09.02.1978
Neðri deild: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2097 í B-deild Alþingistíðinda. (1703)
168. mál, þingfararkaup alþingismanna
Sverrir Hermannsson:
Virðulegi forseti. Ég get því miður ekki að sinni orðið við þeim tilmælum hv. þm. Ellerts B. Schram að taka þessu frv. þeirra félaga vel, hans og hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasonar. Ég hygg að eitthvað þurfi að breytast til þess að svo megi verða.
Eins og fram hefur komið er þetta í annað skipti sem þeir flytja frv. þessa eðlis, þótt í nokkuð breyttu formi sé. Á árinu 1974 munu þeir hafa flutt frv. þar sem lagt var til að Kjaradómur ákvæði kaup og kjör þm. Nú er það sama eðlis, nema útlistunin og skipan frv. er með nokkuð öðrum hætti og skiptir það ekki máli í því sambandi.
Það stóð eins á og nú þegar þetta fyrra frv. var flutt. Þá höfðu hælbítar í þjóðfélaginu tekið höndum saman um það enn einu sinni að reyna að hafa mannorðið af Alþ. Ekki tókst það þá, en sýnu drýgri eru þeir á sprettinum núna, það skal játað, enda aðalmálgagn þjóðarinnar, eins og þeim bættir til að nefna það, Morgunblaðsritstjórunum, lagst á tog með þessum herrum. En ég vildi aðeins láta þess getið, að við þurfum kannske ekki að kvíða því, að þessum málum verði ekki kippt í liðinn þó undan dragist á þessu þingi, því að skammt undan kunna að vera þeir menn sem taka munu sæti hér, sem kunna skil góðs og ills og kunna að skammast sín í litlu og stóru. Þannig er ekki öll nótt úti enn um það, að þm. nái vopnum sínum gegn þessum árásarher blaðamanna sem mér líst svo nú að muni vera ein verst mennta stétt landsins, og vík ég að því síðar.
Hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason taldi ástæðulaust fyrir þm. að láta brigsla sér um að þeir skömmtuðu sér laun. Nú ræður blaðamannastéttin það miklu og þessir níðhöggar, að þeim hefur að mínu áliti tekist að halda við þeirri skoðun hjá meginþorra lesenda sinna, að það sé svo, að þm. ákveði laun sín sjálfir. Nú vita þm. betur, því að svo hefur málum verið skipað allt frá 1964, að laun þeirra hafa verið ákveðin í kjarasamningi eða með kjaradómi eins og skeði nú síðast. Þess vegna var það, að í grg. þfkn. nú kom það skýrum stöfum fram, að alþm. hefðu ekki ákveðið laun sín nú, en þar er meginforsendan sem þessir rógsölumenn á Dagblaði og annars staðar gefa sér. Sannleikspósturinn, Morgunblaðið, sagði vitanlega: Þetta er útúrsnúningur, því að við hefðum á sínum tíma sett lög. — Og eftir rökleiðslu þeirra allri mætti segja mér það, að þeir fyndu bráðum upp á því að halda því fram, að ekki væri líflátshegning við morði á Íslandi vegna þess að alþm. vildu vara sig á því, ef þeir þyrftu að framkvæma slíkan verknað sjálfir, að verða fyrir því að verða teknir af lífi. Allur er þeirra rökstuðningur með þessum hætti.
Ég ætla þá að lýsa því, hvernig bókun á launum þm. nú fór fram.
