08.02.1978
Neðri deild: 51. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2053 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)
175. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Lúðvík Jósepason:
Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér er nú lagt fram af hálfu ríkisstj. um sérstakar ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um breytingar á gengi íslenskrar krónu, er í rauninni aðeins formleg tilkynning um þá gengisbreytingu sem kunnugt hefur verið um nú í langan tíma og er í beinu framhaldi af stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum að undanförnu. Þetta frv, út af fyrir sig gefur ekki tilefni til langra umr. eða umr. á almennum grundvelli um efnahagsmálin og stöðu atvinnuvega. Gert er ráð fyrir því, að þessu frv. fylgi annað frv., sem lagt verði fram á morgun, um svonefndar hliðarráðstafanir. Ég geri ráð fyrir því, að þá komi þetta mál upp sem heild og verði rætt á miklu breiðari grundvelli, enda sýndist mér að hæstv. forsrh. gerði ráð fyrir að þetta yrði á þessa leið, miðað við þá ræðu sem hann flutti fyrir þessu frv. Ákvörðunin um formlega gengislækkun, sem felst í þessu frv., gefur þó tilefni til þess að ræða hér nokkru nánar um einn þátt þessara mála.
Núv. hæstv. ríkisstj. hefur beitt gengisákvörðunarvopninu meira en nokkur önnur stjórn nú í a.m.k. langan tíma. Ég hygg að það muni allir eftir því, að þegar hún tók við völdum var það hennar fyrsta verk á fyrsta starfsdegi stjórnarinnar að ákveða formlega gengislækkun, þ.e.a.s. 1. sept. 1974. Síðan liðu eitthvað rúmlega fimm mánuðir eða svo og þá kom önnur formleg gengislækkun í febr. 1975. Og nú kemur þriðja formlega gengislækkunin, en auk þess hefur svo verið í gangi allan valdatíma stjórnarinnar gengislækkun í formi gengissigs. Þegar tillit hefur verið tekið til þessarar nýju gengislækkunar, sem nú er verið að ákveða, jafngilda þessar hreyfingar á gengi krónunnar í stjórnartíð núv. ríkisstj. hvorki meira né minna en því, að verð Bandaríkjadollars gagnvart íslenskri krónu hefur á þessum tíma hækkað um 156.7%. Dollarinn hefur farið á starfstíma núv. ríkisstj. úr rétt 98 kr. og upp í 253.10 kr. Það þarf auðvitað ekki að segja nokkrum manni það, að gengisbreyting af þessari stærð hefur auðvitað haft sín gífurlega miklu áhrif á alla verðlagsþróun í landinu. Þessi breyting á verði erlends gjaldeyris gagnvart íslensku krónunni þýðir það einfaldlega, að á þessum tíma hafa t.d. vörur, sem keyptar eru til landsins í dollurum, hækkað um 156%. Þessi gengislækkun íslensku krónunnar er þó enn þá meiri á þessum tíma gagnvart ýmsum öðrum gjaldmiðlum.
Þarna hafa menn svart á hvítu eina meginástæðuna fyrir þeirri verðlagsþróun sem verið hefur í landinu í tíð þessarar ríkisstj. Það er auðvitað hreinn barnaskapur að tala þannig um þessi mál, að menn óskapist út í verðbólgu og hækkandi verðlag, en framkvæmi jafnframt ráðstafanir, sem beinlínis leiða af sér verðhækkanir, og það í þetta ríkum mæli, enda hefur þetta auðvitað komið skýrt fram, því að það er ekki aðeins gengið sem hefur breyst og verðlag í landinu sem afleiðing af því, heldur hefur hin almenna verðlagsvísitala í landinu sagt til sín. Þetta hefur komið fram í henni og annarri almennri verðlagsþróun hér innanlands.
Þegar núv. hæstv. ríkisstj. tók við völdum í ágústmánuði 1974 var framleiðsluvísitalan 297 stig. Nú 1. þ.m. 1978 er þessi sama framfærsluvísitala ekki lengur 297 stig, heldur 934 stig. Hin almenna framfærsluvísitala hefur hækkað á þessum tíma um 214%. Það táknar að verðlag hér hefur meira en þrefaldast. Þessi breyting hefur sem sagt orðið á rétt rúmlega þremur árum eða á 40 mánuðum — þremur árum og 4 mánuðum betur. Svo hafa menn brugðist þannig við hinum mikla vanda að setja niður stóra n., verðbólgunefnd, og biðja hana um að athuga hvað eiginlega valdi því, að verðlag skuli hafa hækkað svona miklu meira á Íslandi núna síðustu árin en í öðrum löndum, rétt eins og þeir, sem hafa verið að taka þessar ákvarðanir, viti ekkert hvað þetta þýðir. Ég tel að sú ákvörðun, sem nú hefur verið tekin, sé í beinu framhaldi af allri efnahagsmálastefnu núv. ríkisstj.
