10.02.1978
Neðri deild: 54. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2238 í B-deild Alþingistíðinda. (1755)

182. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Hér hefur verið rætt í dag nokkuð um þann boðskap hæstv. ríkisstj. sem menn munu hafa beðið nokkra undanfarna daga. Hér er um að ræða það frv, sem lagt var fram rétt upp úr miðnætti s. l. nótt og er frv. til l. um ráðstafanir í efnahagsmálum, stjfrv.

Það hefur vitanlega ekki farið fram hjá neinum undanfarnar vikur og mánuði, að stjórnarliðar og málgögn ríkisstj. hafa verið að undirbúa almenning í landinu með boðskap sínum undir að taka við því sem nú er komið fram. Það hefur ekki heldur farið fram hjá neinum, hverja hæstv, ríkisstj. og stjórnarflokkar hafa talið höfuðorsök þess vanda sem þeir hafa upp málað að því er varðar efnahags- og launamál þjóðarinnar. Ekki skal í efa dregið, að almennt eru menn sammála um að viss vandi er fyrir höndum. Það er við viss vandamál að etja, menn eru sammála um það, Að vísu greinir menn á um, hversu stór sá vandi sé, og ekki siður greinir menn á um það, hvaða orsakir liggja til þess, að þessi vandi er nú upp kominn. Þar er alveg ótvírætt hvernig fylkingar skiptast, Ekki hefur farið fram hjá neinum, að áróður stjórnarblaðanna, hæstv. ríkisstj. og þm. stjórnarliðsins hefur verið sá, að allur sá vandi, sem þeir telja að fyrir hendi sé, sé fyrst og fremst því að kenna að kaup hjá launafólki í landinu sé of hátt. Á þessu hefur verið hamrað, ekki bara undanfarna daga eða vikur, heldur undanfarna mánuði. Þetta hafa menn lesið svo að segja dag eftir dag í stuðningsblöðum hæstv, ríkisstj. Þannig er reynt að innprenta almenningi í landinu að þetta sé orsökin, sem hæstv. ríkisstj. telur vera fyrir því að þessi vandi er kominn upp. Hins vegar hef ég og margir aðrir haldið því fram, að þessi vandi sé af allt öðrum rótum runninn en því, að launþegar í landinu hafi of mikið kaup. Við höfum haldið því fram, að aðalorsök þessa vanda sé stefna hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum, stefna sem hún hefur haldið uppi allt frá því að hún tók við völdum síðari hluta árs 1974, Þessi stefna hefur verið gengisfellingarstefna, gengisfelling á gengisfellingu ofan þannig að nú undir lok kjörtímabils hæstv. ríkisstj. hefur gengislækkun á kjörtímabilinu, þeim tíma sem af því er liðinn, verið um 160%. Gengisfelling á rúmum þremur árum í tíð hæstv. ríkisstj. hefur verið nær 160%. Þessi stefna hefur auðvitað leitt af sér, eins og margoft hefur verið tekið fram, stórkostlega verðbólgu, og hér hefur í raun og veru verið allan þennan tíma bullandi verðbólga, eins og margoft hefur komið fram. Á einu ári einungis, þ. e. a. s. frá því í febr. 1977 til febr. 1978, hefur framfærsluvísitalan hækkað úr 682 stigum í 934 stig eða um 37% á einu ári. Þetta segja stjórnarliðar og hæstv. ríkisstj. að sé vegna þess að laun verkafólks og alls almennings í landinu séu of há.

Það hefur ekki heldur farið fram hjá neinum, að ríkisvaldið hefur gengið á undan að verulegu leyti með hækkanir á svo til öllum sviðum að því er varðar þjónustu á vegum ríkisins. Af þessu hefur enginn farið varhluta. Eðlilegt er að menn spyrji, ekki síst ef þeir lita til baka til þess tíma er núv. stjórnarflokkar stóðu í kosningabaráttu fyrir alþingiskosningarnar 1974. Ef menn líta yfir loforðalista þessara flokka síðan þá og bera hann saman við raunveruleikann sem við hefur blasað og blasir, þá er útkoman, sem reynslan sýnir allt önnur en hin fögru loforð sem þessir flokkar gáfu fyrir síðustu alþingiskosningar.

