25.10.1977
Sameinað þing: 9. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

4. mál, kosningalög

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Hér hafa orðið miklar og ítrekaðar umr. um kosningalög og einnig í sambandi við kjördæmaskipan. Allir þingflokkarnir nema að ég hygg einn, SF, hafa lagt fram þingmál er um þetta atriði fjalla, og virðist nú að allir vilji Lilju kveðið hafa að því er varðar siðhót í íslenskum stjórnmálum. Vissulega eru kosningalögin og kjördæmaskipanin þar mikilvægur þáttur. Lýðræðislegar kosningar eru í rauninni það sem öðru fremur gerir greinarmun á einræðisríki og lýðræðisríki. Í einræðisríkjum, eins og við vitum öll, er ekki kosið um menn og málefni. Þar er einn sem ræður. Að vísu eru kosningar stundum settar á svið sem skrípaleikur hjá mönnum undir einræðisvaldi einræðisskipulags til hugarhægðar gagnvart umheiminum.

Hér hefur fyrst og fremst verið fjallað um tvo þætti kosninga á Íslandi, eins og þær gerast í dag. Það hefur verið talað um vægi atkv. eða öllu heldur um misvægi atkv. Íslendinga eftir því hvar þeir búa á landinu. Og það hefur í öðru lagi verið lögð áhersla á, og um það heyrist mér flestir vera sammála, að æskilegt væri að kjósandinn hefði meiri áhrif á það hver af framboðslistum flokkanna hljóti kosningu, hver eða hverjir. Það hafa sem betur fer orðið um þetta skynsamlegar og málefnalegar umr., og ég fagna því að þær hafa komið inn á þing nú og ég vona að þær breytingar, sem Alþ. verður sammála um að séu réttar og nauðsynlegar, nái fram að ganga áður en til kosninga verður gengið næstkomandi vor.

En það er nú svo með framkvæmd lýðræðisins, að lýðræðið hlýtur eins og flest annað að mótast af aðstæðum, og ég hygg að í þessu tilliti sem öðru hafi Íslendingar sem þjóð svo mikla sérstöðu miðað við aðrar þjóðir, nágrannaþjóðir okkar hér á Vesturlöndum, að við hljótum hér að taka nokkurt mið af því. Margir þeir, sem tala um að nauðsynlegt sé að leiðrétta þetta mikla misvægi atkv., hafa mikið til síns máls. Það hafa orðið svo feiknalegar tilfærslur hvað varðar búsetu íslensku þjóðarinnar að ég fyrir mitt leyti get lýst yfir því, að mér finnst fyllilega tímabært að þar komi leiðréttingar til. Ég hygg líka að fólk úti í hinu svokallaða dreifbýli greini yfirleitt ekki á um þetta, og ég held að ósveigjanleiki, ósanngirni og einstrengingsháttur mundu spilla fyrir málstað okkar dreifbýlisfólks. En hitt er svo annað mál, og það vil ég upplýsa strax, að ég get ekki fallist á sjónarmið þeirra sem telja að það eina rétta í þessu máli sé að vægi atkv. sé alls staðar nákvæmlega hnífjafnt. Í þessu tilliti hefur ítrekað verið talað um mannréttindi. Öll viljum við halda fullkomin mannréttindi í heiðri. En eins og hér hefur komið fram í umr, á Alþ. áður, þá ná mannréttindi til fjölmargra hluta, ekki aðeins til þess að kjósa sér fulltrúa á löggjafarsamkomu þjóðarinnar.

Það má segja að það séu almenn mannréttindi, sem engum megi neita um, að geta notið þeirrar almennu þjónustu sem veitt er í landi þeirra. Það eru mannréttindi hvers manns að geta náð til læknis, ef hann þarf læknis við. Það eru mannréttindi að börn, hvar sem þau eru búsett á landinu, fái lögboðna fræðslu í skóla. Það eru mannréttindi að fólk geti komist leiðar sinnar, að það einangrist ekki frá nágrönnum sínum, venslafólki og fjölskyldu vegna landfræðilegra ástæðna, og það eru líka mannréttindi að kjósendur eigi kost á því án mikilla vafninga og kannske óyfirstíganlegra örðugleika að ná til þm. síns, koma einu eða öðru á framfæri við hann sem þeim liggur á hjarta. Ég hlýt í þessu sambandi að bera saman aðstöðu þm. og kjósenda hér í Reykjavík, í Reykjaneskjördæmi og hér suðvestanlands þar sem fólk hefur allar aðstæður til að komast í samband við sinn kjörna fulltrúa. Ég þarf ekkert að útlista hvað mismunurinn er þarna feiknalegur hjá hinum kjósendunum og þm. sem búa sitt á hvoru landshorninu, og þarf stundum marga daga til þess að ná persónulegu samtali milli kjósenda og þm. Þannig er það að við megum ekki einblína á einn þátt mannréttinda, heldur taka öll réttindin í heild og frá sem flestum hliðum.

