16.02.1978
Efri deild: 63. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2474 í B-deild Alþingistíðinda. (1815)
182. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins segja nokkur orð við 2. umr. Mér þykir rétt að byrja á því að fjalla lítils háttar um 3. gr., vegna þess að nú er komin fram brtt. sem felur í sér að hún skuli falla niður. Ég hafði allmörg orð um 3. gr. og taldi mjög hæpið að hún yrði í frv. áfram og yrði gerð að lögum, bar sem gildistími 3. gr, átti að vera frá 1. jan. 1979, en þar sagði, að óbeinir skattar skyldu ekki hafa áhrif á verðbótavísitölu. Hæstv. forsrh. kallaði þetta stefnumörkun. Ég taldi að með því að hefja viðræður við forsvarsmenn launþegasamtakanna eða jafnvel að fella þetta niður eða láta breytinguna, sem boðuð væri, taka gildi í áföngum, þá mundi nást mikill árangur og jákvæðari afstaða varðandi efni frv. Þess vegna vil ég þakka fyrir að þetta er gert. Ég taldi að hæstv. forsrh. væri að gefa í skyn, að þessir ríkisstjórnarflokkar mundu ætla að starfa áfram í gegnum þykkt og þunnt, hér væru þeir að boða það sem koma skyldi og fólk ætti að vita það í tæka tíð. Það getur vel verið að svo verði. En svarið mun þá koma í kosningunum, bæði gagnvart þessu atriði og 1. gr. frv., sem auðvitað er aðalatriði frv., þ. e. að hefta verðbótavísitölu á launin. Það er auðvitað aðalatriði frv. og fram hjá því verður aldrei gengið. Annars væri frv. ekki flutt. Engu að síður tel ég mikilvægt að á þetta hefur verið hlustað. Ég tók einnig eftir því, að hæstv. utanrrh. sagði í ræðu sinni í gær, að þetta ákvæði væri honum ekki mikið í mun að hafa, og jafnvel skildi ég hann svo, að best væri að það hyrfi. Sem sagt, hæstv. ríkisstj. hefur tekið þá ákvörðun að fella 3. gr. út úr frv., og meiri hl. fjh.- og viðskn. hefur flutt þessa brtt., þó að um það væri aldrei rætt á fundi n. í morgun og honum lauk um kl. hálfellefu án þess að á þetta væri nokkuð minnst. En hæstv. ríkisstj. mun hafa fjallað um málið á fundi sínum fyrir hádegi í dag og komist að þessari niðurstöðu. Þetta tel ég jákvætt.
En eftir stendur meginatriði frv., þ. e. að hefta verðbætur á launin samkv. kjarasamningi. Á laun, sem nema yfir 176 þús. kr. á mánuði, hvernig sem þeirra er aflað, koma ekki fullar verðbætur. Þær koma aðeins á lægri laun.
Hæstv. utanrrh. sagði í gær, að menn hefðu kveðið mjög sterkt að orði, að hér væri um árás á launþegasamtökin að ræða. Launþegasamtökin hafa sjálf ályktað um þetta mál, og virðist nú sem nokkur órói sé í þeim og þau búist til átaka. Ég segi það hreinskilnislega, að það er alltaf neyðarúrræði að hafa slíkt uppi, að til átaka komi, og þar sem stutt er í kosningar, þá tel ég langhyggilegast af þessum mönnum að mótmæla kröftuglega og kynna sjónarmið sín vítt um landið og láta dóminn falla í næstu kosningum svo eftirminnilega að slíkt háttalag sem þetta frv. boðar verði ekki aftur haft í frammi. Það er sá eini dómur sem mun gilda og hafa sín einu og sönnu áhrif í framtíðinni. Þó að til verkfallsátaka komi nú á miðri vertíðinni, þá mun það ekki nægja. Það eina, sem dugir, er að launþegasamtökin og verkalýðshreyfingin tryggi sér það mikið afl hér á Alþ. að ekki verði framar ráðist í löggjöf beint gegn hagsmunum þeirra og gerðum kjarasamningum. Það er hið eina rétta svar sem launþegasamtökin eiga í dag.