Það var síðast í nóvembermánuði sem lá fyrir niðurstaða Kjaradóms sem hafði með ákvörðun þessa að gera. Þfkn. áleit eftir lögunum, án þess að hafa kynnt sér málið nægjanlega ítarlega, að okkur bæri að taka laun samkv. þriðja efsta flokki BSRB. Samdægurs, eftir þessa ákvörðun og bókun, var ég upplýstur um að tillaga mín í þessu efni hefði verið röng. Samkv. lögunum og túlkun þeirra frá upphafi bæri okkur að taka laun samkv. þriðja efsta flokki starfsmanna ríkisins. Ég fór þess vegna til og kynnti mér málið hjá forstöðumanni launadeildar fjmrn., og hann staðfesti þennan skilning minn og upplýsti að hver einasti maður, sem áður hefði verið í sama flokki og við, tæki nú laun samkv, þriðja efsta flokki BHM, hvort heldur þeir teldust formlega félagar í þeim hópi eða ekki, Vegna laganna sjálfra og ákvæða þeirra sá ég mér enga aðra leið færa en boða til annars fundar daginn eftir til þess að leiðrétta þá skyssu sem okkur hafði orðið á um túlkun laganna og framkvæmd daginn áður. Munurinn, sem þarna var um að tefla, var réttar 20 þús. kr. eða 21 þús. kr. á mánuði, Ég taldi, af því sem við hefðum yfir okkur lög í þessu efni, að gersamlega væri óstætt annað en fara að þeim, sem vitanlegt er. En það kom fram í grg, þfkn. að við gáðum ekki að því, að svo reyndist vera, að við vorum þar með í hópi þeirra, sem hæsta launahækkun fengu.
Nú erum við gagnrýndir fyrir það að hafa tekið okkur þessi laun. Ef svo hefði ekki átt að vera, þá eru engin önnur ráð en að bera fram frv. til l. og breyta þessum lögum. Og það hefðu mátt vera framsýnir menn á þingi sem hefðu áttað sig á því, meðan Kjaradómur var að störfum, að við yrðum að grípa til þess ráðs að breyta lögum, svo að ekki væri hætta á að Kjaradómurinn mundi ákveða okkur einna mestu launahækkun sem um getur í öllu launaflóðinu.
Þetta er skýrsla um ákvörðun um þá bókun sem siður er að þfkn. geri á launum og launaflokki þm. Það hefur verið siður að þfkn. bóki þetta í fundargerðarbók, eftir að uppvíst er um niðurstöður kjarasamnings, sem jafnan hefur verið, eða Kjaradóms, eins og nú gekk.
Hv. flm. þessa frv. hafa báðir haldið því fram, að það mundi styrkja stöðu Alþ., ef við vísuðum þessum málum öllum frá okkur og létum í hendur Kjaradóms eða það yrði þáttur í kjarasamningi. Hvað ætla menn að skriffinnar rógburðarblaðanna mundu þá segja? Þetta er lagasetning sem lagt er til að gerð verði. Það er lagt til að sett verði lög um að Kjaradómur taki nú alfarið við. Hvað ætli þeir mundu þá segja, skriffinnarnir, sem nú leggjast á allar árar um það að hafa af okkur mannorðið? Auðvitað mundu þeir segja að refirnir væru skornir til þess eins að laun okkar og kjör mundu hækka, vegna þess að það er ekki nokkur vandi að leiða að því sterk rök, að svo mundi til bera ef þetta frv. yrði að lögum. Af hverju halda menn að valinn hafi verið sá kostur á sínum tíma að festa það í lögum, að við skyldum taka laun samkv. þriðja efsta flokki? Það var vegna þess að engum þm. á þeirri tíð datt annað í lifandi hug en að þm. yrðu a.m.k. ákveðnir í flokki sem eigi væri lægri heldur en ráðuneytisstjórar, enda ekki nokkur ástæða til. Þetta var bara hið venjulega lítillæti þm., eða öllu heldur geri ég þó ráð fyrir því, að það hafi verið hin venjulega kjósendahræðsla, sem réð því að þeir þorðu ekki að sýna af sér þann manndóm að taka laun svo sem þeim vissulega ber og ekki undir minna standi en ráðuneytisstjóra.
