25.10.1977
Sameinað þing: 9. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (179)

4. mál, kosningalög

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Hv. 5. landsk. þm., sem talaði hér síðast, blandaði inn í umr. nokkrum ummælum um prófkjör Alþfl., þó að ekki væri beint tilefni til þess af annars málefnalegum umr. um kosningalög. Þau ummæli einkenndust, eins og við mátti búast úr herbúðum Alþb., af önugheitum og fullyrðingum út í bláinn eins og þeim, að sú prófkjörstilraun, sem Alþfl. gerir um þessar mundir, sé „tilræði við lýðræðið.“ Þetta rökstyður hv. þm. með því að óflokksbundnir borgarar fái rétt til að kjósa í mörgum eða jafnvel öllum flokkum. Gerir hún ráð fyrir að allir flokkar tækju upp sömu reglu og Alþfl. hefur. Það má snúa þessu við og spyrja: Er það kerfi, sem Alþb. virðist aðhyllast og helst vilja, réttlátara, þar sem allir þeir, sem eru óflokksbundnir, eru útilokaðir frá því að taka nokkurn þátt í vali frambjóðenda? Ætli það sé ekki töluverður fjöldi sem þetta nær til, kannske meiri hluti allra kjósenda?

Það er verið að tala um tvö stig í þingræðiskerfi: annars vegar val frambjóðenda og hins vegar kosningu á kjördegi. Það dugir Alþb.- mönnum hvorki hér né annars staðar að reyna að blanda þessu saman. Þetta er tvennt ólikt. Enda þótt það, sem hér hefur verið rætt um í málefnalegum umr. eftir ræðu framsögumanns, yrði að veruleika, þá stendur enn eftir það vandamál hvernig flokkarnir eiga að velja frambjóðendur. Flokkarnir í Reykjavík þurfa alltjend að velja 24 til að setja á lista. Hvort sem þessum 24 verður raðað eftir stafrófsröð eða eftir vilja flokksmanna, þá er þetta vandamál óleyst. Það verður til eftir sem áður. Þess vegna þýðir ekki að blanda þessu tvennu saman.

Ef það gerðist sem hv. þm. virtist hafa í huga, að allir flokkar tækju upp sama kerfi og Alþfl. er nú að reyna, mætti segja að ástandið væri orðið svipað því sem það er í liðlega helming af fylkjum Bandaríkjanna þar sem prófkjör eru lögbundin. Ríkisvaldið framkvæmir prófkjörið og tryggir þannig að hver kjósandi kjósi ekki nema í einum flokki. Hann kemur á kjörstað hjá hinu opinbera í prófkjöri og segir: Ég ætla að kjósa í þessum og þessum flokki og fær þá auðvitað seðli fyrir þann flokk, en ekki hina, og þátttaka hans er þar með skráð.

Nú hef ég enga draumóra um að þróunin verði þannig hér, enda er engin ástæða til þess, né heldur höfum við Alþfl: menn haldið því fram, að þetta kerfi sé það fullkomnasta eða eina rétta. En sannleikurinn er sá, að þessi tilraun, sem er djörf og vissulega umdeilanleg að mörgu leyti, er tvímælalaust stórt skref í áttina til aukins lýðræðis. Það hafa þúsundir manna tekið þátt í að velja frambjóðendur, þar sem t.d. í Alþb. eru örfáir tugir. Það er því algerlega út í hött að vera með slíkar fullyrðingar, að þessi tilraun Alþfl. sé „tilræði við lýðræðið.“ því miður ber svona málflutningur aðeins vott um að Alþb. engist undir því, að það hefur opinberast fyrir þjóðinni í viðburðum síðustu vikna að þessi flokkur er þröngsýnastur allra flokka í þessum efnum, þar er tortryggnin mest í garð fólksins og hræðslan við það mest af einhverjum ástæðum. Þess vegna situr Alþb. eftir, er að reyna að bæta það upp með till. sem er góð svo langt sem hún nær. En það duga engin stóryrði til að þurrka yfir það, að Alþb. situr eitt eftir og hefur ekki tekið þátt í að gera neins konar tilraunir eða sýna teljandi vilja til þess að auka lýðræðið innan sinna vébanda í sambandi við val frambjóðenda.