Áður hefur verið rifjað upp og oftar en einu sinni, hver afleiðing þessarar stjórnarstefnu hefur verið. T. d. hefur verið á það bent, að viðskiptahalli á árinu 1977 var 9 milljarðar kr. og erlendar skuldir þjóðarinnar í árslok 1977 voru 129 milljarðar. Skuld við Seðlabanka Íslands var við síðustu áramót um 15 milljarðar og halli á ríkissjóði var röskir 2 milljarðar. Svona mætti halda áfram að telja og bera þessar niðurstöður reynslunnar saman við hin gullnu loforð hæstv. ríkisstj. um þær mundir sem hún var að setjast á valdastóla. Allt þetta segja hæstv. ráðh. og stjórnarliðar, er því að kenna að laun verkafólks í landinu eru of há. Ég hygg að ekki þurfi frekar um það að deila, að orsök þessa vanda, sem nú er staðið frammi fyrir, er röng stjórnarstefna í efnahagsmálum. Þetta kemur fram í þeirri skýrslu sem hv. þm. hafa nú á borðum sínum frá verðbólgunefnd eða réttara sagt frá fulltrúum hæstv. ríkisstj. í verðbólgunefnd ásamt bankastjórunum þar. Þar liggur það fyrir, að hin mikla verðbólga undanfarinna þriggja til fjögurra ára er því að kenna, hvernig stjórnarstefnan hefur verið hér á landi.

Ég vil aðeins taka það fram í sambandi við þetta, að hæstv. forsrh, lét að því liggja áðan, að allir fulltrúar í verðbólgunefnd hefðu verið sammála um þá gengisfellingu sem gerð var s. l. þriðjudag. Það er einnig rétt að taka fram, að formlega var bankaráð Seðlabankans búið í samráði við hæstv. ríkisstj. að taka ákvörðun um gengisfellinguna á þriðjudag, þ. e. a. s. áður en verðbólgunefnd skilaði af sér störfum, þannig að menn stóðu þá þegar frammi fyrir gerðum hlut.

Á undanförnum vikum og mánuðum, má segja, hefur verið mikið talað um þessa verðbólgunefnd, en hún var sett á laggirnar í okt. 1976 og átti samkv. fyrstu hugmyndum hæstv. ríkisstj. að skila af sér, ef ég man rétt, í febr. 1977. Það er fyrst núna í febr. 1978 sem þessi nefnd lýkur störfum. Má þó raunar segja að hún hefði þurft meiri tíma til umr. um þær hugsanlegu lausnir sem fyrir hendi kynnu að verða varðandi langtímastefnu í baráttunni við verðbólguna. Það hefur ekki heldur farið fram hjá neinum, að hæstv. ríkisstj. hefur haft mjög ríka tilhneigingu til þess að kalla þær ráðstafanir, í fyrsta lagi gengisfellinguna, í öðru lagi það frv. sem við erum nú að ræða, — kalla þær einhvern anga af störfum eða áliti þessarar nefndar. Það er siður en svo að það sé. Auðvitað er þegar upplýst, að þessi nefnd klofnaði s. l. miðvikudag í a. m. k. fjóra og má raunar segja fimm hluta. Nú liggur fyrir, að ekki einu sinni hæstv. ríkisstj. tók meira mark á áliti fulltrúa sinna í nefndinni en það, að hún leggur fram á Alþ. nú frv. til l. sem að verulegu leyti fer allt aðrar leiðir en fulltrúar hennar í verðbólgunefndinni og sérfræðingar hennar í efnahagsmálum lögðu til að farnar væru.

