09.02.1978
Neðri deild: 52. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

175. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Frsm. minni hl. (Lúðvík Jósepsson):

Hæstv. forseti. Eins og fram kemur á þskj, 348, þá skipum við minni hl. fjh: og viðskn. í þessu máli, ég og hv. 9. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason.

Í þessu nál. okkar kemur fram, að við erum andvígir þessu frv., eins og við höfðum í rauninni þegar lýst yfir við 1. umr. málsins, og gerð er frekari grein fyrir þessari afstöðu okkar í nál.

Ég vil fyrst víkja með örfáum orðum að vissum beinum efnisatriðum þessa frv., áður en ég ræði önnur atriði sem snerta efnahagsmál almennt, en eru þó í svo nánum tengslum við þetta frv., að ég sé nokkra ástæðu til að víkja að þeim við þetta tækifæri.

Ég minntist á það við 1. umr. um frv., að mér hefði fundist eðlilegt að það hefði legið hér fyrir glögg skilagrein um það, hvaða birgðir útflutningsvöru það væru sem gert er ráð fyrir að falli undir ákvæði þessara laga. Í grg. kemur fram, að reiknað er með að þessar birgðir muni nema í útflutningsverðlagi í kringum 18 milljarða kr., og er þá ekki talið með í þessari heildarfjárhæð það verðmæti, sem liggur í skreiðarbirgðum, og ekki heldur það verðmæti, sem liggur í þegar útfluttum saltfiski sem enn er ógreiddur. En ekki hefur unnist tími til þess að leggja hér fram skýrslu um sundurliðun á þessum birgðum sem ég veit þó að liggur fyrir. Ég tel að þetta sé mjög miður, því að það hefði verið eðlilegt að það hefði komið hér fram, hvað er mikið af útflutningsbirgðum sem undir ákvæði laganna eiga að koma. Ég viðurkenni að þeim hluta birgðanna, sem flokkast undir landbúnaðarafurðir, það skiptir í rauninni ekki máli að gera frekari grein fyrir þeim, því þar er verðlagningarmálum í öllum aðalatriðum háttað þannig, að það hefur lítil áhrif á landbúnaðinn í heild, hvort þetta gjald er tekið og sett í sérstakan sjóð og síðan afhent landbúnaðinum eða hvort hið nýja gengi verður reiknað strax á allar útfluttar landbúnaðarafurðir.

En iðnaðinn skiptir þetta talsverðu máli, og ég tel að það sé í rauninni eðlilegt varðandi þær iðnaðarvörur, sem liggja í landinu og koma til með að falla undir þessi lagaákvæði, að það kæmi fram hvernig þessar birgðir skiptast, hvað hér er um verulega fjárhæð að ræða, því að á meðan upplýsingar liggja ekki fyrir um þetta vita þm. í rauninni harla lítið hvað þeir eru að samþ. í þessum efnum. Þar gildir allt annað skipulag varðandi uppgjör á útflutningsvörum, og hér gæti orðið um verulega mismunun að ræða á milli einstakra fyrirtækja og einstakra greina.

Varðandi aftur birgðir sjávarafurða, þá hefði þetta einnig verið æskilegt, vegna þess að ég tel að það eigi gjarnan að koma fram hvaða millifærslu menn stefna raunverulega að með svona gengismunarsjóði, því að eðli hans er að taka til sín tiltekna fjárhæð og miðla henni svo út til annarra. Það á að koma skýrt fram, hvaða greinar það eru sem aðallega koma til með að leggja fé á þennan óbeina þátt í þennan sjóð og hvernig svo á að ráðstafa þessum fjármunum. Hér var gerð minni háttar grein fyrir þessu. Ég tel að sú grein, sem var gerð fyrir þessu hér af hæstv. sjútvrh., sé fullnægjandi í vissum atriðum, en alveg ófullnægjandi í öðrum.

Mér er t.d. ekki enn ljóst hvort það fjármagn, sem ætlað er að renni samkv. þessum ákvæðum í freðfiskdeild Verðjöfnunarsjóðs, á að renna til raunverulegrar skuldagreiðslu deildarinnar, sem orðin er, eða hvort hér er verið að gera ráð fyrir að safna saman fjármunum til geymslu fyrir þessa deild til notkunar síðar.

