16.02.1978
Efri deild: 63. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2455 í B-deild Alþingistíðinda. (1812)
182. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum
Frsm. meiri hl, (Halldór Ásgrímsson) :
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið frv. til l. um ráðstafanir í efnahagsmálum til athugunar og meðferðar, en varð ekki sammála um afgreiðslu þess. Meiri hl. n. leggur til að frv, verði samþ., eins og fram kemur í nál., og því er við að bæta, að meiri hl. n. hefur lagt fram í samráði við ríkisstj. brtt. þess efnis að 3. gr. frv, falli niður. Vísa ég í því sambandi til yfirlýsingar hæstv. forsrh, hér áðan fyrir hönd ríkisstj. Minni hl. n., Ragnar Arnalds og Jón Árm. Héðinsson, skilar séráliti. Albert Guðmundsson var fjarverandi endanlega afgreiðslu málsins.
Við 1. umr. þessa máls gerði ég nokkra grein fyrir þeim vanda, sem nú er fram undan, og hvernig á að taka á honum til þess að unnt sé að leysa hann. Ég tók fram, að það er ekki um góða kosti að ræða. Það eru einkum tvær leiðir, sem þar koma til greina. Önnur er hin svokallaða samdráttar- og niðurfærsluleið, eða leið 2 í nál. verðbólgunefndar. Slík leið felur í sér mjög mikla aukningu á skattheimtu og bætta stöðu ríkissjóðs. Hún felur í sér nokkra gengisfellingu, um 10%. Hins vegar er sú leið algjörlega óviðunandi varðandi afkomu atvinnuveganna og mundi ekki leysa þann vanda sem við er að glíma, þrátt fyrir það að gífurlegur niðurskurður yrði að eiga sér stað á ýmsum liðum fjárlaga.
Menn hafa staðnæmst við þá meginhugmynd, sem kemur fram í áliti verðbólgunefndar, leið 5b. Þessi leið hefur það í för með sér, að menn vænta þess, að meðalhraði verðbólgunnar gæti orðið um 30% og þannig stefnt niður á við. Menn búast við því, að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann verði svipaður 1978 og hann var 1977. Ef miðað er við kaupmátt ráðstöfunartekna á mann, þá hefur þróunin verið sú, ef miðað er við 100 á árinu 1974, að þá var vísitala kaupmáttar ráðstöfunartekna 91 1976 og 99 1977, og gert er ráð fyrir að hún verði einnig 99 á árinu 1978. Miðað við óbreytt ástand og engar aðgerðir hefði þessi kaupmáttur ráðstöfunartekna verið 106, eins og fram kemur í áliti verðbólgunefndar. Ef farin hefði verið hin svokallaða samdráttar- og niðurfærsluleið, þá hefði þessi kaupmáttur orðið 104. En eins og ég gat um áðan, þá hefði slíkt ekki leyst þann vanda sem við er að glíma.
N, bárust tvö bréf við meðferð málsins, og mér þykir rétt að gera grein fyrir þeim, Í fyrsta lagi er bréf frá Alþýðusambandi Íslands sem stílað er til fjh.- og viðskn. Ed. og er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Ráðstefna formanna verkalýðsfélaganna innan Alþýðusambands Íslands, formanna landssambanda þess, svæðissambanda og miðstjórnar, haldin í Reykjavík 15. febr. 1978, ályktar eftirfarandi vegna þeirrar allsherjarriftingar kjarasamninga verkalýðssamtakann sem felst í frv, til 1. um ráðstafanir í efnahagsmálum og ríkisstj. beitir sér nú fyrir með atfylgi atvinnurekendasamtakanna :
1. Samþykkt frv. þessa fæli í sér grófa og stórfellda kjaraskerðingu allra launþega, þar sem þeir yrðu sviptir hálfum samningsbundnum verðbótum fyrir verðlagshækkanir sem ekki geta numið minna en 30–44% frá 1. nóv, 1977 til 1. nóv. 1978, en það er það tímabil sem verðlagsbætur yrðu skertar samkvæmt 1. gr. frv.