Ég sagði í upphafi míns máls, að hér væri fyrst og fremst um formlega tilkynningu að ræða. Ríkisstj. var búin að taka ákvörðun um þessa gengisfellingarleið fyrir löngu. Þetta kom einna skýrast fram við afgreiðslu fjárl. fyrir yfirstandandi ár í desembermánuði s.l. Þá var upplýst að forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar hefði gefið upplýsingar um það í fjvn. Alþ., að við útreikning hans á tekjum og gjöldum ríkisins á árinu 1978 hafði hann tekið með inn í sitt dæmi gengissig sem næmi 1.5% á mánuði á árinu 1978 eða sem næmi 18% gengissigi á öllu árinu. Þetta voru upplýsingar, sem lágu strax fyrir um miðjan des. Hæstv. ríkisstj. hafði auðvitað þá mótað þá stefnu, að ætlunin væri að halda áfram gengislækkunarleiðinni, en á því stigi málsins höfðu menn reiknað með því að farin yrði gengissigsleiðin. En svo hefur það gerst nú síðustu daga, að ríkisstj. breytir því að fara eftir gengissigsleið, sem hún hafði þó farið eftir með býsna miklum hraða að undanförnu, og ákveður að taka nokkuð stórt skref í einu lagi. Og það er tilkynningin um það sem hér liggur fyrir, tilkynning um að nú skuli gengi íslensku krónunnar lækkað í einu skrefi um 13%, en það þýðir að verð á erlendum gjaldeyri hækkar um 11.9%. Með þessu hygg ég að láti mjög nærri að verð á erlendum gjaldeyri hafi hækkað, þegar þessi gengislækkun er komin fram, um rétt 19% frá áramótum að telja.
Ég tók eftir því, að hæstv. forsrh. sagði í sínu máli að nú væri ætlun ríkisstj. að hverfa frá þeirri stefnu sem farin hefur verið að undanförnu í gengisskráningarmálum, hverfa frá gengissigsaðferðinni, nú áformaði ríkisstj. að láta þetta gengisfall duga og þá gengisskráninguna væntanlega verða stöðuga á eftir. En hvaða maður í landinu skyldi nú trúa yfirlýsingu eins og þessari eftir að hafa það fyrir augunum sem gerst hefur? Hver skyldi trúa því, að það yrði staðið við það að vandinn, sem upp kynni að koma, yrði ekki leystur með gengislækkunaraðferðinni? Ég er ekki í nokkrum vafa um það fyrir mitt leyti, að það trúir því enginn maður. Það mun halda áfram. Vegna þeirrar stefnu, sem farin hefur verið af hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum, mun verða ríkjandi strax eftir þessa gengislækkun sama viðhorfið og áður. Kaupsýslumenn munu segja yfir búðarborðið hjá sér: Það er betra að kaupa strax, en ekki seinna, því það mun verða dýrara seinna. — Og menn munu trúa því og menn munu halda áfram að ráðstafa sínum íslensku peningum, ef þeir geta komið því við með sæmilegum hætti, vegna þess að enginn trúir á það, að núv. hæstv. ríkisstj. ætli sér að standa við það að halda gengisskráningunni fastri. Hún hefur haft allt annan boðskap að flytja og hún hagar allri sinni starfsemi í efnahagsmálum öfugt við það sem þarf að gera, ef ætlunin væri að standa við gengisskráninguna.
Það er svo atriði út af fyrir sig í þessum málum, sá beinlínis broslegi leikur sem hæstv. ríkisstj. hefur haft hér í frammi í sambandi við þessa gengislækkun að því leyti til sem svonefndri verðbólgunefnd er blandað inn í málið. Fréttatilkynningar hafa verið að koma með vissu millibili nú að undanförnu, að verðbólgunefnd væri komin að því að skila áliti, hún væri með tillögur, og beinlínis að ríkisstj. biði eftir því að leggja fyrir Alþ. frv. um þessi mál þar til verðbólgunefnd væri búin að skila af sér. Þó að mjög væri ýtt á eftir þeim sem réðu ferð í verðbólgunefndinni, að n. skilaði formlega af sér svo að ríkisstj. gæti hengt eitthvað af þessari skömm á þá n., þá fór það nú svo, að n. skilaði ekki formlega af sér fyrr en um hádegi í dag, og þá var búið að halda fund í bankaráði Seðlabankans þegar í gærdag og ákveða þar þá gengislækkun sem hér er um að ræða. Auðvitað var ríkisstj. einnig búin að prenta frv. sem hér liggur fyrir. Hún gerði það ekki frá hádegi og fram að þeim tíma að frv. kom hér á borðið, heldur er aðeins látið að því liggja, að allt þetta sé komið frá vissum sérfræðingum, sem bent hafi á þessa leið.