Í rauninni þýðir lítið að tefja hér umr. með því að ræða um þetta, en ég endurtek það sem ég hef í rauninni sagt æðioft áður, að ég tel að grg. af þessu tagi eigi að fylgja þýðingarmiklum frv., en eigi ekki að vera óljóst hvað á bak við liggur. Ég verð einnig að segja það, að mér þykir mjög óviðkunnanleg aðferð að gera ráð fyrir því, að úr þessum gengismunarsjóði eigi að verja 350 millj. kr, til fyrirgreiðslu við fiskiðnaðinn í landinu til viðbótar við 500 millj. kr., sem áður hefur verið tilkynnt um. í sama markmiði. Þarna er sem sagt um að ræða 850 millj. kr. a.m.k. sem eiga að ganga til þess að greiða fyrir hagræðingu í fiskiðnaði, og síðan er aðeins sagt að sjútvrn. setji reglugerð um það, hvernig með þetta fé skuli fara, Ég vil láta það koma alveg skýrt fram, að að mínum dómi eru þetta óvenjuleg vinnubrögð sem er farið að taka hér upp. Ég á eiginlega von á því, að framhaldið verði það, að við förum að sjá fjárlög hér eftir nokkur ár þar sem sagt verður í einum lið: 20 milljarðar til þessa og þeim verður úthlutað af viðkomandi ráðh.

Þetta eru engin venjuleg vinnubrögð. Þegar um er að ræða útdeilingu á allverulega háum fjárhæðum, þá er eðlilegt að annað tveggja sé gert, að þá sé gerð skýr grein fyrir því, hvernig ráðstafa eigi þessum fjármunum í aðalatriðum eða eftir hvaða meginreglum, eða þá að Alþ., sjálft fjárveitingavaldið, ákveði um útdeilingu fjárins.

Ég vék aðeins að einum lið í sambandi við ráðstöfun á þessum fjármunum, og hann snerti aðeins það, hvort hér ætti að vera um að ræða lánveitingar eða styrkveitingar. Ég tel að ég hafi ekki fengið neitt ákveðið svar við þessari spurningu. Það getur eflaust um hvort tveggja orðið að ræða. Þó kom fram hjá hæstv. sjútvrh., að hann væri á þeirri skoðun, þeirri sömu og ég hafði lýst, að hann teldi eðlilegra að hér væri um að ræða lánveitingar með hagstæðum lánakjörum, en ekki um styrkveitingar að ræða. En allt er þetta gjörsamlega opið eins og frá því verður gengið samkv, þessu frv.

Ég spurði einnig um það, hvort ekki væri ætlunin að þessir fjármunir gengju örugglega til hagræðingar í rekstri þessara fyrirtækja, þ.e.a.s. að það yrði eitt meginskilyrði fyrir því að fyrirtækin fengju fjármagn af þessari fjárhæð, að það fjármagn gengi til þess að koma rekstrinum á hagkvæmara stig en hann hefur verið áður, m.ö.o. að fyrirtækin gætu fengið þetta að láni til þess að kaupa nýrri og hagkvæmari vélar til síns rekstrar eða koma upp ýmsum byggingum eða standa undir framkvæmdum sem stefndu að aukinni hagræðingu í rekstri. Við þessu fékk ég ekki annað svar en það, sem kom fram hjá hæstv. forsrh., að hann teldi að túlka ætti þetta ákvæði mjög rúmt og hér gæti einnig verið um það að ræða að ráðstafa þessum fjármunum til þess að greiða úr lausafjárstöðu fyrirtækja. Það mundi á venjulegu máli þýða að hér gæti alveg eins verið um það að ræða, að þessum fjármunum yrði ráðstafað til einstakra fyrirtækja til þess að þau gætu grynnt á skuldum sínum við lánastofnanir, þannig að þeirra lausafjárstaða yrði nokkuð bætt.

Ég endurtek þessar athugasemdir mínar hér enn einu sinni, að ég tel að í rauninni séu þetta alveg fráleit vinnubrögð sem eigi að leggja niður. Þeir, sem standa enn fyrir vinnubrögðum af þessu tagi, skulu hafa það í huga, að það geta komið aðrir menn og koma væntanlega aðrir menn í þeirra valdastóla áður en langt um líður og þá ætla þeir sér eflaust eitthvað svipuð vinnubrögð og svipað vald. Þá verður Alþ. að taka upp alveg nýja stefnu gagnvart þeim, ef það er ekki raunverulega að gefa eftir sitt eðlilega fjárveitingavald.

Ég hef ekki fengið frekari upplýsingar um þessi atriði og skal því ekki ræða um þau frekar. En ég legg áherslu á það sem mitt sjónarmið, að ég álít að þessa fjármuni, bæði þessar þegar ákveðnu 500 millj. frá Byggðasjóði og eins þessar 350 millj., sem áætlaðar eru úr þessum gengismunarsjóði, eigi skilyrðislaust að nota til lánveitinga og til lánveitinga í því skyni að koma rekstri þessara fiskiðnaðarfyrirtækja á hagkvæmara rekstrarstig en áður hefur verið. Það er staðreynd, að þau hafa dregist aftur úr af ýmsum ástæðum, og er sjálfsagt að veita þeim lán til þess að bæta úr rekstri sínum. En ég er fyrir mitt leyti algjörlega á móti því, að fjármunir séu kallaðir inn af annarri framleiðslu í landinu, eins og er verið að gera með gengismunarsjóð, til þess að deila út í almennar skuldagreiðslur fyrirtækja eða í almenna rekstrarfjárstöðu þeirra og þá fyrst og fremst til greiðslu til lánastofnana. Ég tel að það sé röng aðferð.