2. Með ákvæðum 3. gr, frv. er gert ráð fyrir að óbeinir skattar skuli ekki hafa áhrif á verðlagsbætur frá og með næstu áramótum. Auk þeirrar ómældu kjaraskerðingar, sem þetta ákvæði hefði í för með sér, er augljóst að með þessum nýja og gjörbreytta verðbótagrundvelli yrðu réttir aðilar vinnumarkaðarins sviptir lagarétti sínum til að semja sín í milli um eitt helsta og mikilvægasta atriði, sem launakjörin varðar, og ríkisvaldinu í rann fengið í hendur einræðisvald til að ákvarða launakjör í landinu.
Þar með yrðu launþegasamtökin gerð ómerk í kjarabaráttu sinni að þeim hætti sem tíðkast í þjóðlöndum þar sem lýðréttindi eru í minnstum hávegum höfð.
Þótt ekki kæmu til margvísleg fleiri atriði en að framan er greint frá, er augljóst að með ráðstöfunum þessum væri hafin slík aðför að verkalýðsstéttinni og samtökum hennar, að óhjákvæmilega nauðsyn bæri til að gegn henni verði snúist með öllu því afli, sem samtökin hafa yfir að ráða. Leggur ráðstefnan í því efni sérstaka áherslu á fulla samstöðu og samráð við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Farmanna og fiskimannasamband Íslands, sem bæði hafa þegar lýst eindregnum vilja sínum til samstarfs og baráttu við hlið Alþýðusambands Íslands.
Ráðstefnan ítrekar fyrri áskoranir verkalýðssamtakanna til ríkisstj, um að stöðva framgang frv. Verði ekki orðið við þeim eindregnu tilmælum, samþykkir ráðstefnan að fela miðstjórn ásamt stjórnum eða fulltrúum BSRB og FFÍ að skipuleggja sameiginlegar baráttuaðgerðir, og skal miða við að þær hefjist 1. mars n. k., en þann dag á fyrsta kaupskerðingin að koma til framkvæmda. Allar skulu aðgerðir samtakanna stefna að því marki, að þeim ólögum, sem sett hafa verið hagsmunum og rétti launamanna til höfuðs, verði í reynd eytt, þannig að kjara- og réttindaskerðingin komi ekki til framkvæmda og verði ekki þoluð af neinu verkalýðsfélagi né einstökum félögum þeirra. Kjörorð baráttunnar verði: Kjarasamningana í gildi.“
Auk þess barst bréf frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja til fjh.- og viðskn. Ed. Það er ályktun formannaráðstefnu BSRB um frv. til l. um ráðstafanir í efnahagsmálum og fram kemur að ályktun þessi hafi verið samþykkt þar með 58:2 atkv. Sú ályktun, sem ég las upp, er frá Alþýðusambandi Íslands, en þar kemur fram að sú ályktun hafi verið samþ. einróma. Ályktun Bandalags starfsmanna ríkis og bæja er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Með kjarasamningum samtaka launafólks á s. l. ári var réttur hlutur launamanna eftir langvarandi stórfellda kjaraskerðingu, er leiddi af riftun kjarasamninga vorið 1974, þegar hætt var að greiða umsamdar vísitöluuppbætur á laun.
Með frv. því, sem ríkisstj, hefur nú lagt fyrir Alþ. um ráðstafanir í efnahagsmálum, er enn á ný rift nýlega gerðum kjarasamningum. Á þennan hátt er komið í veg fyrir að launafólk geti í frjálsum samningum samið um launakjör sín eins og lög um stéttarfélög og vinnudeilur frá 1938 og lög um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja frá 1976 gera ráð fyrir.
Formannaráðstefna BSRB 1978 ályktar, að ekki verði lengur við það unað, að fjárskuldbindingar þær, er felast í kjarasamningum, séu að engu hafðar af ríkisstjórn og Alþingi,
Því ákveður formannaráðstefnan, að stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja leiti samstarfs við önnur samtök launafólks, sérstaklega Alþýðusamband Íslands, Farmanna og fiskimannasamband Íslands, Bandalag háskólamanna og Sambands ísl. bankamanna um aðgerðir til að hrinda þeirri árás á frjálsan samningsrétt, sem frv, felur í sér.
Skorar formannaráðstefnan á Alþ. að hætta við að samþ. þau ákvæði frv., sem fela í sér riftun á samningum um kaup og kjör.
