09.02.1978
Efri deild: 59. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2178 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)
175. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Frsm. 2. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Ég gat þess við 1. umr„ að enginn hæstv. ráðh. sæi ástæðu til að hlýða á mál okkar í stjórnarandstöðunni. Nú sætti ég mig ekki við þessi vinnubrögð lengur og ég mun standa hér orðlaus og þegjandi í ræðustól þangað til hæstv. forsrh. kemur. Mig varðar engu hvað hann er að gera. (Forseti: Það hafa þegar verið gerðar ráðstafanir til þess að gera forsrh. aðvart. Hann er í húsinu.) — Herra forseti. Ég sé að hæstv. forsrh. er genginn í salinn, og ég þakka fyrir að við beiðni minni er orðið, svo hæstv. forsrh. heyri það beint af mínum munni. Ég taldi ekki lengur við unandi, að hann sæti ekki hér fund í d., og gerði kröfu til þess að hann mætti, hvað hann hefur nú gert, og ég þakka fyrir það. Því miður er ekki búið að dreifa nál. mínu og mun ég því lesa það orðrétt eins og það liggur fyrir og síðan fjalla lítils háttar um frv., þar sem hæstv. forsrh. gat ekki verið viðlátinn 1. umr. er við fjölluðum um málið, aðrir þm.
„Frv. felur í sér staðfestingu á því, sem almenningur hér á landi hafði beyg af undanfarnar vikur; að enn einu sinni ætti að fella gengi íslensku krónunnar. Þetta frv. felur í sér beina gengisfellingu um 13%, en það jafngildir hækkun á erlendum gjaldeyri að meðaltali um 15%.
Núv. ríkisstj. hefur því þrisvar sinnum á valdaferli sínum lækkað gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldeyri með sérstakri löggjöf þar um. Auk þess hefur hún beitt eða látið Seðlabankann beita svonefndu gengissigi. Þetta gengissig hefur verið svo ört á undanförnum nokkrum vikum, að það jafngildir nokkurn veginn 2% gengisfellingu að meðaltali á mánuði. Þetta hefur almenningur fundið og skynjað stöðugar verðhækkanir á erlendri vöru.
Til þess að draga úr áhrifum af rýrnandi verðgildi íslensku krónunnar gagnvart erlendum aðföngum hefur hver og einn einstaklingur eftir bestu getu og aðstæðum eytt lausafé sínu. Þessi ráðstöfun hins almenna borgara hefur leitt af sér meiri eftirspurn á erlendum gjaldeyri af hálfu innflytjenda, og voru biðraðir í gjaldeyrisbönkunum eftir að fá að kaupa erlendan gjaldeyri, sem var kominn að mati margra á útsöluverð. Seðlabanki Íslands sá sig til neyddan, auðvitað í samráði við stjórnvöld, að fella niður skráningu á erlendum gjaldeyri og svonefnd gjaldeyrisnefnd bankanna var látin tefja venjulega afgreiðslu gjaldeyrisumsókna eftir föngum. Almenningur hefur undanfarna daga keypt dýrar vörur fram úr hófi til þess að bjarga rýrnun sparifjár frá meiri skakkaföllum, sem þessi beina gengisfelling annars hefði í för með sér. Hverjum einstaklingi, sem hefur átt sparifé í bankastofnunum ríkisins undanfarin ár, er nokkur vorkunn þar sem sameiginleg rýrnun sparifjár landsmanna á árinu 1977 nemur um eða yfir 14 milljörðum kr. Enn einu sinni er ráðist af hálfu stjórnvalda á sparnaðarviðleitni hins almenna borgara og hann sviptur verðmætum sparnaði, sem hann á í formi sparifjár í bankastofnunum landsins. Það er skoðun undirritaðs, að ógerlegt sé að koma á jafnvægi í neyslu og fjárfestingu í þjóðarbúskap okkar meðan fylgt er gengislækkunar- og gengissigsstefnu, eins og átt hefur sér stað í mörg undanfarin ár. Hér eiga allir stjórnmálaflokkar hlut að máli og við höfum verið í miklum minni hl. hér á hv. Alþ., þeir þm. er telja þessa stefnu löngu gengna sér til húðar.