Ég vík þá nokkru nánar að frv, og að tengslum þessa frv. við þær efnahagsmálaaðgerðir sem boðaðar hafa verið og öllum er kunnugt um að eru á næstu grösum. Ég hafði í rauninni vænst þess, að áður en umr. þér lyki um þetta mál lægi fyrir frv. sem á að taka til umr, á morgun um svonefndar hliðarráðstafanir og ríkisstj, hefur þegar tilkynnt um, en það frv. er ekki komið fram enn. En af því að þetta frv., sem hér er um að ræða og varðar aðeins gengisskráningarhlutann, er einn liður í þessum efnahagsmálaaðgerðum, tel ég óhjákvæmilegt að víkja nokkrum orðum að öðrum þáttum málsins sem tengjast beinlínis þessu frv. sem hér er um að ræða.

Það hefur t.d. allmikið verið rætt, einkum í blöðum og nokkuð hér á Alþ., um hinn sérstaka vanda atvinnuveganna sem við stæðum nú frammi fyrir. Það er ekkert um það að villast, að ýmsar atvinnugreinar landsmanna búa nú við allmikil vandamál sem út af fyrir sig verður að takast á við. Það getur hins vegar verið nokkur ágreiningur um það, eins og jafnan áður, hve stór þessi vandi er og hvers eðlis vandinn er. Ég fyrir mitt leyti t.d. tel ekki að vandi fiskiðnaðarins í landinu, sem hér hefur verið rætt nokkuð um, sé eins mikill og oft hefur verið minnst á, að hann nemi um 12 milljörðum kr. á grundvelli janúaruppgjörs, að þar sé í rauninni í kringum það að vera 12 milljarða rekstrarhalli. Ég veit þó að útreikningar sýna þessar tölur, en við þá útreikninga hef ég margar athugasemdir að gera. Eigi að síður viðurkenni ég að þarna er um talsvert mikinn vanda að ræða.

Það er að mínum dómi nauðsynlegt í þessu sambandi að átta sig nokkru nánar á því, hvernig stendur á þessum sérstaka vanda útflutningsatvinnugreinanna, hver er meginástæðan, hversu stór vandinn er.

Það hefur í fyrsta lagi verið allmikið um það rætt, að þessi vandi útflutningsatvinnugreinanna stafi af því, að það hafi orðið gífurlega miklar launahækkanir á s.l. ári, og í þeim efnum hefur verið nefnt, að laun hafi í mörgum greinum hækkað á milli 60 og 70% frá upphafi ársins 1977 til loka ársins. Ég hygg að þetta sé mjög nærri réttu lagi, ef við t.d. lítum á kaupgjald í fiskiðnaði, sem hér er nú mest rætt um, þá sé hægt að segja að að verulegu leyti hefur hið mælda tímakaup hækkað sem nemur um 60% frá ársbyrjun til ársloka, Hitt liggur líka fyrir óumdeilanlega, að þrátt fyrir þessa sveiflu á árinu í launagreiðslum, sem vissulega hefur sín miklu áhrif á allan rekstur og þá ekki síst rekstur útflutningsgreina, hefur ekki orðið kaupmáttaraukning þeirra, sem þiggja þessi laun, nema á milli 8 og 9%, að því er Þjóðhagsstofnun telur, á s.l. ári. Ég veit að það vefst fyrir ýmsum að skilgreina það, hvernig í ósköpunum þetta megi vera, að kaupsveiflan frá upphafi árs til loka árs geti verið svona mikil, en að hins vegar skuli kaupmáttur launa ekki hafa breyst meira en þetta að dómi Þjóðhagsstofnunar, Af þessum ástæðum og vegna þess að erfiðleikar útflutningsatvinnugreina eru einkum og sérstaklega raktir til þessarar launasveiflu og síðan í beinu framhaldi þar af er rætt um að það verði að fella gengið til þess að taka af skakkann vegna launahækkunarinnar, þá tel ég óhjákvæmilegt að ræða þennan hlut nokkru nánar.