Verði Alþ. ekki við þessari áskorun er launafólk knúið til aðgerða til verndar samningsréttinum nú og í framtíðinni.
Ef nauðsyn krefur og samstaða næst við önnur launþegasamtök um aðgerðir, felur formannaráðstefnan stjórn BSRB að gangast fyrir víðtækri þátttöku félagsmanna Bandalags starfsmanna ríkis og bæja í þeim, Komi til vinnustöðvunar er stjórn bandalagsins falið að taka þátt í stjórnun hennar af þess hálfu.“
Mér þótti rétt að gera grein fyrir þessum bréfum, sem n. bárust. Þar koma fram stór orð, en ég vil hins vegar taka fram, að ég fæ ekki séð að með þessu sé verið að svipta menn samningsrétti. Það, sem hér um ræðir, er það, að hér er verið að fresta gildistöku hluta af verðbótum, og það hefur oft verið gert áður. Hins vegar bið ég menn að íhuga það og hugleiða, hvaða aðrar raunhæfar leiðir eru færar í þeirri stöðu sem við nú erum í, áður en menn taka hér endanlegar ákvarðanir.
Við erum staddir í vanda sem ekki verður komist hjá að taka á, og menn verða að virða fyrir sér staðreyndir þess máls. Hvort sem menn byrja á því að leysa þann vanda nú eða síðar, komast menn ekki hjá því að takast á við hann, og eftir því sem lengra líður, þeim mun erfiðara verður það, Og ég er þess fullviss, að það er ekki önnur mildilegri leið, sem hægt er að fara, ef menn líta á staðreyndir málsins. Ég gerði grein fyrir því við 1. umr. í gær, hversu fráleit er sú leið sem nefnd hefur verið verðlækkunarleið. Hún getur engan veginn staðist.
Varðandi vísitöluna og endurskoðun á vísitölugrundvellinum hafa menn í sjálfu sér alltaf verið sammála um það, að slík endurskoðun þurfi að eiga sér stað, hvernig svo sem þeirri endurskoðun verður endanlega háttað. Og ég vil í því sambandi minna á nefndarálit, sem kom fram í skýrslu til fjmrh. þegar í nóv. 1973, þar sem áttu sæti í nefnd fulltrúar þáv. stjórnarflokka, skipaðir af flokkunum. Á bls. 139–140 í áliti verðbólgunefndar er vísað til þessa álits, en þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„N. leggur áherslu á, að til þess að breytingar skatta komi að tilætluðu gagni, hvort sem þær eru gerðar með lagabreytingum eða samkvæmt svigrúmsheimild, sbr. það sem segir hér að framan, þurfi í almennum kjarasamningum eða lögum að kveða á um að slíkar skattbreytingar valdi ekki sjálfkrafa breytingum á verðtryggingarákvæðum í fjárskuldbindingum eða kaupgjaldssamningum.“
Undir þetta nál, rituðu allir fulltrúar í þessari n., og fulltrúar þáv. stjórnarflokka, og þess vegna er það alveg augljóst mál, að menn hafa ávallt verið um það sammála, að þetta kerfi þurfi að taka til endurskoðunar. Hins vegar má um það deila, hvort það skuli gert með þeim hætti sem er í 3. gr. þessa frv., en nú hefur verið lagt til að sú grein falli niður. Hitt er svo annað mál, að menn hljóta að þurfa að vinna áfram að þessu máli, eins og menn hafa verið sammála um að þurfi að gera, og það er tilgangslaust að reyna að færast undan því,
Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að fara fleiri orðum um þetta mál, Ég vildi aðeins taka fram í sambandi við 2. gr. frv., að þar er um að ræða lágmarkstryggingarákvæði fyrir verðbótum. Það ákvæði verður sjálfsagt í mörgum tilfellum erfitt í framkvæmd. En ég vil leggja á það áherslu, að það verði nú þegar að gefa út reglur um það, hvernig því skuli háttað. Hins vegar er ljóst að hér er um lágmarkstryggingarákvæði fyrir verðbótum að ræða til viðbótar þeim kauptöxtum sem í gildi eru á hverjum tíma.
Ég vil að lokum aðeins endurtaka, að meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþ, með þeirri breyt., sem ég hef þegar gert grein fyrir, og vísa í því sambandi til yfirlýsingar hæstv. forsrh.