Það hefur verið margoft vikið að því hér, og ég sé ekki ástæðu til að rifja það upp frekar, að formaður þessarar nefndar, sem er forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, setti nú allra síðustu dagana fram fimm valkosti sem hann taldi koma til greina að taka, til bráðabirgðalausnar á þeim vanda sem nú er við að glíma í efnahagsmálum. Fyrst og fremst var þó þarna um fjórar leiðir að ræða. Allar höfðu þær það sammerkt að rifta með beinum eða óbeinum hætti þeim kjarasamningum sem gerðir voru annars vegar á s. l. sumri af aðilum vinnumarkaðarins og hins vegar á s. 1. hausti milli Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og hæstv. fjmrh. Nauðsynlegt er að skýrt komi fram hér, til þess er full ástæða, að þeir samningar, sem vorn gerðir í júní s. l. milli Alþýðusambandsins annars vegar og Vinnuveitendasambandsins hins vegar, voru gerðir með fullu samþykki hæstv. ríkisstj. Hún hefur í raun og veru lagt blessun sína yfir þessa samningsgerð og verður því að teljast aðili að þessari samningsgerð. Undan því getur hún ekki komist. Ég vil nefna sem rökstuðning fyrir þessu, að hæstv. ríkisstj. lofaði breytingum á skattalöggjöfinni og á almannatryggingalöggjöfinni, lofaði breytingum ef samningarnir yrðu innan þess ramma sem talið var hæfilegt að því er varðaði þjóðarbúið sem heild. Þjóðhagsstofnun hafði á þessum tíma spáð aukningu þjóðartekna um 5% á árinu 1977. Sú spá lá fyrir þegar þessir samningar voru gerðir, og innan þess ramma var talið að óhætt væri að semja og það af hæstv. ríkisstj, sjálfri. Nú liggur fyrir, að aukning þjóðartekna árið 1977 var ekki bara 5%, heldur varð hún í reynd 7%, þannig að það eru enn frekari rök fyrir því, að þeir samningar, sem gerðir voru á s. l. sumri, ættu að geta fengið að standa óbreyttir. Þetta var enn fremur staðfest af hæstv. ríkisstj, í samningunum við BSRB, þar sem staðreynd er að hæstv. fjmrh. skrifaði í umboði ríkisstj. undir samninga við BSRB sem höfðu inni að halda verulega meiri hækkanir en launþegar í hinum almennu verkalýðsfélögum fengu í samningunum frá því í júní. Aðeins þrír mánuðir eru liðnir síðan hæstv. fjmrh. undirritaði þessa samninga og raunar má segja, að varla sé fullkomlega búið að ganga frá þessum samningum að því leytinu til, að enn mun vera eftir að raða í launaflokka hjá BSRB-mönnum. Það fer því ekkert milli mála, að hvernig sem á þetta mál er litið lagði ríkisstj, blessun sína yfir báða þessa samninga og hún er siðferðilega skuldbundin af því að halda þá.

Nú liggur það fyrir, að aðeins 7 mánuðum eftir að samningarnir við verkalýðsfélögin voru gerðir, þegar ekki er hálfnað samningstímabilið — ekki hálfnað, þá leggur hæstv. ríkisstj. til að rift sé þessum samningum og gerir þar með sjálfa síg ómerka þeirra gerða sem hún stóð að á s. l. sumri. Hæstv. ríkisstj. ómerkir sjálfa sig nú eða a. m. k. gerir um það till. að ómerkja þær gerðir sem hún stóð að varðandi samninga á s. l. ári. Auðvitað dregur enginn í efa stöðu ríkisstj. til þessa lagalega séð eða Alþ., meiri hl. Alþ., verði það samþykki. En það er auðvitað kaldhæðni örlaganna að hæstv. ríkisstj. skuli gera sjálfa sig að ómerkingi og leggja það til sjálf. Siðferðilega hefur hæstv. ríkisstj. engan rétt til þessa. Sú siðferðilega skylda hlýtur að hvíla ekki síst á hæstv. ríkisstj. að standa við gerða samninga. Það er lágmarkskrafa að mínu viti, sem hægt er að gera til einnar ríkisstj., að hún standi við gefin fyrirheit og standi að þessu leyti við þá samninga sem hún sjálf hefur lagt blessun sína yfir og staðið að. Hitt má svo segja, að því miður er það ekki bara þessi hæstv. ríkisstj. sem hefur staðið að slíku. Því miður verður að segja, að líklega flestar, ef ekki allar ríkisstj. hafa að því staðið með einum eða öðrum hætti að ógilda gerða kjarasamninga og gildandi við aðila vinnumarkaðarins. Það hefur því miður allt of oft komið fyrir, að stjórnmálamenn standa að slíkum hlutum þegar þeir eru komnir í valdaaðstöðu.