Ég ætla mér ekki við þessa umr. að fara ítarlega út í störf verðbólgunefndar eða það sem þar kom fram, en vil þó aðeins segja það í þessu sambandi, að sú n. klofnaði auðvitað eins hraustlega og ein nefnd yfirleitt getur klofnað, nefnd, sem er byggð upp á þann hátt sem sú nefnd var byggð upp. Stærsti hópurinn voru 6 aðilar í nefndinni, þ.e.a.s. 4 beinlínis fulltrúar stjórnarflokkanna og síðan tveir aðalráðunautar ríkisstj. í efnahagsmálum, tveir embættismenn. Þessi hópur hélt saman. Síðan var annar hópur í n. sem skilaði séráliti og vildi ekki standa að heildaráliti n. Þar voru 5 fulltrúar, þ.e.a.s. frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæjar og 3 fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna. Þar að auki komu sérstakar bókanir þarna: fulltrúa frá Vinnuveitendasambandi Íslands og einnig fulltrúa frá Stéttarsambandi bænda.
Ég held að hæstv. ríkisstj. ætti ekki að halda áfram þessum broslega leik sínum í sambandi við þetta mál, að hér sé um að ræða einhverja nýja stefnu sem byggist á afstöðu verðbólgunefndar í þessum efnum. Hér er um að ræða beint framhald af gengislækkunarstefnu núv. ríkisstj., af verðhækkunarstefnu hennar og svo því, að hún svífst ekki fremur nú en áður að rifta nýgerðum kaupgjaldssamningum. Það er það sem þarna liggur á bak við, að nú er ákveðið að taka skrefið í einu lagi, gera hér formlega gengislækkun. Á bak við það liggur sú ákvörðun, að rifta skuli nýgerðum kaupgjaldssamningum. Það er svo mál út af fyrir sig, að ríkisstj. skuli telja nauðsynlegt, eins og nú er ástatt að standa þannig að málum að koma með till. um að rifta kaupgjaldssamningum við opinbera starfsmenn, sem hún hefur sjálf gert, sem hún hefur sjálf undirskrifað fyrir þremur mánuðum, og jafnframt kaupgjaldssamningum sem verkalýðsfélögin í landinu og samtök atvinurekenda hafa líka gert og undirskrifað og hvorugur þeirra aðila hefur borið sig að segja upp eða losa um, — ríkisstj. skuli sjá sérstaka ástæðu til að gera þær ráðstafanir í efnahagsmálum sem slíta í sundur þessa samninga sem eru rétt rúmlega 7 mánaða gamlir. Ég tel að í þeim efnum sé verið að stíga hér mikið ógæfuspor sem ekki muni leysa neinn vanda, heldur magna vandamálið í sambandi við stöðu okkar efnahagsmála frá því sem verið hefur.
Auðvitað liggur ljóst fyrir að efnahagsmálastefna núv. ríkisstj. er gersamlega botnlaus. Það getur í rauninni enginn maður haldið því fram í alvöru, að það hafi verið nokkurt einasta vit í þeirri efnahagsmálastefnu sem hér hefur verið ríkjandi á undanförnum árum, þegar menn hugsa til þess, að síðustu ár, t.d. árið 1976 og árið 1977, voru mjög hagstæð ár með vaxandi þjóðarframleiðslu og stórvaxandi þjóðartekjum og megnið af þessum tíma var þó í gildi beinlínis kjaraskerðing. Það var ekki hægt að draga kaupmátt launa inn í sem neina orsök fyrir þeim vanda sem menn töldu að væri fyrir hendi. En þrátt fyrir góðæri þarf nú að grípa til ráðstafana af þessu tagi til viðbótar við alla gengislækkunarstefnuna sem í gildi hefur verið. Það verður ekki annað sagt en þetta ætti að vera nokkuð ljóst ölaum sem um þetta hugsa, að það hafi ekki skipt máli fyrir núv. hæstv. ríkisstj. hvort um væri að ræða ástand þar sem launin hafa beinlínis verið að lækka að kaupmætti og ríkjandi hefur verið góðæri. Útkoman hefur eigi að síður orðið þessi og þessi líka hroðalega verðbólga og þetta látlausa gengissig og gengislækkun. Ég vil segja, að það er næstum að segja grátbroslegt að heyra það og sjá hjá hæstv. forsrh. eftir allt það sem þarna er á undan gengið, að þá skuli hann koma hér og segja: Ég ætla aldrei að gera þetta aftur, nú er ég hættur. Nú á ekki að lækka gengið meira. — Það er blátt áfram grátbroslegt. Þessu trúir auðvitað enginn maður, nema þá að það sé breytt um stefnu í grundvallaratriðum í okkar efnahagsmálum.