Því miður er ekki að sjá að enn sé fyrir hendi grundvallarbreyting í þessum efnum, og hlýtur undirritaður að skírskota til almennings, að hann veiti þessari gengisfellingar- og gengissigsstefnu hart aðhald og raunar hreki hana upp að vegg, svo að lengra verði ekki haldið í stjórnun efnahagsmála á þessari braut.
Óþarfi er að rekja í hlutfallstölum, hvað erlendur gjaldeyrir hefur hækkað á valdaferli núv. ríkisstj„ þar sem öllum landsmönnum er málið vel kunnugt. Þó má minna á, að verð á Bandaríkjadollar vegna gengisfellingar og gengissigs er u. b. b. 157% hærra en það var í ágúst 1974, þegar þessi hæstv. ríkisstj. íhaldsmanna og framsóknarmanna tók völdin í landinu. Afleiðing af þessari efnahagsstefnu gagnvart sparifjáreigendum er sú, að þeir, ungir sem aldnir, hafa sætt verðrýrnun sem nemur mörgum tugum milljarða á valdaferli þessarar ríkisstj. Þetta táknar að hliðstæð upphæð hefur raunar verið veitt skuldakóngum landsins.
Allir viðurkenna í orði, að einu aðalvandi efnahagsmála á Íslandi sé verðbólga. Höfuðmarkmið í fyrstu yfirlýsingu hæstv. forsrh., Geirs Hallgrímssonar, f. h. ríkisstj. sinnar, var að koma ríkiandi óðaverðbólgu úr þrotabúi vinstri stjórnarinnar niður í um 15% á einu ári. Þessi yfirlýsing sem grundvallaratriði í stjórnarsamningnum hefur mistekist hrapallega og svo átakanlega, að verðbólgan sum árin hefur verið um 50%. Þegar slík hömlulaus verðbólga ríkir hjá einni þjóð er engin von til þess að nokkurt jafnvægi geti til lengdar ríkt í atvinnumálum og efnahagsmálum þjóðarinnar.
Þetta frv., sem er um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um breytingu á gengi íslenskrar krónu, segir raunar það eitt, að íslenska krónan fellur um 13% gagnvart erlendum gjaldeyri og þeim gengismun, sem við það myndast vegna birgða í landinu af útflutningsafurðum, skuli ráðstafað á sérstakan hátt, eins og frv. greinir. Þetta er mjög á sama veg og gert hefur verið í fyrri gengisfellingum. Þó vil ég undirstrika, að í 2. gr. frv., næstsíðustu málsgr., standa þessi orð: „Áður en umræddu fé sé ráðstafað, skal greiða af því hækkanir á flutningskostnaði og öðrum sambærilegum kostnaði við útflutning vegna þeirra afurða, sem lög þessi taka til.“ Hér er um fremur ónákvæmt orðalag að ræða og undirritaður telur nauðsynlegt að hæstv. forsrh. staðfesti, að áður en gengismun verði ráðstafað geti útflytjendur átt þess kost að leggja fram gögn um kostnað, sem til hefur komið vegna útflutningsstarfsemi í landinu, og fengið hann greiddan úr þessum gengismunarsjóði.
