01.02.1978
Neðri deild: 49. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1895 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

125. mál, virkjun Blöndu

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði kvatt mér hl.jóðs um þetta mál, þegar það var til umr. hinn 14. des. s.l., til þess að flytja hæstv. iðnrh. og ríkisstj. í heild þakkir fyrir forgöngu í þessu máli og láta í ljós þá skoðun mína, að ég teldi mikils virði að frv. þetta yrði afgreitt á yfirstandandi þingi. Síðan hefur þessu máli verið frestað nokkrum sinnum og ekki tekið til umr. fyrr en nú.

Ég vil segja það, þó að ég ætli ekki að ræða þetta mál ítarlega umfram það, sem hér hefur gefist tilefni til, að þetta frv. er í samræmi við þá stefnu sem ég tel að nauðsynlegt sé að hafa í orkumálum, sem sé þá stefnu að hagnýta orkulindir okkar í þágu landsmanna sjálfra.

Í engri grein opinberra framkvæmda er jafnmikil nauðsyn að hafa mikla yfirsýn og í orkumálum, að hafa í huga langtímasjónarmið og mæta fyrirsjáanlegum vanda, þegar að honum kemur, með vel undirbúnum aðgerðum. Ég skal ekki fara út í að skýra þessi atriði mikið, aðeins segja það, að undirbúningur stórra virkjana hér á landi getur tekið allt að áratug, a.m.k. þangað til þær eru komnar til nota. Það er nauðsynlegt að ráða í þróun orkuþarfarinnar með svo löngum aðdraganda og fyrirvara sem hugsanlegt er til þess að geta með undirbyggðum aðgerðum mætt þeim og komið í veg fyrir orkuskort.

Þá er einnig nauðsynlegt að nýta fjármagnið, sem fer til þessara kostnaðarsömu framkvæmda, sem allra best. Það verður ekki gert nema því aðeins að mál séu undirbúin af fyrirhyggju og framsýni og þeirri yfirsýn, að landið allt sé haft í huga. Sé þetta ekki gert má búast við því, að gripið verði til skyndiráðstafana, sem kosta stundum allt of mikið fé, eða þá að gripið verði til lausna, sem taldar eru fljótvirkar, og getur þá brugðið til beggja vona, eins og við höfum þegar reynslu af.

Ég skal láta það koma fram, að þessar hugleiðingar mínar taka m.a. mið af þeirri orkuspá sem fylgir þessu frv. Sú orkuspá er gerð að bestu manna yfirsýn. Hún er gerð af fulltrúum Landsvirkjunar, Orkustofnunar og Laxárvirkjunar og annarra þeirra aðila sem gerst vita um þessi mál. Ég treysti mér ekki til að bera brigður á að þarna sé farið eins nærri sanni og færustu menn okkar geta nú sagt til um. Vel má vera að aðrir geti það, og hefur raunar þegar komið fram að svo virðist vera.

Þessi orkuspá gerir ráð fyrir því, að í fyrstu vaxi orkuneyslan hér á landi um 9% á ári, síðan smádragi úr þessari aukningu þangað til árið 1994, þá verði árleg aukning orkuneyslunnar 4% og haldi svo áfram úr því, a.m.k. eins lengi og orkuspáin nær eða til aldamóta. Nú er það kunnugt, að á sumum svæðum landsins hefur orkuneyslan vaxið á milli 15 og 20% á ári nú hin síðustu ár. Það er vitaskuld vegna þess að orkuskortur var orðinn mikill, og þegar ráð verða til að bæta úr slíkum orkuskorti verður orkuneysluaukningin auðvitað mjög mikil. Það er í raun og veru ekki enn svo komið að enn sé ráðin fullnægjandi bót á orkuskortinum um allt landið, og er fyrirsjáanlegt að vel þarf að standa í ístaðinu til þess að hann verði ekki staðreynd sem mæta verður með ákaflega óhentugt og kostnaðarsamri keyrslu dísilvéla.

