14.02.1978
Neðri deild: 57. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2349 í B-deild Alþingistíðinda. (1779)
182. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum
Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :
Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Allir stjórnmálaflokkar og talsmenn stærstu hagsmunasamtaka á vinnumarkaðinum eru sammála um nauðsyn sérstakra efnahagsráðstafana til að tryggja rekstrarstöðu útflutningsatvinnuveganna og til að hamla gegn verðbólgu. Í sameiginlegu áliti fulltrúa Alþýðusambands Íslands, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og stjórnarandstöðuflokkanna í verðbólgunefnd, sem lauk störfum 8. febr. s. l., segir m. a.:
„Um hinn sérstaka vanda útflutningsatvinnuveganna gerum við ekki tillögur hér, þar sem ljóst er að gengislækkun er þegar ákveðin.“
Í þessum tilvitnuðu orðum felst viðurkenning á nauðsyn gengislækkunarinnar, enda byggja þessir fulltrúar till. sínar um hliðarráðstafanir á henni og benda ekki á annað úrræði til að leysa vanda atvinnuveganna. Það er því ekki raunverulegur ágreiningur milli ríkisstj. og stjórnarandstöðu um sjálfa nauðsyn gengislækkunar og hliðarráðstafana til að milda áhrif hennar og treysta stöðu atvinnuveganna enn frekar. Einmitt í því skyni hefur ríkisstj. lagt fram það frv. um aðgerðir í efnahagsmálum sem hér er til umræðu.
Valið hefur staðið á milli samdráttarleiðar að afstaðinni 10% gengislækkun annars vegar og málamiðlunarleiðar með 13–15% lækkun gengis og helminginn verðbóta hins vegar. Ríkisstj. valdi síðari kostinn. Kemur þar margt til, ekki síst sú áhersla hennar að koma í veg fyrir atvinnuleysi.
Í málflutningi stjórnarandstæðinga er að því spurt, hvers vegna ríkisstj. hafi ekki valið samdráttarleiðina. Svarið er fólgið í því, að í henni felist hætta á atvinnubresti, henni fylgi veruleg skattahækkun hjá einstaklingum, fjárhag ríkisins væri stefnt í hættu, en það hefði aukna verðbólgu í för með sér.
Tillaga fulltrúa stjórnarandstöðunnar og ASÍ og BSRB er skrumskæld samdráttarleið og ber algeru ábyrgðarleysi vitni, þar sem þeir segjast ekki þurfa að fjalla um vanda útflutningsframleiðslunnar af því að ríkisstj. muni fella gengið. Stefnt er í atvinnuleysi og lagt til að „svindlað“ sé á vísitölunni með því að taka milljarða með beinum sköttum og nota andvirðið til þess að lækka vísitöluna með lækkun óbeinna skatta og hækkun niðurgreiðslna í stórum stíl, sem þeir hafa harðlega gagnrýnt áður. Þetta eru því botnlausar till., sem ekki mundu draga úr verðbólgunni. Fjárhagur hins opinbera yrði með miklum halla, því að tekjuöflunin er algerlega óraunhæf, þar sem ætlunin er að ná inn tekjum með óljósum sparnaði og bættri innheimtu hér og þar eða með sköttum á fyrirtæki, sem þó á að heita að verið sé að bjarga.
Í 1. gr. frv. ríkisstj. er lagt til að hamlað verði gegn víxlhækkunum verðlags og launa með því að helminga þá hækkun verðbóta og verðbótaauka sem greiðast eiga á þessu ári umfram verðbótavísitöluna sem tók gildi hinn 1. des. s. l. Í þessu felst, að í stað þess að laun almennt hækki um 10% hinn 1. mars hækka þau um 5%. Við verðum einfaldlega að játa, að með verðbótahækkun launa var stefnt í ógöngur, ef launin æddu upp eftir óbreyttum vísitölureglum á þriggja mánaða fresti. Bretar takmarka launahækkun á ári við 10%. Hvernig getum við staðist 50–70% árlega hækkun launa í krónutölu?
Tillagan í 1. gr, frv. er sett fram á þeim forsendum að í raun sé vilji til að slæva kapphlaup launa og verðlags. Aðalatriðið er ekki krónutala í launaumslaginu, heldur hvernig kaupið nýtist til lengdar.
