31.01.1978
Sameinað þing: 42. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1863 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)

48. mál, þjóðaratkvæði um prestkosningar

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Það fer ekki hjá því að hv. þm. endurtaki sig allmjög í umr. um þetta prestskosningamál, svo oft og lengi sem það er búið að vera hér á dagskrá. Það er hætt við því, að ég falli í sömu gryfjuna sjálf, því ég hef svo sem ekki ýkjamiklu við að bæta það sem ég hef áður tjáð mig um í umr. nm þessi mál. Ég held ég geti í sem allra stystu máli sagt það, og þá endurtekið mig um leið, að það er meira en meðalskömm hvernig Alþingi hefur brugðist við í meðferð á þessu kirkjunnar máli sem hefur borist inn í sali Alþingis ár eftir ár án þess að fá eðlilega afgreiðslu. Mér finnst þessi dæmalausa tregða bera vott nm linku og loðinlæpuhátt, sem ég á bágt með að sætta mig við af hálfu þm. Svo koma hér upp menn eins og hv. 5. þm. Vestf., sem hefur í þessu máli sem öðrum haft hvað hæst og átalið mjög Alþ. á sama hátt og ég geri nú fyrir að hafa ekki tekið öðruvísi á þessum málum En ég man ekki betur en síðast þegar þetta mál var hér til meðferðar, þá hafi þessi hv. þm. einmitt fallið í þá gröf sem flestir féllu í, að það var fjallað um allt annað en þáltill., sem var hér til umræðu í fyrra og árið þar áður, snerist um. Menn belgdu sig stórum yfir því, að það ætti ekki að afnema prestskosningar, það ætti að halda þær. Hins vegar hefur hv. þm. Vesturl., séra Ingiberg Hannesson, ítrekað það, sem vitað var, að það mál snerist alls ekki um það, heldur um kosningu n. sem skyldi gera till. um endurskoðun laga um almennar prestskosningar. En hv. þm. komust aldrei út fyrir þetta og að efni málsins, og þess vegna erum við enn eiginlega í sömu sporum. Við erum að tala núna um hvort við eigum að afnema prestskosningar. Að vísu er þessi tillaga í allmiklu beinna sambandi við meginefni málsins en hin tilllaga var.

Ég skal reyna að vera ekki langorð hér. Ég held, eins og hér hefur komið fram, að við séum vanbúin að leggja þetta undir þjóðaratkvæði, einfaldlega af því, eins og hefur verið bent á réttilega, m.a. af hv. síðasta ræðumanni og ræðumanni þar á undan, að við vitum ekki hvað kemur í staðinn. Ég tel því miklu eðlilegra og heillavænlegra að sú n., sem nú situr á rökstólum við að endurskoða þessi mál, hefði fyrst skilað áliti, þannig að um það hefði getað orðið almenn umr. og fólk vissi um hvað það væri eð kjósa, milli hvers það væri að velja. Þetta liggur í augum uppi. Þess vegna, eftir því sem ég hugsa meira um hvort rétt væri að þessi þjóðaratkvgr. um afnám prestskosninga færi fram í vor hallast ég æ meir að því, að það sé ekki rétt, því fólk væri að kjósa þar nokkuð út í bláinn.

Það er mikið talað um lýðræði. Blessað lýðræðið, það er fallegt orð sem enginn má narta í og enginn má varpa skugga á. En stundum er það togað nokkuð sitt í hverja áttina, þegar mönnum þykir henta þeim málstað sem þeir eru að styðja hverju sinni. Ég vil alls ekki fallast á að það sé, afnám lýðræðis þó að þarna komi ekki til almennar kosningar, heldur yrði lagt undir álit viss hóps innan hvers safnaðar hvaða prestur skyldi valinn. Að vísu er lýðræðið þarna aðeins þrengt. En það er ómögulegt að segja að það sé afnumið. Og ég hlýt að segja það, að mér finnst koma fram óverðskulduð lítilsvirðing og vantraust á fólki í safnaðarnefndum landsins sem þarna eiga að vera umsagnaraðill, þ.e.a.s. skv. þeim hugmyndum sem maður hefur heyrt bera á góma. Maður veit í rauninni ekkert hvað lagt er til að komi í staðinn, en þetta hefur heyrst, að safnaðarráð og safnaðarnefndir í hverju prófastsdæmi skuli koma þarna til og meta hver eða hvor umsækjandi skuli valinn.