Hæstv. utanrrh. taldi þessar ráðstafanir þær mildustu sem hægt væri að fara i. Menn eru auðvitað frjálsir að því að meta hvað er mildilegt og hvað ekki. En ég er ekki ánægður þegar ég sé að frv. gerir ráð fyrir — og það kom fram á nefndarfundi í morgun frá talsmönnum Þjóðhagsstofnunarinnar, — að enn yrði verðbólga 36–37% á ári. Meðan svo er, þá er þar um mjög alvarlegt mál að ræða. Þetta frv. er til þess að bjarga í takmarkaðan tíma frá mjög slæmu ástandi, það viðurkenni ég, og við erum flestir eða allir sammála um að það þurfi að bjarga a. m. k. mörgum frá vandræðum. En þetta er heildaraðgerð. Ég lagði á það nokkra áherslu og mér fannst hæstv. utanrrh. taka nokkuð undir það sjónarmið, að það þyrfti að líta á hvert einstakt tilfelli meira en gert hefur verið og haga sér samkvæmt því. Það er kannske sama sagan, að ekki er svigrúm til að gera slíkt og þess vegna þurfi að gera þetta á breiðum grundvelli og í einu skrefi, eins og það hefur verið orðað. En við verðum að gá að okkur. Það hafa margir verið hér óábyrgir, eins og síðasti ræðumaður kom inn á, og fjárfest mikið og hagað sér ógætilega og hljóta því enn stærri hluta úr kökunni en ella, vegna þess að þessar aðgerðir færa gífurlega fjármuni á milli í þjóðfélaginu. Þeir, sem óvarkárast fara, þ. e. a. s. fjárfesta mest, eru verðlaunaðir. Ég fullyrði enn einu sinni að sum fyrirtæki eru í miklum vanda vegna of mikillar og rangrar fjárfestingar. Ég segi einnig að almenningur í landinu hefur eytt um of vegna vantrúar á það, að gengi íslensku krónunnar sé nokkuð tryggt. Það er okkar stóri vandi, bæði nú og oft áður. Og á meðan fólkið trúir því ekki, að einhvers virði sé að spara, þá náum við aldrei þessu margumrædda og eftirsótta jafnvægi í okkar efnahagsbúskap.
Ég er sammála því, sem kom fram hjá hæstv. utanrrh., að fólk vill auðvitað vinna, hafi það vinnu, heldur en að sækja bætur. Um það var ekki deilt. En ég lét í ljós þá skoðun, að við mættum gjarnan flýta okkur hægar í sambandi við ýmsar framkvæmdir en gert hefur verið. Manni finnst það hálfundarlegt, þegar við sjáum framkvæmdir á vegum ríkisins sem boðnar hafa verið út, að þá skuli vera unnið langt fram á kvöld á laugardögum og sunnudögum, þegar fjármál ríkisins eru í miklum þrengingum. Þetta gagnrýni ég, hvort sem um er að ræða vegagerð, viðgerð á skipi í þágu eða eigu ríkisins eða skólabyggingu. Hér er rangt staðið að verki að mínu mati, og þetta ásamt mörgu, mörgu öðru skapar aukna þenslu, meiri þarfir fyrir fjármagn í ríkiskassann, aukna skattþenslu og verðbólgu. Ég vil sporna við þessu. Ég vil leggja það, sem var grundvallaratriði í baráttu Dagsbrúnar í áratugi, að viðurkenna 40 stunda vinnuviku, sem grundvöll undir eðlilegu og heilbrigðu lífi hér á Íslandi. Ef framleiðslan þarf á tveimur stundum í eftirvinnu að halda á dag, þá má bæta við 8 eða 10 tímum á viku í eftirvinnu. Vinnu fram yfir það tel ég óheppilega. Mér er kunnugt um það, að á Norðurlöndum var þegar árið 1958 eða 1959, í flestum eða öllum Norðurlandanna, sett bann við yfirvinnu frá 1. maí til 15. sept. Vildu menn fá yfirvinnu unna á þessum tíma varð að sækja um það í félmrn. í hverju einstöku tilfelli. Eðlilegt er að við tökum þetta upp.
Hæstv. utanrrh. talaði um að það þyrfti oft að bjarga verðmætum og átti við sjávarsíðu. Það er rétt út af fyrir sig. Það þótti mikið átak í sveitinni þegar menn hættu að heyja á sunnudögum. Ég held að flestir bændur séu hættir að heyja á sunnudögum, a. m. k. meiri hl. E. t. v. gerir tæknin það mögulegt nú. En þetta fólk verður að eiga möguleika á að eiga frídaga eins og allir aðrir.
