13.02.1978
Neðri deild: 55. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2269 í B-deild Alþingistíðinda. (1763)
182. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum
Frsm. minni hl. (Lúðvík Jósepsson) :
Herra forseti. Eins og þegar hefur fram komið í þessum umr. varð fjh.- og viðskn. ekki sammála um afgreiðslu málsins. Við, sem skipum minni hl. n., ég og hv. 9. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, skilum sérstöku áliti á þskj. 360. Þar leggjum við til að frv. verði fellt. Sú afstaða okkar kemur eflaust engum á óvart, vegna þess að við höfum þegar gert í allítarlegu máli grein fyrir afstöðu okkar til þessa máls, og er það í fullt samræmi við það sem fram kemur í því nál. sem ég vitnaði til.
Hér hafa nú þegar farið fram allmiklar umr. um þetta mál í heild. En þó að allmiklar umr. hafi farið fram um málið, þá er hreint ekki úr vegi að drepa hér á allmörg atriði sem enn hafa ekki dregist inn í umr., og mun ég nú gera það eftir því sem tími vinnst til. En áður en ég vík að einstökum atriðum langar mín til að víkja strax að nokkru af því sem kom fram hjá frsm, meiri hl. n., hv. þm. Ólafi G. Einarssyni. Hann vitnaði nokkuð í það sem ég hafði sagt áður í umr. um málið og mér fannst hann fara heldur illa með það sem ég hafði sagt, svo ekki sé sterkara til orða tekið.
Ég þóttist heyra það rétt, að hv. þm. hefði talið mig segja að verðbólgan hafi byrjað hér í landi árið 1975, Það er mikill misskilningur að ég hafi sagt það, að þá hefði verðbólgan byrjað, enda held ég að sé mjög ólíklegt að nokkur maður hefði sagt það sem hefur staðið í þessari baráttu jafnlengi og ég. Auðvitað sagði ég ekkert í þá átt. Ég gerði nokkra grein fyrir vexti verðbólgunnar á liðnum árum benti m. a. á að það væri staðfest í nál. hinnar svonefndu verðbólgunefndar, að sú verðbólga, sem hér hefði verið á árunum 1972–1974, á aðalstarfstíma vinstri stjórnarinnar, hefði mjög einkennst af áhrifum erlendis frá. Ég las setningar úr þessu nál. upp um þetta, þar sem forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar bendir beinlínis á þetta, vitnar í tölur til sönnunar þessu, hve áhrif af erlendum verðhækkunum urðu gífurlega mikil á vöxt verðbólgunnar hér á þessum tíma. Þannig kom m. a. fram, að erlent verðlag, verðlag á innfluttum vörum til landsins, hefði hækkað í erlendri mynt talið um 14% árið 1973, þegar verðbólguvöxturinn hér var um 22%, og erlent verðlag hefði hækkað um 34% í erlendri mynt á árinu 1974, þegar verðbólguvöxturinn hér var 43%. Þetta eru tölur sem ekkert er hægt að hlaupa frá. Þær liggja hér fyrir staðfestar m. a. í skýrslu verðbólgunefndar, og ekki tjóir að þræta neitt um það. Þetta eru beinar staðreyndir sem liggja fyrir. Ég benti einnig á það, sem kemur greinilega fram í skýrslu verðbólgunefndar um þetta atriði, að einmitt á þessum árum hefði orðið sú mikla breyting á verðlagsþróun í okkar viðskiptalöndum, að þá hefði hráefni yfirleitt hækkað gífurlega mikið í verði. Ég hef m. a. í fórum mínum skýrslur, sem voru gefnar út í riti Vinnuveitendasambandsins og sýna að vísitala yfir verðlag á iðnaðarvörum, á verði á hráefni til iðnaðar, tvöfaldaðist einmitt á árunum 1972–1974 frá því sem verð á þessum vörum hafði verið um margra ára skeið áður. Þessi alþjóðlega verðbólga, sem þarna gekk yfir, setti vitanlega svip sinn á verðlagið hér og átti sinn stóra þátt í því sem hér var að gerast.
Ég bætti því svo við í mínu máli, að áhrifin erlendis frá hefðu ekki ein komið til að hafa áhrif á verðbólguvöxtinn á þessum tíma, á árunum 1972–1974, heldur hefði einnig á þessum tíma orðið meiri kauphækkun innanlands en dæmi eru til um á hliðstæðum tíma. Sem sagt, mjög mikil kaupmáttaraukning almennt séð gekk yfir á sama tíma og hafði auðvitað sín áhrif. En síðan sagði ég, og það er sennilega það sem hv. þm. Ólafur G. Einarsson hefur villst á, að ég sagði að svo hefði hins vegar ógæfan komið í þessi mál fyrst á árinu 1975, þegar verðlagsþróunin erlendis hafði gjörbreyst og verð á innfluttum vörum til landsins hækkaði aðeins um 5% á árinu 1975 og aftur um 5% á árinu 1976 og á þessum árum, bæði 1975 og 1976 og fram a mitt árið 1977, var um verulega kauplækkun að ræða í landinu þar að auki, en eigi að síður jókst verðbólgan hér miklu meira á þessum tíma en nokkurn tíma áður. Það eru þessar staðreyndir sem menn eiga að ræða um, en ekki að reyna að snúa út úr þeim á þann hátt, sem hv, þm. gerði. Vitanlega hafði mér ekki dottið í hug og dettur ekki í hug að neita því, að það hafi verið verðbólga hér áður en að núv. ríkisstj. komst í valdastóla. Slíkt er vitanlega hrein fjarstæða. Fyrr má nú líka vera. En ég held að ég hafi skýrt frá því og skal fara yfir það í tölum, það liggur fyrir í skýrslum, hver verðbólgan var á þessum árum.
Árið 1971 er verðbólgan á Íslandi minni hlutfallslega en í mörgum öðrum löndum, þá er hún aðeins 6,3%. Þar var fyrsta ár vinstri stjórnarinnar og síðasta ár viðreisnarstjórnarinnar, Árið 1972 var verðbólgan á Íslandi 14.5%. Og árið 1973 varð verðbólgan hér 22.1%, þegar erlendu vörurnar, sem voru fluttar til landsins, hækkuðu í verði um 14%. Og árið 1974, en það ár var vinstri stjórnin við völd á fyrri helmingi ársins, en núv. ríkisstj. við völd síðari hluta ársins, var verðbólguvöxturinn 43%, en á árinu hækkuðu innfluttar vörur um 34%.
Í þessu sambandi er rétt að víkja að því, að það hefur endurtekið sig æ ofan í æ, bæði hér á hv. Alþ. og þó enn þá oftar auðvitað í blöðum stjórnarflokkanna, að því hefur verið haldið fram, að þegar vinstri stjórnin fór frá völdum hafi hraði verðbólgunnar verið kominn upp í 54%. Tíminn er ekki svo ósjaldan búinn að segja þetta, formanni sínum til heiðurs. Jú, þetta gæti ég lesið yfir formanni Framsfl. upp úr Tímanum. Hann hefur margendurtekið þetta. Það hefur nefnilega gerst í seinni tíð, að ritstjóri Tímans, hv. þm. Þórarinn Þórarinsson, er alltaf að læra af þeim á Morgunblaðinu og endurtaka sí og æ ósannindin úr Morgunblaðinu. Hann hefur ekki sparað kraftinn til þess að reyna að koma svertu á vinstri stjórnina til þess aðeins að reyna að fegra núv. stjórn, en það hefur tekist heldur báglega. Nú liggur þetta sem sagt alveg óumdeilanlega fyrir, bæði í skýrslu verðbólgunefndar og í ótal útgáfum frá Þjóðhagsstofnun, að verðbólguvöxturinn á árinu 1974 var 43%. En ef menn vilja svo athuga dæmið svolítið nánar, þ. e. a. s. taka frá upphafi ársins 1974 og fram að 1. sept. þegar ný stjórn tók við, þá var verðbólguhraðinn miklum mun minni á fyrri hluta ársins en seinni hluta ársins. Hraðinn byrjaði fyrst eftir að núv. ríkisstj. tók við á því ári, eins og skiljanlegt er, því hún byrjaði á því að fella gengið og hækka söluskatt og önnur gjöld sem hækkuðu verðlag. Það þarf ekki annað en að líta í þær skýrslur, sem liggja fyrir, til að átta sig á því, að hraðinn var miklu meiri seinni hluta ársins en fyrri hluta ársins, en meðaltalið var þetta 43%, þó að ritstjóri Tímans sé margsinnis búinn að segja þau ósannindi eftir Morgunblaðinu, að vinstri stjórnin hafi skilið við málið þannig, að hraðinn á verðbólgunni hafi verið 54%. Nei, sannleikurinn er sá, að hraðinn komst upp í 54%, en ef menn nenna að hafa fyrir því að líta í opinberar skýrslur um þetta mál, þá sjá þeir að þessi hraði á verðbólgunni kom ekki fyrr en í upphafi árs 1975, eftir að núv. ríkisstj. var búin að vera við völd í um 5 mánuði og fella gengið tvisvar. En þetta er svo sem eins og annað sem sagt hefur verið um þessi mál.