Ég vil geta þess hér, að nú gengur bráðum dómur um laun ráðuneytisstjóra, þannig að eftir að hann er genginn hefur myndast nýr flokkur fyrir ofan launaflokkana sem við förum eftir mína, þannig að þá förum við eftir fjórða efsta. Og það skyldi þó ekki vera, að að óbreyttum lögum mundum við neyðast til þess að halda fund í þfkn. og bóka okkur einum flokki ofar þegar þessi dómur hefur gengið? Og hvað skyldu menn ætla að sá dómur muni skammta ráðuneytisstjórum? Ég ætla engum getum að því að leiða. En það kæmi mér ekki á óvart þó að það yrði hálf milljón eða meira. Hvað ætli launakjaranefnd ráðuneytis, sem starfar í framhaldi af Kjaradómi, mundi ætla okkur í kjör: í fæðispeninga, í húsaleigustyrk, í ferðastyrk, ef málum þessum væri þann veg skipað, að þau væru öll úr okkar höndum? Dettur einhverjum í hug, að hún mundi ætla okkur minna og ákvarða okkur lægra heldur en það sem gerist um alla aðra starfsmenn ríkisins? Og menn hafa þá ekki lesið grg. þfkn. sem ekki hefur verið hnekkt af neinum, ef þeir hafa ekki áttað sig á því, að þfkn. hefur ákveðið þessi kjör miklum mun lægri en tíðkast hjá öllum öðrum starfsmönnum ríkisins. Menn spyrja um skýringu á því, og hún er auðgefin. Hún er sú, að þm. dvelja langdvölum á sama stað og gefst þess vegna kostur á því að ná sér í ódýrara húsnæði til að mynda heldur en mönnum sem yfirleitt eru á skyndiferðalögum og þurfa að taka sér inni á hóteli. Þeir geta þess vegna búið um sig betur líka varðandi fæðiskostnað. Þetta eru ástæðurnar og enn fremur þær ástæður, að margir þm. hafa búið þann veg um sig, að þeir eiga kannske íbúðir hér í Reykjavík og komast þess vegna miklu betur af. Ég skal játa, að það er hart aðgöngu fyrir þá, sem þurfa að leigja sér íbúð hér dýrum dómum og reka tvö heimili, að búa við þessi kjör sem þfkn. hefur ákveðið. En það er vandratað meðalhófið í þessu. Sumir bera mjög skarðan hlut frá borði, þannig að húsaleigustyrkur og dagpeningar nægja þeim engan veginn. Þetta er hægt að sanna.
Þegar það lægi fyrir, eftir að Kjaradómur hefði tekið við eða kjarasamningur með þeim starfsháttum, sem þar tíðkast, að við hefðum snarhækkað bæði í launum og kjörum, sem hlýtur að verða, — því að þið skuluð kynna ykkur hvaða menn það eru sem eiga samleið með okkur í þeim launaflokki, sem við tökum eftir laun núna, og ég fullyrði að hinir réttlátu og réttsýnu menn, hlutlausu, sem kallaðir eru, sem kveða munu upp dóminn um þetta eftir lögum, munu ætla okkur yfir því standi sem við höfum sjálfir ákveðið af lítillæti okkar enn, — þá munu þeir mæta og þá verður mikið í fréttum í þessum blöðum. Þá verða stórar fyrirsagnir og þá munum við reyna að fara að verja okkur á nýjan leik og vísa til þess, að nú höfum við ekkert með þessi mál að gera meir. Þá verður vitanlega sagt: Þið settuð þessi lög, vitandi vits, að þetta mundi stórhækka ykkur í kaupi, enda sagði Ellert B. Schram, hv. þm., frá því þegar hann talaði fyrir þessu, að þm. þyrftu mikil laun og hækkun launa. Þeir munu vitna í Ellert, þar sem hann mælti fyrir þessu, að hann væri því eindregið meðmæltur, að þm. hefðu mjög góð laun, og taldi fram réttar ástæður og forsendur fyrir því. Það verður upplit á þessum lýð þegar þar að kemur. Það mætti segja mér, að þeir yrðu ekki linari á sprettinum heldur en nú.
