01.02.1978
Neðri deild: 49. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1887 í B-deild Alþingistíðinda. (1596)
125. mál, virkjun Blöndu
Páll Pétursson:
Virðulegi forseti. Ég hefði fremur kosið að mæla þessi orð, sem ég ætla hér að mæla, í viðurvist hæstv. iðnrh. Ég hef að vísu beðið um frest á þessu máli áður, eins og mönnum er kunnugt, en mér þykir nú heldur verra að ráðh. skuli ekki geta verið viðstaddur meðan ég er að tala. Mun hann ekki vera væntanlegur í dag í (Forseti: Ég skal láta kanna hvort hæstv. ráðh. er í Ed. Svo gæti vel verið. Mér hefur að a.m.k. ekki borist beiðni um fjarvistarleyfi og hæstv. ráðh, hefur lýst yfir þeirri ósk sinni að málið komist sem fyrst í n. — Forseti: Fregnir hafa borist af því, að hæstv. ráðh. muni vera staddur úti á Austurvelli á leið hingað.) Það kalla ég góðar fréttir.
Um þetta mál, sem hér er til umr., urðu allnokkrar umr. í fyrra. Ég flutti þá nokkuð langa tölu og mun ekki endurtaka hana hér. Það er þó ýmislegt sem nauðsynlegt er að drepa á í máli sem þessu, og það var engan veginn fullrætt frá minni hendi í fyrra og verður sennilega ekki á þessum fundartíma í dag. — Nú sé ég að hæstv. ráðh. gengur í salinn og get þá hafið mál mitt.
Þetta er í þriðja skipti sem þetta frv. kemur hér á borð alþm., og það er synd að segja annað en það sé starfsamur hæstv. iðnrh. sem flytur þetta mál hér hvað eftir annað. Þetta mál kom til umr. fyrir jólin og þá flutti hæstv. ráðh. framsögu sína þegar afgreiðsla fjárl, stóð sem hæst. Þá voru menn að glíma við efnahagsvandann og létu það sitja fyrir að ganga frá honum. Að vísu tókst það ekki algerlega, svo að það mun eitthvað ofurlítið vera eftir af honum enn, þannig að vera kann að við þurfum að ræða hann líka á næstu dögum. En frv. eins og þetta og efnahagsvandi eiga ofurlitla samleið, vegna þess að rætur þess efnahagsvanda, sem við er að glíma, liggja að sjálfsögðu víða um þjóðfélagið. En ein gild rót, einn anginn liggur í sáttmála núv. stjórnar, þar sem segir frá því, að orkumál skuli hafa forgang. Ég hygg að þó að þetta hafi verið vel meint, þegar sett var á blað við myndun ríkisstj., þá megi öllu ofgera, og þó margt hafi tekist vel í orkumálum og hæstv. iðnrh. og ríkisstj. öll eigi miklar þakkir skildar fyrir suma þá hluti sem þar hafa verið gerðir, t.d. eins og beislun jarðhita til upphitunar, þá hefur annað tekist miður og það illa, að af því hefur hlotist verulegur efnahagsvandi. Nægir þar að nefna Kröflu. Menn eru að tala um Kröflunefnd og Orkustofnun og finna báðum tveim ýmislegt til foráttu, en að sjálfsögðu starfa þessar stofnanir báðar á vegum og á ábyrgð rn.