Ég vil nú vænta þess, að hv. þm. Ólafur G. Einarsson leggi það á sig að skoða þessar tölur upp á nýtt og hann átti sig þá á því, að það var rétt, sem ég sagði, að það urðu veruleg þáttaskil í vexti verðbólgunnar þegar núv, hæstv. ríkisstj. tók við stjórn efnahagsmála í landinu. Á árinu 1975 rauk verðbólgan úr 43% árið 1974 upp í 49.5%, þó að verð á innfluttum vörum hækkaði aðeins um 5%. Gefur auðvitað auga leið hvernig á þessu stendur. Það stendur einfaldlega þannig á því, að hæstv. ríkisstj. hafði ekki séð aðra leið til þess að takast á við efnahagsmálin á fyrri hluta síns stjórnartíma, ekki aðra leið en þá að tvífella gengi krónunnar, sem hafði vitanlega verðhækkandi áhrif, og láta síðan krónuna halda áfram að síga og með því að leggja á nýja skatta eftir skatta, sem fóru út í verðlagið. Þetta leiddi vitanlega til þess að verðlagið hækkaði, verðbólgan jókst. Þetta voru, eins og ég hef oft sagt, voru ráð hæstv. ríkisstj. gegn verðbólgunni. Hún valdi þessa leið gegn verðbólgunni, að hækka verðlag. Það er ekkert nýtt hjá henni.
Ég tók eftir því, að hv. þm. Ólafur G. Einarsson gerði fleiri athugasemdir við mitt mál. En það fór nú hjá hv. þm, eins og jafnan vill fara hér þegar þessi alvarlegu mál eru rædd, að þá gripa stjórnarsinnar gjarnan til þess, þegar þeir gefast upp á því að verja eigin gerðir; að verja það mál sem þeir flytja, að þeir segja aftur á móti: Hvað gerði Lúðvík þegar hann var í stjórn? Hvað gerðu þeir í vinstri stjórninni? — Það á að verða þeirra flotholt. Auðvitað eru þeir áður búnir að mála það út fyrir öllum og hafa meira að segja hlotið kosningu út á það hér á Alþ. að reyna að telja þá stjórn sem allra versta, en nú á sú stjórn að vera röksemd fyrir öllu því sem þeir eru að gera. Þetta er lágkúrulegur málflutningur. Það er ekki mikil reisn yfir honum. En svo er nú það, að farið er ranglega með allar staðreyndir í málinu. Jú, hv. þm. sagði: Vinstri stjórnin felldi gengið þrisvar. — Hann hefði átt að taka annað, sem er lítill vandi fyrir hann að taka upp úr skýrslum, líta t, d. á gengi dollarans þegar sú stjórn tók við völdum og hvert var gengi íslensku krónunnar gagnvart dollar þegar hún fór frá völdum. Það er alveg rétt, sem oft hefur komið hér fram í umr., að það kom fyrir í desembermánuði 1972, að vinstri stjórnin var knúin til þess að lækka gengið um 10.7%. Það var mjög eftirminnilegur atburður og hefur oft verið rætt um hann. Ég ætla að rifja hann aðeins upp, af því að ég held að það sé þörf lexía fyrir þá, sem fást við stjórn efnahagsmála, að hugsa til þess sem þá var að gerast. En mér finnst að þeir hafi ekki dregið eðlilegan lærdóm af því sem þá gerðist.
Það gerðist nefnilega á árinu 1972, að þá varð nokkur samdráttur í framleiðslu okkar, sjávaraflinn minnkaði þá heldur, ekki mjög mikið og ekkert óskiljanlega, en hann dróst nokkuð saman, og verðlagshækkanir voru mjög litlar á erlendum mörkuðum. Þegar kom fram á haustmánuði 1972 ruku upp allir þessir venjulegu efnahagssérfræðingar þjóðarinnar og sögðu: Nú er allt að fara um koll, nú verður að gripa til efnahagsráðstafana. — Og í framhaldi af tillögum, sem hæstv. forsrh. þeirrar stjórnar lagði fram var skipuð nefnd fræðimanna til þess að gera tillögur um efnahagsráðstafanir. Þessi n. vann frá okt.–des. og skilaði frá sér þremur þykkum bindum. Þau eru öll geymd, við eigum þessar bækur. Það vantaði ekki fræðimannsbraginn yfir því sem frá þeim ágætu mönnum kom. Og hver var niðurstaðan? Þeir sögðu í nóvembermánuði, þegar þeir skiluðu skýrslunum: Hér er ekkert annað til ráða en að fella gengið. Um 19 6% — ég held ég muni töluna rétt — átti að fella gengið og skýrt tekið fram í ráðleggingunum: þó með þeim hætti að kaup hækki ekkert á móti. Auðvitað var á fræðimannslegan hátt búið að setja þetta upp í bókunum, það væru til þrjár leiðir, það væru niðurfærsluleið og millifærsluleið og gengislækkunarleið o. s. frv.
Ég var einn í þeim hópi sem stimpaðist á móti og taldi engin frambærileg rök fyrir því að fara að gripa til efnahagsráðstafana af þessu tagi, taldi síður en svo að þróun mála hefði verið þannig að ástæða væri til að rjúka í að lækka gengið þó að minni háttar ágjöf hefði orðið hjá okkur. En þá gerðist það að einn af stjórnarflokkunum þremur, sá minnsti og órólegasti í hópnum, gripur til þess ráðs að segja: Ef menn samþykkja ekki að lækka gengið, þá slítum við stjórninni. Málið var auðvitað þæft, eins og menn kannast við, í alllangan tíma, og það endaði með því — (Gripið fram i.) Nei, það endaði samt með því, — ég skal gjarnan játa að forsrh. var ekkert hrifinn af þessari leið, — en hvað um það, svo fór að eftir að málið hafði verið rætt allmikið tókst að koma þessari órólegu deild innan stjórnarinnar niður í það að sætta sig við 10.7% gengislækkun og einnig að hún skyldi höfð með þeim einkennilega hætti, sem ekki hafði verið hafður á áður, að það skyldu ekki gerðar hliðarráðstafanir til að hafa nein áhrif á kaupið, sem sagt gengislækkun sem færi beint út í verðlagið, hækkaði kaupið á eftir að sjálfsögðu. Þá höfðu menn þó fengið sína gengislækkun, og eftir athugun töldum við að við hefðum það mikið verk að vinna í stjórninni, að það væri ómaksins vert að taka þessa kollsteypu þó hún væri ekki ýkjagáfuleg að mínum dómi og margra fleiri. Það virtist vera að efnahagssérfræðingunum væri miklu rórra þegar það væri þó farið í svona gengislækkun, þó þeir vildu hafa hana heldur meiri eftir öllum sínum bókum.
Þetta gerðist dagana rétt fyrir jól 1972. Hvert var svo framhaldið? Þegar komið var fram um miðjan janúarmánuð var útlitið þannig, að það hefði verið algjör óþarfi að lækka gengið, og menn fóru þá þegar að tala um að hækka gengið sem ekki hafði gerst síðan 1926. Þá kom í ljós að hagur sjávarútvegsins var með ágætum, það var hækkandi verð og allt leit vel út, og þá var farið í það að hækka gengið. (Gripið fram í.) Hafði ekki eitthvað breyst? Jú, það höfðu liðið tveir mánuðir. M, a. hafði það gerst. Spekingarnir, sem gáfu út þrjár bækur, höfðu ekki séð tvo mánuði fram í tímann. Þeir höfðu bara heimtað gengislækkun og þeir höfðu fengið sína gengislækkun, sem reyndist bandvitlaus og gerði ekkert nema illt. Og eins og ég segi, menn sáu að það var hægt að hækka gengið og síðan var haldið áfram í nokkra mánuði að smáhækka gengið allan tímann, og árið 1973 fór þannig, að það var eitt allra besta afkomuár fyrir íslenskan sjávarútveg sem menn hafa yfirleitt tölur yfir að dómi Þjóðhagsstofnunar sjálfrar.