Þetta er alveg augljóst, það getur hver maður sagt sér það og það er ekki verið að geta í neinar eyður með því, að vitanlega yrðum við á sömu kjörum og allir aðrir. Við mundum auðvitað ekki fá 40 kr. á km fyrir að aka malarveginn í þeim undantekningartilfellum sem þm. er borgað fyrir að aka á eigin bifreiðum. Við mundum reyndar fá 47 kr., eins og þeir þurfa að fá, opinberu starfsmennirnir. Þeir fá 40 kr. þegar þeir aka á sléttu vegunum hér í og við Reykjavík, á vegum úr varanlegu efni.
Það getur vel verið, að það séu fleiri og fleiri innanþings og utan, sem vilja á þessa aðferð fallast, að við beygjum okkur fyrir þessum áróðri og árásum og fleygjum þessu öllu frá okkur. Það getur vel verið, ekki hef ég orðið þess var, engar sannanir hef ég fyrir því. Og ég hef ekkert skaplag til þess, síst nú, síst eftir lestur úr leiðara Morgunblaðsins í gær, að heygja mig í neinu að þessu leyti. Ég hef hins vegar allt aðra tillögu fram að færa. Ég hef þá tillögu fram að færa, að við tökum þetta alfarið í okkar hendur, bæði laun og kjör. Það hefði ekki hent þfkn. ef hún hefði alfarið átt að taka ákvörðun sjálf en ekki þurft að fara að lögum, að taka þá ákvörðun um að þm. hækkuðu jafnmikið og þeir hæstu í launum nú. Þá hefðum við gáð að okkur og borið þetta saman. Þetta hefði ekki hent.
En þó að ég eigi örðugt með það, sér í lagi eftir Morgunblaðsleiðarann í gær, þá kynni þó svo til að bera, ef menn vildu fallast á tillögu mína um að breyta lögum á þann veg, að við færum í gamla farið, hyrfum til gömlu hefðarinnar, það er ekki of mikið af hefðum hér á hinu háa Alþ., — þá kynni vel svo að fara að ég gæti hugsað mér að bera fram till. í þfkn. um að lækka launin, þannig að við teldumst ekki í launaflokki með þeim sem mesta hækkun hafa fengið. Það kann vel að vera, þótt stöðugt syrti í álinn um þá möguleika í mínum huga, því að mér er það ekki skapfellt að láta undan sverfast fyrir svo magnaðri svívirðu sem nú má lesa, eins og til að mynda þeirri í Dagblaðinu í gær, þótt ég á hinn bóginn hafi litla tilhneigingu til að vitna í þann snepil, það þvaglitaða blað, að þm. ættu allir með tölu að gista Litla-Hraun ásamt þeim embættismönnum sem kunna að hafa nærri þeirra launakjörum komið. Það er vissulega rétt hjá hv. þm. Ellert B. Schram, að það eru alvarlegar ásakanir hafðar í frammi. En ætli þeir muni ekki segja, ef við látum undan sverfast: Þeir eru að játa á sig það sem við sögðum. Þar með eru þeir að játa allt saman á sig. Hvað sögðum við ekki? Við börðum þá til hlýðni, við lögðum þá marflata, þessa Litla-Hraunsmenn, þessa Hraunamenn þar syðra.