Ef við leggjum þessa orkuspá til grundvallar — og skal ég þá ekki taka hana alvarlegar en svo, að þar getur vitaskuld skakkað hálfu til heilu ári á löngu tímabili um þörf fyrir nýtt orkuver — og þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, þá má til sanns vegar færa, ef allt stenst, að það sé ekki þörf fyrir nýja virkjun fyrr en 1986–87, eins og hv. þm. Páll Pétursson sagði áðan. Þó er það svo, að þetta er vitaskuld bundið því að Kröfluvirkjun fari í gang með fullri orkuvinnslu. og þótt það gerðist, t.d. eftir 1980, þá er ekki fyrir að synja að orkuskortur kunni að verða í kringum 1980, vegna þess að Sigölduvirkjun verður þá væntanlega fullnýtt. Ég skal ekki fara lengra út í þessa sálma, en það er augljóst að þörf er fyrir nýja virkjun á síðari hluta næsta áratugs — og fyrr ef svo hrapallega tekst til að Krafla nýtist ekki, en allir vona að hún nýtist og það sem allra fyrst. Með hliðsjón af þessu snýst spurningin um það, hvort við eigum að virkja Blöndu eða halda áfram virkjunum í Þjórsá. Aðrar stórar virkjanir eru naumast komnar á það stig í undirbúningi að þær komi til greina fyrr en um 1990, að talið er, og á ég þá við Austurlandsvirkjanir. Ég vil aðeins segja það í þessu sambandi, að ég tel hiklaust að næsta stórvirkjun okkar eigi að verða Blönduvirkjun en ekki fleiri stórvirkjanir við Þjórsá að sinni, vegna þess hve mikil hagkvæmni fylgir því að dreifa virkjunum um landið, og ekki síður hitt, að það er kominn tími til að taka ákveðna stefnu í þá átt að virkja stóra virkjun utan eldvirkra svæða landsins. Vonandi er að ekki komi til óskapa á Þjórsár- eða Tungnaársvæðinu, en á öllu þessu svæði er ástandið þannig, að við getum aldrei fullyrt hvenær kemur að því, að náttúruhamfarir verði, og þær náttúruhamfarir geta valdið óhemjutjóni. Vonandi er að svo verði ekki.

Ef menn hins vegar hafna þessari stefnu og vilja stefna að smávirkjunum, þá er það fráhvarf frá því að tryggja það að þjóðin geti mætt aukinni orkuþörf sinni með innlendum orkugjöfum. Hætt er við því, að því mundi fylgja orkuskortur fyrr eða síðar. Ef enn er vitnað til orkuspárinnar, sem ég hef gert að umtalsefni, þurfum við sem svarar 30 mw. í aukinni raforku á hverju ári til aldamóta. Það þýðir að taka þyrfti í notkun eina smávirkjun af þeirri stærð á ári og vera þá að virkja á mörgum stöðum samtímis. Það út af fyrir sig kostar aukinn tækjakost og aukinn mannafla, auk þess að smávirkjanir eru í flestum tilvikum mun dýrari en stórar virkjanir miðað við framleiðslueiningu. Með þessari leið er mjög hætt við að orkuskortur mundi þá og þegar fylgja, vegna þess að það er hæpið að nægilega yrði staðið í ístaðinu við að virkja smávirkjanir jafnört og þörf væri á til þess að mæta orkuþörfinni. Og orkuskorturinn er dýr.

Það hefur verið gerð tilraun til þess, bæði hér innanlands og erlendis, að meta hvað orkuskorturinn kostar. Í áætlunum Landsvirkjunar hefur t.d. orkuskorturinn verið verðlagður 50–100 kr, á kwst., eftir því um hve mikið magn er að ræða. Enda þótt sumum kunni að virðast þetta vera háar tölur er þó orkuskorturinn metinn miklu hærra í ýmsum nágrannalöndum okkar. Það er því ljóst að orkuskorturinn er gífurlega dýr. Framleiðsla á kwst. raforku kostar í hagstæðum virkjunum, eins og nú standa sakir, kringum 3 kr., en orkuskorturinn er talinn kosta 50–100 kr.

Enn vil ég geta þess, að sérfræðingar frá mörgum löndum heims hafa áhyggjur af vaxandi orkuskorti í heiminum. Þeir telja að ekki séu líkur til þess, að olían geti mætt vaxandi orkuþörf mannkynsins lengur en einhvern tíma fram á áratuginn frá 1985–1995 og að olían í heiminum kunni að verða þrotin áður en 40 ár eru liðin. Sérfræðingar í orkumálum víðs vegar að úr heiminum leggja sig fram við það að finna lausn á þessum vanda. Meðal þeirra ráða, sem auðvitað koma þá í hugann, er orkusparnaður, og er sjálfsagt fyrir okkur Íslendinga að huga að þeim þætti málsins eins og öðrum. Sumum kann að finnast að Íslendingar þurfi aldrei að spara. Ég held samt að við ætlum að huga að því og ef það gæti orðið til þess að við gætum dregið einhverja framkvæmd t.d. um eitt ár eða hálft ár, þá tel ég það vera vinning, en ekki hið gagnstæða.

