25.10.1977
Sameinað þing: 9. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (171)

4. mál, kosningalög

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 4 þáltill. ásamt fjórum öðrum þm. Alþb., Gils Guðmundssyni, Stefáni Jónssyni, Geir Gunnarssyni og Svövu Jakobsdóttur, um breytingu á kosningalögunum. — Till. er þess efnis, að Alþ. kjósi fimm manna n., sem skipuð sé einum fulltrúa frá hverjum þingflokki og verði falið það hlutverk að semja frv. til l. um breyt. á kosningalögum er miði að því að gera kjósendum auðveldara en nú er að velja milli frambjóðenda á þeim lista sem þeir kjósa.

Í umr. utan dagskrár 12. okt. s.l., sem urðu hér að frumkvæði hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasonar, formanns þingflokks Alþfl., sagði hv. þm. Þórarinn Þórarinsson í upphafi ræðu sinnar:

„Þetta þing hefur hafist með nokkuð sérstöku og að mínu mati að ýmsu leyti skemmtilegu kapphlaupi milli Alþb. og Alþfl.“

Og síðar:

„Mér finnst þetta kapphlaup skemmtilegt þegar ég rifja upp fyrstu daga mína hér á Alþ. Það var á sumarþinginu 1959 og þá var deilt um það kosningafyrirkomulag sem við búum við núna. Þá voru það Alþb. og Alþfl., sem höfðu samvinnu við Sjálfstfl, og rufu reyndar vinstri stjórnina til að koma þessu fyrirkomulagi á. Og hver var sú meginbreyting, sem gerð var með stjórnarskrárbreytingunni 1959? Meginbreytingin var sú að afnema persónulegt kjör þm. Fram að þeim tíma höfðu þm. verið að langsamlega mestu leyti kosnir í einmenningskjördæmum, en það var eina fyrirkomulagið sem fullkomlega tryggir persónulega kosningu þm.“

Þetta voru orð hv. Þm. Þórarins Þórarinssonar. Það kann að vera rétt hjá Þórarni Þórarinssyni að þessar utandagskrárumr., sem fram fóru 12. okt. s.l., hafi borið þess vott af hálfu forustumanna Alþfl., að um væri að ræða eitthvert óvenjulegt kapphlaup í þeim tilgangi að þeir yrðu fyrstir til að hreyfa þessu máli. Hitt er fráleitt, sem lesa má úr orðum Þórarins Þórarinssonar, að besta lausnin á þessu vandamáli, sem varðar persónubundnari kosningar, sé sú að hverfa nokkra áratugi aftur í tímann og taka upp einmenningskjördæmi að nýju. Það væri vissulega að fara úr öskunni í eldinn. Þá væru menn að leysa ákveðið vandamál með því að kalla yfir sig annað og miklu stærra vandamál.

Á fyrri hluta þessarar aldar voru uppi tvær kenningar í kjördæmamálum. Í fyrsta lagi var uppi sú kenning, að réttast væri að skipta landinu öllu í einmenningskjördæmi. Hin kenningin var sú, að við ættum að gera landið allt að einu kjördæmi. Þeir, sem börðust fyrir fyrrnefndu stefnunni, vildu vissulega tryggja að kosningar yrðu persónubundnar og að sem nánast samband yrði milli frambjóðenda og kjósenda, en hitt létu þeir liggja milli hluta og virtist minna máli skipta fyrir þá, að sú skipan hlaut að hafa í för með sér töluvert mikið óréttlæti og mismunun milli stjórnmálaflokka, eins og reynslan hefur alls staðar sýnt. Þeir, sem aftur á móti börðust fyrir síðari stefnunni, þ.e.a.s. þeirri að gera landið allt að einu kjördæmi, vildu fyrst og fremst tryggja sem mest jafnrétti milli stjórnmálaflokkanna og sem jafnasta dreifingu atkv. á bak við hvern alþm., en létu hitt lönd og leið, að kosningin varð með þeim hætti mjög ópersónuleg. Vald flokkanna til þess að velja þá, sem urðu fulltrúar þeirra á Alþ., varð nær algert með þeirri skipan mála og áhrif kjósenda í lágmarki. Í báðum tilvikum einblindu menn á ákveðið vandamál sem þeir hugðust leysa, en horfðu þá jafnframt fram hjá öllum öðrum vandamálum sem þessu voru tengd. Og sem betur fer var hvorug þessara leiða valin á sínum tíma. Við Íslendingar völdum millileið, sem fólgin var í því að landinu var skipt í 8 kjördæmi með 5–12 þm. í hverju kjördæmi og síðan 11 landskjörnum þm. til jöfnunar. Þessi millileið tryggir að sjálfsögðu miklu meiri tengsl kjósenda og þm. heldur en sú leið, að landið hefði verið eitt kjördæmi, en um leið er um að ræða ólíkt meira réttlæti og jafnari aðstöðu flokka en verið hefði ef landinu hefði verið skipt í einmenningskjördæmi.