Við höfum fengið fleiri mál úr þessu rn., svo sem eins og heimild til stækkunar álversins, þar sem Álverið keypti sér stækkunarleyfi fyrir lítilfjörlega hækkun á rafmagnsverði. Við höfum fjallað hér á undanförnum þingum um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði sem situr við ansi mikið annað orkuverð heldur en Rafmagnsveitur ríkisins. Og nú erum við að fjalla um Blönduvirkjun sem kemur ofan í Kröflu og lengra í fortíðinni Laxármálin. En það er nokkurt samræmi í þessu öllu saman, og þetta hefur allt saman orðið eða verður þjóðfélaginu baggi. Þetta er allt saman unnið af duglegum mönnum, en allt er þetta þó með nokkrum losarabrag og er okkur nauðsynlegt að gera okkur grein fyrir því, til þess að hlutirnir endurtaki sig ekki. Og þegar peningarnir eru búnir í Kröflurnar og Blöndurnar Ég járnblendiverksmiðjurnar og fabrikkur útlendinga farnar að sjúga raforkukerfi landsmanna, þá er farið að tala um að Íslendingum sé ofurefli að leggja vegi um land sitt og þeir verði að hlutast til um að byggðir verði flugvellir handa nýjum herstöðvum, og krefjast leigu fyrir landið. Þegar ábyrgir stjórnmálmenn, sem betur fer eru nú fleiri, taka af skarið og vilja ekki það sem þeir kalla að „setja verðmiða á landið“ og sýna af sér myndarskap, þá er farið að tala um að þeir séu einhverjir sértrúarhópar. Mér finnst það vera siðræn vesöld að vantreysta þjóðinni að búa vel í landinu og sjálfbjarga, en þá má ekki heldur fórna landhelgi, orkulindum eða gróðurríki landsins í þágu útlendinga.
Hér eru til umfjöllunar heimildarlög um hæpna virkjun, — heimildarlög, sagði ég, því að þetta er nákvæmlega sama aðferðin og notuð var á sínum tíma um Kröfluvirkjun, það að samþykkja lög og svo á einhver ríkisstj. í framtíðinni að geta dregið þau upp úr skúffu sinni og gefið út virkjunarleyfi, og þá þarf ekki að spyrja þingheim. Þetta tel ég vera óviðfelldna og alranga aðferð. Vonandi eignumst við góða ráðh. í framtíðinni og höfum reyndar oftast nær átt góða ráðh., sem betur fer, því að slæmir ráðh. eru þjóðfélaginu dýrir. Og venjulega hafa lent réttir menn á réttum stöðum. En þó hefur það komið fyrir, að hæfustu mennirnir hafa ekki lent í þeim stólum þar sem þeir hefðu þurft að lenda. Það er hér mannval mikið og flokkadrættir, og ég veit dæmi þess, að reyndir og mikilhæfir fyrrv. ráðh. hafa ekki átt afturkvæmt í ríkisstj og vikið fyrir lakari mönnum.
Í 2. gr. þessa frv. er lagt til að fela væntanlegri Norðurlandsvirkjun eða öðrum aðila, eins og segir í 1. gr., að reisa og reka vatnsaflsstöð við Blöndu í Blöndudal í Austur-Húnavatnssýslu með allt að 150 mw. afli og gera nauðsynlegar ráðstafanir á vatnasvæði árinnar til að tryggja rekstur virkjunarinnar, enn fremur að leggja aðalorkuveitu frá orkuverinu til tengingar við aðalstofnlínu Norðurlands og meiri háttar iðjuvera, eins og segir þar, — ég endurtek: og meiri háttar iðjuvera.
Hvað varðar væntanlega Norðurlandsvirkjun, eins og getið er um í frv., þá er ég ekki þess fullviss, að sú virkjun rísi, og í öllu falli finn ég ekki að það samræmist stefnu okkar framsóknarmanna að hún rísi á þeim grundvelli að hún verði virkjunaraðili. Ég minni á till. til þál., sem við flytjum, þm. Framsfl., um skipulag orkumála. Þar er einmitt gert ráð fyrir einni Landsvirkjun, einni aðalvirkjun, sem hafi á hendi byggingu og rekstur hinna ýmsu orkuvera, en síðan er opin leið að stofna landshlutaveitur til að dreifa orkunni, en á því er náttúrlega nokkur meiningarmunur.