Hæstv. forsrh. sagði í kvöld, að fulltrúar allra þingflokka á Alþ. hefðu staðíð frammi fyrir því að þurfa að breyta vísitöluákvæðum gildandi samninga. Sjálfsagt er þetta rétt hjá hæstv. forsrh., að allir þingflokkar hafa staðið frammi fyrir þessu. En það er ekki þar með sagt, að allir stjórnmálamenn hafi staðið að því að framkvæma þetta. Hér stendur a. m. k. einn, sem ekki hefur staðið að slíku. (Gripið fram í.) Það kann að vera rétt, segir hæstv. viðskrh., ekki draga menn orð hans í efa. Ég fullyrði það, og kem kannske að því síðar, að ég hef ekki staðið að því, hvorki sem stjórnarsinni né stjórnarandstæðingur, að ógilda þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið við verkalýðshreyfinguna. En þeir kunna að vera fáir hér á Alþ. sem hafa sömu sögu að segja.

Það fer ekkert milli mála, að þetta frv. hæstv. ríkisstj. er samningsrof af hennar hálfu við verkalýðshreyfinguna. Og hvert er nú viðhorf almennings til. þeirra sem fremja samningsrof? Almenningsálitið er ótvírætt. Sektarákvæði og fjársektir eru þau viðhorf sem fyrst koma upp þegar hugurinn beinist að þeim aðilum sem framið hafa samningsrof. Að sjálfsögðu verður engu slíku við komið gagnvart hæstv. ríkisstj. Ekki verður um að ræða fjársektir á hendur hæstv. ríkisstj. í þessu máli. En enginn vafi er á því, að við þessar ráðstafanir kemur upp í huga almennings annars konar aðferð til að sekta, þ. e. a. s. sú dómsuppkvaðning sem hún á yfir höfði sér á komandi sumri. Það er dómsvald sem almenningur í landinu hefur í höndum sér innan ekki langs tíma, og vonandi kemur það hæstv. ríkisstj, og stuðningsmönnum hennar vel að þurfa að ganga undir og taka úrskurði þess dóms þegar hann verður upp kveðinn.

Ég sagði það áðan og það hefur í raun og veru verið sagt af fleirum, að þær till. sem hér liggja fyrir í frv. hæstv. ríkisstj. um ráðstafanir í efnahagsmálum, eru að litlu leyti, að óverulegu leyti þær till. sem fulltrúar ríkisstj. í verðbólgunefnd lögðu blessun sína yfir og lögðu til að framkvæmdar væru.

Raunar má segja að það séu fyrst og fremst fyrstu þrjár greinar frv. sem eru meginefni þess. Í I. kaflanum, 1. gr., er um að ræða að rifta gerðum kjarasamningum á þann hátt að skera niður um helming þær verðbætur, sem launafólk á að fá samkv. gildandi kjarasamningum. Með þessum hætti er líka ráðist á þá lægst launuðu. Það er ekki einu sinni svo, að hæstv. ríkisstj. sjái nú sóma sinn í því að láta samningana gilda gagnvart þeim lægst launuðu og verst settu — ekki einu sinni svo — þrátt fyrir allt tal sumra hverra hæstv. ráðh. og ekki síst hæstv. viðskrh. á s. i. vori um hina sjálfsögðu kröfu launþegasamtakanna varðandi þá lægst launuðu. Samkv. þeim samningum, sem nú eru í gildi, er gert ráð fyrir að um 10% launahækkun hefði komið núna 1. mars vegna þeirra verðbótaákvæða sem samningarnir innihalda, en samkv, frv. á aðeins að greiða 5% af þessu. Sömu sögu er að segja varðandi þær verðbætur sem koma eiga samkv. samningum 1. júní n. k., 1. sept, og 1. des. Af öllu þessu á að skera helming miðað við það sem samningarnir gera ráð fyrir. Þetta eru till. hæstv. ríkisstj.

Varðandi 2. gr. frv., sem er um krónutöluhækkun á hvert stig vísitöluhækkunar, er það að segja, að t. d. einstaklingur, sem hefði 100 þús. kr. mánaðarlaun, hefði samkv. gildandi samningum átt að fá 10 þús. kr. hækkun 1. mars, en fær samkv, till. hæstv. ríkisstj. ekki nema hluta af þeirri hækkun að vísu nokkuð stóran hluta, en eigi að siður eru niður skorin þessi lægstu laun.