Markmiðið er að tryggja kaupmáttarstigið 1977 í sessi, en á því ári jókst kaupmáttur launþega um nálægt 9% að meðaltali frá árinu áður, og hefur hann aldrei verið hagstæðari þegar miðað er við meðaltal heilla ára.
Um síðustu áramót var kaupmáttur kauptaxta 6–7% meiri en að meðaltali 1977. Miðað við helmingun verðbóta og hliðarráðstafanir frv. verður þessi kaupmáttur sennilega 3–4% minni á síðasta ársfjórðungi í ár en hann var um áramótin og er þá miðað við, að hálfar verðbætur verði greiddar 1. des. Þarna ber að hafa í huga, að grunnkaupshækkanir launa 1. júní og 1. sept. vega að nokkru upp kaupmáttarrýrnun vegna helmingunar verðbóta. Að meðaltali verður kaupmáttur kauptaxta eftir sem áður nokkru meiri á árinu 1978 en á síðasta ári. Þetta eru því engir afarkostir.
Þegar gengisbreytingin nú og hliðarráðstafanir eru bornar saman við hliðstæðar aðgerðir t. d. hjá vinstri stjórninni vorið 1974 og reyndar aðrar enn fyrr, verður ekki annað sýnt en að hér sé mildilega að farið, enda er nú brugðið á þetta ráð áður en allt er komið í þrot. Nú þegar ytri aðstæður eru einmitt fremur hagstæðar hefði að sönnu verið auðvelt fyrir ríkisstj. að fara undanfærsluleiðina, þ. e. fara undan vandanum í flæmingi til vors, fram yfir kosningar. Hún kaus hins vegar að gera kjósendum hreinskilnislega grein fyrir stöðu mála og nauðsynlegum ráðstöfunum í tæka tíð.
Þrátt fyrir helmingun verðbóta samkv. 1, gr. frv. er tryggt með ákvæði um lágmarksverðbætur í 2. gr., að þessi frádráttur snerti lítið eða ekki hina tekjulægstu í hópi launþega. Hér er einkum þeir hafðir í huga sem tekjur hafa af reglulegri dagvinnu einni í lágum kauptaxta. Ljóst er að vísu, að vandasamt verður að framkvæma þetta á kvæði. En hér er um mikið sanngirnismál að ræða og nokkur fyrirhöfn til að leysa þennan vanda því eðlileg. Launþegi með 100 þús. kr. mánaðarlaun fær samkv. þessu um 8800 kr. hækkun verðbóta 1. mars n. k. eða hið sama og launþegi með 176 þús. kr. fær samkv. helmingareglu frv.
Nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar verða sett með reglugerð í samráði við launþegasamtök og vinnuveitendur. Þetta ákvæði er framhald þeirrar stefnu að vernda hag hinna lægst launuðu, sem einnig kemur fram í ákvæðum um tryggingabætur, en samkv. þeim skal koma sérstök hækkun á tekjutryggingu og heimilisuppbót. Á starfstíma þessarar stjórnar hefur einmitt mikið verið í það lagt að bæta þau lágmarkskjör sem almannatryggingakerfið ábyrgist landsmönnum.
Staðreyndin er sú, að aðilum vinnumarkaðarins hefur mistekist að vernda hag hinna lægst launuðu í kjarasamningum. Kjör þeirra hafa hins vegar því miður oft verið notuð í skjóli heildarsamtakanna til að tryggja hinum betur settu hlutfallslega meiri kjarabætur. Í þessu frv. er reynt að bæta hér nokkuð um.
Sé litið til framtíðarinnar felur frv. í sér þá stefnumörkun, að í 3. gr. þess er ákveðið að frá upphafi næsta árs skuli óbeinir skattar ekki hafa áhrif á verðbótavísitölu eða verðbótaákvæði kjarasamninga, hvorki til hækkunar né lækkunar launa. Rökin fyrir þessari breytingu eru vel kunn og hafa verið ítarlega rædd, bæði af forvígismönnum launþega og vinnuveitenda og á opinberum vettvangi, eins og í stefnuræðu minni haustið 1974.
Í fyrsta lagi eru beinir skattar, eins og tekjuskattur, ekki taldir með í vísitölu. Óbeinir skattar eiga þar ekki fremur heima. Eðlilegt er að löggjafinn eigi frjálst val milli beinna skatta og óbeinna að því marki sem skattlagning er nauðsynleg þjóðfélaginu.