Áður en til þess ástands kemur í heiminum, að olían getur ekki mætt orkuþörf mannkynsins, þá er víst að hún verður dýr, og það má búast við því fyrr eða síðar, að við Íslendingar lendum í þeirri úlfakreppu að ný verðsprenging verði á olíu. Þessar horfur sýnast mér þess eðlis, að ekki sé um það nein spurning, að við verðum að undirbúa það, eins og ég sagði, af fyrirhyggju og yfirsýn og með langtímasjónarmið fyrir augum að taka innlenda orkugjafa til þarfa þjóðarinnar sjálfrar og ekki komi til mála að draga þar um of úr fjármagni, vegna þess hve geigvænleg hætta getur verið búin þjóðinni í sambandi við olíuverð og olíukreppu á komandi tíð.

Ég vil aðeins segja í sambandi við það sem hv. þm. Páll Pétursson ræddi áðan um orkuforða okkar Íslendinga, — þar sem hann gerði því skóna að miðað við þá orkuspá, sem er birt sem fskj. með þessu frv., að ef framhald yrði á virkjunum í samræmi við hana, þá mundi virkjanlegur vatnsorkuforði þjóðarinnar vera þrotinn um miðja næstu öld, — að ég hef hér fyrir framan mig erindi, sem yfirverkfræðingur Landsvirkjunar, Jóhann Már Maríusson, flutti á miðsvetrarfundi Sambands ísl. rafveitna í nóv. s.l., þar sem hann kemur að þessu efni, og með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa eina mgr.:

„Áætlað hefur verið að virkjanleg vatns- og jarðgufuorka til raforkuframleiðslu hér á landi geti numið a.m.k. 50 þús. gwst. á ári, þar af um það bil helmingur í vatnsorku. Ef reikna má með, að Íslendingar væru orðnir 700 þús. manna þjóð í lok 21. aldar og þá verði beislun þessarar orku að veruleika, munu menn hafa til ráðstöfunar um 70 þús. kwst. af raforku á hvern einstakling á ári. Til samanburðar má geta þess, að í dag notum við um 11 þús, kwst. af raforku á hvern einstakling, og t.d. Norðmenn, sem nota mest allra í heimi, hafa í dag um 17 þús. kwst. til ráðstöfunar á hvern einstakling. En þeir hafa þegar fullnýtt meiri hlutann af vatnsorku sinni. Jarðgufu hafa þeir enga umtalsverða, eftir því sem best er vitað.

Hér er ekki um spá að ræða í neinum skilningi. En það virðist nokkuð ljóst, að búast má við því að þrátt fyrir mannfjölgun á Íslandi ræður þjóðin yfir möguleikum til að stórauka raforkuframleiðslu á hvern einstakling og það með þeim verðmætu orkulindum sem stöðugt endurnýja sig fyrir tilverknað náttúraflanna sjálfra.“

Samkv. því, sem þarna segir, hefur þjóðin til ráðstöfunar í lok 21. aldar, ef hún væri þá búin að virkja virkjanlega vatnsorku og gufuorku í landinu, um þrisvar sinnum meira á hvern einstakling heldur en Norðmenn nota í dag, og Norðmenn nota mest af slíkri orku allra þjóða í heimi. Þetta kemur hvergi heim við staðhæfingar hv. þm. Páls Péturssonar áðan og sannar, ef marka má orð þessa manns, sem er yfirverkfræðingur Landsvirkjunar, að þjóð okkar býr yfir mjög miklum auðlindum sem munu endast henni um mjög langa framtíð. Það er mikil gæfa að svo skuli vera, og við eigum að nýta þessi verðmæti okkar þjóð til gagns.