Þá er komið að 3. gr. frv. sem ég hygg að engan þm. hefði órað fyrir fyrir tveimur dögum að sæi hér dagsins ljós í frv: formi. Ég hygg að ekki einu sinni hv. stjórnarþm., aðra en e. t. v. hæstv, ráðh., hafi órað fyrir því, að frv., sem innihéldi slík ákvæði eins og 3. gr. þessa frv. gerir, sæi dagsins ljós hér á Alþ. þessa dagana. Mér sýnist helst vera um að ræða nokkurs konar kosningastefnuskrá hæstv. ríkisstj., samkomulag stjórnarflokka um það, að eftir kosningar ætli þeir að halda áfram samstarfi, svo fremi þeir fá til þess umboð, og ætli sér þá að ráðast með þessum hætti að þessu grundvallaratriði í samningum verkalýðshreyfingar og vinnuveitenda.

Það var einhver hv. ræðumaður sem sagði hér í kvöld, að líklega hefði þessi krafa komið frá Framsfl. Það þykir mér líklegt. Mér finnst svipaður keimur af því, sem hér er lagt til, og því sem fyrrv. forsrh. í fyrrv. ríkisstj., núv. hæstv. viðskrh. og formaður Framsfl., lagði til á útmánuðum 1974, þegar hann lagði til, að rift yrði gildandi samningum við verkalýðshreyfinguna. Mér finnst svipaður keimur af þessu ákvæði 3. gr. eins og því sem þá var uppi af hálfu Framsfl. og gert var að úrslitakröfu í stjórnarsamstarfi. Og það var einmitt fyrir þessari kröfu sem ég féll ekki. Ég féllst ekki á hana, en það gerðu ýmsir aðrir. Ekki kæmi mér á óvart, þó að hér væri um að ræða kænskubragð af hálfu hæstv. viðskrh., formanns Framsfl., til þess hugsanlega að fá tækifæri til að hlaupa úr vistinni áður en vistráðningin er útrunnin. Það kæmi mér ekki á óvart, að þetta væri sett fram til þess að hafa þann möguleika a. m. k, að geta hlaupið. En þetta á tíminn eftir að leiða í ljós — þá á ég auðvitað ekki við dagblaðið Tímann, ég á við annan tíma. Ég er þeirrar skoðunar, að svo slæm sem forusta Sjálfstfl, er í garð verkalýðshreyfingarinnar, þá sé hún í mörgum tilfellum að mínu viti gull á við það hugarfar sem sumir hverjir forustumenn Framsfl. bera til verkalýðshreyfingarinnar. Það hefur verið margsannað að forustumenn Framsfl. sumir hverjir bera þann hug til verkalýðshreyfingarinnar, að þeir vilja helst af öllu engin viðskipti við hana hafa og þau, sem þeir verða við hana að hafa, eru frekar af hinu verra en hinu góða.

Ég sagði áðan að ég reiknaði ekki með því, að nokkur þm, hefði búist við því fyrir 2–3 dögum að sjá till. af þessu tagi hér, því að með því að standa svona að málum er svo sannarlega kastað stríðshanskanum að verkalýðshreyfingunni og aðilum vinnumarkaðarins. Þeir aðilar hafa lengst af samið um þessi atriði sín í milli, og það hefur sýnt sig að þeir, sem hafa gert tilraunir til þess að breyta því með lögþvingun, hafa síðar orðið frá því að falla. Svo mun enn fara, hvaða ríkisstj, sem reynir að breyta í þessa átt sem 3. gr. frv. gerir ráð fyrir. Og þó að núv. hæstv. ríkisstj, telji sig vera sterka, þá er öruggt mál, að hún er víðs fjarri nægilega sterk til þess að brjóta á bak aftur viðhorf verkalýðshreyfingarinnar og vilja hennar í þessum málum. Því fer víðs fjarri. Þetta ákvæði þýðir það í raun og veru, eins og hér hefur, að ég held, komið fram, að ríkisstj. áskilur sér allan rétt eftir kosningar til þess að hækka óbeina skatta, svo sem söluskatt, vörugjald, tolla o. fl., þ. e. a. s. frá n. k, áramótum, án þess að nokkrar verðbætur komi til launafólks. Hér er því um að ræða, burt séð frá því að ríkisstj, ógildir eigin samninga við verkalýðshreyfinguna, aðför að grundvallarrétti verkalýðshreyfingarinnar sem ég fullyrði að verkalýðshreyfingin mun aldrei fallast á.

