15.02.1978
Neðri deild: 58. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2453 í B-deild Alþingistíðinda. (1808)

87. mál, rannsóknarlögregla ríkisins

Tómas Árnason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af því sem hv. þm, Friðjón Þórðarson gat um seinast. Ég er alveg sammála honum í því efni, að það situr allra síst á þm. að brjóta nýsett lög og er ástæða til þess að undirstrika það. En það er eigi að síður til í löggjöf flestra lýðræðisríkja a. m. k. neyðarréttarákvæði sem fjalla um það, að menn verða stundum neyddir til þess að nota þá aðferð að fórna minni hagsmunum fyrir meiri þegar sérstaklega stendur á. Málshátturinn „nauðsyn brýtur lög“ getur átt rétt á sér í vissum tilfellum, þó að ég sé ekki á neinn hátt að mæla fyrir því að menn eigi að brjóta lög. Hér hefur komið í ljós að þessi stofnun, sem allir voru sammála um að þyrfti að greiða fyrir á þann veg að hún gæti sem allra fyrst tekið til starfa á sem heppilegastan hátt og hefði starfsaðstöðu til þess að rækja verkefni sín sem best, — þá hefur, eins og hér hefur verið rakið, komið í ljós, að erfiðleikum var bundið að fá hentugt húsnæði fyrir þessa stofnun í Reykjavík. Þess vegna var auðvitað leitast við að leysa úr þessari — ég vil segja: nauðsynlegu húsnæðisþörf þessarar stofnunar með þeim hætti að fá húsnæði á e. t. v. mjög heppilegum stað í Kópavogi, þó að megi um það deila. Þannig liggja auðvitað ákveðnar ástæður til þess, að þetta var gert. Ég geri ráð fyrir að það hefði komið hik á menn, þegar málið kom fyrir aftur og málin voru skýrð, þinginu gefin skýrsla um hvað hefði gerst í þessum málum, Reykjavík verið kembd og ekki möguleikar á að finna hentugt húsnæði fyrir stofnunina þegar á því þurfti að halda. — Ég býst við að það hefði komið hik á menn ef Alþ. hefði þrátt fyrir þetta neitað breytingu á lögunum. Ég geri ráð fyrir því. Hér er verið að leggja málið fyrir Alþ. til skýringar og gefnar eru skýrslur um hvernig á þessu stendur. Þess vegna er okkar alþm. að leggja dóm á það, hvort við teljum réttmæta ástæðu til þess að breyta lögunum að þessu leyti eins og nú er lagt til.