Þetta dæmi, sem ég hef verið að skýra hér frá, er í rauninni einkar ljóst um það, hvernig okkar efnahagssérfræðingar hafa yfirleitt tekið á þessum málum og að allt of margar ríkisstjórnir hafa látið undan þeim. Þeir hafa aldrei séð neitt, ef komið hefur upp smávandamál annað en að lækka gengið, slíta í sundur kaupsamninga, færa niður kaupið. Þetta hafa verið þeirra tillögur, og oftast nær hafa þeir fengið að ráða a. m. k. of miklu. Menn hefðu átt að læra nokkuð af þessum kollhnís 1972. En það er sýnilegt að menn hafa ekkert af honum lært eða sáralítið, því er enn verið að reyna þessar sömu leiðir, bæði nú og áður, að halda að það sé ástæða til þess að gripa til gengislækkunar út af hverju sem er.
Ég hef sagt það og segi það enn, að mér dettur ekki í hug að halda því fram, að það geti aldrei komið til þess að það þurfi að lækka gengi íslenskrar krónu. Vitanlega geta þær aðstæður skapast að til slíks þurfi að grípa óhjákvæmilega. En vitanlega ber að forðast slíkt í lengstu lög og ekki grípa til þess fyrr en þá að aðrar leiðir eru með öllu lokaðar, því að gengislækkunarleiðinni fylgja miklir annmarkar, miklir gallar, og í sjálfu sér leysir hún engan vanda.
Ég sagði við hv. þm. Ólaf G. Einarsson, að hann ætti að líta á hvert gengi íslenskrar krónu var t. d. gagnvart Bandaríkjadollar þegar vinstri stjórnin tók við og hvert gengið var á krónunni gagnvart dollar þegar hún fór frá. Þá mun hann veita því athygli, að sú gengislækkun, sem framkvæmd var á tíma þeirrar stjórnar, var tiltölulega mjög lítil, þrátt fyrir það sem var knúið fram algjörlega að óþörfu.
Þá sagði hv. þm, að í tíð vinstri stjórnarinnar hefði hún ætlað sér að lækka söluskatt á ýmsum nauðsynjavörum, hún hefði auðvitað svikið það, því hún hefði hækkað söluskattinn úr 11% í 17%. Þetta er heldur frjálslega farið með staðreyndir. Nú efast ég ekki um það, að hv. þm. á að vita talsvert um það hvað gerðist á þessum tíma. E, t. v. er hægt að vorkenna honum það, að hann hafi rokið í einhverjar tölur, séð þær, en ekki hugað að því hvað á bak við lá. Hið rétta er að í tíð vinstri stjórnarinnar var söluskattur lækkaður í allmörgum greinum og mjög þýðingarmiklum greinum. Söluskatti var létt af ýmiss konar nauðsynjavörum almennings í landinu, eins og hafði verið heitið. En á tíma vinstri stjórnarinnar gerist það, að það er gert samkomulag í sambandi við skattgjaldsbreytingu sem samþ. er hér á Alþ. á árinu 1972, þá er gert það samkomulag við aðila vinnumarkaðarins um að gera ákveðna millifærslu á milli beinna skatta og óbeinna. Það er framkvæmd tiltekin lækkun á tekjuskatti og hækkun á söluskatti um leið. Þetta er gert um leið og verið er að leggja niður ákveðna nefskatta í landinu, eins og gamla sjúkrasamlagsgjaldið o. fl. Stór hluti af þessari breytingu á söluskattinum, sem hann er hér að ræða um, er fólginn í þessu, að með samkomulagi við aðila er söluskatturinn hækkaður gegn því að tekjuskatturinn og aðrir skattar séu lækkaðir um leið. Þar að auki gerist það svo á þessum tíma, að í formi söluskatts eru lögð á 2% til stuðnings við Viðlagasjóð vegna gossins í Vestmannaeyjum, og einnig gerist það á þessum sama tíma, að það verður hér samkomulag á milli allra flokka um að leggja eitt söluskattsprósentustig á til þess að mæta þeim sérstaka vanda sem þeir urðu fyrir sem þurftu að nota olíu við kyndingu íbúðarhúsa sinna. Ef hv. þm. hefði tekið tillit til þessara þriggja atriða sem ég hef nefnt, þá erum við búin að fá alla hækkunina sem gerð var að forminu til á söluskattinum, en eftir stendur hins vegar hitt, sem vinstri stjórnin hafði lofað, að hún hafði létt söluskatti af ýmsum nauðsynjavörum.
Athugasemdir hv. þm, við það, sem ég hafði sagt hér, voru fleiri af þessu tagi. Hann minntist m, a. á vexti. Hann gæti sannfært sig um það, ef hann vildi líta eftir því, að á tíma vinstri stjórnarinnar voru vextir lækkaðir, að vísu ekki með glöðu geði Seðlabankans, en honum var fyrirskipað að lækka vextina með bréfi sem hann fékk frá ríkisstj., og slíka meðferð sagðist hann aldrei hafa fengið fyrr, sá banki. En hann var látinn lækka vexti á sérstökum framleiðslulánum til atvinnuveganna. Vaxtahækkunin, sem hv. þm. talar um, var fyrst og fremst framkvæmd á þeim tíma þegar talið var að vinstri stjórnin hefði í rauninni ekki lengur vald til þess að stjórna í landinu. Það var millibilstímabil á meðan var verið að rjúfa þing og ganga til kosninga. Þá notaði Seðlabankinn tækifærið til að hækka vexti.
Svo var ein af ávirðingum mínum í vinstri stjórninni, sem ég hef heyrt áður, en ég skal segja hv. þm, það og fleirum, að ég tek mér þær skammir mjög til tekna, en það var að ég hefði staðið gegn öllum verðhækkunum á opinberum þjónustugjöldum eins og ég hefði haft máttinn til. Já, það var nú svo. Ég hef heyrt þetta nokkrum sinnum áður, að ýmsar ríkisstofnanir hafa kvartað undan því, að ég hafi mjög staðið á móti því að þær fengju að hækka sín þjónustugjöld. Ég hef sagt það og segi það enn og vil biðja þennan hv. þm. að koma og afsanna það, að ég held að þessir opinberu aðilar, sem hafa aðallega undan þessu kvartað, hafi fengið hækkun á þjónustugjöldum sínum á þessum tíma nokkurn veginn til samræmis við það sem annað verðlag í landinu hækkaði á þessum tíma. En þeir fengu ekki að hækka meira, ekki að því leyti til sem ég gat höndum á komið. En það voru fleiri sem höfðu ráð um það hvað mátti hækka en viðskrh., eins og er enn í dag. Það eru ýmsir fleiri sem geta komið við hækkunum, og því miður komu þeir höndum að og hækkuðu meira en ég hefði kosið. Það var skoðun mín þá og er enn, að opinberar þjónustustofnanir verði að sætta sig við það að fá ekki meiri hækkun á sínum þjónustugjöldum en almennt gerist um verðhækkanir í landinu eða til samræmis við launahækkanir á hverjum tíma. Þær verða að sætta sig við þetta þegar svo stendur á, að það er verið að reyna að koma í veg fyrir verðhækkanir almennt og það er verið að gera kröfu til annarra um að þeir verði einnig að taka á sig nokkurn vanda.
Það er rétt, að það urðu algjör umskipti í þessum efnum eftir að vinstri stjórnin fór frá, Þá var hreinlega eins og stífla væri tekin úr, Þá ruku öll þjónustugjöld opinberra stofnana upp og fóru langt fram úr almennri vísitöluhækkun, fóru langt fram úr almennri verðhækkun í landinu. Þetta var afsakað opinberlega, bæði af hæstv. forsrh. og mörgum fleirum. Þeir sögðu opinskátt, og ég hef sérstaklega t. d. heyrt hæstv. menntmrh. tala mjög um að það hafi verið alveg nauðsynlegt að hækka þessi þjónustugjöld til þess að auka svigrúm þessara opinberu stofnana. Já, það kann vel að vera að einhverjar af þessum stofnunum hafi verið búnar að efna til skulda. En menn verða bara að glíma við eigin skuldir sjálfir. Ef Alþ. hefur ákveðið að þessar stofnanir skuli hafa tilteknar tekjur, þá verða þessar stofnanir að sætta sig við það. Ég veit að þeir, sem stjórnuðu sumum þessum stofnunum, vildu ekki sætta sig við það sem Alþ. hafði samþ, og það sem ríkisstj. hafði samþ. Þeir fóru á bak við ríkisstj, og fóru í banka og slógu sér lán. Svo kom góð stjórn á eftir og leyfði hækkanir á öllum þessum gjöldum og borgaði upp allar skuldir og leyfði þessum aðilum að ýta undir verðbólguna og dýrtíðina í landinu. En það komu margir aðrir á eftir sem heimtuðu hækkanir líka í kjölfar þessara aðila.