Augljóst er að í kjölfar þessarar gengisfellingar mega landsmenn eiga von á, samkv. fyrri reynslu, svonefndu bandormsfrv., er felur í sér nauðsynlegar ráðstafanir að mati hæstv. ríkisstj., svo að áhrif beinnar gengisfellingar renni ekki beint út í sandinn. Það hefur vart farið fram hjá ríkisstj. og málsvörum hennar, að hagsmunasamtök verkalýðs og launþega almennt hafa sent frá sér yfirlýsingar, er fela í sér aðvörun um beina kjaraskerðingu á gildandi nýgerðum kjarasamningum. Ekki er undirrituðum á nokkurn hátt kunnugt um áform ríkisstj. í þessum efnum, en hann vill minna á þessar aðvaranir frá hinum óbreyttu borgurum þessa lands. Ef takast á að koma á viðunandi jafnvægi í efnahagsmálum landsmanna og tryggja stöðuga atvinnu, sem hlýtur að vera sameiginlegt markmið allra ábyrgra einstaklinga og aðila, verður ríkisvaldið að hafa fulla samvinnu við hagsmunasamtök fólksins í landinu og gera sér grein fyrir því að ekki verður haldið lengur áfram að ,.millifæra“ gríðarlegar eignafúlgur frá sparnaði hins almenna borgara yfir í skuldafenið hjá þeim er hlotnast það að fé hundruð milli. kr. lán í nafni mikilvægs atvinnurekstrar. Þetta er að mati undirritaðs slíkt grundvallaratriði til að ná eðlilegu jafnvægi og hafti á verðbólguna, að á meðan þetta er ekki tryggt í efnahagsstefnu þessarar ríkisstj., má segja að baráttan sé við vindmyllur einar og því vonlaus og áfram muni almenningur því reikna með verðbólgu í landinu á háu stigi og haga sér samkv. því.
Frv. þetta er sagt vera einn liður efnahagsaðgerða sem ríkisstj. er að beita sér fyrir. En okkur í stjórnarandstöðunni er ekki gerð nánar grein fyrir hvað framundan er í þeim efnum, og meðan svo er hlýtur undirritaður að taka afstöðu á móti þessu frv.“
Þetta er nál. mitt eins og það liggur fyrir, þó ekki sé búið að útbýta því í d. (Forseti: Ég vil vekja athygli á því, að nál. hefur verið útbýtt.) Nú, þá hefur það komið meðan ég var að lesa upp úr því.
Ég vil aðeins minna á, að mér hefur áskotnast eitt blað úr kosningahandbók frá Sjálfstfl. fyrir síðustu kosningar, og ég ætla að leyfa mér, herra forseti, auðvitað með leyfi forseta, að lesa upp þau minnisatriði, sem höfð voru í frammi, til að minna á frómar óskir sem uppi voru hafðar þá af hendi þessa stærsta stjórnmálaflokks landsmanna og sjá hvernig efndir eru á þeim í dag. Þessu var lofað:
„Brýnustu verkefnin eru þessi:
1. Koma verður rekstri atvinnuveganna á heilbrigðan grundvöll.“ Hefur það tekist? Hvers vegna erum við að þessari gengisfellingu í dag? Svarið er auðvitað neitandi.
„2. Rétta verður af viðskiptahalla við útlönd.“ Hefur það tekist? Við höfum aldrei skuldað meira nokkurn tíma, hvernig sem við lítum á þá tölu, í erlendri mynt eða ísl. kr., og er nú skuldabyrðin miklu hærri en þegar hæstv. núv. forsrh. var að hundskamma þáv. vinstri stjórn úr þessum ræðustól og síðasta ræðumann hér áðan fyrir skuldasöfnun vinstri stjórnarinnar og og gríðarlega greiðslubyrði, sem hann taldi stefna allt að 13% þá.
„3. Rjúfa verður víxlhækkanir kauplags og verðlags.“ Þetta var þeirra markmið þá. Það getur hver svarað fyrir sig, hvernig þetta hefur verkað undanfarin ár.