Í öðru lagi er óeðlilegt að landsmenn fái kauphækkun þótt óbeinir skattar þurfi að hækka, t. d. vegna bættrar heilbrigðis- og sjúkrahúsaþjónustu, sem ríkið kostar og landsmenn fá ókeypis.
Í þriðja lagi eru menn nú sammála um að beita skuli fjármálum ríkisins til jafnvægis, svo að draga megi úr verðbólgu samkv. hinni gömlu reglu, að á góðum árum skuli safnað til hinna mögru. En það er ekki unnt án verðlagssveiflna meðan skattar eru tengdir vísitölu.
Ég vil taka það skýrt fram, að ég lít á niðurgreiðslur sem neikvæðan, óbeinan skatt, og það er því eðlilegt og rétt, að kauplagsnefnd meti niðurgreiðslur inn í vísitöluna eins og aðra óbeina skatta.
Í frv. er mörkuð framtíðarstefna í þessu efni. Ákvæðið er þannig ekki beinlínis tengt stundarvanda þjóðarbúsins, en til þess hugsað að bæta launaákvörðunarkerfið til frambúðar. Fyrir þau félög, sem hafa samninga í gildi, mun þetta ákvæði frv. þó eingöngu snerta breytingar á óbeinum sköttum og niðurgreiðslum eftir áramótin næstu.
Önnur félög, sem hafa samninga lausa fyrir n. k. áramót, munu einfaldlega geta samið út frá þessari almennu reglu.
Það er mikill misskilningur, ef launþegasamtökin telja þessu fyrirkomulagi stefnt gegn hagsmunum launþega. Slíkt kerfi er í gildi t. d. í Danmörku, og þykir þar ekki hallað á launþega.
Flestir þeir, sem ritað hafa og rætt um vísitölukerfið, eru sammála um, án tillits til stjórnmálaskoðana, að nauðsynlegt sé að meiri háttar uppskurður verði á vísitölukerfinu gerður ef snemma á stigu við verðbólgunni.
Í umr. nm stefnuræðu mína í haust sagði Gylfi Þ. Gíslason: „Einn af hornsteinum nýs efnahagskerfis þarf að vera að komast út úr vítahring þessa vélræna kerfis. Það sem mestu máli skiptir fyrir launþega, er að þeim sé tryggð réttmæt hlutdeild í vexti þjóðartekna. En hlutdeild launþega í vaxandi þjóðartekjum mætti tryggja með því að tengja laun vísitölu um þróun þjóðartekna.“
Sjálfstæðismenn hafa einnig oft bent á þessa leið, en hún er mun viðtækari og róttækari en í frv. er lagt til að farin sé.
Og í blaðagrein 9. febr. s. l. segir Gylfi Þ. Gíslason einnig: „Í næstum 40 ár hefur það kerfi ríkt hér á landi varðandi kaupgjald, að það hefur breyst sjálfkrafa í kjölfar breytinga á vísitölu framfærslukostnaðar.“ Og enn fremur: „Ekki verður komist hjá að vekja á því athygli, að verðbólgan á Íslandi er jafngömul þessu kerfi.“
Eins má minna á orð Lúðvíks Jósepssonar á Alþ. 30. ágúst 1974, þegar hann sagði: „Það þarf að koma í veg fyrir það, að kaupið, eftir einhverjum vísitölureglum eins og þeim sem við höfum búið við, æði upp á eftir verðlagi, því að það kippir vitanlega fótunum undan eðlilegum rekstri eins og nú er ástatt.“
Það eru látalæti, ef þessir tveir hv. þm. telja 3. gr. frv. árás á launastéttir. Þeir hafa öðrum fremur bent á skaðsemi núverandi vísitölukerfis. En það er ekki nóg að tala, athafnir verða að fylgja orðum. Og víst er um það, að séu launþegasamtökin reiðubúin að horfast í augu við þennan vanda og benda á raunhæfar úrlausnir, þá mun það skipta miklu máli um framvindu baráttunnar gegn verðbólgunni.
Auðvitað gerir ríkisstj. sér grein fyrir því, að frv. það, sem hér er til umr., er ekki fagnaðarefni. Það er neyðarúrræði að gripa inn í gerða kjarasamninga, en getur þó verið skylda stjórnvalda, eins og nú, til þess að tryggja fulla atvinnu, hamla gegn verðbólgu, vernda kaupmáttinn og styrkja stöðu landsins gagnvart öðrum löndum.