Í fyrsta lagi þurfa menn að hafa það í huga í sambandi við þessi mál, að það liggur óumdeilanlega fyrir í skýrslum frá Þjóðhagsstofnun, að áður en kom til þeirra launasamninga, sem gerðu þetta mikla breytingu og urðu á miðju ári eða í júnímánuði, þá lá fyrir að vísitöluhækkun sem leiddi af sér ákveðna kauphækkun í krónum. talið, var talin í kringum 27%, áður en áhrif af nýjum kaupgjaldssamningum komu til. Það var sem sagt hér í gangi ör verðlagsþróun sem leiddi þegar af sér á fyrri hluta ársins tilteknar verðhækkanir sem samningar gerðu ráð fyrir að bættar yrðu í krónutölu. Þetta var auðvitað fyrsta ástæðan, að hér var á ferðinni bullandi verðbólga áður en kom til áhrifa frá kaupgjaldssamningunum, á meðan það ástand var enn ríkjandi, að það hafði verið um að ræða skerðingu á kaupmætti launa.

En þetta var ekki eini liðurinn, heldur vissu menn að á sama tíma og launasamningar voru að fara fram dundu hér yfir verðhækkanir af ýmsum tegundum, og hægt væri að telja upp langan lista verðhækkana um þetta sama leyti, sem þá voru ekki komnar inn í kaupgjaldsvísitölu eða komnar inn í þetta dæmi þegar kaupgjaldssamningar voru gerðir. Og þessi hækkunarskrúfa hélt áfram. Á seinni hluta ársins var bætt við skrúfuna heldur myndarlega af ríkisvaldinu sjálfu með því að hækka t.d. vexti í landinu tvívegis á þessum tíma og gera á þessu tímabili einhverja mestu vaxtahækkun sem hér hefur gengið yfir, þannig að m.a. hinir margumtöluðu afurðalánavextir til útflutningsatvinnuveganna hækkuðu næstum að segja um helming eða um 7% á þessu tímabili. Auðvitað hafði þetta sín áhrif á hið almenna verðlag í landinu og hélt áfram að auka hraðann á skrúfunni. Auðvitað þýddi þetta líka það, að þegar þessar tölur voru komnar inn í dæmi atvinnuveganna um komandi útgjöld á þeirra vegum, þá vitanlega hækkuðu þær útgjaldatölur.

Ef menn vilja athuga þetta mál aðeins nánar má taka t.d. aðeins framfærsluvísitöluna frá 1. febr. 1977 til 1. febr. 1978, taka árstímabilið sem hér er raunverulega um að ræða, því að það er hið nánasta sem við höfum þegar við lítum á hreyfinguna á árinu 1977, að taka verðlagið frá 1. febr. og fara til 1. febr. á næsta ári, nær áramótunum komumst við ekki. Hvaða hreyfing var á vísitölunni á þessu tímabili? Jú, vísitalan 1. febr. 1977 var 682 stig, en 1. febr, nú var hún komin í 934 stig. Vísitalan hafði hækkað á þessu tímabili um 37%. Það var aðeins vísitalan. Og þegar svo bættist við þetta sú eiginlega grunnkaupshækkun, sem samið var um á miðju ári í samningum verkalýðsfélaganna og síðan reyndar einnig í samningum opinberra starfsmanna síðar á árinu og gætti miklu minna a árinu, en varð auðvitað að taka tillit til við gerð fjárl, á eftir — þegar sú grunnkaupshækkun bættist við, sem þarna var samið um, þá kom hún út í verðlagið ásamt með öðrum verðlagshækkunum sem höfðu leitt af sér kauphækkanir. Eins og allir vita er nákvæmlega sama hvort kaupið hækkar í kjölfar vísitölu eða sem grunnkaupshækkun. Það hækkar í krónum. Sú hækkun leiðir aftur af sér margföldun í verðlagskerfinu. Og þegar þessi margföldun er búin að eiga sér stað segja menn: Kaupið hefur hækkað frá ársbyrjun til ársloka um 60%. Það er ekki nema von að það þurfi að breyta öllu í þessu hagkerfi.

— jafnvel þó að launþegarnir hafi ekki fengið nema 8–9% raunkaupshækkun út úr leiknum, þá segja menn: Það þolir auðvitað ekkert hagkerfi þetta. Hér þarf að nema staðar.

Það, sem er hér um að ræða, er að hér var á ferðinni fyrri hluta ársins bullandi verðbólga án þess að um grunnkaupshækkanir væri að ræða, og sú verðbólga stafaði af ákveðnum hlutum. Það var ekki hægt að kenna launum eða launasamningum um þá þróun. Og það var ekki heldur hægt að kenna launum eða launasamningum út af fyrir sig um það, þó að afleiðingar af krónutöluhækkun kaupsins kæmu út í margföldun á verðlagi, á meðan krónutöluhækkunin á kaupinu stafaði af verðlagshækkun. Nú liggur það fyrir, að þessi grunnkaupshækkun, sem launþegasamtökin sömdu um á miðju ári, var ekki meiri á árinu 1971 en útreiknaðar hækkanir á þjóðhagstekjum, heildartekjur þjóðarbúsins hækkuðu mjög svipað að tiltölu og raunkaupshækkunin varð á þessu ári. Og menn hafi það einnig í huga, að þessi grunnkaupshækkun er að koma ofan í tímabil þar sem raunkaupshækkunin hafði verið neikvæð, hafði farið niður.

