06.02.1978
Efri deild: 55. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)
166. mál, viðskiptabankar
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Það hefur lengi legið ljóst fyrir að þörf væri á því, að sett yrði ný löggjöf um bankakerfið og hina ýmsu þætti þess. Mönnum hefur verið ljóst að núverandi löggjöf um bankamál væri harla ófullkomin, brotakennd, bæði væru lögin orðin úrelt og vantaði í þau mörg ákvæði sem ættu heima í nútímalegu frv. um bankamál. Í öðru lagi væri ýmiss konar ósamræmi milli hinna ýmsu lagabálka. Í þriðja lagi hefur mönnum verið ljóst, að ekki veitti af hagræðingu innan bankakerfisins, ekki veitti af einföldun sem gæti miðað að því, að kerfið yrði ódýrara í rekstri en það sem við höfum í dag.
Þetta var sá bakgrunnur sem menn höfðu fyrir augum á tímum vinstri stjórnarinnar, þegar svonefnd bankamálanefnd var sett á stofn, og þetta varð það leiðarljós, sem bankamálanefnd hafði fyrir augum í starfi sínu: í fyrsta lagi það að koma bankamálalöggjöfinni í nútímalegt horf, en í öðru lagi og þá ekki hvað síst að gera bankakerfið ódýrara og hagkvæmara en það er og hefur verið.
Ein af meginniðurstöðum Bankamálanefndarinnar svonefndu var einmitt sú, eins og þar sagði, að peninga- og lánastofnanir hérlendis séu miklu fleiri en hagkvæmt getur talist. Ég minnist þess, að á þessum tímum var gerður samanburður á fjölda starfsmanna í íslenska bankakerfinu annars vegar og hins vegar í sænska bankakerfinu, og kom í ljós að miðað við fólksfjölda í hvoru landi um sig var mannafli í sænska bankakerfinu tvöfalt meiri en í því íslenska. Ég er viss um það, að mörgum útlendingum, sem heimsækir okkar land, kemur það líka nokkuð spánskt fyrir sjónir, að hér skuli vera þrír sjálfstæðir viðskiptabankar í eigu sama aðilans, þ.e.a.s. ríkisins, og þar að auki sé svo ríkið með sinn miðstjórnarbanka, Seðlabankann, til þess að stjórna þessu kerfi, en eigi svo þar fyrir utan meirihlutaeign í fimmta bankanum, þeim banka sem kenndur er við iðnaðinn, sem sagt að ríkið sé höfuðaðili í hvorki meira né minna en fimm bönkum eða bankakerfum hér á landi. Þetta er að sjálfsögðu illskiljanlegt öðruvísi en að menn skoði þessa sögu. Og þá átta menn sig að sjálfsögðu á því, að þetta hefur þróast á löngum tíma, fyrst og fremst á þann hátt, að hver banki átti að þjóna ákveðnum atvinnuvegi, eða a.m.k. þrír af þessum bönkum sem ég nú nefndi, og einmitt sú viðmiðun hefur að sjálfsögðu átt sinn mikla þátt hvað bankakerfið á Íslandi hefur orðið flókið. En það eru ekki aðeins ríkisbankarnir sem hafa þanist mjög ískyggilega út og orðið miklu viðameiri stofnanir en þörf krefur. Hið sama gildir um einkabankana, sem að vísu voru ekki til fyrir u.þ.b. tveimur áratugum, en voru settir á stofn í byrjun seinasta áratugs hver af öðrum og eru nú orðnir þrír talsins: Alþýðubankinn, Samvinnubankinn og Verslunarbankinn.
Það var á grundvelli hugleiðinga af þessu tagi sem bankamálanefndin svonefnda kom fram í tíð vinstri stjórnarinnar með mjög róttækar tillögur um umbyltingu á bankakerfinu. Hún lagði til að viðskiptabönkum hér á landi, þessum 7 viðskiptabönkum, yrði fækkað í 3 eða 4, og gerði ráð fyrir því, eins og sagði í álitinu, að miðað við núverandi aðstæður í bankamálum væri eðlilegast að ná því markmiði með fækkun hlutafélagsbankanna í einn eða tvo og ríkisbankanna í tvo. Á grundvelli þessa álits var síðan samið frv. um fyrsta skrefið að þessu marki, þ.e.a.s. fækkun ríkisbankanna.
