10.02.1978
Neðri deild: 54. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2192 í B-deild Alþingistíðinda. (1746)
114. mál, almannatryggingar
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Ég tel nauðsynlegt að svara nokkrum atriðum, sem sögð voru í tilefni ræðu minnar áðan.
Hv. 5. þm. Suðurl. gerði talsvert mikið úr því, að ég hefði vitnað til embættismanna úti í bæ, lesið ábendingar þeirra og þær ábendingar hefðu haft áhrif á mig. Um þetta vil ég segja í fyrsta lagi: Þessir embættismenn úti í bæ eru, eins og hv. þm. e. t. v. heyrði í ræðu minni, tryggingaráð. Honum til fróðleiks vil ég segja að hann sjálfur stendur að því að kjósa tryggingaráð hér á Alþ. Tryggingaráð er þingkjörin n. með því verkefni sem segir í tryggingalögum, m. a. að annast stjórn Tryggingastofnunarinnar og úrskurða um mörg atriði sem vafi kann að rísa um í framkvæmd tryggingalaga. Í tryggingaráði eru þm. í meiri hl. Tryggingaráð er nefnilega ein þeirra n. sem eru þess eðlis, að þær tengjast mjög löggjafarstarfi á Alþ. Störf í tryggingaráði eru í svo nánum tengslum við flókinn málaflokk, sem flókin og mikil lög gilda um, að það er mjög æskilegt og lærdómsríkt fyrir þm. að fylgjast með störfum þar. Það er ekki alveg að ófyrirsynju að ég er samþykk áliti tryggingaráðs, því að sjálf hef ég átt sæti þar nú um nokkurra ára skeið. Hitt er svo annað mál, að jafnvel þótt rétt hefði verið hjá hv. þm., að ég hefði vitnað til embættismanna úti í bæ og tekið mið af ábendingum þeirra, þá sé ég ekki nokkurn skapaðan hlut við það að athuga. Ég vil vara við þeim hugmyndum og ég vil segja þeim hroka sem í því felst að finnast að öllu leyti forkastanlegt að taka ábendingum embættismanna. Ég sé ekki annað en það sé algerlega nauðsynlegt, bæði þinginu, embættismönnum og þjóðinni, að það geti verið skynsamlegt samstarf milli embættismanna og Alþingis. Alþ. þarf að geta leitað upplýsinga hjá embættismönnum, leitað ráða hjá mönnum sem hafa sérþekkingu úti í þjóðfélaginu. Það ætlast enginn lifandi maður til þess að alþm. hafi sérþekkingu á öllum sviðum, og vitanlega á að vera opin leið fyrir okkur að leita þeirra ráða og fara eftir þeim ráðum, ef við fáum ábendingar sem við þurfum á að halda og getum lagt til grundvallar í okkar mati. Engu síður tökum við hina pólitísku ákvörðun um hlutina, en það er annað.
Hv. 5. þm. Suðurl. gerði með heldur leiðum hætti tilraun til þess að gera mér upp mjög neikvæða afstöðu til sjómannastéttarinnar. Ég hafði þó skýrum orðum tekið fram að til þess væri ekki ástæða. Það, sem ég efaðist um, var að sú leið, sem þetta frv. benti á, væri rétt. Hv. þm. lét sig einnig hafa það að gera skilning orða, sem ég skýrði hér frá, að mínum skilningi, jafnvel þó að ég tæki beinlínis fram að ég væri þessum orðum ósammála. Það ætti náttúrlega ekki að þurfa að fara um það mörgum orðum, að það er alltímafrekt að rökræða við hv. þm. sem skilja hlutina skilningi af þessu tagi, en það er nú einu sinni það hlutskipti sem við höfum hér á hv. Alþ. Við þessu megum við ætíð búast. En láta verður á það reyna, hvort menn geti ekki í rósemi hugað að málunum og að því, hvernig framkvæmd þeirra verði möguleg.
En það er ekki nóg að lýsa jákvæðri afstöðu sinni eða stuðningi við ýmsa hópa í þjóðfélaginu með því að segja að það hljóti að vera nauðsynlegt að játa hvaða lagabreytingu sem er eða fjárstuðningi úr hvaða stofnun sem er, jafnvel þótt önnur leið væri til sem væri skynsamlegri. Ég vil eindregið ráða til þess, að menn gefi sér nú tíma til að hugleiða hvort það muni ekki aðrar leiðir vera færari og skynsamlegri til að ná þessu sama marki. Hvað um Lífeyrissjóð sjómanna t. d.? Liggur það ekki beinna við? Mér er ljóst að hv. þm., sem hér hafa talað, eru úr miklum sjávarútvegskjördæmum. Það er ég líka. Reykjavík er mikið útvegskjördæmi. Og ef þeir eru sérstaklega að hugsa að þessu leyti um hag kjósenda sinna, þá er ég líka að því. Ég biðst því eindregið undan því að það, að ég bendi á vankanta á þessu frv., sé lagt svo út sem ég vilji standa gegn stuðningi við sjómannastéttina, því að það er rangt.
Ég vil líka svara einu atriði sem minn ágæti flokksbróðir, hv. 3. þm. Suðurl., nefndi í sinni ræðu. Ég hygg að þar hafi raunar verið um misskilning að ræða hjá hv. þm., þegar hann sagði að ég hefði borið sjómenn saman við þá sem ynnu í lofti eða flugmenn. Ég nefndi í ræðu minni þá, sem vinna í flugvélum, sem dæmi um starfsstéttir með skamman starfsaldur. Ég get ekki ímyndað mér að hv. þm. geti mótmælt því, að svo sé. Ég fjallaði ekki að neinu leyti um kjör þeirrar stéttar að öðru leyti.
Þessi atriði vildi ég nefna. Að öðru jöfnu væri e. t. v. ekki ástæða til að fara í ræðustól til að tína upp atriði sem kannske eru, miðað við margt sem hér gerist, jafnsmávægileg og þau sem voru nefnd í ræðum hv. þm. En ástæðan er sú, að mér þykir vera of mikið um það, að menn óttist að verða kallaðir kaldrifjaðir og með steinhjarta ef þeir fallist ekki umyrðalaust á slíkar till. eins og hér liggja fyrir. Þess vegna hættir mönnum til að láta frv, eins og t. d. þetta fara í gegn að óathuguðu eða ekki nægilega athuguðu máli. Tilgangur minn er einungis að hvetja til þess að menn athugi gaumgæfilega hvort ekki finnast aðrar leiðir færar til að ná því raunverulega markmiði sem hér er að baki. Ég veit að þetta frv. er af góðum huga flutt og tilgangurinn er að bæta kjör þeirra sem unnið hafa á sjónum. En það er í sjálfu sér ekki almannatryggingamál.
Annars var enn eitt atriði sem fram kom í ræðu hv. 5. þm. Suðurl. Hann talaði um að frv. fjallaði um sjómannskonur. Ef það eru sjómannsekkjur sem hv. flm. eiga við, þá þyrfti það að standa í frv. Þar stendur aðeins ekkjur. Þetta er efnisatriði sem verður að vera ljóst af orðalagi frv.