Heimildin hljóðar upp á 150 mw. afl, Áætlunin gerir að vísu ekki ráð fyrir nema 135 mw., en síðan segir: „og gjöra nauðsynlegar ráðstafanir á vatnasvæði árinnar.“ Þessar ráðstafanir eru töluvert umfangsmiklar. Ég vænti þess þó, að þær séu ekki í því fólgnar að taka 60% af Vatnsdalsá, eins og sannarlega hefur komið til tals, og flytja til Blöndu. Enn fremur er heimild til að leggja aðalorkuveitu frá orkuverinu til tengingar við aðalstofnlínu Norðurlands og meiri háttar iðjuver. Aðalstofnlína Norðurlands, þ.e.a.s. byggðalínan, er ekki hönnuð fyrir mannvirki sem þetta, og að sjálfsögðu þarf að leggja sérstaka línu frá þessari virkjun að þeim stað þar sem orkan yrði notuð, og þá væntanlega að meiri háttar iðjuveri, því að að sjálfsögðu er hún ekki til heimilisbrúks, svona virkjun. Það er meginatriði í málinu. Þessi virkjun getur ekki orðið til annars en stóriðju. Til þess að það sé nokkur vitglóra í því að reisa svona mannvirki þarna, þá hlýtur það að vera í tengslum við fyrirtæki, orkufrekt fyrirtæki, þá væntanlega við álver við Eyjafjörð eða einhvers staðar annars staðar á Norðurlandi.
Hvað varðar Hrauneyjafossvirkjun, sem þm. fréttu fyrir ári um að ætti að fara að byggja, þá er hún náttúrlega ekki til heimilisnota heldur nema að litlu leyti. Því til sönnunar sakar ekki að geta þess, að vinnuflokkar voru á ferli í sumar við að mæla fyrir línu sem lægi öræfaleið þvert yfir landið og átti að koma niður í Grafardal og lægi síðan út á Hvalfjarðarströnd.
Það eru fleiri aths. sem ástæða væri til þess að gera að umtalsefni við þetta lagafrv. Því fylgir, eins og segir í aths., „ný kostnaðaráætlun“ og „ný orkuspá“. Þetta er nú ekki nákvæmt orðalag, því að þetta er orkuspá, sem fylgdi frv. í fyrra og kostnaðaráætlun frá því í fyrra — sama kostnaðaráætlunin. Samkv. upplýsingum Jakobs Björnssonar, sem er orkumálastjóri, í orlofi eins og stendur, mun vera óhætt að bæta 20% ofan á þessa kostnaðaráætlun til þess að hún sé í samræmi við það sem hún hefði átt að vera þegar frv. var prentað. Það er ekki heldur hægt að segja að orkuspáin sé glæný. Það er kannske ekki hægt að segja heldur að það sé slegið í hana, en hún er í öllu falli orðin nokkuð sigin. Þessi orkuspá var gerð hér rækilega að umtalsefni í fyrra í umr. og komið inn á hverjar væru forsendur hennar. Að sjálfsögðu er mjög dýrt að gera það kleift að koma í lóg þessari orku, það kostar allmarga tugi milljarða, og það verður að gerast á skömmum tíma. Það verður að endurrafvæða sveitirnar. Þetta verður allt að vera búið 1985, það er 7 ára áfangi. En með sömu orkumálastefnu og fylgt hefur verið nú um sinn verður þetta væntanlega allt á hausnum.
Þessi orkuspá gerir ráð fyrir því, að árið 2000 verði orkuvinnslan 6370 gwst. Það hefur verið slegið á það, að nýtanleg vatnsorka á Íslandi sé 28–35 þús. gwst., og þetta segir okkur það, að ef þessi orkuspá væri framreiknuð og gert ráð fyrir 4% aukningu á ári, eins og gert er ráð fyrir hér á árabilinu frá 1994–2000,
þá mundi það hafa í för með sér að nýtanleg vatnsorka á Íslandi yrði fullnýtt einhvern tíma fyrir eða um miðja næstu öld, og kæmi þó ekki til erlend stóriðja- Sannar þetta með öðru hvað fráleit sú hugmynd er að virkja fyrir útlendinga, þegar svo getur farið að börn okkar lífi þann tíma að vatnsorka á Íslandi verði gersamlega fullnýtt. Og þá er ekki heldur reiknað með að hlífa landinu. Í þessum 28–35 þús. gwst. er ekki gert ráð fyrir því, að virkjunarmöguleikar verði settir hjá eða látnir bíða út frá náttúruverndarsjónarmiðum, sem allir náttúrlega sjá að hlýtur að verða.