Ég vil lýsa því yfir, að við Alþb.-menn erum algerlega á móti því frv. sem hér er um að ræða. Við teljum það hluta af miklu stærra og meira máli sem ekki greiðir úr flækjunni, heldur eykur við flækjuna.
Ég ætla þá að víkja hér örfáum orðum að efni frv. sjálfs, þ.e.a.s. þeim ákvörðunum sem felast í þessu frv. um myndun sérstaks gengismunarsjóðs og ráðstöfun á ákveðnu fjármagni sem á að renna í sjóðinn.
Það er gert ráð fyrir að birgðir af útflutningsvörum séu til í landinn um þessar mundir, sem geti komið undir ákvæði þessa frv., sem nemi 18 milljörðum kr., og þá er ekki reiknað með birgðum af skreið og saltfiski, sem selt hefur verið úr landi og er farið úr landi, en hefur ekki verið greitt og þykir nokkuð vafasamt um greiðsluna á. Ég sé ekki annað, ef fara á eftir þessum tölum sem hér liggja fyrir, en þá ættu að falla til samkv. þessu í gengismunarsjóð 2.7 milljarðar kr. Það er sú gengisbreyting sem hér er um að ræða. Hæstv. forsrh. gerði hér grein fyrir 2. 1 milljarði, og reyndar 174 millj. þar til viðbótar sem eiga að renna í ríkissjóð. Einnig getur komið nokkur skerðing á þessa heildarfjárhæð vegna kostnaðar sem ber að greiða þeim, sem eiga þessar birgðir, en lenda í auknum kostnaði eftir að gengislækkunin hefur gengið yfir. En hvort sem það reynist rétt, að það, sem á að renna í gengismunarsjóð samkv. þessu frv., verði 2100 milljónir eða 2.1 milljarður eða nokkru hærri fjárhæð, þá finnst mér rétt að skoða það nokkru nánar, hvernig ætlað er að ráðstafa þessum fjármunum.
Í fyrsta lagi er lagt til um það bil 1300 milljónir eða 1.3 milljarðar kr. renni í Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins. Ég tel að till. í þessa átt hefði þurft að fylgja grg. um það, hver væri staða þessa sjóðs, þar sem gert er ráð fyrir að þetta fé renni í sjóðinn, og auðvitað hefði átt að fylgja hér með sundurliðun á þeim birgðum sem fyrir liggja, a.m.k. að því leyti að gefið hefði hugmynd um hve miklu fjármagni er samkv. þessu ætlað að renna í hverja deild sjóðsins um sig. Ég geri ráð fyrir að till. um að leggja í þennan sjóð þetta mikið fjármagn byggist að einhverju leyti á því, að einstakar deildir þessa sjóðs séu búnar að taka á sig fjárskuldbindingar sem þær geti ekki að fullu leyti staðið við og ríkissjóður hefur verið í ábyrgð fyrir, og þá á það að sjálfsögðu að koma fram og kemur væntanlega fram í þeirri n. sem fjallar um málið, eða hvort hér er beinlínis stefnt að því að taka þessa fjárhæð úr umferð og geyma hana í Verðjöfnunarsjóði.
Þá er einnig gert ráð fyrir því í frv., að greiddar verði í Stofnfjársjóð fiskiskipa um 450 millj. kr., vegna þess að að sjálfsögðu hækka nú afborganir og reyndar vaxtagreiðslur af stofnlánum þeirra fiskiskipa þar sem skuldirnar eru enn í erlendum gjaldeyri, en það á sér stað í mjög mörgum tilfellum. Hér er því um hliðstæða ráðstöfun að ræða og gerð hefur verið áður. En ég vil vekja athygli á því, að nú er orðin talsverð breyting í þessum efnum frá því sem áður hefur verið, að nú er einnig orðið um það að ræða, að skip, sem smíðuð hafa verið innanlands og hafa að forminu til lán sín innanlands, eru með stóran hluta af lánum sínum einnig gengistryggðan. Þar er um nokkuð annað form að ræða heldur en þar sem kaupandi skipsins stóð beint sem skuldari fyrir þeirri fjárhæð sem fengin var að láni með skipinu frá erlendri skipasmíðastöð. Mér sýnist að það þurfi einnig að gæta að því, að þessu fjármagni verði deilt út á sanngjarnan hátt, þannig að allir aðilar, sem hér eiga hlut að máli og svipað stendur á fyrir, fái hluta af þessu fjármagni.
