25.10.1977
Sameinað þing: 9. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (175)
4. mál, kosningalög
Jón Skaftason:
Herra forseti. Ég vil sérstaklega fagna þeim málefnalegu umr. sem hér hafa orðið nm þau mikilsverðu mál sem verið er að fjalla um. Ekki síst vil ég taka undir það sem kom fram í ræðu hv. síðasta ræðumanns, Magnúsar Torfa, að ég tel afar mikilvægt að þetta Alþ. ljúki ekki störfum án þess að það hafi sýnt þann vilja sinn í verki, sem svo margir þm. verða nú til þess að lýsa, um þær breyt. á kosningalögum sem hægt er að gera fyrir kosningar og geta þess vegna orðið gildandi lög þegar til kosninga verður gengið næst.
Ein af ástæðunum til þess, að ég flutti þingmál 21 í frv: formi, er einmitt sú staðreynd að ég óttaðist, og hef talsvert fyrir mér í því, að ný nefndarskipun til þess að athuga þá þætti kosningalaganna, sem frv. fjallar um, mundi aðeins verða til þess að drepa málinu á dreif og koma í veg fyrir raunhæfar aðgerðir fyrir næstu alþingiskosningar. Það tel ég vera af hinu verra.
Ég ætla ekki að blanda mér mikið í þær umr. sem hafa orðið um efni þeirrar þáltill. sem verið er að fjalla um. Ég ætla hins vegar að reyna að gera málinu sæmileg skil, þegar ég hef framsögu fyrir því frv. sem lagt hefur verið fram sem 21. mál þessa þings og bíður síns tíma. En ég vil þó víkja að einu atriði sem kom fram í ræðu hv. 1. flm. þáltill., Ragnars Arnalds, sem flutti að mínu viti mjög athyglisverða og málefnalega ræðu, en bað er það atriði hennar, þegar hann kvað upp úr með að frv. mitt gerði sum atriði í kosningaframkvæmd flókin. Ég tók svo eftir, að eitt af þeim vandamálum, sem upp mundu rísa við samþykkt á frv. mínu, væri spurningin um það, hversu mörg númer hver kjósandi ætti eða mætti setja á framboðslistana í hverju kjördæmi. Ég held að hann hafi sagt: Á kjósandinn að númera jafnmörg nöfn og kjósa á kjördæmakosna þm. í viðkomandi kjördæmi, eða á hann að númera í jafnmörg sæti og sá flokkur, sem hann kýs, fékk í síðustu kosningum í viðkomandi kjördæmi?
Eftir því sem ég fæ best séð eru allar slíkar bollaleggingar óþarfar. Ég læt þetta atriði algerlega opið í frv. mínu, og ég fæ ekki betur séð en að sú skipan mála geti fyllilega staðist í framkvæmd og það er fjarri því, að það þurfi að vera nokkuð flókið. Ég vil taka sem dæmi, að ef frv. mitt yrði samþ. gæti, jafnvel hér í Reykjavíkurkjördæmi þar sem kosnir eru 12 þm. hlutfallskosningu, það eitt, að kjósandi númeri bara í fyrsta sætið, nægt til þess að skera úr um það hvaða þm. nái kosningu af viðkomandi lista. Ég hef nefnilega hugsað mér framkvæmdina þannig, að sá, sem fengi flest atkv. á listanum í sæti eitt, hlyti að sjálfsögðu kosningu sem fyrsti maður á þeim lista. Sá yrði nr. 2 af listanum sem fengi flest atkv. merkt nr. 2 + atkv. í fyrsta sætið o.s.frv. Þannig á þetta allt saman að geta gengið upp á mjög einfaldan og rökréttan máta, að því er mér sýnist. Sé svo, að mér missýnist um eitthvert atriði í þessum efnum, þá er sjálfsagt að taka það til athugunar við meðferð frv. hér í þinginu, en ég fæ ekki betur séð en hér sé um mjög einfalda aðferð að ræða, sem viðhöfð yrði í sambandi við talningu atkv. að frv. mínu samþykktu.