Þessi orkuspá er samin af svokallaðri orkuspárnefnd. Með frv. 1976, á 97. löggjafarþingi, fylgdi önnur orkuspá. Hún var talsvert á aðra lund. Hún var unnin af annarri orkuspárnefnd. Sú orkuspá var unnin af Landsvirkjun fyrir Suður- og Vesturland, en af Orkustofnun fyrir aðra landshluta. Hún gerði ekki ráð fyrir svona mikilli aukningu á notkun raforku, en hún gerði ráð fyrir því, að orkuvinnslan þyrfti að vera 1990 2601, en þessi á sama ári 2977 gwst.
En það eru fleiri að reyna að spá heldur en þessar orkuspárnefndir tvær. Með skýrslu um Bessastaðaárvirkjun, sem Rafmagnsveitur ríkisins hafa látið gera, koma fram aðrar upplýsingar en komu fram í ræðu hæstv. iðnrh. um það, hvenær fullnýtt yrði Hrauneyjafossvirkjun. Ég vil leyfa mér að lesa lítinn kafla úr skýrslunni um Bessastaðaárvirkjun, en þetta er um Bessastaðaárvirkjun II, áætlun um virkjun við Hól í Fljótsdal. Hún er frá des. 1977 og það get ég ekki kallað forlegna spá. Þar segir í kafla 1.2, með leyfi forseta:
„Síðan þessar forsendur lágu fyrir til grundvallar hefur verið ákveðið að hefjast handa við Hrauneyjafossvirkjun og er áætlað að hún get? tekið til starfa um 1982. Komi ekki til nýrrar stóriðju mun Hrauneyjafossvirkjun fræðilega geta mætt aukinni orkueftirspurn á landinu öllu fram til 1987. Er því ekki af þeim ástæðum þörf nýrrar virkjunar í landinu fyrir 1987.“ Ég leyfi mér að vekja athygli þm. á þessu misræmi. En síðan segir: „Þar sem byggðalínan er mjög löng og flutningsgeta hennar frá Suðvesturlandi til Austurlands er takmörkuð, er þó talið æskilegt, bæði af rekstrar- og öryggisástæðum, að byggja virkjun á Austfjörðum. Þá ríkir nokkur óvissa um framtíð Kröfluvirkjunar vegna stöðugra umbrota á þeim slóðum.“
Þannig hljóðar þessi skýrsla. En það er náttúrlega fjarri þvi, ef ekki kemur til ný stóriðja, að við getum verið búnir með Hrauneyjafossvirkjun um miðjan næsta áratug.
Það er nokkur „litteratúr“ sem fylgir þessu frv. sem nú liggur fyrir til umr. Fyrir utan þessa orkuspá fylgja frv, þessu tvær umsagnir sem sendar voru iðnn. Nd. Alþ. í apríl 1977. Þær eru frá Rafmagnsveitum ríkisins og frá Orkustofnun. Í umsögn Orkustofnunar eru forlegnar upplýsingar a.m.k. á einum stað, þar sem segir að Villinganesvirkjun sé nálægt 40% dýrari á orkueiningu, miðað við fullnýtingu virkjananna strax. Samkv. nýjum rannsóknum um Villinganesvirkjun eru þetta úreltar upplýsingar og munurinn ekki nálægt því svona mikill. Munurinn er minni, segir hér, og það voru orð í tíma töluð, ef ekki er tekið með í reikninginn að vissan tíma tekur að fullnýta virkjanirnar, Mismunurinn núna er nálægt 25% eða eitthvað því líkt.