Ég má til að segja frá dæmi sem kom fyrir mig í sumar vestur á Vestfjörðum. Ég var þar í frystihúsi á laugardegi, og frá fimmtudegi til hádegis á laugardegi dundu yfir tilkynningar um dansleiki alls staðar og útisamkomur og þetta heyrðist í vinnusalina. Ég var að tala við verkstjóra og forstjóra fyrirtækisins, og hann sagði að þetta væri einhver mesta erting fyrir þetta unga fólk sem hér ynni, sem það gæti búið við. Þá var mikill afli og fólkið vildi vinna eða þurfti að vinna réttara sagt á laugardegi og jafnvel sunnudegi, en alls staðar dundu við auglýsingar um samkomur og gert ráð fyrir að fólkið hefði frí. Ég gagnrýndi það við forstjórann, að afli væri ekki fluttur á milli staða, sem var ekki ýkjalöng leið. En samkomulagið var nú ekki betra á milli staðanna en það, að það var ekki gert. Sama gæti ég sagt frá Norðurlandi. Við höfum horft á það, að það vantar fisk ekki ýkjalangt frá Akureyri og Akureyringar hafa unnið hvern einasta laugardag mánuðum saman þegar aðrir staðir í lítilli fjarlægð hafa verið fisklausir. Ég er á móti svona skipulagi og ég er á móti því, að það þurfi að fella gengi og taka af verkafólki réttmæt laun til þess að bjarga fyrirtækjum, sem haga sér rangt. En út á það ganga að mínu mati óumdeilanlega þessar ráðstafanir að hluta.
Það má deila um hvað á að gera. Það hefur oft verið gert áður og verður áreiðanlega gert í framtíðinni hér á hv. Alþ. Menn hafa alltaf gefist upp við að fara svokallaða verðlækkunarleið, verðhjöðnunarleið, sagt að hún bjargi engu. Ég trúi því ekki, að það megi ekki skipta eftir þessari leið. Ég trúi því ekki, að það megi ekki taka af hæstu launum í landinu, eins og þau eru í dag, launum sem eru yfir 300 þús. kr. á mánuði, eins og er hjá alþm. og mörgum fleirum, og skerða þau beint, ef það er rétt, eins og sagt er, að það þurfi að spara mikið fjármagn í ríkisrekstrinum og í mörgum atvinnugreinum, en leyfa hinum óbreytta verkamanni, sem er við fiskvinnsluna og höfnina, að halda sínu. Ég trúi ekki að það megi ekki reyna þessa leið eða hafa blöndu úr þessum leiðum. Það er rétt, sem kom fram hjá frsm, meiri hl., að hér er ekki valin ein ákveðin leið, eins og kemur fram í áliti verðbólgunefndarinnar, heldur er hér um nokkra blöndu að ræða. En ekki er gert ráð fyrir neinni beinni verðhjöðnunarleið, ef frá er talið það stóra afrek að lækka prósentu vörugjalds úr 18% í 16%. Alveg óskiljanlegt er að ekki skuli vera gert meira, þar sem allir vita að þetta vörugjald hefur valdið aukinni verðbólgu í þjóðfélaginn. Þó að ríkissjóður nái til sín skattpeningum í fyrstu lotu, þá dregur þetta vörugjald stórfé til baka frá hæstv. fjmrh. vegna áhrifa þess í verðmyndun í þjóðfélaginu.
Ég harma það, að menn skuli alltaf gefast upp við að hamla á móti dýrtíðinni, eins og raun ber vitni, og fara hina einfaldari og þægilegri leið. Það er gert nú enn einu sinni. Ég sagði hér við 1. umr., að allir flokkar hafi staðið að þessari leið og einnig minn flokkur. Ég tel að við verðum einhvern tíma að reyna aðra leið en þessa. Frsm. meiri hl. fullyrti að við kæmumst ekki hjá því að gera eitthvað, við værum staddir í vanda og það yrði ekki hægt að aka sér undan því að takast á við þennan vanda. Það er alveg rétt. En það er bara svona, að menn sjá alltaf það sem er þægilegast og einfaldast og fara þá leið. Fyrir bragðið líður ákveðinn tími og við erum komnir í sama farið aftur. Ég fullyrði enn einu sinni, að innan tiltölulega skamms tíma lendum við í sama farinu, og þá er verr af stað farið en ekki að mínu mati. Þá erum við einu þrepi neðar og virðingarleysi gagnvart íslenskri krónu minna en áður og er þó ekki á bætandi.