Ég sagði áðan að meginefni það, sem þetta frv. er smíðað utan um, er í þrem fyrstu greinum þess, það er í I. kafla frv. En í II. kaflanum, að því er varðar almannatryggingar, einnig þar ræðst hæstv. ríkisstj. að öldruðu fólki og öryrkjum. Ekki einu sinni þeir fá að vera í friði að þessu leyti fyrir ásælni hæstv. ríkisstj. að knýja fram kauplækkun og versnandi kjör. Þarna er ýmislegt fleira. Ég skal strax taka fram varðandi IV. kaflann, að ég er samþykkur því sem þar er. Hæstv. ríkisstj. hefði mátt vera búin að gera þetta fyrr, skattleggja að einhverju leyti þá aðila, sem hér um ræðir, á sama tíma og hún framkvæmir sína skattpíningarstefnu gagnvart almennu launafólki í landinu.

Þá komum við að V. kaflanum. Eins og hér hefur verið getið lögðu fulltrúar hæstv. ríkisstj. á verðbólgunefndinni ásamt formanni hennar, forstöðumanni Þjóðhagsstofnunar, og bankastjórarnir báðir, sem í nefndinni vorn, til að hið tímabundna vörugjald yrði lækkað úr 18%, sem það er nú, niður í 9%, þ, e. a. s. lækkað um helming. Það er nú ekki aldeilis að hæstv. ríkisstj. fari að þessum ráðum sinna manna og sinna sérfræðinga í verðbólgunefnd. Hér er lagt til að vörugjaldið verði lækkað úr 18% niður í 16%, þ. e. a. s. um 2%, og í aths. með frv. segir að þetta sé fyrsta skrefið í átt að því að afnema gjaldið. Trúi því nú hver sem trúa vill, verði núv. hæstv. ríkisstj. við völd áfram. Við skulum segja að það gerðist og skrefin yrðu öll svona álíka stór, þá mun það takast árið 1986 að afnema með öllu þennan mjög svo rangláta skatt sem vörugjaldið er. Ég hef ekki nokkra trú á að það gerist einu sinni þá, ef núv. valdhafar ná saman í stjórn að kosningum loknum.

Nokkuð hefur verið á það minnst hér í dag. að nauðsynlegt væri að minnka umsvif ríkisins, nauðsynlegt sem hluti af þeim ráðstöfunum sem beita þyrfti í baráttunni við verðbólguna. Það gekk eins og rauður þráður í gegnum allar till. eða öll dæmi forstöðumanns Þjóðhagsstofnunar niðurskurður á framkvæmdum. Í öllum dæmunum, muni ég rétt, var um þann lið að ræða og þá í öllum dæmunum um þá framkvæmd sem hann kallaði niðurskurð í samgöngumálum um 2 milljarða kr. Nú er ég ekki að setja út á það, að hæstv. ríkisstj. skyldi ekki fara að þeim till. sinna manna í verðbólgunefnd að framkvæma niðurskurð á fjárveitingum til framkvæmda eða fjárveitingum til félagslegrar þjónustu, eins og margir hafa stungið upp á. Eigi að síður er í þessu frv., VI. kaflanum, ákvæði um niðurskurð á framkvæmdum eða rekstri ríkisins. Nú skal ég taka sérstaklega fram, að ég er viss um að það má ná miklu meira en 1 milljarði í niðurskurði í ríkisrekstrinum — miklu meira. Og ég er ekki í neinum vafa um að á hæfilegum tíma, ég er ekki að tala um það sem bráðabirgðaúrlausn en á tiltölulega rúmum tíma má minnka rekstrarútgjöld ríkisins ekki bara um 1 milljarð, heldur er mér nær að halda að megi minnka þau um 3–4 milljarða án þess að nokkurs staðar sjái högg á vatni að því er varðar starf í ríkiskerfinu. Þetta má gera með betri hagræðingu. Ég hef haldið því fram og get sagt að ég er viss um það, að að meinalausu megi fækka starfsliði í ríkiskerfinu um a. m. k. 25% án þess að nokkur þjónusta minnki. Ég er viss um það. En þetta gerist auðvitað ekki í einu vetfangi. Þetta getur verið einn liður í framtíðarlausn að því er varðar ríkisreksturinn.