Við hv. 5. þm. Norðurl. v, og margir aðrir hv. þm, höfum flutt till. til þál, um undirbúning að virkjun Héraðsvatna hjá Villinganesi. Ég mun ekki mæla fyrir þeirri till. núna, því að mér gefst væntanlega tækifæri til þess innan skamms tíma. En ég vil taka það fram hér og nú, að það er að okkar dómi miklu aðgengilegri virkjunarvalkostur. Hann er ódýrari í byggingu, og hæfir markaði okkar. Þess má geta, að á Norðurlandi vestra er notkunin innan við 10 mw., og það má til samanburðar segja frá því, að sala Landsvirkjunar til Rafmagnsveitu Reykjavíkur er ekki nema í kringum 70 mw., þannig að þessi virkjun, sem menn eru nú að láta sér detta í hug að byggja þarna til heimilisnota eða tala um eins og þeir ætli að byggja til heimilisnota, er svo sem eins og tvöföld sala Landsvirkjunar til Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Með miðlungsstórum virkjunum, 30–40 mw., er hægt að gæta allra hagsmuna, þarfar Íslendinga sjálfra, öryggis landshluta o.s.frv., en að þessu kem ég miklu betur í þeirri framsöguræðu sem ég mun flytja um það mál. Þar er enn fremur engin teljandi röskun á náttúrufari og einhugur heimamanna. Ég lít svo á að við þurfum að læra af þeim vandræðum sem hlotist hafa í virkjunarmálum, m.a. að læra af þeim vandræðum sem urðu í Laxá hér á árunum.
Ég vil leyfa mér að vitna aftur til umsagnar Orkustofnunar, þar sem segir neðst á bls. 12 í frv.: „Sú hönnun, sem virkjunaráætlunin byggir á, er því gerð eftir að málið var rætt við heimamenn.“ Þetta er rétt svo langt sem það nær. En hún hefur ekki hlotið samþykki heimamanna, og það er allt annað mál. Við Laxá var búist við því, að heimamenn enduðu með því að láta undan, en það gerðu þeir ekki. Svo kann að fara að þetta verði líka ofan á um þessa virkjun.
Þá vil ég nefna það, að ég sakna nokkurra þeirra fskj., sem heppilegt hefði verið að prenta með frv., úr því að farið var að prenta umsagnir með frv. á annað borð. Það hefði t. d. hentað vel að prenta með því kafla úr náttúruverndarkönnun sem iðnrh, hefur látið gera þarna á svæðinu. Það hefði hentað vel að prenta hér á auða opnu, sem aftast er frv., umsögn sem barst iðnn. frá Sambandi náttúruverndarfélaga á Norðurlandi. Ég vil bæta úr þessu, þó að í litlu sé, og lesa hér örstuttan kafla úr þessari skýrslu frá náttúruverndarsamtökunum, en þar segir, með leyfi forseta:
„Óspillt náttúrufar verður eflaust metið því meira sem tímar líða. Eyðing gróðurs og dyralífs er ævarandi skaði sem ekki er hægt að bæta með fé eða á annan hátt. Það er ekki aðeims skaði þeirra sveita sem verst verða úti, heldur allrar þjóðarinnar, í raun alls heimsins. Með tilliti til ofangreindra atriða er það niðurstaða okkar, að ekki skuli stefna að Blönduvirkjun á næstu áratugum, heldur skuli velja þá virkjunarmöguleika norðanlands sem valda mun minni umhverfisspjöllum“
Það væri hægt að lesa hér lengi dags umsagnir í þessum dúr. Ég mun ekki gera það að sinni.