Það er rétt að taka það strax fram, að þótt vinstri stjórnin einkenndist, eins og nafn hennar ber merki um, af ákveðnum pólitískum sjónarmiðum, þá gilti ekki hið sama um svonefnda bankamálanefnd. Hún var mjög blönduð að pólitískri samsetningu og nægir að nefna nefndarmennina því til vitnis, en þeir voru Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, sem var formaður n., ármann Jakobsson bankastjóri, Björgvin Vilmundarson bankastjóri, Guðmundur Hjartarson, sem síðar varð seðlabankastjóri, Jóhannes Elíasson bankastjóri og Magnús Jónsson bankastjóri. En ritari n. var Sveinn Jónsson forstöðumaður bankaeftirlits Seðlabankans. Það er fljótsagt, að n. þessi var skipuð mönnum úr öllum hinum pólitísku flokkum og menn áttu því von á að hin róttæka niðurstaða, sem n. komst að, mundi eiga greiðan gang gegnum hv. Alþ., þar sem bersýnilega væri einnig um mikið nauðsynjamál að ræða.
Það fór samt svo að þetta frv. sá aldrei dagsins ljós hér í þinginu sem stjórnarfrv. Ákveðnir aðilar innan þáv. ríkisstj. komu í veg fyrir það, að frv. fengi byr sem stjórnarfrv., og ég held að ekki sé kveðið upp úr með neitt leyndarmál þó að það sé upplýst, að þar áttu ráðh. Framsfl. fyrst og fremst hlut að máli.
Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að ef Framsfl. hefði staðið að framgangi þessa máls á sínum tíma, þá hefði það náð fram að ganga. Allar aðstæður voru fyrir hendi til þess að svo yrði. Og einmitt þess vegna verður það að segjast eins og er, að þessi íhaldssemi Framsfl., sem varð stefnu bankamálanefndar að falli, olli mörgum miklum vonbrigðum.
Hæstv. viðskrh. ræddi um það áðan, að hv. fjh.- og viðskn. gæti tekið til athugunar hvort kæmi til greina að sameina einhverja banka og hver væri hagkvæmnin sem því fylgdi. Auðvitað veit hann jafnvel og aðrir, að úr því að stjórnarfrv. fylgir ekki þeirri stefnu að bankar skuli sameinaðir, þá er lítil von til þess að fjh.- og viðskn. þingsins taki það upp að eigin frumkvæði. Þar yrði um svo veigamikla breytingu að ræða, að segja mætti að þar yrði nm nýtt frv. að ræða.
Nú er það að vísu svo, að hæstv. ráðh. viðurkennir að skipting bankakerfisins eftir atvinnuvegum sé úrelt. Hann viðurkennir að eðlilegast sé að bankarnir láni til allra atvinnuvega jafnt, eða þannig skildi ég hans orð. Og hann taldi bað frv. því, sem hér hefur verið lagt fram, til gildis, að í því væri ekki lengur nm að ræða tengingu við tilteknar atvinnugreinar hvað einstaka banka snertir. Þetta kemur reyndar líka skýrt fram í grg. frv., þar sem tekið er fram að fallið sé með þessu frv. frá lögfestingu sérhæfingar varðandi tilteknar atvinnugreinar.
Ef menn geta komist að þeirri niðurstöðu, að ekki sé ástæða til þess arð einn hanki tengist einum atvinnuvegi fremur en öðrum, hvers vegna í ósköpunum á þá svona langt í land að menn fallist á að eðlilegast sé að steypa þessum bönkum að einhverju leyti saman, frekar en að hafa kerfið svo margfalt sem raun ber vitni.
Mér fannst það satt að segja harla kynleg ábending, sem fram kom í máli hæstv. ráðh., að ef Allt. kæmist að þeirri niðurstöðu, að rétt væri að sameina ríkisbankara, þá væri óæskilegt að það væri gert með valdboði. Mér skildist að Alþ. ætti að fara einhvers konar samningaleiðir í þessum efnum. Hann virtist líta svo á að bankarnir, sem ríkið hefur sett á fót og ríkið á að öllu leyti og stjórnar að öllu leyti, séu orðnir þvílíkt ríki í ríkinu að stjórnvöld verði að koma skríðandi á fjórum fótum til stjórnenda hvers banka um sig og biðja þá í guðanna bænum að fallast á það, að um sameiningu á bönkum verði að ræða. Hugsunarhátt af þessu tagi skil ég alls ekki. Auðvitað liggur það beint við, ef Alþ. telur rétt að um sameiningu verði að ræða í bankakerfinu, þá ákveði Alþ. með valdboði að svo skuli gert og spyrji ekki einn eða neinn um það. Það er einfært um að taka þá ákvörðun sjálft sem æðsti ákvörðunaraðili.