Ég sagði áðan að allar till. formanns verðbólgunefndar hefðu verið um að skera niður framkvæmdir í samgöngumálum. Nú er mér spurn. Verði horfið að því ráði, sem gert er ráð fyrir í frv., hvaða framkvæmdir eru það sem á að skera niður í A-hluta fjárl.? Hvaða framkvæmdir eru það? Jú, það eru samgöngumál, þar með talin hafnamál, það eru skólamál, það eru heilbrigðismál, það er bygging dagheimila. Þetta eru allt saman framkvæmdaliðir sem eru í A-hluta fjárl. Og allar till. formanns verðbólgunefndar, fulltrúa ríkisstj. í verðbólgunefnd, fela í sér að þessi leið verði farin, að skera niður þarna. Gott væri ef hægt yrði síðar við umr. að veita einhverjar upplýsingar um það, hvaða liði menn stöðvast fyrst og fremst við og ætla fyrst og fremst að ráðast á með niðurskurði. Kannske ætla menn að halda allri þeirri hækkun sem verið var að samþykkja á bensínskattinum nú fyrir stuttu, halda þeirri hækkun, en skera svo niður vegaframkvæmdirnar. Það væri skynsamleg aðgerð eða hitt þó heldur. Og þá vitum við, a. m. k. úti á landsbyggðinni, hvar slíkur niðurskurður kæmi fyrst og fremst til greina. Það verður ekki hér á þéttbýlissvæðinu við Reykjavík. Kannske legði hæstv, samgrh. til að skera niður fjárveitingar til Borgarfjarðarbrúar, svo að eitthvað sé nefnt. Ekki held ég að það yrði hans fyrsta till.

Nei, ég fyrir mitt leyti er þeirrar skoðunar, að það séu þeir liðir sem síst á að ráðast gegn, þessar samfélagslegu framkvæmdir, félagsleg þjónusta og framkvæmdir í samgöngumálum, í skólabyggingum, í hafnamálum og svo mætti lengur telja. Síst ætti hæstv. ríkisstj, að ráðast að þessu í niðurskurðaráformum. En ég gæti vel trúað að hún byrjaði á því. Það hefur hím sýnt á sínum valdaferli, að hún hefur verið iðin við að draga úr og skera niður fjárveitingar til þessarar félagslegu þjónustu og framkvæmda.

Ég skal ekki, herra forseti, hafa öllu fleiri orð um þetta. Ég vil þó undir lokin aðeins ítreka það, að meginatriði þessa frv. er riftun gildandi kjarasamninga og kauplækkun. Og ég þarf ekki að taka það fram frekar en ég hef gert, en get þó gert það eigi að síður, að þessum meginatriðum þessa frv. er ég andvígur og mótmæli því harðlega, að hæstv. ríkisstj. gangi á undan í því að rjúfa þá samninga sem hún hefur sjálf staðið að aðgerðir væru, — mótmæli því harðlega að stjórnvöld í landinu gangi á undan í þeim efnum. Með þessu frv. er ljóst að ríkisstj. segir verkalýðshreyfingunni í landinu, öllu launafólki, stríð á hendur. Enginn veit hvaða afleiðingar það kann að hafa, að nú kastar hæstv, ríkisstj. stríðshanskanum að verkalýðshreyfingunni.

