08.02.1978
Neðri deild: 51. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2049 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 7. febr. 1978.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr, laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Gunnar Sveinsson kaupfélagsstjóri í Keflavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Jón Skaftason,
4. þm. Reykn.
Til forseta Nd.“
Gunnar Sveinsson hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili, og ég leyfi mér að bjóða hann velkominn til starfa hér í deildinni.
Of skammt var liðið frá útbýtingu frv. — Afbrigði samþ. með 21 shlj. atkv.