Í skaðabótaþætti þessa frv, er drepið á veiðimál. Til þess að menn geri sér ofurlitla grein fyrir því, hvað þarna er í húfi, verð ég að vitna til rannsókna sem gerðar hafa verið á undanförnum árum á vegum iðnrn. á tveimur vötnum af þremur sem þarna munu eyðileggjast. Þetta er veiðikönnun sem gerð hefur verið af starfsmanni Orkustofnunar, Hákoni Aðalsteinssyni, í samráði við og undir yfirstjórn Jóns Kristjánssonar fiskifræðings og Veiðimálastofnunar. Þar segir frá því, að veiði í Eystra-Friðmundarvatni sé 6 tonn á ári — heppileg veiði, í Gilsvatni sé heppilegt að veiða 4.2 tonn á ári. Ef kg væri selt á 400–500 kr., þá er fljótt að koma þarna í verulegar upphæðir. Þessi veiði eyðileggst öll. Ég hef það eftir Jóni Kristjánssyni fiskifræðingi, sem raunar hver maður sér, að ef af þessari virkjun verður verða uppeldisskilyrði laxa lakari heldur en þau eru nú og laxaframleiðslan minnkar. Straumur eykst í ánni og vatnsmagnið eykst að miklum mun, hitastigið breytist og sumrinu seinkar í ánni. Jón Kristjánsson fiskifræðingur orðar þetta svo, að almennt talað megi búast við minnkandi laxagengd. Skotið hefur upp kollinum sú villukenning, að jökulvatnið muni setjast til þarna í lóninu, verða svo kannske tært og fagurt, en það er mesta fjarstæða, því að jökulmóðan verður áfram og litur vatnsins verður sá sami hvað sem það er geymt lengi í þessu lóni, Hér segir í umsögn Orkustofnunar, sem ég hef veriðað vitna til, líka á bls, 12:
„Vísindamenn í gróðurfærum á Rannsóknastofnun landbúnaðarins hafa því annast þennan þátt rannsóknanna fyrir Orkustofnun. Samkv. niðurstöðum þeirra er unnt að bæta þetta beitartjón með því að rækta upp land í nágrenni miðlunarlónsins sem nú er með öllu örfoka. Er þetta álit m.a. byggt á uppgræðslutilraunum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á norðanverðum Kili í grennd við hið ráðgerða miðlunarlón, og er því vel undirbyggt,“ segir í þessari umsögn.
Þetta er nú ekki nákvæmt orðalag heldur. Orðið „gróðurfæri“ eða ,,vísindamenn í gróðurfærum“ kann að vera heppilegt orðalag, þó að einhvern veginn kunni ég ekki við það, en hvað varðar undirbygginguna, þá er hún ekki sem áreiðanlegust að mínum dómi. Þetta land, sem þarna fer forgörðum, er í kringum 56 fkm2 að rúmmáli. Samkv. upplýsingum Ingva Þorsteinssonar magisters mun þarna vera að finna líklega þriðja hvert strá sem vex á Auðkúluheiði. Mér er nú nær að halda vegna legu landsins, að þarna sé helmingurinn af nytjagróðri Auðkúluheiðar, landið, sem sekkur, er á tveimur afréttum. Mér er kunnari auðkúluheiði heldur en Eyvindarstaðaheiði, en samkv. hugmyndum Ingva mun ekki fara forgörðum beit nema fyrir 1700 ærgildi á Auðkúluheiði, Samkv. kenningu Ingva svarar það til þess. að tveir af stærstu bændunum í upprekstrarfélagi Auðkúluheiðar rækju ekki á heiði. Það er nú allt og sumt. Ef helmingurinn af stráum heiðarinnar eða þriðjungur a.m.k. væri tekinn burt og eyðilagður, þá færi að þrengjast á hinum 12–15 þúsundum ærgilda, sem á heiðinni ganga, og líklega einum 1000 hrossum. Það er sannað að vísu að þetta land, sem þarna á að sökkva, er gósenland. Í tilraun, sem F 10 hefur staðið fyrir á því svæði sem þarna fer í kaf, kemur það í ljós að lömb eru þar 4–5 kg þyngri heldur en þau sem ganga á mýrum á Hvanneyri. En í stuttu máli sagt telja landgræðslumenn, og leyfi ég mér að nefna þar Svein Runólfsson og Stefán Sigfússon, þeir telja fjarstæðu, að ekki þurfi að bera á þetta land á hverju ári, og meira en það, það þurfi að bera á þetta oftar en einu sinni til þess að gróður verði á æskilegu þroskastigi svo að fé vilji bíta. Ég hygg að þessar uppgræðsluhugmyntir séu sýndarmennska og settar fram vegna almenningsálitsins. Ég hygg að vandfundnir séu þeir bændur sem taka þær alvarlega.