Ég ætla að víkja aðeins örfáum orðum að tveimur leiðurum í Morgunblaðinu sem Árvakur hf. gefur út og ég veit ekki betur en hæstv. forsrh. sé enn þá stjórnarformaður fyrir. Og þó að það kunni svo til að bera, að stjórn Árvakurs ráði ekki því sem skrifað er í blaðið, þá a.m.k. ræður hún ritstjóra að blaðinu. Þegar þfkn. gerði sína grg. og sendi fjölmiðlum, þá má til gamans geta þess, að auðvitað fékk Dagblaðið hana í hendur Braga nokkrum Sigurðssyni, fyrrv. sveitarstjóra í Ólafsvík o.fl., til meðhöndlunar, til birtingar eftir sínu siðgæði, eins og það tíðkast þar. En grg. var aðallega gerð vegna fréttar frá Bandalagi háskólamanna, þar sem sagði að þm. hefðu fengið hæsta launahækkun, mesta launahækkun, og þar sem sagði, að það væru firrur einar, að þm. nytu ekki sömu kjara og aðrir starfsmenn ríkisins, og það væri ekki sæmandi, eins og þar stóð og ég man rétt, fyrir þm. að halda slíku fram. Þessi grg. var aðallega samin sem andsvar við þessari frétt frá þessum virðulegu samtökum. Þegar hún birtist, þá bregður Morgunblaðsritstjórinn við og lýsir því yfir, að sú yfirlýsing þfkn., að alþm. hafi ekki ákveðið laun sín sjálfir nú, sé útúrsnúningur, af því að þeir hafi á sínum tíma sett lög, rétt eins og alþm. heyrir ekki undir lög þó að þeir setji þau sjálfir. Í öðru lagi segir hann þrátt fyrir þessar ásakanir í frétt Bandalags háskólamanna, að samanburður við þá eigi ekki við. Og í þriðja lagi segir hann, að þfkn. láti þess getið, að opinberir starfsmenn, sem séu í sama flokki og þm., fái allir greidda ómælda yfirvinnu, 20% álag á launin sín, allir með tölu, allir í þessum flokki, um þetta fékk ég upplýsingar í fjmrn., þá segir Morgunblaðið: Ætla nú þm. að fara að nota þetta til þess að krefjast 20% hækkunar á launum sínum og yfirvinnu vegna maraþonræða sem þeir halda úti í þingi? Fyrir vestan, þegar ég var lítill, var svona röksemdafærsla eignuð hinum gamla í neðsta. Og samanburður við Norðurlönd væri út í hött, þar sem þó er ekki ætlunin annað en að bera saman launastéttir þar og hér til þess að sýna hvar í röðinni þm. eru og hvernig störf þeirra eru metin og einnig kjör, þar sem mjög svipað gildir í sambandi við þm. t.d. sem búsettir eru utan Kaupmannahafnar og þurfa að sitja þing þar, nema kjörin eru auðvitað miklu betri þar en hér.
Þessi röksemdafærsla Morgunblaðsins er nákvæmlega eins og henti mig nú á dögunum. Ég var staddur í hópi manna þar sem þetta kom auðvitað til umr., og enda þótt ég viti að það sé glæpur að vitna til annarra stétta og síst Íslands Hrafnistumanna eins og sjómanna í samanburðinum, þá varð mér það á að upplýsa, að þm. skorti þó á um milljón í laun 1977 til þess að ná í launum matsveini á tilteknum togara sem ég nefndi. Mér var auðvitað svarað um hæl: Jahá, þetta er sem sagt næsta röksemd ykkar fyrir kaupkröfum þm., að matsveinninn, sem þarf að elda ofan í 30 manns og vakir 22 tíma á sólarhring og kemur aldrei heim til sín, hafi þetta kaup, og nú á ykkar kaupkröfupólitík í framtíðinni að byggjast á þessu. Auðvitað lét ég undan síga, en nefndi að gamni mínu, að svo stæði á að þm. vantaði í laun 1977 kvartmilljón til þess að hafa við háseta á nafngreindum togara. Þá var þar annar maður sem kunni svar við þessu, því að hann sagði: Jahá, þarna er formaður útgerðarfélags togara, og þetta eru sem sé röksemdir sem hann ætlar að nota til þess næst að lækka kaup sjómannanna.