„4. Skera verður niður fyrirhuguð ríkisútgjöld.“ Þetta er brandari þessarar biblíu. Þau hafa aldrei verið meiri en núna undir forsæti og stjórn þeirra manna er sögðu á sínum tíma þegar fjárlög vinstri stjórnarinnar voru nokkuð ört vaxandi, að það mætti skera niður þá með einu litlu pennastriki 4.5 milljarða. Þeir menn urðu síðan ráðh. í núv. ríkisstj., en á sama tíma hefur útþensla ríkisbáknsins aldrei verið örari.
„5. Stemma verður stigu fyrir frekari aukningu erlendra lána.“ Hefur það nú tekist? Eins og ég sagði áðan, hafa þau aldrei verið bærri, þótt talan sé tekin fram í erlendum gjaldmiðli.
„6. Koma verður á jafnvægi á lánamarkaðnum.“ Hann hefur aldrei verið verri en núna, enda hömlulaus fjárfesting ríkt og hreinn slagur um að fá peninga undir alls konar yfirskini, og þess vegna m. a. er gengisfellingin orðin staðreynd, en ekki eingöngu vegna launakrafna í þjóðfélaginu. Fjárfestingin hefur verið svo taumlaus og svo vitlaus, þrátt fyrir Framkvæmdastofnun og þrátt fyrir fullt af hagspekingum úti um allt, að það hefur engu tali tekið.
„7. Finna verður leiðir til að efla frjálsan sparnað.“ Það var síðasta atriðið. Þetta segi ég að sé númer eitt. Svona höfum við gjörólíka afstöðu. Hvers virði er sparnaður og eðlilegt líf í þessu þjóðfélagi? Það er sett númer 7. Vinnubrögðin í fyrra voru þau, að 14 milljarðar voru hirtar, kalla ég, af sparifjáreigendum í verðrýrnun og millifærðir í þjóðfélaginu. Það þorir enginn enn þá að setja verðtryggingu á lán almennt. Það er gert í nokkrum stofnlánasjóðum að hluta, en ekki almennt. Meðan svo er hljóta menn í gildandi verðbólguþjóðfélagi og gildandi verðbólguhugsunarhætti að slást um hverja krónu sem hægt er að draga út að láni.
Það er sama, svo ég endurtaki það enn einu sinni, hvaða ríkisstj. situr og hversu marga menn hún hefur hér á Alþ. á bak við sig, dæmið gengur ekki upp. Það hlýtur að stranda fyrr eða síðar með þessum vinnubrögðum. Ég man eftir því, að einn hv. þdm. í Ed. sagði á fjárhagsnefndarfundi við þessa sérstöku efnahagssérfræðinga sem enn er leitað til, að það væri kominn tími til að skipta um þá. Hitnaði þá í sumum og urðu litverpir við að heyra þessi orð. En í kvöld tekur hann ekki afstöðu til þessa máls, samkvæmt nál. sem kemur frá meiri hl. Kannske hefur hann ekki meint það sem hann sagði á þessum nefndarfundi fyrir nokkru. Ég tók hann alvarlega og sumir fleiri, að hann meinti eitthvað með orðum sínum.
Frsm. meiri hl. sagði áðan: Gengisfellingin er ekkert annað en viðurkenning á því, að við höfum ekki ráðið við efnahagsvandann. — Auðvitað er hún það. Þessi hæstv. ríkisstj. hefur alls ekki ráðið við efnahagsvandann. Það má kenna Pétri og Páli um það. Þetta er staðreyndin fyrir því. Hún hefur 42 menn í meiri hl. á Alþ. Sjálfsagt mun reyna á það á morgun einnig, að menn komi með till. sem eru sagðar bjarga eitthvað fram í tímann. Ég kallaði þetta áðan, við 1. umr., að hér væri bara verið að bjarga núinu, eins og ég orðaði það, þ. e. a. s. líðandi stund og engu öðru. Það getur vel verið að eitthvað birtist á morgun sem sannfæri mig um að það sé verið að leggja grundvöll að einhverri varanlegri efnahagsstefnu en gilt hefur mörg undanfarin ár og ekki aðeins hjá þessari hæstv. ríkisstj., heldur öðrum ríkisstjórnum. En meðan atriðið að viðurkenna frjálsan sparnað í þjóðfélaginu er nr. 7 á þessum lista verður aldrei jafnvægi í þjóðarbúskap okkar Íslendinga. Það er a. m. k. mitt persónulega mat. Það er forsendan fyrir því, að við náum jafnvægi eða menn meti það, að þeir peningar, sem menn hafa í vösunum, verði ekki eins og þessir tíeyringar sem ég hampaði hér í hendi minni frá þjóðhátíðarárinu 1974. Það er forsendan. Meðan menn taka sig ekki á og vilja viðurkenna þessar forsendur tel ég allar tilraunir aðeins til að bjarga búinu, þ. e. a. s. þær hafa ekkert varanlegt gildi og engin varanleg áhrif.