Það er tilgangslaust, sagði frsm., að færast undan vandanum. Þetta er alveg rétt. En þetta frv. tryggir ekki neina lausn til frambúðar. Sem betur fer búum við við mjög hagkvæm ytri skilyrði nú og ætti þess vegna ekki að þurfa að ráðast beint að kjörum hinna lægst launuðu í þjóðfélaginu, heldur að vinda ofan af þeim sem eru hærra settir. Það á að setja hér á skyldusparnað fyrirtækja. Það mætti hafa um það mjög langt mál, vegna þess að skyldusparnaðurinn á að koma fram, eins og segir í 6. gr., af skattgjaldstekjum fyrirtækja miðað við árið 1977. Ef þetta hefði verið minni prósenta og beint á veltu — hér er reiknað með 10% af skattgjaldstekjum, þá hefðum við fengið eitthvert fjármagn inn. En hvað eru nettóskattgjaldstekjur? Þær eru hjá æðimörgum fyrirtækjum engar, jafnvel mörgum hundruðum fyrirtækja. Hér er því nú sýnd veiði, en ekki gefin. Hins vegar er þar gengið beint framan að manni, sem hefur 130–150 þús, kr. í laun og hann skal sviptur allverulegri upphæð.
Ég tala nú ekki um framkvæmdina í 2. gr., eins og hún verður við alla þessa útreikninga. Eins og frsm. drap á, þarf að setja reglugerð og hana þarf að setja strax, hvernig á að framkvæma þessa útreikninga, og það kann að vera erfitt mál. Tökum bara einfalt dæmi eins og gildir nú víða um land, að það er ekki um samfellda vinnu að ræða og sami maður verður að vinna jafnvel á tveimur stöðum, segjum kona í frystihúsi og jafnvel einhverja aðra vinnu. Ef þessir aðilar fara að skipta því á milli sín, hvað hún hefur í tekjur, og reikna uppbætur samkv. því, þá má vera þar góð samvinna. Og það má vera mikið lipurmenni, sá maður sem her ábyrgð á launaútreikningunum, ef þessi viðkomandi persóna á að fá það sem henni ber. Það má ganga ákaflega vel.
Því miður er framkvæmd 2. gr. ákaflega óviss og felur örugglega í sér árekstra, leynilega árekstra milli launþega og vinnuveitenda og kann að skapa mikla óvissu í útborgun. Það kom greinilega fram í morgun á fundi okkar, að þetta vandamál er hvergi nærri leyst meðan við höfum ekki reglugerðina fyrir augum, sem auðvitað er ekki hægt á þessu stigi. Það liggur fyrir að hér er mikið vandamál í framkvæmd.
6. gr. um skyldusparnað félaga og stofnana á að gera eitthvað til þess að lagfæra þetta ástand og draga úr fjárfestingarkapphlaupi, En þegar viðmiðunargrunnurinn er þessi skattgjaldsstofn, þá tel ég að fjöldamörg fyrirtæki sleppi og þetta verði ekki sá hemill á fjárfestingu sem jafnvel hæstv. ríkisstj. hafði hugsað sér, og því hefði ég talið að það ætti að hafa aðra viðmiðun, miklu lægra gjald, en hafa hluta af veltu sem kvöð að leggja til hliðar. Nú munu margir segja, að nú þegar skorti menn svo mikið rekstrarfé að enginn minnsti möguleiki sé að leggja neitt til hliðar og menn þyrftu jafnvel miklu meira fjármagn. Hjá sumum er þetta rétt, hjá öðrum ekki. Það er staðreynd, að ásókn hjá fjárfestingarsjóðum er nú með allra mesta móti og svo mikil, að ekki er með nokkru móti mögulegt að sinna þeim óskum. Þetta bendir til þess, að enn sé sama sagan, að allir vilji flýta sér að fjárfesta áður en verðbólgan verður meiri og telji sig hafa svo mikinn hag af því, að það er næstum allt réttlætanlegt í því efni. Ég hefði viljað, — það er ekki hægt núna og það var ekki heldur rætt til hlítar í morgun, — hafa þetta ákvæði í 6. gr. með öðrum hætti til þess að tryggja að við næðum nokkrum skyldusparnaði frá félögunum ekkert síður en frá einstaklingunum. En ekki hefur gefist svigrúm til að móta það og þess vegna er þessi grein að mínu mati lítilsigld og meira til að sýnast, en ekki eins raunhæf.
Herra forseti. Ég vil svo að lokum aðeins endurtaka það, að ég met það mikils að 3. gr. skuli vera felld burt. Engu að síður er efni 1. gr. það sem launþegasamtökin munu vera óánægð með og mótmæla kröftuglega. En ég tel að upphlaup í þessu þjóðfélagi sé óæskilegt. Eina rétta svarið er krossinn á réttum stað þegar að kosningum kemur nú í sumar.