Ég er ekki að segja þetta til þess að Morgunblaðið geti neitt af þessu lært, því að allar svona röksemdafærslur kann það. En það tók í hnúkana í gær í leiðara Morgunblaðsins. Það var á miklum örlagadegi, þegar stjórnarformaðurinn var að leggja fyrir frv. til l. um efnahagsmál, sem er kannske átakamesta málið sem þessi stjórn hefur þurft að gera á sínum stjórnarferli hingað til, og þeir héldu upp á daginn í Morgunblaðinu og kváðu sem svo, ef ég man rétt, að alþm. hefðu orðið uppvísir að því að ívilna sjálfum sér í sköttum, uppvísir að því að veita sjálfum sér skattaívilnanir. Ég á engin sérstök orð í eigu minni til þess að lýsa áliti mínu á slíkum og þvílíkum skrifum. Og það mátti enn fremur skilja á þessum leiðara, að þær efnahagsráðstafanir, sem nú væri verið að gera, væru m.a. nauðsynlegar vegna hegðunar þm. í kaupkröfupólitíkinni — og þá hafa menn það.
Í grg. þm. hafði m.a. verið frá því skýrt, að upp hefði komið þræta um það á sinum tíma, að þm. væri ekki heimilt að víkja undan skattframtali greiðslum til að mynda vegna ferðakostnaðar. Ríkisskattanefnd úrskurðaði að slíkan kostnað bæri þm. ekki að telja fram. Þessi úrskurður liggur fyrir. Dómur hefur fallið í málinu.
Ég legg til að horfið verði til gömlu hefðarinnar um það, að Alþ. sjálft ákveði bæði kaup og kjör. Og ég bið þm. sérstaklega um að skoða hug sinn um þetta. Að svo búnu ef við tökum slíka ákvörðun og sýnum að við erum óhræddir við þennan róg, sem yfir okkur dynur, þá kann vel að vera, að okkur sýnist ástæða til að leiðrétta að nokkru það sem ég játa að úrskeiðis fór vegna úrskurðar Kjaradóms, að þm. skyldi vera ætluð mesta hækkun finnanleg í launum í öllu okkar launaflóði nú á næstliðnum mánuðum. Það kann vel að vera. En haldi svo órökstudd og ósvífin skrif áfram, þá getur svo farið, að allir menn missi löngun til þess yfirleitt að fara að neinu slíku og skelli við skollaeyrum.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þess háttar frv. að sinni. Ég bið alþm. lengstra orða að gæta sóma Alþ. Menn koma og fara hér, þannig að mannorð eins skiptir litlu máli í sambandi við heiður þessarar stofnunar. Það er að honum að gá fyrst og síðast. En aðeins að lokum þyrfti Alþ. að taka til umr. með hvaða hætti verður bætt úr því ófremdarástandi, sem ríkir hjá íslenskum fjölmiðlum vegna þess, hversu íslensk blaðamannastétt t.d. er skelfilega illa mennt. Það eru þar undantekningar, sem sanna regluna, en yfirleitt má segja að allur fjöldinn þar er gersamlega ófær um að vinna þau verk sem hann þyrfti að vinna, því að á fáu ríður einu þjóðfélagi meir en heilbrigðri og sanngjarnri gagnrýni, gagnrýni blaða, sem frá degi til dags halda vöku sinni og vísa mönnum, þing og þjóð, á réttar brautir. En sú aðför, sem hér er gerð, er gerð til þess að kljúfa þingræðið og virðulegustu stofnun þjóðarinnar í herðar niður.
Það má ekki biðja mig um að fylgja neinu frv. sem hægt er að rökstyðja að sé fram flutt fyrir hræðslu sakir fyrir þessum lýð. Ég kallaði það áreiðanlega hræðslufrv., hið fyrra sem flutt var hér fyrir þremur árum. Þá var þetta flutt undir slíkum kringumstæðum sem nú, þar sem á okkur var ráðist af ósanngirni. Hér er komið annað hræðslufrv., allt flutt í skelfingu og ótta við þennan líka þokkalega lýð.