Um þetta er auðvitað ágreiningur, Það er eflaust ágreiningur um það, hvort eigi að ríkja sú stefna sem ég held hér fram, að opinberar stofnanir verði að sætta sig við að fá ekki meiri hækkanir á sínum þjónustugjöldum en almennt gerist í landinu. Það er svo málefni út af fyrir sig, að það skuli vera ríkisstj. Sjálfstfl. sem segir: Þessi opinberi rekstur verður að fá miklu meiri hækkanir en aðrir. — En svo er það ég, ríkisrekstrarmaðurinn, sem stend gegn því að þessar ríkisstofnanir fái meiri hækkun. En það vil ég segja hæstv. ríkisstj., að hún mun aldrei ráða við þróun verðlagsins í landinu eða hemja það á nokkurn hátt ef hún heldur áfram þeirri stefnu að heimila verðhækkanir á opinberri þjónustu langt umfram það sem gerist hjá öðrum. Haldi hún áfram slíkri stefnu missir hún allt úr böndunum, eins og það hefur verið í hennar tíð.
En sem sagt, ég á þessa einkunn frá hv, þm. Ólafi G. Einarssyni og talsmönnum Sjálfstfl. og geymi hana hjá mér, að það hafi verið ég sem stóð gegn umframhækkunum til þessara opinberu stofnana, en svo hafi það orðið hans hlutverk og Sjálfstfl. að rétta hlut þessara opinberu stofnana. Þetta er sem sagt bókað í þingtíðindi af hálfu okkar beggja.
Ég sagði í upphafi máls míns að það væru hér ýmis atriði í sambandi við þetta mál sem gæfu tilefni til þess að að þeim yrði vikið. Ég ætla nú að víkja að nokkrum af þessum atriðum.
Hv, þm. Stefán Valgeirsson beindi til mín nokkrum spurningum, sem snerta þetta mál, þegar málið var til 1. umr. Hann óskaði m. a. eftir að fá nokkru nánari skýringu á þeim till., sem við í stjórnarandstöðunni ásamt fulltrúa Alþýðusambands Íslands og fulltrúa BSRB í verðbólgunefnd höfðum gert þar um ráðstafanir til þess að 1ækka verðlag. Það var eðlilegt að þessi hv, þm. hefði sérstaklega áhuga á að kynna sér hvernig þessar till. okkar kynnu að verka fyrir landbúnaðinn, og ég ætla að víkja nokkru nánar að því.
Eins og kunnugt er, þá er gert ráð fyrir því í þessum till. okkar, að til þess að gera verðlækkunarleiðina færa verði lagt sérstakt gjald á rekstur fyrirtækja og reyndar einstaklinga líka, svonefnt veltugjald, og að þetta veltugjald yrði þá lagt á sama gjaldstofn og aðstöðugjaldið til sveitarfélaga er lagt á nú, Í till, okkar gerum við ráð fyrir að þetta nýja gjald geti numið samanlagt um 4300 millj. kr., en ekki eins og hv. þm. Stefán Valgeirsson talaði um, hann hélt að þetta þýddi tvöfalt hærra gjald en aðstöðugjaldið nemur nú. Það er misskilningur. Aðstöðugjaldið sem síðast var lagt á veltu ársins 1976, nam hjá sveitarfélögunum rétt um 3000 millj, kr. — 3091 millj. kr., og þá var að sjálfsögðu þetta gjald lagt á veltu ársins 1976. Sú velta, sem þetta gjald var lagt á, var þá talin vera 426 milljarðar kr., og eins og menn sjá er meðaltalsgjaldið, sem er lagt á í formi aðstöðugjalds, nokkuð innan við 1%, eða um 0.75%. Við gerum hins vegar ráð fyrir því, eftir upplýsingum sem við höfum fengið, að það megi reikna með að sambærileg velta á árinu 1977 verði um 600 milljarðar kr., og við áætlum, að gjaldið geti því gefið um 4300 millj, eða að meðaltalsgjaldið verði þá um 0.7%, mjög nærri því. Hér er því um að ræða gjald sem gæti verið álíka hátt og aðstöðugjaldið er, en þó líklega heldur lægra, eins og við höfum metið það. Hér er því ekki um að ræða gjald sem sé tvöfalt hærra, heldur gjald sem er álíka hátt og aðstöðugjaldið er.
Við höfum einnig fengið upplýsingar um það, hvernig aðstöðugjaldið skiptist í aðalatriðum á atvinnugreinar. Samkv. upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun er talið að af þessari heildarveltu upp á 426 milljarða séu 20 milljarðar sem tilheyri landbúnaði og 81 milljarður sem tilheyri sjávarútveginum, annað er á iðnaði, verslun, byggingarstarfsemi, samgöngum og ýmiss konar þjónustu. Nú er það svo, að aðstöðugjaldið, gjaldstigi þess, er mjög mismunandi. Hann er t. d. á verulegum hluta af sjávarútveginum 0.3%, en þó af fiskiðnaði 0.65%, sem hæst er leyfilegt að fara. Gjaldstiginn er misjafn á hinum ýmsu stöðum. Hann er mun lægri en þetta, en þetta er hámarkið sem leyfilegt er að taka af gjaldi skv, lögunum af þessum greinum. Sé nú gert ráð fyrir að þetta gjald yrði, eins og við höfum gert ráð fyrir, mjög mismunandi, alveg eins og aðstöðugjaldið er, með misjöfnum gjaldstiga, og gert ráð fyrir því, sem mætti telja mjög eðlilegt, að gjaldið af landbúnaði yrði svipað og af sjávarútvegi, þá fer víðs fjarri að gjaldið sé eitthvað nærri því sem hv. þm. Stefán Valgeirsson talaði um. Það er líklegt að þetta gjald, sem gæti fallið á landbúnaðinn allan, gæti verið einhvers staðar á milli 70 og 90 millj. kr, á ári miðað við veltuna á árinu 1977, en hefði sennilega verið í kringum 60–70 millj, kr. árið á undan. En eins og ég segi, þá fer þetta auðvitað nokkuð eftir því hvað gjaldstiginn þarna yrði ákveðinn hár. Hér er því ekki um hátt gjald að ræða á meðalbúið. Það gæti verið 20–25 þús, kr. eða svo á meðalbú í landinu, en varla miklu meira.
Eins og fram hefur komið af okkar hálfu kæmi fyllilega til mála að þessi gjaldstigi yrði sérstaklega lágur á útflutningsatvinnugreinum eða lægri en á öðrum greinum. En meginhluti gjaldsins mundi að sjálfsögðu hvíla á iðnaði, verslun, byggingarstarfsemi, samgöngum og þjónustu, eins og aðstöðugjaldið gerir nú að yfirgnæfandi meiri hluta.
Það er líka rétt að átta sig á því um leið, hvað annað felst í till. okkar en álagning þessa gjalds og hvaða önnur áhrif, ef okkar till. væru framkvæmdar, það hefði t. d. fyrir landbúnaðinn. Í till. okkar er gert ráð fyrir að niðurgreiðslur á vöruverði verði auknar um 3200 millj, kr. Til glöggvunar má geta þess, að allar niðurgreiðslur, eins og þær eru nú á kjöti og kjötvörum, nema eftir áætlun 2500 millj. kr. Hér er sem sagt um auknar niðurgreiðslur að ræða sem nema hærri fjárhæð en heildarniðurgreiðslan er nú á kjöti, en nú er niðurgreiðslan á kjöti 210 kr. á kg. Við teljum að með því að beina þessum niðurgreiðslum að langsamlega mestu leyti á kjötið sé hægt að auka sölu á kjöti innanlands verulega frá því sem verið hefur og draga þannig úr útflutningi og útflutningsbótum. Því er það sem við setjum okkar dæmi þannig upp, að við gerum ráð fyrir að það verði hægt að spara í útflutningsbótum um 1000 millj. kr., þ. e. a. s. að þær fari úr rúmum 3 milljörðum niður í 2 milljarða kr, eða rétt þar um. En þó við gerum ráð fyrir þessu, sem ég hygg að flestir þeir, sem þekkja til þessara mála, telji að líklegt sé, að þetta mundi auka söluna á kjöti innanlands mjög verulega, t. d. um 1500 tonn, mundi þó salan á dilkakjöti hér innanlands ekki ná því sem hún var á árinu 1974, hún mundi enn vera talsvert minni en hún var þá, þó að innanlandssalan ykist um 1500 tonn. Ef það gerðist mundi þessi fjárhæð sparast greinilega í útflutningsuppbótum. Í till. okkar er hins vegar ekki gert ráð fyrir því á neinn hátt, að bændur láti af þeim rétti sínum að fá útflutningsuppbætur sem nema 10% af heildarframleiðsluverðinu, Ef hér yrði einhver skakki á, þá kæmi hann ekki niður á bændum, heldur mundi okkar áætlun þá ekki reynast rétt gagnvart ríkissjóði. En ég hygg að þessi áætlun sé fyllilega eins vel úr garði gerð og aðrar áætlanir sem hér hafa verið lagðar fram í sambandi við þessi mál.