Hitt er allt annað mál, og að því víkur þessi till, sem við höfum flutt hér, að núverandi kosningafyrirkomulag er langt frá því að vera gallalaust. Einn helsti gallinn er einmitt sá, hve lítil áhrif kjósendur hafa á röð þeirra frambjóðenda sem eru á þeim lista sem þeir kjósa. Miðað við núverandi kjördæmaskipun og stöðu flokkanna í dag má segja að ekki fleiri en þriðjungur alþm. sé í raunverulegri hættu að missa þingsæti sitt á kjördegi. Kosning hinna er meira eða minna fyrir fram örugg. Kjósandinn hefur að vísu rétt til þess að strika út frambjóðanda eða breyta röðinni, en raunveruleg áhrif kjósenda á röð frambjóðenda hafa reynst mjög lítil og raunar engin í reynd eftir þær breytingar, sem gerðar voru á kosningalögunum árið 1959. Í 110. gr. kosningalaganna er svo fyrir mælt, að þrátt fyrir útstrikun eða breytingu á atkvæðaseðli fái frambjóðendur listans 2/3 atkvæðisins eins og engin breyting hafi verið gerð á listanum. Með öðrum orðum má segja, að aðeins sé tekið tillit til þriðja hluta þeirra breytinga sem gerðar eru á röð frambjóðenda.

Sú skoðun hefur greinilega átt vaxandi fylgi að fagna, að réttur kjósenda til að hafa áhrif á röð frambjóðenda á þeim lista, sem þeir kjósa, væri allt of takmarkaður. Þetta hefur m.a. leitt til þess, að prófkosningar eða einhvers konar skoðanakannanir til undirbúnings framboðslista hafa orðið æ tíðari eftir því sem lengra hefur liðið frá því að þessi breyting var gerð og tilhögun þeirra hefur verið með mjög mismunandi móti hjá hinum ýmsu flokkum.

Ég tel að því sé ekki að leyna, að prófkosningar séu á ýmsan hátt gallaðar, og byggi það á því grundvallarviðhorfi mínu, að það sé almennt óæskilegt í stjórnmálum að kosningar snúist fyrst og fremst um persónulega verðleika einstaklinga. Þó að ég viðurkenni að vísu að það sé ekkert óeðlilegt að kjósendur taki tillit til dugnaðar og hæfileika einstakra manna sem fram eru bornir, þá er nú samt hitt gæfulegra, að pólitískar kosningar snúist fremur um málefni og a.m.k. ekki eingöngu um menn. Það virðist sem sagt eðlilegast að á kjördegi geti kjósandinn valið milli flokka á málefnalegum grundvelli og átt þess samtímis kost að velja á milli frambjóðenda flokksins.

Fyrsti valkosturinn, sem þar kemur til greina, er að sjálfsögðu sá möguleiki að útstrikanir verði teknar upp í ríkari mæli en verið hefur, réttur til útstrikana verði aukinn.