Raunverulegar bótagreiðslur varðandi það tjón, sem bændur verða þarna fyrir, eru náttúrlega í rafmagni, og það er alveg rétt, að þessi rafmagnsboð hafa freistað sumra kúabænda, sem þá vilja væntanlega afsala sér upprekstri á Auðkúluheiði jafnframt, og sumra fjárbænda, sem komnir eru svo langt í ræktun feitra kinda og fótfúinna, að lífslöngunin er slokknuð hjá þeim og þær þola ekki rekstur í afrétt. Afveltukyninu er ekki óhætt nema með daglegri gæslu, og það getur vel verið að afveltufjárbændur kunni að líta hýru auga þessar rafmagnsbætur. En sem betur fer eru þeir nú fáir, þó að bæði ég og aðrir hafi asnast til þess að eignast hluta af þessu afveltukyni. Það er gaman að taka á bakinu. Þetta eru fallegir og stuttir fótleggir, þangað til heltin kemur.
Þetta var um þá fjárhagshlið sem að bændum snýr. En það er hægt að bjóða gjald fyrir alla skapaða hluti, en suma hluti er bara ekki hægt að selja, og það er mergurinn málsins. Örorkubætur geta verið góðar, svo langt sem þær ná, en heilbrigðin er þó betri. Ég er mikill talsmaður þess, að bændur hafi eignarráð á landinu, og ég byggi það á því, að ég held að bóndinn hafi meira tilfinningasamband við sitt land heldur en aðrir, þ.e.a.s. þann blett sem hann á eða telur sig eiga. Hann þekkir landið, og ég held að bændum sé best treystandi til þess að varðveita landið og skila því ekki verra til eftirkomenda heldur en þeir tóku við því.
Það er líka athyglisvert, að þeir bændur, sem vilja ljá máls á virkjun, eru fyrst og fremst þeir sem ekki þekkja landið mjög náið og hafa sjaldan farið þarna um. Ég hef séð loftmyndir af Íslandi, ákaflega merkilegar loftmyndir teknar úr gervitunglum, þar sem kemur fram gróður í mismunandi litbrigðum á jörðu niðri, Þær eru teknar úr gervitungli í 9.5 km hæð. Þá kemur það í ljós, að á öllu hálendi Íslands er hvergi svo fagur blettur sem á þessum húnvetnsku heiðum sem nú er lagt til að sökkt verði að verulegu leyti. Þetta land, sem þarna fer forgörðum, er stærra en öll tún í Austur-Húnavatnssýslu samanlagt. Öll ræktuð tún, og þarna yrði þriðja stærsta stöðuvatn á landinu, svo að menn geta gert sér ofurlitla grein fyrir því, hvað þetta er gífurlegt.
Það væri og freistandi að ræða nánar í heild orkumál á Norðurlandi. Það var nokkur orkuskortur á Norðurlandi, því miður, og það var hafist handa um að bæla úr honum. Það var gert með tvennu móti, og af fyrirhyggjuleysi voru farnar tvær leiðir að sama marki. Það var bæði lögð byggðalína norður og það var farið að virkja Kröflu samkv. heimildarlögum sem samþykkt voru í fortíðinni. Byggðalína, sem ekki mátti tefjast, tafðist vegna mikils áhuga á Kröfluvirkjun. Ég hygg að það hefði verið heppilegra að fara hægar við Kröflu.
Knútur Otterstedt rafveitustjóri á Akureyri benti á það strax, að ef byggðalína kæmi væri þessi Kröfluorka óþörf um allnokkra framtíð, og það er náttúrlega meginatriði hvað á að gera við orkuna, Það er alveg rétt, að stundum getur komið til að hentugt geti verið að hafa toppstöðvar og ríflegt magn í kerfinu, ríflega raforkuvinnslugetu. En það er allt of dýrt að vera að byggja 20–30 milljarða toppstöðvar.
Ég mun ekki á þessu stigi málsins eyða tíma í að ræða um þau iðnaðartækifæri sem hugsanlega gætu tengst þessu fyrirtæki. Í hugum sumra þeirra manna, sem annars hafa verið jákvæðir út í þetta fyrirtæki, hefur verið vakandi hugmynd um að hugsanlega mætti þarna reisa áburðarverksmiðju sem flytti út ammoníak. En því miður er tómt mál að tala um það, því að sá iðnaður er annmörkum háður hér, og vitna ég til starfsnefndar sem ég á sæti í og hefur verið að athuga þetta nú fyrir skemmstu.