Svo er auðvitað þess að gæta, að í till. okkar felast líka aðrar ráðstafanir sem mundu koma landbúnaðinum að verulegu gagni og ekki aðeins landbúnaðinum, heldur öðrum atvinnurekstri í landinu. Við gerum ráð fyrir að vörugjaldið, 18%, verði fellt niður að fullu og öllu. Þar er um verðlækkun að ræða sem metin er fyrir ríkissjóð upp á 6800 millj. kr., en mundi líklega vera í kringum 9–10 milljarðar kr. í beinu útsöluverði, því eins Og kunnugt er leggst ofan á vörugjaldið bæði verslunarálagning og fleiri gjöld. Því er þarna um mjög verulega verðlagslækkun að ræða á þeim vörum sem þetta gjald hvílir á. Við nánari athugun kemur auðvitað í ljós, að þetta gjald hvílir með miklum þunga t. d. á alls konar vélum og tækjum sem landbúnaðurinn í landinu þarf að kaupa eins og aðrar atvinnugreinar, Það fer því ekkert á milli mála, að með því að létta þessu gjaldi af væri verið að létta af landbúnaðinum og öðrum atvinnurekstri í landinu allmiklum útgjöldum í sambandi við kaup á þeim vörum sem þarna er um að ræða.
Þá vil ég benda á það, að undir vörugjaldið falla flestallar byggingarvörur og yrði því um verulega hagsbót að ræða fyrir þá sem kaupa þessar byggingarvörur og kemur landbúnaðurinn einnig inn í það dæmi, svo mér þykir mjög sennilegt, að að því leyti til sem veltugjaldið mundi auka á útgjöld landbúnaðarins, þá fengi landbúnaðurinn það uppborið og það fyllilega í sambandi við þá verðlækkun sem fram kemur í sambandi við tillögur okkar. Það er hins vegar sá mikli munur á till. okkar í þessum efnum gagnvart landbúnaðinum og till. þeim, sem ríkisstj. leggur fram í því frv. sem hér er til umr., að í frv, ríkisstj. er gert ráð fyrir að skerða launakjör bóndans sem nemur 10–12% frá því sem þau hafa verið nú að undanförnu og eru orðin, alveg nákvæmlega eins og hér er einnig lagt til að skerða launakjör annars launafólks í landinu sem þessu nemur, því laun bóndans í afurðaverðinu eru beinlínis bundin við þau laun sem gilda hjá öðrum launaaðilum í landinu. Það er því sá mikli munur á till. okkar, minni hl. í verðbólgunefnd, og till, hæstv. ríkisstj. og þeim till., sem þeir Framsfl. menn standa hér að, að þeir gera ráð fyrir í sínum till, að lækka laun bóndans frá því sem nú er og frá því sem samningar standa til um, en við gerum hins vegar ráð fyrir því í okkar till. að vernda þann kaupmátt launa sem bændur og aðrir hafa nú samkv. sínum samningum.
Ég vil því vænta þess, að þeir, sem í þessum efnum hafa sérstaklega áhyggjur af afkomu landbúnaðarins, sjái nú og viðurkenni að það er mikill munur á till. okkar í minni hl. og till. ríkisstj. varðandi hag bændastéttarinnar og landbúnaðarins.
Það var líka greinilegt á máli hv. þm. Ólafs G. Einarssonar, að hann taldi að með till. okkar um hið svonefnda veltugjald, sem leggja á á hliðstæðan hátt og aðstöðugjöld nú, værum við að gera till, um stórkostlega auknar álögur á sjávarútveginn í landinu. Þetta er, eins og ég hef þegar bent á, misskilningur að verulegu leyti, því að hlutur sjávarútvegsins í þessu gjaldi er tiltölulega lítill. Það eru allt aðrir aðilar sem bera þetta gjald uppi að yfirgnæfandi meiri hluta. En sjávarútvegurinn mundi líka njóta mjög góðs af því að fella niður 18% gjaldið, alveg eins og landbúnaður. Sjávarútvegurinn og þó sérstaklega fiskiðnaðurinn mundi njóta verulega góðs af því, ef ráðstafanir væru gerðar til þess að framfærsluvísitalan færðist raunverulega niður sem nemur 7% frá því sem annars mundi verða, því 7% lækkun þýðir verulega fjárhæð fyrir vinnufreka framleiðslu eins og fiskiðnaðurinn er.
Ég ætla að víkja svolítið nánar að þessum till. okkar.
Það er rétt, að í till, okkar felst að gerð er tilraun til að lækka verðlagið í landinu, að mínu mati um 15–16 milljarða kr. á ári, Þessi upphæð sundurliðast þannig: Niðurfelling vörugjaldsins kostar ríkissjóð í kringum 6800 millj. kr., en nemur raunverulega í eiginlegu útsöluverði á milli 9 og 10 milljarða. Síðan næmi niðurgreiðslan á vöruverði um 3200 millj. kr. Svo koma áhrifin af því, að verslunarálagningin yrði lækkuð í það sem hún var áður, og mundi sú verðlagslækkun sennilega nema í kringum 3000 millj. kr. M. ö. o.: í okkar till, er gerð tilraun til að lækka verðlag í landinu frá því, sem nú er, í kringum 15–l6 milljarða kr. á ári, Það mundi hafa, eins og nánar er gerð grein fyrir í nál. minni hl., áhrif til lækkunar á framfærsluvísitölu um u. þ. b. 7%.
Þetta verður að sjálfsögðu ekki gert nema ríkissjóði verði aflað tekna á móti til þess að hægt sé að ná þessu fram, og við gerum till. í þeim efnum.
Þar gerum við í fyrsta lagi ráð fyrir að um verði að ræða 10% hækkun á skatti félaga auk 5% skyldusparnaðar. Á þeim lið er ekki mikill munur á till, okkar og till. hæstv. ríkisstj. Hún mun gera ráð fyrir að skattur þessara félaga verði hækkaður um 800 millj, kr., en við gerðum ráð fyrir að skatturinn yrði hækkaður um 900 millj. kr.
Við gerum auk þess ráð fyrir að þetta sérstaka veltugjald verði lagt á sem ég hef rætt hér nokkuð um, en vil þó aðeins bæta því við, að þetta gjald mundi lenda að verulegu leyti á þeim aðilum, á þeim félögum í landinu sem sannanlega borga engan tekjuskatt til ríkisins. Til eru fjölmörg félög í landinu sem hafa stórkostlega veltu á hverju ári, en borga engan tekjuskatt til ríkisins. Við teljum að þetta sé með öllu óeðlilegt og sé fullkomlega eðlilegt að þessi rekstur borgi nokkuð til ríkisins til þess að gera tilraun til að reyna að ná verðlaginu niður.
Þá gerum við einnig ráð fyrir því í till. okkar, að hægt verði að spara í rekstrarútgjöldum ríkisins 1500 millj. kr. Þegar lagt er til að spara nokkuð í ríkisrekstrinum, þá er það merkilega að alltaf er sama viðkvæðið, að það sé með engu móti hægt. Ég vil samt benda á það, að forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar og formaður verðbólgunefndar gerir ráð fyrir í einni af till. sínum, að rekstrarútgjöld ríkisins verði lækkuð um 1000 millj. kr. Við leggjum að vísu til þarna 1500 millj. kr. lækkun, leggjum til að rekstrarútgjöldin verði færð aðeins meira niður en hann gerir.
Ég hef í umr, um þessi mál oft áður bent þar á liði sem væru mjög tiltækir. Það mætti t. d. spara á útgjöldum í sambandi við framlag það sem er á fjárl. til Grundartangaverksmiðjunnar. Það er engin nauðsyn að leggja fram það fé sem þar er gert ráð fyrir á fjárl. Það er hvort tveggja hægt að gera, að fresta því, og þar að auki er auðvitað hitt, sem best væri, að hætta með öllu við þá framkvæmd og falla frá því að leggja fram það hlutafé sem þar er ráðgert að greiða.
Það er líka hægt að hætta við það sem sýnilega var ekki einu sinni full samstaða um í ríkisstj., það er hægt að hætta við að ráðast í meiri háttar breytingar á svonefndu Víðishúsi. Það eru allar líkur til þess, að á þessu ári verði eytt í breytingar á því húsi um 300 millj. kr. Upplýsingar, sem liggja hér fyrir Alþ., eru um að það verði að eyða í þær breytingar um 400 millj. kr., til þess að fullgera það hús sem skrifstofuhúsnæði. Auðvitað er þetta hægt. Spurningin er bara um það, hvort menn vilja hætta við þessa framkvæmd eða hvort þeir vilja eyða nokkrum hundruðum millj, kr. í þessa framkvæmd.