Okkur hefur tekist hér á Íslandi að bægja vofu atvinnuleysis frá dyrum okkar. Í Englandi, Danmörku og Finnlandi eru 8–12% vinnufærra manna atvinnulausir. Hvernig þætti okkur að ganga úr vinnu tíundu hverja viku til að gefa atvinnulausum kost á handtaki, eins og talað er um í Danmörku? Það bryddir á atvinnuleysi í Svíþjóð og Noregi. Gengi er fellt í fyrra og nú í ár á öðrum Norðurlöndum, jafnvel í Noregi, þar sem stuðst er við olíulindir. Aðrar þjóðir eiga við efnahagsvanda að etja eins og við.
Vilja menn skorast undan því nú að gera fullnægjandi, en mildar ráðstafanir til að tryggja atvinnuöryggi? Það verður ekki gert nema snúist sé gegn verðbólgunni. Allir eru sammála um skaðsemi hennar, en þegar gripa á til gagnaðgerða vilja menn kippa að sér hendinni og segja: Bara ekki ég. Aðrir geta tekið að sér það hlutverk að axla byrðina. — En verðbólgan verður ekki hamin nema allir taki höndum saman.
Sagt er að þessar ráðstafanir hafi of litið að segja í þessum efnum. En á því er munur hvort við, eftir að hafa minnkað verðbólguna frá 1974 um helming á fyrri hluta síðasta árs, sitjum aðgerðalaus, þegar verðbólgan frá upphafi til loka þessa árs verður meira en 36%, eða hvort við leggjum nokkuð á okkur til þess að hún fari niður fyrir 30% aftur, eins og gert er ráð fyrir samkv. frv. Þótt okkur hafi hrakið nokkuð af leið í baráttunni gegn verðbólgunni seinni hluta síðasta árs, þá er mikill munur á því, hvort við látum hrekjast enn meir eða tökum rétta stefnu á ný, hvort við fjarlægjumst markmiðið eða nálgumst það. Það gerir gæfumuninn.
Saman fer atvinnuöryggi, árangur í baráttunni við verðbólguna og trygging kaupmáttar. Kaupmátturinn hyrfi ef atvinnureksturinn stöðvaðist. Það eru engir afarkostir að búa við sama kaupmátt og bestur hefur verið og leggja um leið með því grundvöll að enn frekari sókn til bættra lífskjara.
Allir hafa verið sammála um það, að erlendar lántökur verði stöðvaðar og létt skuli á greiðslubyrði vegna þeirra. Frv. gerir ráð fyrir því, að viðskiptahalla sé snúið í afgang. Nú reynir á hvort tali manna um hættu af erlendri skuldasöfnun fylgir nokkur alvara.
Þetta frv. leysir auðvitað ekki allan okkar vanda til frambúðar. Í áliti verðbólgunefndar er bent á þætti efnahagsstjórnar sem við verðum að halda áfram að hyggja að og leysa. En við skulum gera okkur grein fyrir því, að án þeirra ráðstafana, sem frv. gerir ráð fyrir, verður ekki unnið að frambúðarlausnum svo að vel fari.
Löngum hefur verið sagt, að stjórnmálamenn þyrðu ekki fyrir kosningar að taka afstöðu til eða gera neinar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar væru til þess að bæta þjóðarhag, ef þær hefðu erfiðleika í för með sér. Ríkisstj. hugsar ekki þannig um stundarvinsældir, heldur leggur hún fram till. sínar á heim tíma þegar hún telur þeirra þörf. Verði brugðist við þessum ráðstöfunum með því að efna til pólitísks hráskinnaleiks, bera þeir, sem að því standa, ekki hag launþega í landinu fyrir brjósti.
Hver einstaklingur verður að gera upp hug sinn og má ekki láta glamuryrði eða æsingar hafa áhrif á sig. Lýðræðið byggist á frjálsri, einstaklingsbundinni skoðanamyndun, og ég er ekki í neinum vafa um að treysta má skynsemi landsmanna til að greina á milli kjarna og hismis, greina á milli þess, sem til heilla horfir, eða ófarnaðar. — Ég þakka þeim sem hlýddu.