Það er fleira sem er athugavert við tilhögun þessarar virkjunar og ekki hefur áður komið nægilega skýrt fram í þeim umr, sem orðið hafa. Þetta er einstætt mannvirki á norðurhveli jarðar að vatnsvegum til. Það eru langir vatnsvegir þarna, en samkvæmt því, sem straumfræði Íslands telur, er þeim áætlunum nokkuð ábótavant. Þetta skurðakerfi er allt saman mjög viðkvæmt, bæði fyrir því að fyllast og það er erfitt að hreinsa það. Það verður að frjósa í logni. Og þar á ofan eru fyrirsjáanleg vandkvæði sem hvergi eru tekin með í þeim útreikningum, sem eru lagðir fram í frv., vegna ísreks í Blöndu eftir að vatn úr ræsinu rennur í sinn gamla farveg. Okkar færustu verkfræðingar telja að það þurfi, eins og þeir kalla. að „kanalisera“ ána frá nesinu og til sjávar, Þá verður miklu meira rennsli þarna heldur en við náttúrlegar kringumstæður og þar með engin hætta á ísreki, eins og menn kannast náttúrlega við frá Þjórsá. Það er tæknilega unnt að gera þetta. Þetta kostar allt saman verulegt fjármagn, og Því miður gæti svo farið, að þetta ógnaði byggð við ána. Það er þorp við ósa Blöndu, eins og menn vita, og því gæti beinlínis stafað ógn af ísamyndun við ána. Þess vegna verður að taka allan þennan kostnaðarsamanburð með æðimikilli varúð.
Ég vil ljúka máli mínu með því að láta þá skoðun í ljós, að ég held að það verði að nota vatnið í Blöndu í framtíðinni og það sé skynsamlegt og meira að segja óhjákvæmilegt. En ég legg áherslu á að það er ófært að gera það nema með breyttri virkjunartilhögun. Það má ekki sökkva þessu flæmi af landinu til þess að gera virkjun þarna mögulega. Það eru ýmsar aðrar hugmyndir sem til eru um virkjun þarna. Ég mun ekki ræða þær verulega að sinni. Upphaflega hugmyndin var að virkja þetta vatnsfall ofan í Vatnsdal, og það er ódýrasta hugmyndin. Sem betur fer er hún úr sögunni af náttúruverndarástæðum. Það er hægt að hugsa sér miðlunarlón, sem vafalaust er mjög mikilvægt að hafa í raforkukerfinu, öðruvísi. Það er hægt að hugsa sér að koma þeim fyrir á skynsamlegri stöðum, þ.e.a.s. stöðum þar sem ekki er svo mikið af dýrmætu landi sem eyðileggst, Það er hægt að hugsa sér aðra virkjunarstaði, m.a. stíflu við Langatanga og virkjanir í gilinu, miklu einfaldari mannvirki og heppilegri að stærð fyrir þetta þjóðfélag.
Ég vil láta þá niðurstöðu mína koma fram, að ég tel að það eigi ekki að þráast við að reyna að fá fram þessi heimildarlög eins og þau eru úr garði gerð núna. Ég held að það megi ekki virkja Blöndu eftir þessari tilhögun, a.m.k. ekki fyrr en aðrir aðgengilegri kestir, virkjunarvalkostir, eru uppurnir. Ég held að það sé heppilegra að lofa þessu frv. að stöðvast, en samþykkja till. okkar Ragnars Arnalds og fleiri góðra manna um virkjun við Villinganes í Héraðsvötnum og hefjast síðan banda þar þegar raforkuþörf á Norðurlandi og hjá þjóðinni segir til um. Um það er einhugur heimamanna, og það fyrirtæki gæti orðið lyftistöng kjördæminu öllu og jafnframt þjóðfélaginu, og það yrði hagkvæmasti valkosturinn á Norðurlandi vestra þegar allt næri talið. Og það er siðmannlegri virkjun og betri miðað við okkar þjóðfélagsaðstæður.