Það samkomulag, sem tókst með fimm fulltrúum í verðbólgunefnd, þ. e, a. s. fulltrúa Alþýðusambands Íslands, fulltrúa BSRB og fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna hér á Alþ., byggist fyrst og fremst á þremur meginatriðum. Það er að halda gerða samninga og að halda fullri atvinnu — það fer ekki milli mála að þetta eru viðhorf og atriði sem verkalýðshreyfingin hefur sett á oddinn — og í þriðja lagi að beita ráðstöfunum til þess að draga úr verðbólguhraðanum. Till. að þessu lútandi voru lagðar fram sem álit þessara fimmmenninga í verðbólgunefnd. Ég skal ekki fara út í að ræða þetta frekar hér. Öllum hv. þm. er þetta kunnugt, því að þær till, hafa þeir fyrir framan sig og geta kynnt sér, en þetta eru meginatriði í þeim till. sem við fimmmenningarnir stöndum að. Þessar till. eru framkvæmanlegar, á því er enginn vafi. Þessar grundvallarforsendur, sem hér hefur verið drepið á, er hægt að framkvæma og ná árangri, að vísu ekkí miklum á þessu ári, en þó meiri en þær till. ná sem fulltrúar stjórnarflokkanna í verðbólgunefnd lögðu til að framkvæmdar yrðu. Ekki einungis komu þessar till. að gagni í þeim vanda, sem nú blasir við og þarf að leysa til bráðabirgða, heldur er með þeim lagður grunnur að frekari langtímalausn í baráttunni við verðbólguna, og það er ekki síður — kannske fremur — það atriði sem hafa ber í huga þegar rætt er um tillögur eða leiðir til að ráðast gegn þessum vanda. Ég ítreka það, að verkalýðshreyfingin, Alþýðusamband íslands og fulltrúar BSRB hafa tjáð sig reiðubúna til viðræðna við ríkisstj. á grundvelli þessara tillagna. Hér er því ekki um neina úrslitakosti að ræða. Hér er miklu frekar, má kannske segja, um umræðugrundvöll að ræða sem verkalýðshreyfingin ásamt öðrum leggur fram sem ábyrgur aðili, því að hún vill snúast við vandanum sem slíkum. Enn er tími fyrir hæstv. ríkisstj. að taka nú í þá hönd, sem fram er rétt, og leysa þennan vanda í samráði við verkalýðshreyfinguna. Þetta tækifæri býðst enn. Ríkisstj. ætti að grípa það í stað þess að sýna glórulaust ofstæki í viðhorfum sínum og samskiptum við verkalýðshreyfinguna, því að það ætti hæstv, ríkisstj. að vera ljóst, að með þessum till., sem hún leggur hér til, er verið að torvelda eðlilegt og nauðsynlegt samstarf eða samráð við verkalýðshreyfinguna í landinu um lausn verðbólguvandans og um skynsamlega stjórn í efnahagsmálum. Ég fullyrði að slíkt gerist ekki, það nást ekki fram skynsamleg vinnubrögð til lausnar þessum vanda nema í samráði við launþegasamtökin í landinu. Engin lausn verður fundin í andstöðu við þessi samtök, ég tala nú ekki um ef svo verður á málum haldið sem hæstv. ríkisstj. virðist ætla að gera að því er varðar viðhorf hennar til verkalýðshreyfingar og launþega.

Verði þetta frv. samþykkt hefur ríkisstj, valið þann kost að efna til vinnudeilna og óróa á vinnumarkaðinum, og að sjálfsögðu verður hún að taka afleiðingum þeirra gerða sinna. Hún hefur þá kosið stríð við launþegasamtökin og enginn vafi er á því, að það stríð verður háð verði fram haldið sem horfir af hálfu ríkisstj, í þessu máli. Viðbrögð launþegasamtakanna hafa þegar sýnt það, því að bæði stjórn BSRB og miðstjórn Alþýðusambands Íslands hafa rætt þessi mál í dag og hér var í kvöld lesin upp ályktun sem gerð var á fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands í kvöld, ályktun sem samþykkt var af öllum miðstjórnarmönnum í Alþýðusambandi Íslands, og svo mun einnig hafa verið í stjórn BSRB. Það er því alveg ljóst, að ef ríkisstj. ætlar að knýja þetta mál í gegn, eins og það nú liggur fyrir, þá er stefnt í stórkostlega árekstra og hörku á vinnumarkaðinum. Ríkisstj. á frumkvæðið að því og hér á við eins og oftar, að sá veldur miklu sem upphafinu veldur.