Það er auðvelt að benda á miklu fleiri liði, en þarf í rauninni ekki, til þess að sýna að þetta er framkvæmanlegt, að færa niður rekstrargjöld ríkisins um 1500 millj. kr. á ári þegar heildarútgjaldahlið fjárl, er komin upp í 140 milljarða.
Þá er í till. okkar miðað við upplýsingar sem við höfðum fengið um að ríkissjóður mundi spara sér útgjöld, ef þessar till. okkar yrðu framkvæmdar, m. a. í lækkun á launagreiðslum, sem annars yrðu, Þegar framfærsluvísitalan lækkaði um 7% mundi ríkissjóður spara sér útgjöld sem næmu 2000 millj. kr. Vitanlega á að taka tillit til þessa þegar þetta dæmi er gert upp í heild.
Þá er í till. okkar lagt til að gerðar verði sérstakar ráðstafanir til þess að gera innheimtu á söluskatti virkari og betri en hún er og að í þeim efnum notfæri ríkið sér allar þær heimildir sem eru nú þegar í lögum til þess að herða á þessari innheimtu. Við leggjum einnig til að gerðar verði breytingar á tekjuskattslögum sem tiltölulega er auðvelt að gera. Við ráðgerum að út úr þessum tveimur liðum, þ. e. a. s. bættri innheimtu á söluskatti og breytingum á tekjuskatti sé óhætt að áætla að tekjur ríkisins af þessu tvennu gætu aukist um 1000 millj. kr. og er sannarlega ekki mikið.
Síðast gerum við svo ráð fyrir því að hér verði um að ræða aukasölu á spariskírteinum sem nemur 2000 millj. kr. Ætti engum að blöskra það, því að ríkisstj, er með lítið eitt lægri tölu í sínum tillögum.
Ég tel því, eins og ég hef sagt hér, að við höfum rökstutt að það er hægt að koma fram þeirri verðlækkun, sem við gerum ráð fyrir í till. okkar. Það er hægt að koma þeim fram. Spurningin er sú, hvort menn telja ómaksins vert að leggja nokkuð á sig til þess að lækka verðlag í landinu sem nemur 15–16 milljörðum kr., hvort menn telja ómaksins vert að leggja það á sig að reyna að hamla gegn hækkun framfærsluvísitölunnar í landinu sem nemur 7%. Við álítum að till, af þessu tagi sýni vilja til þess að snúast gegn verðbólgunni. En hæstv. ríkisstj. vill auðvitað taka á þessum málum á allt annan veg. Hún bregst þannig við þessu, að hún kemur með till. sem raunverulega mundu leiða til verðhækkana í landinu. Og hún gerir síðan till, um að rjúfa gerða samninga um launakjör, sem hún veit að þýða það, að ófriður verður á vinnumarkaði, kjarasamningum verður sagt upp, ný átök myndast um launakjörin. Hún leysir nákvæmlega ekki neitt með þessari leið annað en það, að hún efnir hér til ófriðar. Mér sýnist vera alveg ljóst, að nú eins og áður er það svo, að hæstv. ríkisstj. sér enga aðra leið til þess að glíma við vandamál efnahagslífsins en þá að lækka kaupið. Allar aðrar leiðir telur hún ófærar.
Svo ég víki hér nokkru nánar að tilteknum ákvæðum í þessu frv., langar mig að setja hér fram nokkrar fsp, um það, hvað tiltekin ákvæði í frv. raunverulega þýða.
Það er í fyrsta lagi atriði sem snertir 3. gr. frv. Þar er ákvæði þar sem gert er ráð fyrir að óbeinir skattar skuli ekki hafa áhrif á verðbótavísitölu í kjarasamningum eftir 1. jan. 1979. Nú er spurning mín sú: Hvernig hugsar hæstv. ríkisstj. sér að standa að því að framkvæma þetta ákvæði? Hugsar hún sér að taka þessi gjöld, að því leyti til sem þau eru nú þegar í vísitölugrundvellinum, öll út úr grundvellinum, taka söluskattinn, tollana, vörugjaldið, bensíuskattinn og önnur hliðstæð skattgjöld út úr núverandi vísitölugrundvelli og byrja á slíkum grunni 1. jan. 1919, reikna eftir það ekki vísitöluhækkanir sem kynnu að verða á þessum gjöldum? Eða hugsar hún sér að framkvæma þetta á þann hátt, að sá hluti söluskattsins og vörugjaldsins, og þessara óbeinu gjalda, sem nú þegar er í vísitölugrundvellinum, þær upphæðir standi þar áfram, en eftir 1. jan. n, k. verði hins vegar ekki reiknað með hækkunum á þessum gjöldum frá því sem þau eru þá? Þetta skiptir talsverðu máli við útreikning þessarar vísitölu og því spyr ég um þetta, hvernig þetta atriði er hugsað af hálfu ríkisstj., hvernig hún ættar sér að framkvæma þetta.
Ég þarf svo ekki að fara mörgum orðum um það, að ég er algjörlega á móti því að þetta ákvæði, sem er í 3. gr. frv., verði samþykkt. Ég tel að þó að margt megi um vísitölugrundvöllinn segja og mér sé ljóst að full þörf sé á að taka þar marga hluti til endurskoðunar, að sjálfsögðu í samráði við þá aðila sem hafa staðið að þessum grundvelli frá upphafi og notað hann á jafnþýðingarmikinn hátt við launaákvarðanir og launþegasamtökin hafa gert, þó að það komi fyllilega til mála að taka þar marga þætti til endurskoðunar, þá tel ég mjög óheppilegt að setja inn í löggjöf ákvæði eins og þetta í fullum fjandskap við launþegasamtökin. Það mundi rifta samningum þeirra t. d. hvað áhrærir opinbera starfsmenn, Samningar þeirra ná lengra fram en til 1. jan. n. k. og þetta mundi því beinlínis hafa áhrif á þeirra launakjör. Samningar Alþýðusambandsfélaganna renna að vísu út fyrir þennan tíma. En hitt er augljóst mál, að ef ákvæði eins og það, sem er í 3. gr., væri komið í lög, þá væri í rauninni búið að eyðileggja það fyrir hinum almennu verkalýðsfélögum, að þau gætu notað vísitöluna sem eðlilegan mæligrundvöll á eftir. Ég álít því að það hefði verið hyggilegast að fella atriði eins og þetta alveg niður úr frv. Það gerir aðeins illt verra að setja það á þann hátt sem þarna er gert ráð fyrir, því það má ríkisstj. vera ljóst, að ef ákvæði er í lögum á þann hátt sem þarna er gert ráð fyrir, þá jafngildir það því, að ríkisstj. geti ógilt kjarasamninga með breytingum á þessum sköttum strax eftir að kjarasamningar ern gerðir.
Það hefði t, d. verið lítill vandi fyrir ríkisstj. á s. l. sumri, ef hún hefði talið að þeir samningar, sem þá voru gerðir, veittu launþegum t. d. 2% eða 3% of mikinn kaupmáttarauka frá því sem áður var, þá var auðvitað lítill vandi fyrir hana, ef hún hefði haft ákvæði eins og þetta, að bregða við og hækka bara söluskatt og vörugjald og aðra óbeina skatta og tolla sem þessu nam og kippa þeirri kauphækkun til baka, þannig að hún hefði þá haft það alveg í sínum höndum að ákveða gildi samninganna. Þetta er því alveg fráleitt, eins og það er í þessari grein, og á ekkert skylt við það að mínum dómi, að til greina getur komið að endurskoða vísitölugrundvöllinn og breyta þar ýmsum ákvæðum, eins og gert hefur verið oft áður og þá í samráði við þá sem að þessum málum standa.
Þá vil ég leita eftir frekari skýringum en fram komu hjá hv. frsm, meiri hl. varðandi ráðgerða framkvæmd á þeim ákvæðum varðandi launagreiðslur sem er að finna í 2. gr, frv. og einnig í 4, gr. frv.