Ég vil hins vegar lýsa því yfir, að ég er ekki hrifinn af þeirri lausn mála, að aukin áhrif kjósenda á val frambjóðenda gerist með útstrikunum. Þessi útstrikunaraðferð er neikvæð aðferð og áreiðanlega fáum að skapi. Gallinn við útstrikunaraðferðina, sem var í gildi þegar kosningalögin voru með öðrum hætti, þ.e.a.s. fyrir breytinguna 1959, var sá, að yfirgnæfandi meiri hl. kjósenda kaus flokkslistann, en hins vegar var þá hugsanlega um að ræða tiltölulega lítinn hóp manna sem skipulagði útstrikanir og náði þá gjarnan árangri með því að koma mönnum í opna skjöldu. Þetta fannst mörgum um of einkennast af því, að minni hl. færi að læðast aftan að meiri hl. Þessi réttur minni hl. var því skertur stórlega árið 1959, eins og ég hef nú þegar rakið, með þeim afleiðingum að útstrikanir hafa aldrei síðan leitt til breytinga á framboðslista.

Ég vil vekja á því athygli, að kosningaaðferð, sem byggist á merkingu kjósenda við nafn á óröðuðum lista, er allt annars eðlis en útstrikunaraðferðin gamla og hefur alls ekki þær neikvæðu hliðar sem sú aðferð hefur. Breytt kosningafyrirkomulag, sem mundi miðast með einhverjum hætti við aukin áhrif kjósenda á röð frambjóðenda, yrði að byggjast á þeirri forsendu að verulegur hluti kjósenda tæki þátt í vali frambjóðandans, tæki þátt í þessu persónulega vali, og því yrði ekki um það að ræða að einhver lítill minni hl. færi að læðast aftan að meiri hl.

Ef litið er út fyrir landssteina, hvernig aðrar þjóðir haga þessum málum, er augljóst að þar er víða um að ræða athyglisverð fordæmi fyrir okkur Íslendinga. Ég get minnt á það, að í Vestur-Þýskalandi er um það að ræða að kjósandinn hefur 2 atkvæði: annars vegar kýs hann frambjóðanda í ákveðnu kjördæmi og þá er kosningin persónubundin, hins vegar kýs hann landslista flokksins. Það eru hinir landskjörnu þm. sem þannig eru kosnir, og með þessu er reynt að blanda saman að kjósandinn kjósi flokk og að hann kjósi frambjóðanda. Ég er hins vegar ekki viss um að þessi tilhögun henti neitt sérstaklega hér á Íslandi. A.m.k. er ljóst, að þetta þýddi stórfellda breytingu á kjördæmaskipun sem ekki yrði komið á öðruvísi en með stjórnarskrárbreytingu. Ég vil benda á að í Belgíu mun vera um að ræða talsverð mikil áhrif kjósenda á röðun frambjóðenda þess lista sem þeir kjósa, en því miður hef ég ekki fengið upplýsingar um það, hvernig þessu kosningafyrirkomulagi er hagað. Hitt veit ég, að n. skipuð þm, úr öllum stjórnmálaflokkum Svíþjóðar komst að þeirri niðurstöðu nú fyrir fáum vikum, að rétt væri að breyta kosningalögum þar í landi í þá átt sem væri í Belgíu. Mér skilst að þar sé um að ræða mjög svipaðar hugmyndir og menn hafa hér á landi verið að kasta á milli sín, þ.e.a.s. að um yrði að ræða að kosningin yrði persónubundnari þó að kjördæmaskipuninni væri ekki breytt.

Það fyrirkomulag, sem ég vil helst gera hér að umtalsefni, eru dönsku kosningalögin, sem ég hef kynnt mér og ætla að rekja hér í grófum dráttum sem mjög glöggt dæmi um það, hvernig unnt er að ná þessu markmiði fram. Ég kemst hins vegar ekki hjá því að nefna þá um leið kjördæmaskipunina sem að sjálfsögðu tengist þessu máli nokkuð.