Ég skal ekki hafa mörg orð um þennan þátt frekar. Ég vil aðeins segja það út af því sem hér hefur komið fram, að ef gerður er samanburður á því, hver hagkvæmni er í því fólgin að virkja annars vegar tiltölulega stóra virkjun eins og Blönduvirkjun, 135 mw., sem er með því hagstæðasta sem finnst hér á landi, miðað við þær tölur sem nú liggja fyrir, annars vegar og smávirkjanir hins vegar, þá hef ég ekki aðrar tölur handbærar hvað smávirkjanir snertir en Villinganes- og Bessastaðaárvirkjun, I. og II. áfanga. Ef þetta er allt fært á sama verðlag, í sept. s.l., þá er talið að Blanda með 135 mw., 800 gwst. á ári, kosti 17 milljarða. Í frv. eru 14.8 milljarðar, miðað við marsverðlag. Ef Villinganes- og Bessastaðaárvirkjun, I. og II. áfangi, eru lagðar saman, þá eru það samtals 86 mw., sem kosta 17 milljarða 791 millj, kr. Sem sé, Villinganes og I. og II. áfangi Bessastaðaárvirkjunar kosta meira en Blanda miðað við verðlag í sept. s.l. Þá væri eftir að virkja 49 mw. til þess að ná orkuframleiðslu Blöndu. Ég skal ekki leiða neinar getur að því, hvað það kostar, það geta aðrir gert, en þetta er vitaskuld gífurlegur munur. Þarna eru gífurlegir fjármunir í húfi, og ég held að orkuframkvæmdir yfirleitt séu það dýrar, að þjóðin verði að huga að því, hvernig hún ver skynsamlegast fjármunum sínum til að nýta þessi verðmæti.

Hv. þm. Páll Pétursson rakti hér í alllöngu máli ýmsar aths. sem hann hefur fram að færa í sambandi við þetta mál. Margt af því hefur komið fram áður, þó ekki allt, og ég vil leyfa mér að gera örfáar aths. við það, sem hann hefur sagt.

Hann sagði í fyrsta lagi, að stofnlína Norðurlands væri ekki hönnuð fyrir þessa virkjun. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef frá rafmagnsveitustjóra, getur stofnlína Norðurlands, sem er 132 kílóvoltalína, tekið við þessari raforku og auðveldlega flutt hana í tvær áttir. Hún getur einnig, að vísu með lítils háttar tæknibúnaði, flutt alla þessa orku í eina átt, en þó ekki nema skamman veg, vegna þess að orkuflutningsgetan dvínar eftir því sem frá líður.

Það er því út í hött að aðalorkuflutningslínan á Norðurlandi geti ekki tekið við þessari orku. Hv. þm. sagði að það væri dýrt að koma þessari orku í lóg, það væri dýrt að nota þetta til heimilisnota o.s.frv. Ég skal ekki fara mörgum orðum um það. Ég tel að það sé þjóðinni nauðsyn að nýta orku bæði til heimilisnota og til atvinnurekstrar, og það verður ekki gert á ódýrari og viðráðanlegri hátt en þann að nýta okkar bestu virkjunarkosti. Hér er enginn að tala um það, að þessi orka verði nýtt á morgun eða hinn daginn. Við erum að tala um þetta mál með langtímasjónarmið í huga. Við erum að tala um að taka þessa virkjun í notkun þegar hún hentar raforkumarkaðnum á Íslandi í heild, væntanlega upp úr miðjum næsta áratug. Það er fjarstæða að halda því fram, að þessi virkjun sé ekki hagkvæm án þess að um stóriðju sé að ræða. Ég tel að við eigum a.m.k. að hika við, ef ekki slá striki yfir öll stóriðjufyrirtæki af þeim toga sem við höfum verið að byggja undanfarið, þ.e. álbræðslur, járnblendiverksmiðjur, vegna þess hve fyrirsjáanleg er mikil nauðsyn þjóðarinnar sjálfrar og hins almenna orkumarkaðar fyrir raforku á komandi árum. Ég er þess fullviss, að hv. þm. Páll Pétursson hefur áttað sig á þessu, hann veit þetta. Ég er þess fullviss, að hann vill ekki viðurkenna þetta í umr., vegna þess að hann hyggst nota þetta í áróðursskyni, í þeim tilgangi einum að vinna gegn þessu máli, og óttast það mest, að hann missi þennan glæp, og heldur í hann svo sem honum er frekast unnt. En vitaskuld hefur hann áttað sig á þessu máli og veit hið rétta, að þjóðin þarf á þessari orku að halda og það áður en langir tímar líða. Með samtengingu orkuveitusvæðanna er þetta mögulegt, sem áður var ekki. Það var t.d. ekkert um það að tala þegar Búrfellsvirkjun var gerð. Þá voru engar flutningslínur til þess að dreifa raforku frá Búrfelli til hinna almennu notenda um landið í heild. Nú eru breyttir tímar og við eigum að halda áfram að tengja saman línur um land allt.

Hv. þm. taldi muninn á orkuvinnslu frá Blöndu og Villinganesi 25%. Það er ekki alveg rétt með farið. Samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef, miðað við septemberverðlag, er þarna 33% munur. Skal ég ekki deila um slíkt, en ástæða er til að fara með réttar tölur.

