09.02.1978
Neðri deild: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2109 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)
168. mál, þingfararkaup alþingismanna
Eyjólfur K. Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs til þess að andmæla frv. því sem hér er til umr. Ég hef áður andmælt frv. samhljóða eða efnislega samhljóða þessu, og ég geri það af ýmsum ástæðum, með sömu rökum og hv. 2. þm. Austurl., sem hér talaði síðastur, þótt ég sé hins vegar andvígur mörgu í hans máli, sem ég verð að víkja hér að nokkuð á eftir. En fyrst langar mig að víkja að ræðu hv. þm. Ellerts B. Schram, 11. þm. Reykv., en hann rökstuddi mál sitt og flutning þessa frv. með þrem meginliðum sem hann taldi upp.
Sá fyrsti var að hann teldi, að ef laun þm. væru ekki jafngóð og þau nú eru eða að mér skildist helst heldur betri, þá mundu góðir og hæfir menn ekki sækjast eftir þingmennsku. Það var fyrsti liður. Ég er sannfærður um að þetta er rangt og skal rökstyðja það svolítið nánar síðar.
Annar liður var sá, sem hann taldi kannske meginatriði frv., að þingfararkaup yrði helst að hækka, að menn mundu ella sækjast eftir öðrum störfum samhliða þingmannsstörfum, en það er einmitt það sem ég tel að þm. almennt eigi að gera, þeir eigi að sinna öðrum störfum samhliða þingstörfum og þess vegna séu launin nógu há og kannske of há.
Og þriðji liðurinn, sem hann taldi fram, var sá, að það væri mjög mikilvægt, já, lífsnauðsynlegt, sagði hann, að þm. forðuðust freistingar, að þeir væru fjárhagslega óháðir og freistuðust ekki til að láta fjármuni hafa áhrif á skoðanir sínar. Auðvitað erum við öll sammála þessu, enda bætti hann við, að hann hefði enga ástæðu til að ætla að neinir íslenskir þm. féllu fyrir slíkri freistni.
Þegar grundvallarbreyting var gerð á kjörum alþm. með löggjöf 1971 og laun þeirra nærfellt tvöfölduð, þannig að þau urðu nokkurn veginn full árslaun, þá flutti ég brtt. um það, að miða skyldi við flokk B 1, en ekki flokk B 3, þ. e. a. s. að laun þm. yrðu nokkru lægri en ákveðið var. Mér var fullljóst, þegar ég flutti þá till., að hún naut einskis eða svo til einskis fylgis hér innan þings, og ég geri ráð fyrir, að sjónarmið mín njóti ekki heldur í dag neins fylgis eða sáralítils. En ég tel þau samt vera rétt, og þá er það skylda mín að setja þau fram. Það fór líka svo um atkvgr. um þessa till. að aðeins einn þm. annar en ég sjálfur greiddi henni atkv. Minnir mig að það hafi verið hv. þm. Þórarinn Þórarinsson.
Þarna var um stefnamörkun að ræða. Það var verið að taka nýja stefnu varðandi kjör alþm. og þar með varðandi störf Alþ. og starfshætti. Hv. þm. Lúðvík Jósepsson flutti sitt mál hér áðan og taldi að þarna væri rétt að farið, þm, ættu allir að njóta svo góðra kjara, að þeir gætu sinnt þingmannsstörfum einum og þyrftu ekki að leita til annarra starfa. Þeir ættu sem sagt í 12 mánuði ársins — eða við skulum segja 11, ef þeir reiknuðu einn mánuð í fríum, að sinna þingmannsstörfum. Þetta tel ég vera alranga stefnu. Það er alveg ljóst, að nokkrir þm., utan ráðh. þeir sem eru t. d, í forustu stjórnmálaflokkanna, þurfa að hafa þá aðstöðu að geta sinnt stjórnmálastörfum allt árið eða svo til allt árið. En ég held ,að það sé illa farið, að allir þm. geri þetta einungis og sinni ekki öðrum störfum.
