15.02.1978
Neðri deild: 58. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2443 í B-deild Alþingistíðinda. (1801)

87. mál, rannsóknarlögregla ríkisins

Ingólfur Jónsson:

Virðulegi forseti. Ég hef ekki blandað mér í þær umr. sem fram hafa farið um þetta mál. Það gæti kannske einhver ætlað, að ég hygðist fara að gera grein fyrir því, af hverju ég hafi ekki skrifað undir með fyrirvara eins og tveir hv. flokksbræður mínir. Ég kvaddi mér hljóðs fyrir jólin þegar frv. var til umr., en þá var samkomulag um að slíta umr., svo að málið gengi áfram. Ástæðan til þess, að ég tek til máls, eru aðallega þessar umr, sem fóru fram fyrir jók Það van tónninn í þeim í garð formanns hv. allshn. sem mér líkaði ekki. Gefið var í skyn að hann hefði frá upphafi haft lítinn áhuga á þessu máli og jafnvel tafið það. Þessu er ég ekki sammála. Ég tel að formaður n. hafi unnið vel og eðlilega að þessu máli, það hafi alls ekki verið hans meining eða okkar annarra í n. að tefja málið. Við gerðum okkur grein fyrir því, strax þegar málið var flutt, að það var viðamikið og gat verið mikils virði. En það er skylda þm. að kynna sér slík stórmál og flana ekki að neinu. Það skiptir ekki höfuðmáli hvort slíkt mál er gert að lögum hálfu árinu fyrr eða seinna, heldur skiptir það aðalmáli, að vel sé til löggjafarinnar vandað.

Nú var það svo, að frv. var talsvert breytt. Hæstv. ráðh. breytti því að vísu ekki mikið, en þó svolítið, þegar hann flutti það í annað sinn, og allshn. flutti nokkrar brtt. við málið, allveigamiklar, sem voru samþykktar. Hv. formaður allshn. og n. öll vann talsvert í þessu máli, kallaði fyrir sig marga embættismenn, sem gáfu skýrslu og greinargóð svör við spurningum, og n. fór á vettvang til þess að kynna sér þessi mál. Ég tel að vinnubrögðin hafi verið alveg eðlileg og þetta mál afgreitt með eðlilegum hraða.

Fyrir jólin kepptust menn við það að lýsa því yfir, að .þeir vildu afgreiða frv. strax fyrir jól. Það hafði þá verið í hv. Ed. í nokkrar vikur til meðferðar, en hér vildu ýmsir afgreiða málið strax. Að vísu var þetta frv., sem hér er um að ræða, ekki veigamikið. Aðeins er um tvö atriði að ræða.

Ég tel eðlilegt að skipaður sé vararannsóknarlögreglustjóri og eins og nú er komið með húsnæðismálin, þá er hitt atriðið einnig nauðsynlegt og sjálfsagt. Þess vegna er verið að deila um keisarans skegg þegar er verið að deila um þetta viðbótarfrv. Menn geta hins vegar deilt um hvort það hafi verið rétt að kaupa þetta húsnæði. Ég ætla engan dóm á það að leggja, en Alþ. gaf heimild til þess við afgreiðslu fjárl. fyrir jól og það verður ekki aftur tekið.

Hvort þetta húsnæði er gott og eðlilegt, kaupin hafi verið góð, ætla ég ekki að dæma um. Embættismenn hafa upplýst að leitað hafi verið að húsnæði hér í Reykjavík, og þeir staðnæmdust við þetta hús og telja það eftir atvikum góð kaup. Hitt hefði vitanlega verið æskilegt, ef rými hefði verið í nýju lögreglustöðinni fyrir rannsóknarlögregluna. Ef farið hefði verið að byggja, þá hefði e. t. v. dregist of lengi að koma starfseminni fyrir. En þetta er nú allt saman búið og gert. Starfssvæðið var samkv. lögum víkkað út frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir með fyrsta frv. ríkisstj. í þessu máli, og hafi verið gerð góð kaup í þessu húsi og staðurinn ekki óþægilegur, þá má vel vera að rannsóknarlögreglan geti athafnað sig með eins góðum árangri í Kópavogi og verið hefði í Reykjavík. Látum það allt saman vera. En aðalatriðið er nú, að Alþ. hefur fallist á að lögfesta þetta mál, og ég geri ráð fyrir að allir þm. hafi jafnmikinn áhuga á því að koma dómsmálunum og rannsóknarlögreglumálunum í eins gott horf og mögulegt er.

Ég held að það sé alger fjarstæða, ef einhver einn stjórnmálaflokkur ætlar að fara að taka sig út úr og láta í það skina, að hann standi öðrum framar og hafi meiri áhuga á þessum réttlætismálum en annar. Ég segi: ef það væri reynt, þá held ég að að því yrði bara hlegið. Ég er alveg sannfærður um að hv. alþm, hafa allir áhuga á því, að þessi mál verði í sem bestu lagi. En það er svo raunalegt til þess að vita, að fjöldi manna skuli alltaf vera í gæsluvarðhaldi, að afbrotum og glæpum virðist fara mjög fjölgandi og í þessu litla þjóðfélagi skuli vera tugir og jafnvel hundruð manna alltaf uppteknir við sakamál, rannsóknir og dóma. Þegar menn gera sér grein fyrir þessu, hlýtur sú spurning að vakna, hvort ekki sé mögulegt að gera eitthvað fyrirbyggjandi í þessum efnum að draga úr glæpum og afbrotum sem tröllríða okkar þjóðfélagi. En svör við því er áreiðanlega erfitt að gefa, hvernig að því skuli fara. Þetta hlýtur að vera öllum áhyggjuefni.

Það er vonandi, að þessi nýja löggjöf komi að gagni og störf rannsóknarlögreglu ríkisins, þegar hún fær góð vinnuskilyrði og starfar af fullum krafti með því skipulagi, sem ætlað er, geti orðið árangursrík og til bóta í þjóðfélaginu.

Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri, en vil enn mótmæla því, að hv. formaður allshn. hafi ekki haft áhuga á þessu máli, hefði haft tilhneigingu til þess að tefja það. Ég vil að það sé staðfest í þingtíðindunum, að það hefur ekki við nein rök að styðjast.