Hv. þm. Páll Pétursson vék að náttúruverndarkönnun í áliti Náttúruverndarráðs. Um þessi efni er ekkert af þess hálfu sem hindrar að þessi virkjun verði gerð. Það er hins vegar ekki neinum blöðum um það að fletta, að það verða stórkostleg landsspjöll, og er þó engin ástæða til að ýkja slík landsspjöll, eins og hv. þm. gerði sig sekan um. Hann sagði að þarna færu 60 km2 undir vatn, þar af 56 grónir. Hið rétta er að 49.7 km2 grónir eru taldir fara undir vatn og og spillast við rask, sem framkvæmdum er samfara. Lónið í heild er 56.5 km2. En það er einnig nokkur stækkun á vötnum, svo að ég skal ekki deila um það að 60 km2 í heild af landi kunni að spillast. Hv. þm. Páll Pétursson telur að uppgræðsla í stað þessa lands, sem tapast eða spillist, sé sýndarmennska og telur að vandfundnir séu þeir bændur sem trúi á slíkar aðgerðir. Þetta finnst mér furðulegt.

Tilraunir hafa verið gerðar í allmörg ár og nú síðast á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og FAO, þar sem kemur fram stórkostlegur árangur með áburðargjöf á land sem nægilega mikið er af á þessari afrétt. Þar kemur fram eftir upplýsingum, sem ég hef fengið frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, að við áburðargjöf á beitarhólf á fjórða ári hafi uppskerumagn sexfaldast og land, sem var ógróið með öllu, sé þá og raunar fyrr orðið algróið. Hv. þm. mun segja og sagði hér í fyrra, að þetta væru blettir sem yrði sökkt og væri ekkert að marka það, það sýndi aðeins hvað það væri verðmætt land sem ætti að sökkva, en landið í kring væri allt öðruvísi, það mundi ekki svara áburðargjöf o.s.frv. Ég get vel búist við því, að hann flytji eitthvað slíkt hér á eftir eða seinna. Þetta er auðvitað mikill misskilningur. Það hefur verið talað um að rækta upp örfoka land, vegna þess að það hefur verið talið falla best í geð náttúruverndarmanna, því að þá væri ekki verið að breyta neinu strái af því sem fyrir er, þar væri ekkert strá fyrir. Það er auðvitað erfiðast að rækta örfoka land. En rannsóknir sýna að það er þó vel gerlegt. Hins vegar er líka á afréttum þessum mikið af þurrlendi sem er tiltölulega rýrt gróðurlendi. Það eru mosaþembur, fjalldrapi og strjáll gróður annar. Þetta land er auðvelt að bæta með áburðargjöf og miklu kostnaðarminna heldur en örfoka land. Hygg ég að þurfi ekki að fara fleiri orðum um það. En tilraunir, sem gerðar hafa verið af hálfu vísindamanna okkar í þessum efnum, staðfesta þetta svo sem frekast er unnt. Þó að þær nái ekki marga áratugi aftur í tímann og því síður aldir, þá er þarna samt um alllanga reynslu að ræða.

Þetta er enda alger nauðsyn, því að hvort tveggja væri óforsvaranlegt: að eyða þarna stórum fláka af gróðurlendi án þess að bæta annað í staðinn, og svo líka hitt, að til þess að varðveita beitarskilyrði fyrir búfé þeirra bænda, sem þarna eiga hlut að máli, er nauðsynlegt að rækta land í stað þess sem tapast, enda liggja fyrir boð um þetta og þarf ekkert að efa. Þar eru ákvæði um að áburður skuli borinn á svo oft sem þurfa þykir og þá í samræmi við það sem sérfræðingar segja fyrir um.

Ég er enginn sérfræðingur í sambandi við veiðiskap, og það er sjálfsagt að bæta þau spjöll sem verða á veiði. Það má segja að það komi mér á óvart að í tveimur vötnum þarna megi veiða 10 tonn á ári. Það hafa naumast borist fregnir um slíka veiði í þessum vötnum á undanförnum árum eða áratugum. En þetta eru út af fyrir sig góðar fréttir, og það er sjálfsagt að bæta þetta eftir því sem reynslan sker úr um að þörf er á. Ég held því hins vegar staðfast fram, að þegar jökulá rennur í gegnum jafnstórt lón og þarna er um að ræða og þrjú vötn að auki muni vatnið hreinsast af jökulframburði. Mér er alveg sama hvað hv. þm. Páll Pétursson segir um þetta. Það nægir að benda honum á Blöndu sjálfa. Þegar lítið er í ánni er hún að heita má alveg tær. En í flóðum eða miklum leysingum til jökla er hún kolmórauð og þá er mikill sand- og leirframburður í ánni. Slíkur framburður botnfellur án efa að miklu leyti í þessum lónum. Ef áin verður tærari hlýtur hún að verða aðgengilegri veiðiá og skal ég ekki fara um þau skilyrði frekar orðum hér, en ýmsir reyndir veiðimenn hafa talið að hún yrði a.m.k. ekki lakari veiðiá eftir en áður.