Kosningafyrirkomulagið í Danmörku einkennist af því, að landinu er skipt í 17 kjördæmi á þremur kjörsvæðum, þannig að 7 kjördæmi eru í tveimur kjörsvæðum og 3 í einu. Kjördæmin eru nefnd storkredsen og amtskredsen. En síðan eru kjördeildir, eða á þeirra máli epstillingskredse, í hverju kjördæmi, 6–7 kjördeildir í hverju kjördæmi, og kjördeildirnar eru því samanlagt 103. Uppbótarsætum er skipt milli flokka og síðan á kjördæmi í hlutfalli við atkvæði. Þegar öll þingsæti eru talin lætur nærri að einn til tveir þm. komi á hverja kjördeild eða opstillingskreds að jafnaði þó það sé engin regla. Þess vegna er það fyrirkomulag í Danmörku að kjósandinn merkir aðeins við einn frambjóðanda, hann setur aðeins einn kross við listann á atkvæðaseðlinum og merkir þá annaðhvort við einhvern þann sem boðinn er fram í viðkomandi kjördeild, þar sem hann á kosningarrétt, eða við frambjóðanda úr annarri kjördeild sem þó er í sama kjördæminu. Flokkur, sem væntir þess að fá 2–3 þm. í ákveðnu kjördæmi, reynir þá að dreifa þeim mönnum, sem hann vill helst koma að, á þær kjördeildir sem hann telur líklegast að séu sterkastar fyrir flokkinn Með þessu fyrirkomulagi hafa Danir reynt að ná fram kostum einmenningskjördæmanna, jafnvel þótt kjördæmin séu áfram fá og stór eða 17 talsins, eins og ég sagði áðan.

Meginatriði kosningafyrirkomulagsins eru þá þau, að menn bjóða sig fram með tilstyrk meðmælenda, minnst 25, og tilkynna þá um leið hvaða flokk þeir styðja. Flokkurinn á síðan að tilkynna hvort hann tilnefnir ákveðna frambjóðendur af sinni hálfu og hvaða frambjóðendur það eru og í hvaða röð hann setur þá fram, en í öðru lagi tilkynnir flokkurinn hvaða frambjóðendur aðrir, sem hafa verið boðnir fram í nafni flokksins, eru samþykktir af flokknum. Á þessu tvennu er augljóslega nokkur munur: annars vegar að flokkurinn tilnefni menn hugsanlega á röðuðum lista, hins vegar að hann samþykki frambjóðendur sem hafa verið tilnefndir af einhverjum öðrum. Síðan eru tilnefndir frambjóðendur auðkenndir með hálffeitu letri, en ella ræður stafrófsröðin ef ekki er um tilnefningu að ræða.

Kjósandinn á þess kost að krossa hvort heldur hann vill við flokksbókstafinn eða við ákveðinn frambjóðanda sem er innan þess ramma á atkvæðaseðlinum sem flokknum er ætlaður. Ef krossinn fellur einhvers staðar innan þess ferhyrnings sem flokknum er ætlaður á seðlinum, þá fær flokkurinn atkvæði. En atkvæðin geta verið tvenns konar eftir því hvar krossinn lendir. Ef merkt er við ákveðið nafn á seðlinum, þá er um að ræða persónubundið atkvæði, en ef merkt er við bókstafinn, þá er um að ræða flokkslegt atkvæði. Hafi hins vegar atkvæðin lent einhvers staðar utan hjá eða á milli nafna eða með ógreinilegum hætti þá telst það einnig flokksatkvæði, þ.e. vafaatkvæði sem sannarlega lendir innan þess reits sem flokkurinn á.