Ég ætla ekki að fara út í einstök atriði sem hér hafa verið gerð að umræðuefni um tilhögun kosninga. Mér finnst þó, að mjög athyglisverð sé og aðgengileg hugmyndin um að láta kjósendur á kjördegi einfaldlega merkja við þá frambjóðendur á listum flokkanna, sem þeir helst vilja á þing og þá um leið númera þá samkv. því. Það hefur komið fram hér, og það er alveg rétt, að þetta er örðugt í framkvæmd, sérstaklega í hinum stærri kjördæmum, og þess vegna get ég fallist á þá hugmynd að þarna þurfi ekki endilega sama reglan að gilda um öll kjördæmi, hvort sem þau eru 5 manna kjördæmi eða 12 manna kjördæmi eins og hér í Reykjavík. Ég held að hér verðum við fyrst og fremst að stefna að því með þeim breytingum, sem við hugsanlega gerum nú, að gera hlutina ekki of flókna, hafa þá einfalda þannig að vilji fólksins skili sér nokkurn veginn óbrenglaður.

Það hefur verið vitnað hér í hugmyndir frændþjóða okkar í Danmörku, Þýskalandi, Belgíu, og síðasti ræðumaður, hv. 11. þm. Reykv., benti á samstarfshóp ungra manna úr þremur stjórnmálaflokkum og hugmyndir þeirra samkv. írskri fyrirmynd um breytta skipan hér hjá okkur. Mér fannst margt gott og nýtilegt í þessum hugmyndum ungu mannanna og vissulega áttu þeir þakkir skilið fyrir að hafa þarna eiginlega brotið ísinn, eða alla vega örvað umr. um þessi efni. En ég vil benda á, og það fór ekki hjá því að mér dytti það í hug einmitt þegar hv. 11. þm. Reykv. vitnaði í þessar niðurstöður ungu mannanna rétt áðan, að þótt ýmislegt sé gott og athyglisvert í þeirra hugmyndum, þá leist mér ekkert par vel á þá uppástungu þeirra að Reykjavík skyldi skipt í fjögur kjördæmi, þau skyldu hafa 7 fulltrúa hvert, en jafnframt skyldi tveimur öðrum kjördæmum, Vestfjarðakjördæmi og Vesturlandskjördæmi, steypt saman í eitt með 7 þm. samtals. Sem sagt; Reykjavík samkv. þeirra hugmyndum skyldi hafa 28 þm., en Vestf. og Vesturl. 7 til samans. Þessi till. eða þessi hugmynd er auðvitað þannig vaxin að maður tekur hana ekki alvarlega. Maður tekur hana hreint ekki alvarlega, en ég hlýt þó að láta í ljós vissan ugg um það að okkar ágæta byggðastefna, sem svo hefur verið kölluð, það yrði henni ekki mjög til framdráttar ef þéttbýli hér suðvestanlands ætti að hafa þrefaldan meiri hl. og meira en það á við alla hina þm. landsins til samans.

Ég ætla ekki að fara út í frekari umr. um byggðastefnu. Það hefur verið gert oft og rækilega hér á þingi, en almennt vil ég segja að það væri slæmt ef málefnum væri komið þannig á þingi að þéttbýlisþm. annars vegar eða dreifbýlisþm. hins vegar neyttu aflsmunar á þingi og spilltu þannig réttlátri og sanngjarnri meðferð mála um hvaða mál sem um er að ræða, ekki hvað síst atvinnumál og svokölluð byggðamál er koma þá fyrst og fremst upp í hugann. En ég ítreka það, að allir þm. verða að sæta þeirri kröfu að þeir hafi yfirsýn nokkuð út fyrir eigin kjördæmi og vinni að málum á Alþ. samkv. því.

Ég held að miðað við prófkjör eins og þau gerast nú væri ekki óeðlilegt að prófkjörin færðust yfir á kjördag, við losnuðum með því móti við þessi forkjör öll og kjósandinn einfaldlega beint og óhindrað hefði sín áhrif á sjálfum kjördegi.

En áður en ég fer hér úr ræðustóli langar mig í sambandi við vægi atkv. að benda á Breta. Bretar, sem eru viðurkenndir fyrirmynd þingræðis að ýmsu leyti þó að margt kunni þar að fara úrskeiðis, eiga nú ekki síður en við, þó kannske ekki alveg jafnalmennt, við þetta misvægi atkv. að búa. Í Bretlandi eru 635 kjördæmi og þau eru æðimisjöfn að mannfjölda. Í Bretlandi er, eins og við vitum, einmenningskjördæmaskipulag, þar er einn þm. fyrir hvert kjördæmi. Og ég get hér til gamans bent hv. þm. á að fjölmennasta kjördæmið í Bretlandi hefur 117 834 kjósendur. Þetta fjölmennasta kjördæmi er í Norður-Írlandi. Þar eru tvö kjördæmi með 117 834 og 103 737 kjósendum. Þau fá hvort um sig einn þm. Smæsta kjördæmið hins vegar, sem eru svo kallaðar Vestureyjar við Skotland, hefur kjósendatöluna 22 477. Þarna sýnist mér misvægið vera fimmfalt, þannig að ég bendi á þetta þeim hv. þm. sem tala hvað hæst um að þetta siðleysi hér hjá okkur viðgangist ekki annars staðar. En svo er nú ekki. Hjá þingræðisþjóðinni Bretum er þessu svo til jafnt á komið og hér, þar sem jafnan er vitnað í Vestfirðinga með fjór- til fimmfaldan kosningarrétt á við Reykvíkinga og Reyknesinga.

Ég vil að lokum láta í ljós ósk um að sanngjarnar breytingar nái fram að ganga nú. En ég mótmæli því sem óréttlæti ef það á að jafna þennan atkvæðisrétt svo út að fjölmennustu kjördæmin, Reykjanes og Reykjavík, sitji uppi með 2/3 allra þm.