Það má lengi deila um hvað kaup þm. á að vera hátt, og það er ekki það sem fyrir mér vakir, að rífast um það til eða frá, hvort kaupið er 10 þús. kr. hærra eða lægra, heldur sú stefna, að allir þm., 60 talsins séu atvinnupólitíkusar, það tel ég vera rangt. Um þetta hafa staðið deilur í langa tíð. Ég minnist þess, að um það urðu mjög harðar deilur hér á síðasta áratug. Þá áttust við Eysteinn Jónsson og Bjarni Benediktsson, og sá síðar nefndi fylgdi svipuðum sjónarmiðum og ég er að reyna að túlka, en hinni fyrrnefndi því sjónarmiði að þm. almennt ættu að vera starfandi allt árið að stjórnmálum og ekki þurfa að sinna öðrum störfum. Þessi rök þekkja allir og ég ætla þess vegna ekki að orðlengja frekar um það, enda eru sjónarmið mín öll til prentuð í ræðu sem ég flutti hér 26. mars 1971, einimitt efnislega á þennan veg, að þar værum við að marka ranga stefnu með því að gera 60 alþm. að atvinnustjórnmálamönnum, þeir myndu slitna úr sambandi við þjóðlífið miklu frekar en sjónarmið þeirra yrðu líflegri og þeir hefðu víðari sjóndeildarhring. Hann mundi áreiðanlega þrengjast frekar, ef þm. ættu árið um kring að vera talandi hver framan í annan og ekki að sinna öðrum störfum úti í þjóðlífinu. Þeir myndu slitna úr sambandi við þjóðlífið miklu frekar en þeir gætu sinnt störfum sínum betur en ella. Og mér þykir leitt að segja það, en ég segi það samt, vegna þess að ég er sannfærður um að það er rétt, að störf Alþ. hafa ekki batnað þan 10 ár sem ég hef litið hér inn af og til. Þau bötnuðu ekki við það að þm. fóru árið 1971 á full árslaun. Ég er sannfærður um það, að þeir, sem unnu hér fyrir hálf laun áður, gegndu störfunum alveg jafnvel og við gerum í dag og kannske betur.
Og þá er komið að þeirri fullyrðingu, að góðir menn mundu ekki fást til þingstarfa ef þeir þyrftu að vinna eitthvað annað en vera hér í þinginu. Því mótmæli ég algerlega. Ég er sannfærður um að einmitt betri menn mundu vilja koma hingað, ef það væri ekki ætlast til þess að þeir sinntu stjórnmálum einum, ef þeir gætu verið í öðrum störfum samhliða. Þetta er í mínum huga mergurinn málsins. Og ég tel ekki, eins og hv. 11. þm. Reykv. sagði, að það eigi að taka kaleikinn frá okkur, að það þyrfti að taka þann kaleik frá alþm. að hafa manndóm til þess að ákveða sjálfir launakjör sín, vera löggjafi í því efni eins og öðru. Ég hygg að við eigum að hafa manndóm til þess. Við getum gjarnan deilt um það, hvað þau eigi að vera há. Ég tel að það hafi verið slys, að kjör þm. skyldu núna hækka meira en flestra annarra að hundraðshluta. Ég held að öllum hafi fundist það vera slys. Það er þá kannske enn þá meira slys að leiðrétta það ekki um leið og við vissum að slysið var orðið. Menn reyna venjulega, þegar slys verða, að bæta úr því sem bætt verður. Og þó að það sé kannske orðið nokkuð seint, þá fagna ég því auðvitað mjög, sem formaður þfkn. sagði áðan, að vel kynni svo að fara, að hann sjálfur mundi beita sér fyrir því að þfkn. leiðrétti þetta, reyndi að bæta fyrir þetta slys. Og auðvitað stæði honum næst og þfkn. að gera það. Og ég fagna því mjög, sem hv. 2. þm. Austurl. sagði hér líka, að hann teldi vel geta komið til greina að laun þm. yrðu ákveðin með sama hætti og gert var árið 1964. Þau voru þá ákveðin krónutala og skyldu síðan hækka til jafns við laun opinberra starfsmanna almennt. Við getum t. d. hugsað okkur að ákveða núna, að laun þm. væru 300 þús. kr. á mánuði og lækka um 10% eða hvað það nú er, og síðan myndu þau hækka til jafns við laun annarra, eða þá, sem væri ekkert síður hægt að gera, að miða við annan flokk, nokkru lægri flokk í núgildandi launasamningum heldur en þfkn. gerði, vegna þess að ég verð að segja það, að ég efast um að þessi lögskýring hennar sé rétt. Þessi flokkur, B 3, er ekki lengur til, það er búið að riðla þessari flokkaskipun, og þfkn. varð auðvitað að kveða upp einhvern úrskurð. Hún vissi ekki, að mér er tjáð, enginn í þfkn. gerði sér grein fyrir því, að kaup þm. mundi hækka meira en almennt, þegar hún ákvað að fara í þennan flokk sem hún valdi. Ef hún hefði vitað það er ég sannfærður um, að hún hefði valið annan flokk, farið einu skrefi neðar eða tveimur, og hún getur gert það enn í dag. Og það er það sem ég tel einmitt, að hún eigi að gera.