Í sambandi við þetta kemur auðvitað upp sú hugsun: Hvað er það þá sem gerði það að verkum að þetta þurfti að fara svona? Var þetta alveg óhjákvæmilegt? Var engin leið til þess að komast hjá því í sambandi við 8–9% raunkaupshækkun að láta þetta allt gerast á þessa leið, að krónutöluhækkunin í kaupi frá upphafi árs til loka árs þyrfti að verða í kringum 60%? Jú, það var hægt, og það var m.a. talað um það hér af mér og mörgum fleirum allan tímann og ríkisstj. vöruð við í þessum efnum. Og það gerðu bæði verkalýðssamtökin í landinu og einnig vinnuveitendur, — vinnuveitendur líka, ég undirstrika það. Þessir aðilar, gerðu sér grein fyrir því, að það var algerlega óhjákvæmilegt að það yrði raunkaupshækkun á s, l. ári, bæði með tilliti til þess, sem á undan var gengið í þróun kaupgjaldsmála, og einnig með tilliti til stöðu þjóðarbúsins almennt séð. Það var engin leið að víkja sér undan einhverri raunkaupshækkun. Þá var það sem hér var á það bent strax í byrjun ársins, þegar þetta lá fyrir, og síðan æ ofan í æ fram eftir ári, að ef þessi skrúfugangur ætti ekki að leiða til þess sem hann hefur leitt til, þá væri óhjákvæmilegt að ríkisvaldið sjálft skapaði svigrúm fyrir þessar kauphækkanir. Það yrði með einhverjum hætti að reyna að færa verðlag niður og gefa þannig eitthvert svigrúm fyrir því að þessar launahækkanir gætu átt sér stað án þess að þær þyrftu að bætast ofan á allt sem fyrir var. En einmitt í þessum efnum gerðist ólukkan. Þá lemur hæstv. ríkisstj. hausnum við steininn allan tímann og segir. Það kemur ekki til mála. — áleira að segja þegar hún átti kost á því að skapa svigrúm með jafneinföldum hætti og þeim að fella niður 2% söluskatt, sem áður hafði runnið í Viðlagasjóð og var ætlaður til alveg ákveðinna aðgerða, og þegar búið var að leggja niður Viðlagasjóð og þar með gátu þessi 2 söluskattsstig fallið niður, þá neitaði ríkisstj. að skapa þetta svigrúm upp á þessi 2%. Hún hirti þennan skatt og sagði: Ekki veitir mér af þessum nýja skatti. — Og hún tók hann til sín. Og þetta var ekki einasta tilfellið. Það var í mörgum öðrum tilfellum sem ríkisstj. hagaði sér á sömu lund, og hún virtist vera svo skammsýn í þessum efnum, að hún afsakaði þetta allt með því að segja: Ekki veitir ríkissjóði af. Fyrir alla muni verður ríkissjóður að koma út þannig að hann sé ekki rekinn með halla, því að það yrði út af fyrir sig verðbólgumyndandi ef ríkissjóður væri rekinn með halla.

