14.02.1978
Neðri deild: 57. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2348 í B-deild Alþingistíðinda. (1778)

182. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir) :

Umræðan skiptist í tvær umferðir, þannig, að hver þingflokkur fær til umráða 30 mínútur, 15–20 mínútur í þeirri fyrri og 10–15 í þeirri seinni. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., Alþb., Framsfl., Alþfl. og SF.

Ræðumenn verða þessir: Af hálfu Sjálfstfl. talar Geir Hallgrímsson forsrh. í fyrri umferð og Matthías Bjarnason sjútvrh. í síðari umferð. Af hálfu Alþb. talar Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl., í fyrri umferð og Eðvarð Sigurðsson, 7. þm. Reykv. í síðari umferð. Af hálfu Framsfl. talar Tómas Árnason, 4, þm. Austurl., í fyrri umferð og Halldór E. Sigurðsson samgrh. í þeirri síðari. Af hálfu Alþfl. tala Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm., og Sighvatur Björgvinsson, 8. landsk. þm., í fyrri umferð og Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., í síðari umferð. Af hálfu SF talar Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm., í fyrri umferð og Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., í síðari umferð.

Nú hefst umr. og tekur fyrstur til máls Geir Hallgrímsson forsrh. og talar af hálfu Sjálfstfl.