En ég vil benda á að það er rangt, sem hefur komið fram hér í þessum umr., að stefnubreyting varðandi kjör þm. hafi verið veruleg árið 1964 þegar lögin upphaflega voru sett. Það var að vísu svo, að mánaðarlaun voru ákveðin, en áður höfðu eingöngu verið greidd laun fyrir þingtímann, svokallað þingfararkaup, orð sem raunar er enn notað. En það var einungis yfir þingtímann. Það varð ekki veruleg hækkun á launum þm. þá. En veruleg hækkun varð hins vegar 1971, og eins og ég sagði áðan næstum tvöföld. Það voru næstum tvöföld laun þm. En jafnframt var ákveðið að þm., sem gegndu embættum úti á landi, skyldu einungis njóta 3/10 hluta embættislauna þar og þá gert ráð fyrir að þeir gætu ekki sinnt þeim störfum nema sem svaraði 1/4 úr ári eða 3 mánuði, ef þeir tækju eðlilegt sumarfrí.
Hv. þm. Lúðvík Jósepsson vildi breyta þessu þannig að afnema algerlega embættislaun manna sem á þingi væru. Þar er ég innilega ósammála honum. Ég vil heldur lækka laun þm. nokkuð, en gera ráð fyrir því, að menn geti sinnt störfum sem svarar helmingi ársins á öðrum vettvangi, ýmist í opinberum fyrirtækjum eða einkafyrirtækjum. Þá væri ekki ætlast til þess, að menn væru bundnir við störf á þingi lengur en sem svaraði hálfu ári. Hérna er um skoðanaágreining að ræða. Það getur vel verið að meiri hluti manna telji hv. þm. Lúðvík Jósepsson hafa rétt fyrir sér og mig rangt, en hér er þó um hreinan skoðanaágreining að ræða. Og hv. þm, segir: Við eigum alls ekki að leyfa mönnum að hafa laun annars staðar, þeir eiga að vera við þetta starf allt árið um kring. — Ég segi þvert á móti: Óbreyttir þm. þyrftu helst að starfa sem næst hálft árið við önnur störf, þingtími styttur eins og hægt væri og þá yrði líka unnið þeim mun betur þann tíma sem þing sæti, t. d. 2–3 mánuði að hausti og 2–3 mánuði að vori, með löngu hléi á milli og mál þá sæmilega undirbúin þegar menn kæmu saman.
Kjör þm. almennt mundu sjálfsagt verða betri eftir minni leið heldur en þeirri sem hv. 2. þm Austurl. leggur til, vegna þess að þeir mundu auðvitað hafa ríflegar tekjur við önnur störf. Flestir eru þm. duglegir menn og mundu einbeita sér að öðrum störfum, svo að það er varla hægt að segja út af fyrir sig, að ég sé að tala um að rýra kjör þm. eða ofmetnast yfir þeim. Ég tel bara stefnuna vera rétta, þá sem ég boðaði, og þess vegna get ég ekki stillt mig um að koma hér upp til þess að setja þessi sjónarmið enn einu sinni fram, án þess að ég eigi von á að þau njóti mjög mikils fylgis hér.
Einhver hefur kannske haldið að ég kæmi hér fram til þess að verja mína gömlu vini og kollega á Morgunblaðinu fyrir árásum hv. þm. Sverris Hermannssonar, en mér fannst þær þess eðlis að þær séu ekki svaraverðar. En séu þær svaraverðar, þá eru blaðamenn, ekki síst þeir Styrmir Gunnarsson og Matthías Johannessen, einfærir að svara fyrir svona skæting.