Sú meginregla er sett upp í 1. gr. frv., að greiða skuli aðeins hálfar verðlagsbætur á laun. Í 2. gr. er hins vegar tekið fram, að þó skuli greiða a. m. k. 880 kr. á mánuði fyrir hvert 1% sem verðbótavísitalan hækkar um, það skuli vera lágmarksgreiðsla, 880 kr, miðað við prósentustig. Þetta ákvæði þýðir það, að lág laun gætu jafnvel haldið fullri vísitöluuppbót. T. d. er nú 1. mars n, k. reiknað með að vísitalan hækki um 10%. Ef það fyndist nú svo lágur kauptaxti, að hann væri 88 þús, kr. á mánuði, þá fengi sá aðili, sem hefði slíkt kaup, nákvæmlega sín 10% greidd eins og samningar standa til um, sem sagt fullar verðlagsbætur ef hann hefði aðeins 88 þús. kr. í kaup á mánuði, En nú er enginn kauptaxti svona lágur, sem um er samið hjá hinum almennu verkalýðsfélögum í landinu. Talið er að meðalkauptaxti verkamanna, þar sem er tekið meðaltal af nokkrum helstu kauptöxtunum, sé nú rétt í kringum 117 þús, kr. á mánuði miðað við dagvinnu. Slík dagvinna kæmi því undir skerðingarákvæðin sem felast í þessari grein, en þó ekki jafnmikla skerðingu og hærri laun mundu verða fyrir.
Það er tekið fram í 2, gr., að þetta ákvæði skuli gilda í sambandi við yfirvinnu og ákvæðisvinnu og hvers konar aðrar greiðslur sem koma til viðbótar við fast umsamin laun. En þá er spurningin þessi: Hvernig á að fara með það ef launamaður tekur greiðslu fyrir vinnu sem yfirvinnu eða á annan hátt yfirborgaða vinnu, en sú vinna verður greidd honum út án þess að um mánaðarkaupsgreiðslu sé að ræða? Aðilinn hefur kannske unnið hjá vinnuveitanda aðeins 4 eða 6 tíma eða 10 tíma eða 50 tíma eða hvað það væri, en hann vinnur ekki meira hjá þeim vinnuveitanda. Lendir þessi aðili, sem hefur t. d. unnið yfirvinnu á þennan hátt, undir skerðingarákvæði samkv. 1. og 2, gr, frv. eða ekki? Á slíkur aðili að fá greidda sína tíma í yfirvinnu þannig, að hann fái aðeins hálfar vísitölubætur á kauptaxta sinn, þó að enginn viti um það, hvort heildarlaun hans á mánuði ná þeirri upphæð sem mörkin eru sett við?
Við þessu hefur ekki komið enn þá fram neitt fullnaðarsvar. Það svar, sem hv. frsm. meiri hl. gaf varðandi þetta atriði, er alveg ófullnægjandi og svarar þessu ekki. Í rauninni segir það svar, sem hann gaf, aðeins til um það, hvernig með skuli fara þegar launamaður er hjá sama aðila allan mánuðinn og hægt er að finna út mánaðarlaun hans, hvort sem þau hafa verið í formi dagvinnutíma, yfirvinnutíma eða sérstakra hlunnindagreiðslna. Það er því alveg eftir að upplýsa hvernig hugsað er að framkvæma þetta atriði.
Svipað er að segja um ákvæðin í 4. gr. frv. Það verður ekki séð annað af því, sem stendur í 4. gr., og þó sérstaklega af þeirri grg., sem fylgir með 4. gr., en að ætlunin sé að hafa þann hátt á, að bætur almannatrygginga verði greiddar eins og þar segir, á þann hátt, að þessar bætur, þessi laun skuli greidd með sömu hlutfallshækkun og laun almennt þessa daga hljóta. Eftir því sem kemur fram í grg., þá er að sjá að þetta þýði að þessar bætur eigi aðeins að fá hálfar vísitölubætur og þeir, sem njóta bóta samkvæmt síðari mgr. þessarar greinar, eigi að njóta vísitölubóta á sama hátt, fá aðeins hálfar vísitölubætur, þó þannig, að þeir eiga að fá til viðbótar 2% við þessar hálfu vísitölubætur 1, mars n. k. og svo ekki meir. Ég vil benda á það, að t. d. aðili, sem nýtur ellilauna eða örorkubóta, hefur sem einstaklingur, þó að hann fái þar tekjutryggingu til viðbótar, undir 88 þús, kr. Hann mun hafa 66 eða 67 þús. kr, í heildargreiðslur á mánuði, Samkvæmt ákvæðum þessa frv. virðist því vera ljóst, að aðili eins og þessi, sem hefur ellilaun og tekjutryggingu og samtals greiðslur sem nema 66 þús. kr. á mánuði eða þar um bil, eigi að fá vísitölubætur sem nema 5% á sínar greiðslur, að vísu 2% líka 1. mars, þá kemst hann í 7%, en annars eftirleiðis bara hálfar bætur, Hins vegar mundi launamaður, sem hefur þó 88 þú s. kr. á mánuði eða hefur hærri laun, geta komist í það að fá fullar vísitölubætur. Það er m. ö. o. gert ráð fyrir því, að þessir bótaþegar almannatrygginga verði fyrir meiri vísitöluskerðingu á greiðslum en þeir sem kunna að hafa hærri laun á mánuði en þeir. Á þessu hef ég vakið athygli og spurt um þetta og hef ekki fengið neitt annað svar en það sem fram kemur í grg. frv. með þessari grein, en þar virðist vera nokkuð augljóst að ætlunin sé að hafa þennan hátt á. Í þessu sýnist mér vera lítið réttlæti.
Mér sýnist því af þessu, sem ég hef verið að segja, að þeir, sem sett hafa upp þessar reglur um skerðingu á vísitölubótum á laun, hafi alls ekki hugsað málið til fulls, þeir hafi alls ekki áttað sig á því, hvernig ætti að framkvæma ákvæði laganna.
Ég spyr því enn: Hvernig er þessu varið? Hvernig hugsar hæstv. ríkisstj, sér að framkvæma þetta ákvæði? Getur verið að það sé ætlun hennar að skerða bæturnar til þeirra, sem minni tekjur hafa, meira en hjá hinum, sem hafa þó hærri laun þó 1ág séu.
Hv. frsm, meiri hl., Ólafur G. Einarsson, hneykslaðist nokkuð á því, að ég hafði notað orðið siðleysi í sambandi við þá aðgerð ríkisstj. að ætla sér að rifta þeim kaupgjaldssamningum sem hún hefði sjálf gert nú fyrir stuttu. Ég sný ekki aftur með það að ég tel þá að gerð siðlausa, að fjmrh. landsins skuli fyrir hönd ríkisstj. gera launa- og kjarasamninga við opinbera e,tarfsmenn fyrir rétt liðlega þrem mánuðum og skrifa hátíðlega undir slíka launasamninga, en svo skuli komið eftir þrjá mánuði og þeir samningar ógiltir að verulegu leyti.
Ríkisstj, hefur í rauninni ekkert sér til afbötunar í þessu máli. Það hefur ekkert gerst í rekstri þjóðarbúsins sem réttlætir þessa aðgerð. Það hefur verið upplýst, að aukning þjóðartekna er mun meiri á s. l. ári en reiknað hafði verið með þegar launasamningarnir voru gerðir. Hún getur því ekki afsakað sig með því, að þjóðarbúið hafi orðið fyrir einhverjum áföllum, því fer víðs fjarri. Ég er hræddur um að hæstv. ríkisstj. eigi eftir að finna að það geti verið erfitt fyrir hana að ná eðlilegum samningum hér eftir við stéttarsamtökin í landinu þegar svona er að málum staðið,
Það var broslegt innan um og saman við hjá hv. þm. þm. Ólafi G. Einarssyni, frsm. meiri hl. n., þegar hann deildi á okkur í stjórnarandstöðunni fyrir að við gætum ekki hugsað okkur að skera neitt niður og deildum á þá í meiri hl. fyrir það, að þeir gerðu ráð fyrir að gripa til einhverra slíkra aðgerða og þá varðandi framkvæmdir, en við höfum gert ráð fyrir að hægt væri að skera niður í rekstrarútgjöldum heldur meira en ríkisstj. lagði til. Hv. þm, nefndi sérstaklega í þessum efnum vegamál, að nú mættum við ekki heyra það að neitt yrði skorið niður í sambandi við vegamál. Þetta minnti mig á fallegan tillöguflutning hans á þessu þingi og mikil ræðuhöld hér um að gera nú stórátak í vegamálum og 1eggja bundið slitlag á helst allan hringveginn í einu stóru átaki. Og auðvitað fylgdi á eftir ágætri ræðu þessa þm. um slíkt stórátak í vegamálum ágæt mynd af honum og mikill uppsláttur í Morgunblaðinu í tilefni af því, að hann væri forgöngumaður þess að gera þetta stóra átak. En nú er þetta sem sagt orðið í munni hans eitt af ávirðingaratriðum okkar í minni hl., að við getum ekki einu sinni hugsað okkur að skera niður vegamál,
Það er rétt, það er afstaða t, d. okkar Alþb.- manna, að við teljum að það eigi ekki að 1eysa þann vanda, sem við stöndum frammi fyrir í okkar efnahagsmálum, á kostnað félagslegrar þjónustu í landinu, né heldur félagslegra framkvæmda og ekki á kostnað launa, nema þá að því leyti, sem ástæða væri til að skattleggja meira en nú er hæstu laun. Við bendum hins vegar á, að það er hægt að gera margt annað í þessu landi, sem hefði sín áhrif, en að gripa á þessum liðum.