Ég sagði hér og segi enn: Ég er samþykkur því að við núverandi aðstæður áttum við ekki að reka ríkissjóð með halla. En það er alger blekking að ætla sér að leysa þetta vandamál á þann hátt að segja: Við afgreiðum ríkissjóð hallalausan, en við gerum það á þann hátt að við hækkum verðlagið í landinu. — Með því var dæmi ríkissjóðs tekið út af fyrir sig, en vandinn skilinn eftir fyrir utan ríkissjóð, úti í hagkerfinu, í sambandi við atvinnulífið í landinu, því að vandinn þeim megin hlaut að vaxa að sama skapi. En ríkisstj. fór þessa leið. Hún hækkaði tekjur ríkisins og hækkaði tekjur ríkisins, og bæta má því enn einu sinni við: hún hækkaði tekjur ríkisins. Hún valdi margar leiðir í þessu skyni og gerði því hinn almenna efnahagsvanda enn þá meiri eftir en áður. Því segi ég það, að það er þessi efnahagsmálastefna sem hefur leitt til þess vanda sem menn standa frammi fyrir nú, og hæstv. ríkisstj. hafði gert sér þetta ljóst. Hún hafði hreinlega valið þá leið að fara verðhækkunarleiðina. Og þó að hún væri að skipa verðbólgunefnd, sem ætti að glíma við það að færa verðlagið niður, þá var hún samt sem áður á hinni brautinni sjálf, að hækka allt verðlag. Og ríkisstj. var svo sannfærð um hvað hún var að gera í þessum efnum, að þegar t.d. kom að afgreiðslu fjárl. nú rétt fyrir áramótin, þá var hún svo sannfærð um hvað hún var að gera, að hún beinlínis afgreiddi fjárlagafrv. út frá því sjónarmiði að það yrði um stórfellda gengislækkun að ræða á árinu 1978. Og ég vitna enn til þess og vil láta það koma hér skýrt fram, að forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, Jón Sigurðsson, sá aðili sem hefur jafnan reiknað út forsendur fjárl. og þurfti að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir því, hvað tekjur ríkissjóðs yrðu væntanlega miklar á árinu 1978, hvað yrðu tekjurnar miklar af innfluttum vörum, hvað yrðu tekjurnar miklar af söluskatti og öðrum þáttum í sambandi við ríkisfjármálin, hann upplýsti á fundi fjvn., að hann hefði miðað áætlanir sínar við afgreiðslu fjárl. við það, að um yrði að ræða gengissig á árinu 1978 upp á 11/2% á mánuði eða 18% yfir árið. Ég hef þetta ekki aðeins frá þeim aðilum, sem sæti eiga í fjvn., og það hefur verið margstaðfest af þeim, ég hef borið þetta undir þjóðhagsstjóra sjálfan og hann hefur viðurkennt í votta viðurvist að þetta sé rétt.

Það fer því ekkert á milli mála, að hæstv. ríkisstj. hafði gert sér grein fyrir því, að hún var að velja verðhækkunar- og verðbólguleið með stefnu sinni allri fram eftir öllu ári og staðfesti það formlega við afgreiðslu fjárl. fyrir árið 1978. Af þessum ástæðum, sem ég hef sagt, stafar það sjávarútvegsdæmi og það dæmi atvinnuveganna sem lagt hefur verið fyrir, þar sem talað er um mikinn hallarekstur atvinnuveganna á árinu 1978. Inn í það dæmi er búið að taka afleiðingarnar af þeirri stefnu sem ég hef verið að lýsa. Það er búið að taka meginhlutann af þeirri kaupgjaldshækkun, sem um var samið, og afleiðingarnar, sem voru látnar koma fram fyrst í formlegum snúningi vísitölunnar 1. sept., eftir launasamningana, svo aftur 1. des, og enn 1. febr. Það er búið raunverulega að framkalla allar verðhækkanir sem leiðir af þessari stefnu. Þetta er komið inn í það sjávarútvegsdæmi sem lagt er fyrir alþm. Útgjöldin eru komin inn í dæmið. Hallinn er kominn fram. Hins vegar er ekki búið að setja inn í þetta sama dæmi þá tölu sem t.d. þjóðhagsstjóri hafði sett inn í fjárlagafrv. um breytingar á gengi krónunnar. Ef breytingarnar á gengi krónunnar, sem hljóta að fylgja ráðstöfunum eins og þessum alveg eins og nótt degi, eru settar í dæmið, og þar eiga heima í dæminu nákvæmlega eins og afleiðingarnar af þessari stefnu, eins og gjaldahliðin, þá er vandi útflutningsatvinnuveganna allt annar. Það er af þessum ástæðum sem við í minni hl. segjum: Við gerum ekki till. um gengislækkun til þess að bjarga sérstaklega útflutningsatvinnuvegunum. Það er þegar búið að ákveða þessa stefnu alla, bæði útgjöldin og tekjuhliðina, af þeim sem myndað hafa stefnuna.

Það verkefni, sem lá hins vegar fyrir verðbólgunefnd, var að glíma við þann sérstaka vanda sem lagt var fyrir n, að glíma við. Það var að koma með till, um hvernig væri hægt að mæta þessari miklu verðbólgu, hvernig væri hægt að lækka hér verðlag.

Ég álít að hv. alþm. þurfi að gera sér fyllilega grein fyrir samhengi þessara mála, því að svona eru þau í fullu samhengi. Og menn skulu átta sig á því, að það er fyrst og fremst efnahagsmálastefna stjórnarinnar á þessu nýliðna ári sem er sú sama og áður var. Hún er gengislækkunarstefna, hún er verðhækkunarstefna, hún er vaxtahækkunarstefna. Hún er stefna sem virðist vera ákaflega frjálslynd við að leyfa allar mögulegar verðhækkanir. Slík stefna leiðir vitanlega af sér gengislækkun á gengislækkun ofan, og síðan leiðir gengislækkunin af sér nýjan vanda aftur.