Síðan er meginreglan sú, að frambjóðendur í viðkomandi kjördeild skipta með sér flokksatkvæðum í hlutfalli við persónulegu atkvæðin sem þeir hafa fengið. Síðan er kjördæmakosnum þingsætum úthlutað, þó ekki með sama hætti og hér á Íslandi, en það er annað mál sem ekki kemur þessu þingmáli við. Þó er rétt að láta þess getið mönnum til fróðleiks, að þar er skiptireglan talsvert önnur en hefur verið í gildi hér á landi um langt skeið. Við fylgjum svonefndri de Hondt reglu, þar sem deilt er í með tölustöfunum 1, 2, 3, 4, 5 o.s.frv., en Danir nota deiliregluna 1, 4, 3, 5, 7 sem gefur dálítið aðra niðurstöðu. Síðan er uppbótarþingsætum úthlutað að því marki að bingsætafjöldi flokkanna verði í réttu hlutfalli við atkvæðastyrkinn. Þegar þetta hefur verið gert getur úthlutun þingsæta farið fram. Ef flokkurinn hefur ekki lagt fram raðaðan lista, þá teljast einfaldlega þeir frambjóðendur kosnir í kjördæminu sem flest atkvæði hafa hlotið samanlagt í hinum ýmsu kjördeildum. Hins vegar ef listi hefur verið lagður fram, þá fer úthlutun þingsæta þannig fram, að í atkvæðafjölda flokksins í kjördæminu er deilt með tölu sem er einum hærri en sá fjöldi þingsæta sem flokkurinn á að fá í kjördæminu. og þá fæst út svonefnd skiptitala flokksins í kjördæminu, og frambjóðandi, sem náð hefur skiptitölu flokksins. telst kosinn En þá er væntanlega ekki búið að úthluta nema fáum af heim þingsætum sem á að úthluta, og því verður að yfirfæra þann atkvæðafjölda viðkomandi frambjóðanda, sem náð hefur kjöri, — það verður að yfirfæra þann atkvæðafjölda, sem er fram yfir skiptitöluna, yfir á aðra frambjóðendur flokkslistans sem hafa ekki þegar náð kjöri samkvæmt framansögðu.

Þannig er haldið áfram að leita að því hver gengur næstur því að hafa hlotið kosningu, en þar er um að ræða flóknari reikningsreglur en svo að ég telji ástæðu til að fara að lýsa þeim hér.

Þetta eru meginatriðin í dönsku kosningalöggjöfinni, og af þessari lýsingu má það ljóst vera, að aðstæður eru þar töluvert aðrar hvað kjördæmaskipun snertir og einsýnt að ekki yrði um að ræða einfalda eftiröpun af okkar hálfu nema um væri að ræða stjórnarskrárbreytingu sem þreytti kjördæmaskipun okkar í grundvallaratriðum.

Ég tel að ef tekið væri upp kosningafyrirkomulag, sem gengi lengra en að heimila bara útstrikanir og byggði að einhverju leyti á óröðuðum lista, þá þyrftum við að taka afstöðu til nokkurra mismunandi leiða sem til greina kæmu.

Í fyrsta lagi þyrfti að ákveða hvort óraðaður listi yrði almenn regla, sem flokkunum bæri að fara eftir, eða hvort flokkur ætti að hafa heimild til að ákveða sjálfur hvort um yrði að ræða raðaðan eða óraðaðan lista. En þannig er þetta í Danmörku, að flokkunum er í sjálfsvald sett hvort þeir gera. Persónulega tel ég að síðari leiðin sé miklu eðlilegri, að þetta sé heimildarákvæði.

Í öðru lagi þarf að taka afstöðu til þess, ef um óraðaðan lista er að ræða, hvað eigi að gera við þau atkvæði sem augljóslega virðast hafa fallið á viðkomandi flokk, þ.e.a.s. merkt hefur verið annaðhvort við listabókstafinn sjálfan eða merkt hefur verið einhvers staðar á seðlinum þar sem óljóst er hver hefur átt að hljóta atkvæðið. Þar getur verið um þrjá möguleika að ræða: í fyrsta lagi að slíkt atkvæði væri talið ógilt, í öðru lagi að slík atkvæði teldust falla á flokkinn, en skiptust síðan í hlutfalli við persónulegu atkvæðin, og í þriðja lagi að slík atkvæði féllu á frambjóðendur í samræmi við einhverja fyrirfram ábendingu flokksins sem lægi fyrir. Þetta eru þrír möguleikar. Ég tel að fyrsti möguleikinn komi alls ekki til greina, að slíkt atkvæði væri talið ógilt, og önnur hvor síðari leiðin hlyti að verða fyrir valinu.