Ég ætla ekki að fara að ræða í smáatriðum um efni þess frv. sem hér hefur verið lagt fram. Ég viðurkenni fúslega að ýmis ákvæði þess af hinu smærra tagi horfa til batnaðar og eiga fullan rétt á sér, enda eru þau flest tind til úr hinu gamla bankamálafrv. En ég verð að láta það koma fram strax við 1. umr. málsins, að ég tel að þetta frv. sé alls ófullnægjandi miðað við þær þarfir sem við blasa. Þjóðin hefur þörf á því að létta að einhverju leyti af sér því fargi sem allt of stórt og viðamikið bankakerfi felur í sér. Hún hefur þörf fyrir að fela sig eftir þeim leiðum, sem bankamálanefnd henti á á sínum tíma, og fækka bönkum. Það er því afar hæpinn ávinningur, sem í því er fólginn að samþykkja nú frv., sem felur í sér einhverjar takmarkaðar lagfæringar á núverandi kerfi, án þess að bera með sér þá meginbreytingu sem þörf er á. Þá er nefnilega verið að skilja eftir það sem mestu máli skiptir og þar með stuðla að því að það liggi eftir, E.t.v. um langt skeið.
Bankamálafrv., sem samið var að frumkvæði gömlu bankamálanefndarinnar, var flutt á sínum tíma af þáv. viðskrh., Lúðvík Jósepssyni, núv. formanni Alþb., og hann hefur endurflutt þetta frv. í Nd. til þess að undirstrika vilja okkar Alþb.-manna til róttæks uppskurðar á bankakerfinu. Það frv., sem hæstv. viðskrh. hefur lagt fram, er hins vegar sama frv. sem hefur bara gengið í gegnum svo feiknalega hreinsun að því má helst líkja við þegar barninu er hent út með baðvatninu. Það vantar kjarna málsins, hann er horfinn úr frv.
Ég tel að flutningur þessa frv. nú sé hálfgerð yfirbót af hálfu hæstv. ráðh., sem telur að rétt sé að veifa einhverjum tillögum til úrbóta þannig að ekki sé hægt að segja að hann vilji ekki eitthvað hreyfa við þessum málum. En hann er bersýnilega að undirstrika þá stefnu með flutningi þessa frv., sem flokkur hans fylgdi í tíð vinstri stjórnarinnar, að engar meiri háttar breytingar, sem máli skipta. eigi að eiga sér stað í hankakerfinu. Hann dró reyndar í efa á einkar skýran hátt, að um yrði að ræða sparnað í bankakerfinu við fækkun banka, og virtist ætlast til þess, að þeir, sem væru á annarri skoðun, gætu lagt fram einhverjar skjallegar sannanir máli sínu til stuðnings. Auðvitað þarf ekki í neitt annað en heilbrigða skynsemi til að sjá það og skilja, að bankakerfi, sem byggist á 3–4 aðalbönkum í staðinn fyrir 7 banka, á að geta orðið talsvert miklu einfaldara og ódýrara en það sem fyrir er. Sparnaðurinn mundi m.a. liggja í því, að ekki yrði um að ræða í fámennum byggðarlögum, smáum byggðarlögum, þrjú, fjögur eða allt upp í sjö bankaútibú, eins og nú eru til dæmi um. Það segir sig sjálft og þarf reyndar ekki neinna frekari skýringa við, að ef um yrði að ræða sameiningu útibúa á hinum ýmsu stöðum á landinu samfara sameiningu banka, þá yrði vafalaust unnt að fækka starfsmönnum verulega á bankakerfinu. Það er auðvitað ekki nein tilviljun, að stærri hluti af vinnandi fólki hér á landi er bundinn í bankakerfinu en í flestum nálægum löndum, svo sem auðvelt er að sýna fram á.
Ég vil svo ljúka þessum orðum mínum með því aðeins að minna á að uppstokkun þessara mála, líkt og uppstokkun í olíudreifingarkerfinu eða uppstokkun í tryggingakerfinu eða uppstokkun í innflutningskerfi landsmanna, uppstokkun í yfirbyggingunni almennt, í bákninu, sem stundum er svo nefnt, mundi að sjálfsögðu hafa í för með sér að meira vinnuafl yrði aflögu í þágu undirstöðuatvinnuvega þjóðarinnar. Það er einmitt það sem við þurfum hvað mest á að halda um þessar mundir, að báknið, milliliðakerfið og ríkiskerfið verði ódýrara en það er í dag, en framleiðslan að sama skapi meiri.