Þá er gert ráð fyrir því samkv. frv., að til geti fallið í gengismunarsjóð í kringum 350 millj. kr. sem verja skuli til hagræðingar í sjávarútvegi og þá — eftir því sem ég skildi það — fyrst og fremst í fiskiðnaði, og þessi fjárhæð, 350 millj. kr., skuli koma til viðbótar áður tilkynntri fjárhæð upp á um 500 millj. kr, sem ætlað er að fá úr Byggðasjóði. Í frv. er þetta orðað á þann veg, að nota skuli þetta fjármagn„ til þess að greiða fyrir hagræðingu í fiskiðnaði“. Með því er auðvitað ekkert sagt um hvort á að veita þetta fjármagn sem styrki eða lán, og það skiptir auðvitað allmiklu máli að fá upplýsingar um það, hver sé ætlunin í þessum efnum. Ég tel að það sé mjög brýnt verkefni að reyna að koma á meiri hagræðingu í fiskiðnaði en nú er. Ég hef hins vegar alltaf gert ráð fyrir því, að sú hagræðing færi fram hjá þeim, sem ekki hafa komist yfir vissar framkvæmdir í þessum efnum enn þá, með svipuðum hætti og hjá þeim, sem eru þegar búnir að koma þessari hagræðingu á hjá sér, þeir, sem eftir eru, yrðu að taka fé að láni til þess að koma þessum umbótum á hjá sér. En ég reikna yfirleitt ekki með því, að farið yrði inn á þá braut að veita hér styrki í stórum stíl til þeirra sem þarna hafa dregist aftur úr af ýmsum ástæðum. Ég vil segja það, að það er alls ekki í öllum tilfellum af fjárhagslegum ástæðum einum sem þessir aðilar hafa dregist aftur úr. En þetta atriði verður að sjálfsögðu einnig til athugunar hjá þeirri n. sem fær málið til meðferðar, og upplýsingar geta þá komið þar fram um hvernig ætlað er að ráðstafa þessum fjármunum. Ég tók þó eftir að hæstv. forsrh. sagði að hann ætlaðist til að þetta orðalag um að veita þetta fjármagn til hagræðingar ætti að túlka mjög rúmt, og minntist þá á að nota mætti þetta fjármagn til þess að rétta við lausafjárstöðu fyrirtækja. Ég vil segja það, að ég legg á það mjög mikla áherslu fyrir mitt leyti, að þeir fjármunir, sem fást í þessu skyni, verði notaðir til að koma á hagræðingu í þessum rekstri, en ekki fyrst og fremst til þess að greiða upp skuldir fyrirtækjanna við bankana eða aðra slíka aðila eða standa undir beinum hallarekstri sem orðinn er. Ég tel að það þyrfti að gera aðrar ráðstafanir, ef svo er komið illa fyrir einhverjum fyrirtækjum að þau þurfi beinlínis á styrkveitingum að halda og verði ekki fær um það að borga sín lán, — þá eigi það að koma fram með öðrum hætti en hér er gert ráð fyrir. Þetta fjármagn þarf að nýtast til hagræðingar, til þess að koma framleiðslu þessara fyrirtækja á betra stig en nú er.
Ég skal svo ekki hafa um þetta mál fleiri orð við 1. umr. Málið fer til n. sem ég á sæti í og gefst því tækifæri til að ræða þetta mál nánar á morgun. En ég vil endurtaka það, sem ég hef sagt áður, að við Alþb: menn erum algerlega á móti þessu frv., eins og við erum á móti stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum, og þetta frv. er aðeins einn liður í þeirri stefnu. Við tökum undir aðvörunarorð stéttarsamtakanna í landinu, að vara hæstv. ríkisstj. við þeirri alröngu stefnu hennar að ætla sér að fara að rjúfa gerða kjarasamninga, nýgerða kjarasamninga, og efna til nýrra átaka á vinnumarkaði sem án efa yrðu afleiðingin af slíku. Við erum búnir að búa við slíka stefnu af hálfu núv. ríkisstj. allt of lengi með allt of hroðalegum afleiðingum í okkar efnahagsmálum. Það er kominn tími til að breyta í þessum efnum um stefnu.