En það er svo einn þáttur enn í sambandi við vandamál atvinnuveganna, sem ég tel ástæðu til að víkja hér örlítið að. Ég sagði áðan, að þó að ég viðurkenndi að atvinnuvegir okkar og þá sérstaklega útflutningsatvinnugreinarnar stæðu frammi fyrir vandamálum, þá hefði ég ýmsar aths. að gera við þá útreikninga sem fyrir liggja. Sérstaklega vil ég beina athygli manna að því, að vandamál t.d. fiskiðnaðarins í landinu eru geysilega mismunandi. Þær skýrslur, sem fyrir liggja og menn hafa væntanlega margir hverjir skoðað, sýna að það er gífurlega mikill mismunur á afkomu hinna einstöku fiskiðnfyrirtækja í landinu. Ef t.d. er skoðaður stærsti og veigamesti þáttur fiskiðnaðarins, sem er frystihúsaiðnaðurinn, þar sem um er að ræða í kringum 100 frystihús, þá má segja að þær skýrslur, sem fyrir liggja, sýni það í stórum dráttum, að í kringum 1/5 eða svo af þessum frystihúsafjölda hafi haft á s.l. ári mjög góða afkomu, í fullar afskriftir og meira en það. Og það sýnir sig einnig, að afkoma þessara frystihúsa er það góð, að hún verður að teljast mjög sæmileg enn við þau rekstrarskilyrði sem voru nú í upphafi ársins. Mér dettur ekki í hug að neita því, að þessi frystihús hefðu gjarnan mátt hafa betri afkomu, bestu húsin í þessum rekstri. En eigi að síður er þetta staðreynd sem ég er að benda hér á. Þessar skýrslur sýna líka, að það má síðan taka í kringum 1/3 hluta af frystihúsunum til viðbótar eða nærri þeirri tölu, sem hafa haft á s.l. ári góða afkomu, hafa haft talsvert myndarlegan hagnað og búið við alveg þokkalega afkomu á okkar mælikvarða. Auðvitað eru þau nokkuð misjöfn eins og gengur, en þó má segja að þetta sé í stórum dráttum þannig. Þessi hús þola að vísu ekki þann rekstrargrundvöll sem fyrir lá nú í janúar, þegar allar kauphækkanir og allar verðhækkanir og allar vaxtahækkanir voru komnar inn í rekstrarhliðina, en hins vegar ekki nema mjög takmarkað inn í tekjuhliðina af því sem raunverulega hafði verið gert ráð fyrir að þau fengju. En það má segja að þessi hús hafi haft mjög þokkalega afkomu. Til viðbótar við þetta má svo tala um talsvert stóran hluta, kannske hartnær 40% af frystihúsunum í landinu, sem höfðu taprekstur á s.l. ári og eru auðvitað með miklun taprekstur á þessum janúargrundvelli sem útreikningarnir eru byggðir núna á.

Þetta mjög lauslega dæmi, sem ég hef dregið upp, sýnir hvað hér er um mikinn mismun að ræða í rekstri þessarar greinar. Það er líka fróðlegt fyrir menn að átta sig á því við nánari athugun á þessum málum, hvað það er sem skýrir þennan mikla mismun. Mér finnst full ástæða til að fara um það nokkrum orðum, af því að ég þykist hafa fundið það æðioft hér á hv. Alþ. og þó kannske enn þá meira hjá ýmsum svonefndum sérfræðingum fyrir utan Alþ., að þá vanti skilning á því, hvað þetta þýðir. Við nánari athugun kemur í Ljós , að t.d. þau frystihús í landinu, sem búa við langsamlega besta afkomu og teljast til besta flokksins, það eru frystihús sem búin eru að koma rekstraraðstöðu sinni nokkurn veginn í besta form sem við þekkjum hér á landi, ég tala nú ekki um ef þau hafa gert það fyrir nokkrum árum. Það eru frystihús sem hafa náð því að samtengja nokkurn veginn vinnslu sína og hráefnisöflun. Þau eiga nokkurn veginn örugga hráefnisöflun og geta haldið uppi stöðugri og öruggri og jafnri vinnslu. M.ö.o.: það eru þau húsin sem hafa fengið eðlilegan hluta af fjárfestingarfjármagni þjóðarinnar til þess að koma fram umbótum í rekstri sínum. Þarna eru sem sagt þau hús sem hafa fengið aðstöðu til þess að eignast sjálf eða fá hlutdeild í skuttogurum. Það er svo mál út af fyrir sig, að einmitt í hópi þessara frystihúsa er líka borgað langhæsta kaupið í landinu, en þar er afkoman best.