Ég skal taka undir það með hv. síðasta ræðumanni, að ég tel mikils virði að bændur hafi eignarrétt á landi sínu, og ég tel að óreyndu að þeim sé betur til þess trúandi að umgangast landið heldur en öðrum og engin stjórnarskrifstofa í Reykjavík mundi gera það betur. Hins vegar verða bændur að gæta þess að halda ekki með svo óbilgjarnri afstöðu á þessum eignarrétti sínum, að hann verði af þeim tekinn, eða koma í veg fyrir að mestu nauðsynjamál þjóðarinnar nái fram að ganga. Ég hef talið ástæðu til að vara menn við slíku, vegna þess að það er vísasti vegurinn til þess að við töpum þessum þýðingarmiklu réttindum, eignarréttindum að landinu, sem ég tel að sé í raun kjölfesta landbúnaðarins.

Hv. þm. sagði undir lok sinnar ræðu í fyrsta lagi, að þeir einir vildu af hálfu bænda ljá máls á þessu virkjunarmáli sem minnst þekktu til. Þetta er eins og sumt annað í ræðu hv. þm. næsta lítið rökstudd fullyrðing og unnt að benda á fjölmarga menn sem þessu máli eru meðmæltir og hafa umgengist þetta land í áratugi. Hann sagði einnig að fyrirsjáanlegur væri mikill kostnaður við það sem hann kallaði að „kanalisera“ ána frá affalli virkjunar til sjávar. Væri þetta á hinn bóginn gert mundi vinnast gífurlega mikið land í Langadal og þar er bændum mikil þörf á auknu landi til ræktunar. Það er einnig hægt að segja það, að jafnrennsli árinnar mundi væntanlega gera þetta mögulegt og koma þannig í veg fyrir að áin breiddi eins úr sér og hún gerir nú og þannig vinna land. Þetta er að sjálfsögðu kostur en ekki galli. Þetta kostar nokkurt fé, en engin ástæða er til að gera of mikið úr slíku ef um landvinninga er að ræða. Og bann talaði um það, að rennslið í ánni mundi vaxa og straumurinn aukast. Ég held að þetta hafi verið mismæli hjá honum. Auðvitað verður meira jafnrennsli. Það verður suma tíma meira rennsli, en aðra tíma minna. Og ef svo tækist, að með tiltölulega einföldum ráðum væri unnt það sem hann kallar að „kanalisera“ ána eða færa ána í einn farveg niður dalinn, þá er einmitt jafnrennslið forsenda fyrir því að slíkar aðgerðir takist, því að flóðin raska öllu slíku, ekki síst vor- og sumarflóðin, sem mundu takast af. Miklu hættuminna slíkum aðgerðum væri vetrarflóð, vegna þess að þá væri gaddur í slíkum varnargörðum. En við þær aðgerðir mundi vinnast mjög mikið land og þá til ræktunar fyrir bændur í Langadal, og er það auðvitað einn af þeim kostum sem fylgja þessu máli.

Ég skal svo ekki gera fleiri aths. við ræðu hv. þm. Páls Péturssonar. Eins og ég drap á, er sumt af því, sem hann segir hér og segir annars staðar, sagt í eins konar áróðursstíl og ekki í samræmi við staðreyndir þessa máls, ef það er metið af réttsýni. Það er flutt til þess að reyna að hafa áhrif gegn þessu máli, en ekki til þess að leiða hið rétta í ljós.

Ég skal að síðustu aðeins segja það, að þetta er mikið stórmál, ekki einungis fyrir byggðirnar sem hlut eiga að máli fyrir norðan, heldur fyrir þjóðina í heild. Og við megum ekki láta þröngsýni og óraunhæfar úrtölur spilla því, að við getum unnið að framgangi jafnþýðingarmikilla stórmála, — framgangi sem þarf að gerast með yfirvegun og með langtímasjónarmið í huga.