15.02.1978
Neðri deild: 58. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2442 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)
87. mál, rannsóknarlögregla ríkisins
Frsm. (Páll Pétursson):
Virðulegi forseti. Allshn. Nd. hefur haft þetta mál til meðferðar og n. hefur komið sér saman um að mæla með samþykkt þessa frv. eins og Ed. gekk frá því. N. kvaddi á fund sinn rannsóknarlögreglustjóra, Hallvarð Einvarðsson, og fulltrúa hans Þórir Oddsson og Erlu Jónsdóttur. Enn fremur mættu fulltrúar frá hagsýslustofnun og dómsmrn. Undir þetta mál höfum við skrifað: Ingvar Gíslason, Páll Pétursson, Ingólfur Jónsson, Sighvatur Björgvinsson og Svava Jakobsdóttir, og með fyrirvara Ellert B. Schram og Friðjón Þórðarson.