Ég hef hér líka í sömu handbók yfirlit yfir gengi allt frá 1950. (Gripið fram í.) Já, ég var þá háseti á Sambandsskipi og var staddur úti í Danmörku, og gengið var fellt, ef ég man rétt, 16. febr. 1950. Áður hafði það verið svo, að íslensk króna gagnvart dönsku krónunni var einhvers virði. Svo fengum við þessar kveðjur, sem vorum á farskipaflotanum, og laun okkar voru ekki mikil. Ef ég man rétt, hafði ég 1276 kr. á mánuði sem fullgildur háseti. Ég hafði nýlokið stúdentsprófi og varð að reyna að bjarga mér á einhverri vinnu. Þetta yfirlit sýnir átakanlega þróun. Dollarinn var 16.30 kr. 1950. Síðan er listinn langur, meira en heil bls., og þegar vinstri stjórnin fór frá var dollarinn 97 krónur. Hvaða íslenskur bóndi fær ljá að vordegi og notar til að hirða uppskeruna og skilar honum hálfum að hausti? Ekki einn einasti ísl. bóndi. En þetta gerir hæstv. ríkisstjórn Íslands ár eftir ár og skammast sín ekkert fyrir. Enginn bóndi er svo siðlaus að hann skilaði hálfum ljá að hausti eftir að vera búinn að hagnýta uppskeru ársins. Hann léti menn hafa jafngildi til baka. En maðurinn, sem lánar atvinnulífinu sparifé sitt, skal sviptur því ár eftir ár, 10%, 15%, 20% á ári. Dettur mönnum í hug að jafnvægi náist við slíkar kringumstæður, þrátt fyrir Seðlabankann, þrátt fyrir Framkvæmdastofnunina og þar fram eftir götunum? Þetta er slík vonleysa að þetta er vindmyllubarátta og jafnvel Don Quijote yrði undrandi að sjá þessar æfingar í dag, þremur öldum seinna en hann var uppi. Auðvitað getur það verið vindmyllubarátta að tala svona. Ég hef þá sannfæringu, að við lögum aldrei neitt fyrr en við viðurkennum heilbrigt og eðlilegt líf einstaklings í þessu landi. Það er forsendan fyrir því, að við náum árangri, sama hvaða stjórnmálaflokki, sama hvaða grundvallarstefnu við viljum segja að við tilheyrum og aðhyllumst. Þetta er slík forsenda, að annað hlýtur að byggjast á þessu. Þetta sífellda mat og karp um einhverja fjárfestingu sem á að verða að engu í tímans rás vegna verðbólgunnar, þetta kapp verður að stöðva og þetta kapphlaup. Fyrr en það er gert eru allar svona ráðstafanir kák eitt og aðeins til að bjarga núinu. Og það verður umsögu mín og síðasta orð í þetta skipti við þessa gengisfellingu, að hún ber dauðann í sér eins og allar aðrar, vegna þess að menn þora ekki að fallast á grundvallaratriðið til að ná jafnvægi í þjóðarbúskapnum.