Í þriðja lagi verður að taka afstöðu til þess, hvernig merking kjósandans á að vera. Á kjósandinn að setja tölustafi við jafnmarga aðalmenn á atkvæðaseðlinum og kjósa á? T.d. hér í Reykjavík, ef maður kýs ákveðinn flokk, á hann þá að setja 12 tölustafi við frambjóðendur víðkomandi lista? Eiga tölustafirnir — það er annar möguleikinn — að vera jafnmargir og viðkomandi flokkur fékk kjörna aðalmenn í síðustu kosningum, en þá hugmynd hef ég heyrt nefnda í umr. um þessi mál. Og svo er þriðji möguleikinn, að menn setji einungis kross eða krossa á listann, hugsanlega tvo eða fleiri jafngilda krossa framan við nöfn þeirra manna sem þeir helst kjósa að verði fulltrúar listans.

Eins og ég gat um áðan hafa Danir valið þá leið, að aðeins er um að ræða einn kross. Það er eðlilegt þar sem landinu er skipt í kjördeildir og ekki koma nema einn eða tveir þm. í hlut hverrar kjördeildar. En þetta er hins vegar mjög óeðlilegt í stærri kjördæmum eða kjördeildum. Ég tel persónulega að tölusetning við mörg nöfn á atkvæðaseðli sé óþarflega flókin kosningaaðferð, hættulega flókin kosningaaðferð. En mér skilst að frv. það, sem hv, þm. Jón Skaftason hefur lagt hér fram, miðist við að menn setji svo og svo marga tölustafi við ákveðin nöfn á seðlinum.

Ég held persónulega að við yrðum að velja tiltölulega einfalt kerfi, og ég hallast helst að því, að um yrði að ræða í minni kjördæmum, þar sem á að kjósa 5–6 þm., að þar yrði settur annaðhvort einn eða tveir krossar, og í stærri kjördæmum, þar sem á að kjósa 12 þm., eins og er hér í Reykjavík, yrðu settir fjórir krossar. Mér finnst að þetta verði að vera mismunandi eftir kjördæmum vegna þess að kjördæmin eru misstór. Það liggur í hlutarins eðli, að það getur ekki gilt það sama um lítið kjördæmi eins og stórt, og ég sé ekkert við það að athuga að svo sé. En mér virðist líka að áhrif kjósandans gætu verið alveg nægileg jafnvel þótt hann kysi ekki jafnmarga þm. og viðkomandi flokkur hugsanlega fær. Hann fengi þarna hugsanlega að velja 4 þm., en flokkur hefur víst fengið mest 7 þm. í einu kjördæmi og það er hér í Reykjavík.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þá ýmsu möguleika sem til greina koma í þessu sambandi. Ég hef aðeins vakið athygli á þessum möguleikum til að gera mönnum betri grein fyrir hvað þarna er um að ræða. Staðreyndin er auðvitað sú, að flm. till. hafa alls ekki tekið afstöðu til þess, hvaða leið yrði valin í þessu sambandi. Eðlilegast er að væntanleg þingnefnd kanni nánar framkvæmd málsins, kynni sér hvernig þetta er framkvæmt í öðrum löndum og velji síðan þá kosningaaðferð sem er sanngjörnust og jafnframt einföldust, á það vil ég leggja áherslu.

