. Og till. er þess efnis, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að láta fara fram þjóðaratkvgr. jafnhliða næstu alþingiskosningum um það, hvort afnema skuli beinar og almennar prestskosningar.
Þetta er ekki nýtt mál hér á Alþ. Það hefur verið rætt töluvert öðru hverju á liðnum árum. Ég hef nokkrum sinnum tekið til máls um þetta efni, og þó að hv. síðasti ræðumaður þykist geta lesið í hug okkar — ég held allra sem hér erum í d. — og hann spyrji um það af eðlilegum ástæðum, hvort við séum sömu skoðunar og áður og fyrrum, þá er þetta ekki svo einfalt mál.
Það, sem ég hef aðallega gagnrýnt í þessu máli, er að mér hefur fundist Alþ. og alþm. daufheyrast við erindum og ályktunum Kirkjuþings. Ég hef ekki rætt þetta mál mikið efnislega, ég veit, að um það eru skiptar skoðanir. Það má vel vera að margir séu meðal okkar þjóðar sem vilja halda prestskosningum. En það væri ekki undarlegt þó einhverjir teldu e.t.v. ástæðu til að breyta einhverju í lögunum frá 1915. En svo er það nú samt, að hvort sem þetta mál hefur verið flutt í frv: formi eða formi þáltill. á liðnum árum, þá hefur alltaf gerst sama sagan, að hér hefur þyrpst upp í ræðustólinn flokkur manna sem hefur sagt að aðalinntakið í öllum umræðum um breytingar væri að svipta landsmenn hinum lýðræðislega rétti til að velja sér sálusorgara.
Lög um Kirkjuþing voru sett, að ég ætla, 1957. Um hvað fjalla þau lög? Kirkjuþing er þing lærðra og leikra sem kemur saman annað hvort ár til að fjalla um málefni kirkjunnar. Ég held að það hafi tekið forráðamenn kirkju og kristni hér á landi ásamt leikmönnum meira en hálfa öld að fá samþykkt lög um Kirkjuþing. Ég ætla að frv. þess efnis hafi verið hreyft rétt upp úr aldamótunum síðustu, en það kostaði alla þessa löngu baráttu, milli 50 og 60 ár, að fá frv. samþykkt hér á hv. Alþ. Í þessum lögum segir svo efnislega, tilfært eftir minni, að Kirkjuþing eigi ályktunarrétt um mál sem varða kirkju og kristni. Það segir enginn og hefur enginn haldið því fram hér, að ég held, að Alþ. þurfi að hlíta ályktunum Kirkjuþings í einu og öllu, alla þessa löngu baráttu, millj 50 og 60 ár, að sýna þessari stofnun þá virðingu a.m.k. að taka við till. og erindum frá því þingi og sjá um að þau fái þinglega meðferð hér á hv. Alþ. En sannleikurinn er sá, að þeim mönnum, sem vilja láta gömlu lögin frá 1915 óbreytt standa í einu og öllu, hefur í raun og veru tekist að koma í veg fyrir að þetta mál hlyti þinglega meðferð á undanförnum árum. Og þeir koma laglega upp um sig hér í grg. Þar segja flm. eitthvað á þessa leið: Frv. þess efnis frá Kirkjubingi kom fram fyrst á Alþ. 1962–1963. (Gripið fram í: Hvaða þm. segja það?) Það segir í grg. með þessari þáltill. (Gripið fram í: Frá forsetum?) Já. „Þetta frv. var lagt fram á Alþ. 1962 —-1963,“ segja þeir ágætu menn. „Ein umr. fór fram um frv. og var það ekki tekið á dagskrá framar.“ Hverjir ætli semji og raði á dagskrá hér á hv. Alþ.? Svari þeir sem það vita gerst. Síðan er haldið áfram: „Árið 1964 var sama frv. lagt á ný fyrir Alþ. Fór nú enn á sömu leið og hið fyrra sinn,“ og er ekki laust við að gæti nokkurs hóls í þessari ritsmíð, „að aðeins ein umr. fór fram um málið.“ Það var sem sé ekki tekið á dagskrá aftur. Og í þriðja sinn var frv., eftir því sem hér segir, vísað til ríkisstj. Á svipaða lund fór um tvær þáltill. sem hreyft hafa þessu máli nú á síðari árum. Það er ekki furða þó að hinir ágætu forsetar vorir séu allstoltir yfir þessari meðferð mála og sjái nú ástæðu til þess að hreyfa því hér í veglegri þáltill. (Gripið fram í: Voru flm. till. forsetar 1962?) Ja, ég man ekki hverjir fluttu hana 1962. En ég er að leitast við að rifja upp hina þinglegu meðferð málsins eins og hæstv. forsetar lýsa henni sjálfir í eigin grg. Og svo segja þeir sem svo: Af þessu má ljóst vera, að málið er fast sótt af hálfu Kirkjuþings. Og því er ekki að neita, að Kirkjuþing hefur lagt á það nokkra áherslu að erindi, sem þaðan koma, séu tekin til venjulegrar þinglegrar meðferðar hér á hv. Alþingi.
Hér töluðu næst á undan mér tveir ágætir íhaldsmenn í þessum efnum, hv. 7. landsk. þm. og hv. 5. þm. Vestf., og skal ég síst lasta þá fyrir það, að í máli þeirra kom mjög skýrt fram að þeir vilji ekki afnám prestskosninga. Ég virði það við þá, að þeir hafa lýst þeirri skoðun sinni á einarðlegan hátt og munu ekki eða hafa ekki, að ég man, gert neitt til þess að tefja fyrir málinu á leið þess í gegnum þingið.
Hv. flm. telja svo einhvers staðar síðar í grg., að vegna þess, hversu um mál þetta hefur verið fjallað á þingi, sé málið í sjálfheldu, og leggja nú til að það verði leyst á þennan sérstaka hátt. Þeir segja að þjóðaratkvæði það, sem hér er lagt til, sé sérstaks eðlis, og er vist ekki nokkur vafi á því. Ég tel að þessi till. um að leggja málið undir þjóðaratkvæði, svo ágætt sem þjóðaratkvæði getur þó verið oft og tíðum, sé flótti frá efni málsins, og það eru hæstv. forsetar þrír sem leiða þann flótta, því að það er rétt hjá síðasta hv, ræðumanni, Karvel Pálmasyni, að vilji meiri hluta Alþ. hefur í raun og veru aldrei komið fram efnislega í þessu máli.
Það væri ekki að undra þó að einhverjir agnúar fyndust á lögum um prestskosningar sem svo eru komin til ára sinna eins og ég nefndi áðan. þess vegna er í sjálfu sér mjög óeðlilegt að menn vilji ekki láta líta á þau lög og endurskoða. Við vitum það öll hér, að kirkjulöggjöfin er orðin mjög gömul. Mikið af íslenskri kirkjulöggjöf er áratuga- og aldagamalt. Það væri því að mínum dómi verðugt verkefni alþm. að hlutast til um að eitthvað af þessari gömlu löggjöf yrði endurskoðað og fært í nútímahorf, eins og nauðsynlegt þykir um löggjöf af flestu tagi á öllum tímum.