Þegar aftur er litið á hina hópana og sérstaklega þann hópinn sem er með lökustu afkomuna, þá er þar einmitt um að ræða þá sem hafa ekki fengið fjármagn eða hafa ekki lagt í það af einhverjum ástæðum að ráðast í þær umbætur, sem þurfti að gera í þessari iðngrein, og hafa ekki náð því að samstilla hráefnisöflun og vinnslu. En þrátt fyrir þetta og þó að á þetta hafi oft verið bent hér á hv. Alþ., m.a. af mér, þá er það svo, að hér koma efnahagssérfræðingar — og hæstv. ríkisstj. tekur orð þeirra alltaf sem heilög — og telja sjálfsagt að skera niður yfir línuna sem heild það fjárfestingarfjármagn sem á að ganga til okkar eigin atvinnuvega. Það er það fjárfestingarfjármagn, sem hefur farið minnkandi að magni á undanförnum árum, á sama tíma sem fjárfestingarfjármagnið hefur gengið í aðrar greinar sem skila litlu eða engu. Nú eru menn þó loksins komnir á þá skoðun — og mættu allir alþm. komast í þann hóp — að átta sig á því, að sú fjárfesting, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum í skuttogaraflotanum og í umbótum í hraðfrystiiðnaðinum, er einmitt sú fjárfesting sem skilað hefur langsamlega mestum arði í þjóðarbúið. En menn hafa leyft sér að taka þetta allt saman í einn bunka og segja: Fjárfestingarfjármagnið sem heild hefur verið svona mikið og hin merka útkoma af því í afrakstrinum er ekki mikil. — Það er rétt. Það er lítill vandi að benda hér á fjárfestingarframkvæmdir, sem átt hafa sér stað á undanförnum árum, sem ekki hafa gefið í þjóðarbúið einn einasta eyri og við höfum þurft að borga með og borgum með enn þá. En það eru ekki framkvæmdir af þessu tagi.

Ég hef talið eðlilegt og nauðsynlegt að láta þetta koma fram frá minni hálfu einmitt í sambandi við afgreiðslu þessa frv. sem sérstaklega snertir gengisskráningu. Það er á þennan hátt sem ég hef sagt, í beinu samhengi við afgreiðslu, þeirra efnahagsaðgerða sem nú er ætlað að afgreiða hér, almennt séð.

Ég skal svo ekki fara langt út í að ræða hér aðra þætti þessara mála nema sérstakt tilefni verði gefið til. En ég tel fyrir mitt leyti, að þetta ásamt með mörgu öðru, sem auðvelt er hér til að tina, sýni það og sanni, að það er sú efnahagsmálastefna sem hæstv. ríkisstj. hefur mótað og farið eftir á undanförnum árum, sem leiðir af sér þennan vanda og setur okkur í þennan vitahring, að hækkunarskrúfan er sífellt í gangi, kallar á gengislækkun og aftur verðhækkun, og engin lausn er til nema hér verði snúið til baka. Ég skal að vísu segja það í þessu sambandi og í beinu framhaldi af því sem ég sagði hér í gær, að ef það væri raunverulega ætlunin og ef það væri trúverðugt sem hér kom fram hjá hæstv. forsrh„ að nú ætlaði ríkisstj. sér að taka upp annað viðhorf í gengismálum en verið hefði, hætta við gengissigsstefnuna og fara að halda sig við fasta skráningu gengisins, þá væri það út af fyrir sig merkileg stefnubreyting, En það er augljóst mál, að það þarf að fylgja því meira en að hætta að láta gengið falla, því að það kemst enginn hjá því að láta gengið falla ef menn láta alla hina bætti málsins snúast í fullum gangi. Ef menn halda áfram að hækka vextina, eins og nú er jafnvel verið að boða, að næsta gusa eigi að þýða 3–4% í vöxtum, og ef menn leyfa svo allar aðrar verðhækkanir, þá leiðir það auðvitað til þess, að það dynur yfir önnur gengislækkun og vitahringurinn heldur áfram. Ástæðan til þess að ég hef m.a. barist á móti þessari furðulegu kenningu, að ætla að binda vextina aftan í verðbólguna eins og gert hefur verið, er ekki sú, að mér detti í hug að vextirnir geti alltaf verið þeir sömu ef allt hitt er látið dansa laust. Það er einn liður í því að reyna að stöðva þennan hringsnúning. Kaupið fer ekki upp eftir vísitölu, ef annað er stöðvað, og fyrsta leiðin er auðvitað að reyna að fara inn á þá braut sem við í minni hl. höfum lagt til, þ.e. að reyna að færa verðlag niður til þess þó a.m.k. að koma í veg fyrir ákveðnar verðhækkanir, reyna síðan að leysa vandamálin án þess að breyta genginu í sífellu og hætta þessari vitleysu, að ætla sér að hengja alla hluti aftan í verðbólguna og lofa þeim að snúast með verðbólgunni.