08.02.1978
Efri deild: 56. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2042 í B-deild Alþingistíðinda. (1660)
166. mál, viðskiptabankar
Albert Guðmundsson:
Herra forseti, Það er stutt aths. vegna ummæla hæstv. utanrrh, Ég gat ekki verið honum alveg sammála um það, að fjölgun gjaldeyrisafgreiðslna, þótt þær séu hlið við hlið, sé ekki nauðsynleg. Aðalbankar eru yfirleitt í sama bankahverfi hvar sem er í veröldinni, og þó að bankar séu hlið við hlið hér í Reykjavík, þá er ástæðulaust að nota það til að gera starfsemina í heild tortryggilega. En viðskiptavinir Búnaðarbanka Íslands hafa alveg jafnmikla þörf fyrir alla þjónustu á einum stað eins og viðskiptavinir Landsbankans eða Útvegsbankans, í staðinn fyrir að þvælast á milli tveggja eða jafnvel þriggja stofnana.
Ég vil taka undir það með hæstv. ráðh„ að það var mikil bót þegar ríkisbankarnir fengu samkeppni frá einkabönkum, og ég styð það að sú samkeppni verði aukin og þessi þáttur viðskipta verði frjáls engu síður en annað. Það verður þá hægt að stofna fleiri banka, ef með þarf, til þess að veita aðhald og fá aukna þjónustu út úr ríkisbönkunum, sem mér skilst af ummælum hæstv. ráðh. að hafi aukist og batnað við það að einkabankar komu í samkeppni við þá. Ef það er rétt, þá hlýtur ráðh. að vera á þeirri línu, að það ætti að fjölga bönkum, en ekki, eins og hann sagði, að þeim ætti að fækka.