Í sambandi við kosningafyrirkomulag er það einkum tvennt sem hefur hér komið til umr., bæði hér á Alþ. og í umr. manna á meðal utan þings. Það er í fyrsta lagi kjördæmaskipunin, tilhögunin á úthlutun landskjörinna þm. og þingmannafjöldi, í öðru lagi hvort unnt væri að gera kosninguna persónubundnari en nú er. Ég tel að þessi tvö viðfangsefni séu nokkuð aðskilin og það sé hæpinn ávinningur að blanda saman þessum tveimur verkefnum. Fyrra verkefnið, sem snertir kjördæmaskipunina, verður ekki framkvæmt öðruvísi en með stjórnarskrárbreytingu. Ég tel að allar breytingar á tilhögun við úthlutun þingsæta verði kák eitt ef farið er að fikta við kosningalögin ein, eins og hafa þó komið fram hugmyndir um, heldur, ef menn vilja þar einhverju breyta sem ég býst við að marga fýsi, verði að skoða það mál í tengslum við stjórnarskrána og þau ákvæði sem þar eru. En þetta þýðir þá líka það, að slík breyting mundi ekki geta náð fram að ganga fyrir næstu alþingiskosningar. Síðari breytingin, sem snertir persónubundið kjör, er hins vegar einföld lagabreyting sem getur tekið gildi fyrir næstu alþingiskosningar.

Ég er algjörlega andvígur því, að þessum málum öllum verði hrært saman sem viðfangsefni einnar og sömu nefndarinnar, eins og hér hafa þó komið fram hugmyndir um og fólst í ábendingum hv. formanns þingflokks Alþfl. og undirtektum forsrh, við fyrirspurn hans hér á Alþ. 12 okt. s.l. Ég held, ef farið er að skipa eina n. til að skoða öll þessi mál, bæði kosningaskipanina eða kjördæmaskipunina, úthlutun þingsæta, og svo líka spursmálið um persónubundnara kjör, þá sé það vísasta leiðin til þess að flækja þetta mál svo rækilega að engin niðurstaða fáist á þessu þingi. Mér virðist á öllu að þeir, sem vilja tryggja að engin breyting verði í þessum efnum fyrir næstu kosningar og að áhrif kjósenda við val frambjóðenda verði óbreytt frá því sem verið hefur, muni velja þá leiðina að hræra þessum viðfangsefnum öllum saman.

Hitt er leiðin til að komast að einhverri niðurstöðu varðandi þetta spursmál um persónubundið kjör, að skipa sérstaka nefnd þm. til að skoða það sérstaklega. Finnst mér þá eðlilegast að hin atriðin, sem snerta kjördæmaskipun, verði skoðuð áfram af stjórnarskrárnefnd sem Alþ. hefur sérstaklega kosið til að fjalla um það mál. Um þetta hafa einmitt farið fram talsverðar umr. í stjórnarskrárnefnd og þar verið safnað miklum gögnum, enda þótt fundartíðni í þeirri n. hafi ekki verið eins og ég hefði helst kosið. Á það sér ýmsar skýringar sem hér skal ekki fjölyrt um. En ég sé ekkert því til fyrirstöðu, að flokkarnir færu fram á það við stjórnarskrárnefnd að hún hraðaði störfum sínum, a.m.k. hvað snertir þetta atriði, og að hún skilaði áliti um þessi mál fyrir einhvern ákveðinn tíma. Mér finnst það satt að segja dálítið skrýtilegt af Alþ., sem hefur kosið stjórnarskrárnefnd sem ekki hefur enn skilað störfum, en vitað er að hefur haldið æðimarga fundi og hefur sérstakan starfsmann, ef Alþ. ætlar nú að fara að kjósa aðra n, til þess að ræða um sömu mál. Og þetta vil ég sem sagt leggja áherslu á að lekum, að ef menn vilja ná einhverjum árangri í þessum efnum varðandi persónubundnara kjör og komast að einhverri niðurstöðu, þá er vænlegasta leiðin sú, að um verði að ræða sérstaka n. eins og hér er gerð till. um.

Ég vil svo, herra forseti, að lokinni þessari umr. leggja til að málinu verði vísað til hv. allshn.