Við höfum t, d. bent á að það væri nær að gripa á þeim stóru vandamálum sem eru bundin við hina gífurlegu þenslu í þjóðarbúskap okkar í heild, við skulum segja t. d, í bankakerfinu, þar sem starfsliði fjölgar jafnmikið og tölur liggja fyrir um. Alþ. er búið að glíma við það mál í mörg ár, hvort ekki væri rétt að ríkið hefði þarna nokkra forgöngu, fækkaði eigin bönkum, sameinaði banka, sem nauðsynlegt er af mörgum ástæðum að sameina, og fækkaði þannig nokkuð bankaútibúum þar sem komin eru mörg útibú frá ríkisbönkunum á sama stað, jafnvel á litlum stöðum. En þegar kemur að málefni eins og þessu, þá segja þm, stjórnarflokkanna ævinlega: Þetta kemur ekki til mála, þetta er óraunhæf till., það er ekki hægt að grípa á þessu. Þessi kostnaður er sem sagt heilagur.
Ætlum við þekkjum það ekki líka þegar á það er bent, hvaða nauðsyn sé til að við höldum hér uppi þreföldum kostnaði af olíudreifingarkerfi í landinu og þar undir þeim kringumstæðum þegar svo stendur á, að það er íslenska ríkið sjálft sem kaupir inn alla olíu, gerir innkaupin, og flytur olíuna til landsins líka. Íslenska ríkið semur um flutning á olíunni, Það er ekki fyrr en hún er komin hingað að bryggjum, að ákveðið er að afhenda alla olíuna, sem ríkið hefur keypt til landsins og flutt til landsins, þremur olíufélögum sem síðan geta farið í tilheyrandi samkeppni og byggt afgreiðslustöðvar sínar hvert á móti öðru, við sömu götuna, og eytt stórum fjármunum í þetta margfalda kerfi. En ef á það er minnst að gripa á þessu, þá er auðvitað alltaf sama útkoman, Menn segja: Þetta eru óraunhæfar till., það er ekki hægt að breyta þessu. Enda er svo haganlega frá þessu gengið, að báðir stjórnarflokkarnir eru samanþvældir í hagsmunamálum olíufélaganna. Af því verður það að vera eins og það er.
Vissulega væri einnig þörf á því að taka sjálft ríkiskerfið til rækilegrar endurskoðunar, því það er enginn vafi á því, að í ríkiskerfinu sjálfu er búið að hlaða upp kostnaði af ýmsu tagi sem engin þörf er á og þar væri hægt að spara við nánari athugun á þeim málum. Á þetta höfum við bent líka, og það væri eðlilegra að gera ráðstafanir í þessa átt en að steypa sér í sífellu sama kollhnísinn og menn hafa verið að gera á undanförnum árum, þ. e. a. s. að rjúka alltaf í gengislækkun, svipta alltaf í sundur kaupgjaldssamningum og standa svo alltaf í sama farinu.
Eitt af því, sem við þurfum að gera í okkar efnahagsmálum, er að við þurfum að gera ráðstafanir til þess að beina meira af okkar vinnuafli til framleiðsluatvinnuveganna. Við getum framleitt meira og við þurfum að framleiða meira, en til þess þarf að gera ákveðnar ráðstafanir, m, a, að beita fjármagni þjóðarinnar í þá átt að gera þetta kleift. En nú er staðið að þessum málum alveg þveröfugt. Nú er staðið að þessu þannig, að það er verulegur inndráttur á peningum, bankakerfið dregur til sín peninga frá framleiðsluatvinnuvegunum, og með vaxtastefnunni er búið að búa þannig að ýmsum atvinnugreinum í landinu, að það er ekki hægt að reka þær greinar, menn flýja úr þeim.
Ég skal nú fara að ljúka máli mínu. Ég vil vænta þess, að hæstv. ríkisstj. sjái sér fært að svara þeim spurningum sem ég hef lagt fyrir hana varðandi skilning á ákveðnum atriðum í þessu frv. Mér hefði einnig þótt mjög vænt um að ríkisstj, hefði skýrt okkur frá því, því um það hlýtur hún að vita, hvað er áætlað um vaxtahæðina nú næstu daga. Það er komið að því, að það á að ákveða nýja vexti, útlánsvexti og innlánsvexti, samkvæmt þeim reglum sem ríkisstj. og Seðlabankinn hafa sett, Mér sýnist að miðað við þær upplýsingar, sem fyrir liggja, eigi almennir vextir að hækka nú á næstu dögum um 3–4%, ef farið er eftir þeirri viðmiðun, sem Seðlabankinn hefur gefið út, og þeim verðlagshækkunum, sem orðið hafa síðan vextir voru síðast ákveðnir. Nú sem sagt mun það liggja fyrir, að Seðlabankinn ætli sér að taka ákvarðanir í þessum efnum á morgun. Það væri eðlilegt í sambandi við þessar efnahagsráðstafanir, sem hér er nú verið að ræða, að hæstv, ríkisstj. hefði gert grein fyrir því, hvað á að hækka vextina mikið til viðbótar því sem orðið er, því að þá hefðu menn auðvitað séð þessa mynd enn þá betur, hversu dægilegt það verður fyrir atvinnureksturinn í landinu að taka við því sem honum er rétt, því að menn skulu átta sig á því, að vextir eru útgjöld í atvinnurekstri, þó að það virðist vera svo, að ýmsir af bankamönnum landsins hafi ekki skilið það enn þá. Það virðist vera að þeir hafi ekki skilið það að vextirnir séu neitt nema tekjur. Kann að vera að hjá þeim, sem taka við vöxtunum, séu þeir það. En þessir vextir eru greiddir af öðrum og þeir koma m. a. inn í þær áætlanir sem hér eru lagðar fyrir okkur, — áætlanir sem sýna taprekstur á framleiðslu og ráðstafanir til að reyna að draga úr þessum taprekstri, Það væri verulega fróðlegt ef hæstv. ríkisstj. hefði viljað gefa upplýsingar um hvað vextirnir eigi að verða háir sem ákveða á, eftir því sem ég best veit á morgun.
Mér hefði einnig þótt vænt um það, ef ríkisstj. hefði upplýst hvaða uppákoma það hafði verið sem olli því varðandi fjárl., sem samþ. voru rétt fyrir jól, 21. des., að í ljós hafi komið að þau fjárl. hafi verið röng um hvorki meira né minna en 2.1 milljarð kr., að þar hafi verið um skekkju að ræða og nú vanti ríkissjóð tekjur sem þessari skekkju nemur. Ég vil því spyrja: Hvað var það sem gerðist. Ég hef nefnilega grun um það, en vildi gjarnan fá réttar upplýsingar um málið, að það, sem gerst hafi, hafi verið það, að hinir reikningsfróðu menn, sem reiknuðu út fjárl., áttuðu sig ekki á síðustu vaxtahækkun, hana vantaði í dæmið í mjög ríkum mæli. Það var ekki gert ráð fyrir því, að ríkið þyrfti að borga þessa vexti sem menn voru að ákveða, og dæmið var vitlaust upp á 2.1 milljarð. Og nú þarf auðvitað að gera efnahagsráðstafanir til þess að ríkið geti staðið við þessar vaxtagreiðslur sem voru ákveðnar í nóvembermánuði.
Ég vænti þess, að gefnar verði upplýsingar um hvernig stendur á því, að forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar upplýsir að nú þurfi að afla fjár til ríkisins sem nemur 2.1 milljarði kr., vegna þess að þá vanti upphæð í fjárl. sem voru samþ. nú fyrir stuttu.
Ég lýk svo þessum orðum mínum með því að endurtaka, að við, sem skipum minni hl. fjh.- og viðskn., leggjum til að þetta frv. verði fellt. Okkur finnst þó ástæða til að hér fari fram sérstök atkvgr. um rökstudda dagskrá í sambandi við afgreiðslu málsins, með sérstöku tilliti til þess, að ríkisstj, geri könnun með viðræðum við hin stóru stéttarsamtök, Alþýðusamband Íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja um ráðstafanir í efnahagsmálum, en þessi samtök hafa opinberlega boðið ríkisstj. slíkar viðræður. Það er því till. okkar að þd. afgreiði þetta mál á þann hátt með rökstuddri dagskrá, að ríkisstj. verði falið að taka upp viðræður við þessa aðila og það komi þá í ljós, hvað út úr þeim viðræðum getur komið.