Það er talað um hversu óendanlega mikilvægt það sé almennum mannréttindum að fá að velja prestinn sinn. Við skulum líka líta til annarra manna sem veita mikilvæga persónulega þjónustu. Það eru kennararnir okkar. Hvað haldið þið að það sé mikils virði fyrir skólabarn að fá góðan kennara sem veitir því handleiðslu og fræðslu eftir því sem best verður við komið? Hvað haldið þið að þetta sé mikils virði hinum almenna nemanda? Við vitum að þessi mál eru í mesta ólestri. Sömu börnin sitja uppi með óhæfa kennara kannske alla sína skólatíð og bíða þess aldrei bætur, ekki bara af því að þan kunni minna í landafræði eða reikningi, heldur af því að maðurinn hefur ekki verið hæfur sem kennari, fyrir utan alla fagkunnáttu. Svona gætum við auðvitað bent á ýmislegt, sem er kannske ekki alveg hliðstætt prestinum, en kemur þó nokkuð nálægt hans hlutverki. Kennarinn er uppfræðari, um leið og hann er almennur kennari, og ekki hefur okkur dottið í hug að færa lýðréttindin það langt, að við ættum að kjósa kennarana okkar í almennum kosningum.

Ég held líka að það sé ekki alveg sambærilegt að bera saman alþm. og presta. Ég þarf ekki að fara nánar út í það. Ég held að það liggi í augum uppi, að starf alþm. fyrir umbjóðendur sína er víðs fjarri því að nálgast verksvið prestsins, það er ekki sambærilegt.

Ég tel felast ákaflega mikinn misskilning og vanþekkingu í orðum þeim sem hv. 5. þm. Vestf. lét sér um munn fara, að það væri ekkert vandamál fyrir prestinn að ganga til kosninga, þ.e.a.s. ef það væri vel þenkjandi maður og merkilegur klerkur. Þetta er náttúrlega svo mikil hyldýpisvanþekking á hlutverki og aðstöðu prestsins sem hugsast getur. Ég hlýt að játa það, að ég held að við leikmenn hljótum að meta nokkuð mikils viðhorf prestanna sjálfra sem reynsluna hafa í þessu efni, sem hafa þurft að ganga í gegnum þann eld sem prestskosningar því miður eru of oft, og það er ekki prestunum að kenna, heldur oftast einhverjum glömrurum sem helst aldrei koma í kirkju, en finna hjá sér hvöt til að setja allt á annan endann þegar farið er af stað með prestskosningar. Illu heilli eru það oft þessir menn sem mestu ráða um svipmót prestskosninga og undirbúnings prestskosninga.

Í þessu viðhorfi Kirkjuþings og margítrekuðum tilmælum til Alþ. um að koma þarna til liðs við vilja presta telst auðvitað að þeir eru reynslunni ríkari af prestskosningum eins og þær eru framkvæmdar í dag. Og ég tel það lítilsvirðingu á prestum, vanmat og óverðskuldað vantraust, að leggja þeim þetta út sem einhverja lítilmennsku og hugleysi. Það er á algerum misskilningi byggt. A.m.k. lít ég þannig á málin.

Með tilliti til þess, sem ég hef sagt hér, tel ég að okkur hefði verið sæmra að samþ. þáltill. sem hér var í fyrra. Ég tel það nokkuð út í bláinn mælt af hv. 5. þm. Vestf. og fleirum, sem hafa tjáð sig hér, að þeir séu vissir um að það sé meiri hl. alþm. með því að afnema prestskosningar. Ég tel þetta álit úr lausu lofti gripið. (Gripið fram í.) Á móti því að afnema prestskosningar. Ég tel þessa staðhæfingu úr lausu lofti gripna. (Gripið fram í.) Það á að prófa það, það er rétt. Raunar þurfum við ekki á þessu stigi málsins að prófa það, hvort við viljum prestskosningar eða ekki prestskosningar, en við eigum að veita okkar fulltingi til þess hér á Alþ., að það megi gera ákveðnar till, sem á síðara stigi málsins kæmi til kasta Alþ. samþ. eða hafna. En svo langt höfum við því miður aldrei komist, og ég harma þá linu afstöðu Alþ. hingað til. Og ég sé ekki að með því að samþ, þessa till. yrði heiðri Alþ. bjargað í þessu máli.