16.02.1978
Neðri deild: 59. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2501 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)
169. mál, Kvikmyndasafn Íslands og Kvikmyndasjóður
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um Kvikmyndasafn Íslands og Kvikmyndasjóð. Það er alllangt síðan áhugamenn um kvikmyndagerð tóku að hugleiða sérstakar aðgerðir til að greiða fyrir íslenskri kvikmyndagerð sérstaklega og jafnframt til að stuðla að söfnun og varðveislu íslenskra kvikmynda. Fyrir nokkru var flutt á Alþ. frv. um þetta efni. Því var vísað til ríkisstjórnarinnar með ákveðnum tilmælum um að hún léti kanna málið nánar og semja frv. um þetta efni.
30. apríl 1976 skipaði menntmrh. n. til að semja frv. um kvikmyndasjóð o. fl. eins og nánar er sagt frá í athugasemdum við þetta lagafrv. Þessi n. skilaði svo frv. til menntmrn. í apríl 1977. Það frv. er lagt fram óbreytt hér eins og n. skilaði því, nema ákvæðin um fjárframlög, þeim er breytt. Í till. n. er gert ráð fyrir föstu árlegu framlagi, sem framreiknast eftir verðlagsbreytingum, en hér er kveðið á um fjárhæð fyrstu framlaga 1979, en síðan skulu árleg framlög fara eftir því sem Alþ. ákveður í fjárlögum.
Það hefur vonandi engum dottið í hug, að fyrsta lagasetning um íslenska kvikmyndagerð leysti allan fjárhagsvanda á því sviði. Það má öllum vera ljóst, að hér er annars vegar um að ræða fjárfrekt og fyrirferðarmikið verkefni og hins vegar lítið samfélag með takmörkuð fjárráð. En allt um það, þá vona ég að þetta frv., ef að lögum verður, geti komið að nokkru gagni og tryggt íslenskri kvikmyndagerð stuðning sem um munar, auk þess sem það gerir mögulega eða a. m. k. auðveldar söfnun og varðveislu íslenskra kvikmynda.
Ég skal víkja nokkrum orðum að einstökum atriðum þessa frv. Fyrsti kafli þess fjallar um Kvikmyndasafn Íslands. Þar segir að stofna skal Kvikmyndasafn Íslands og það skal hafa aðsetur í Fræðslumyndasafni ríkisins og starfa í tengslum við það, a. m. k. fyrst um sinn. Það þótti rétt að hafa þennan hátt á. Fræðslumyndasafn ríkisins hefur starfað í allmörg ár. Því er nú mjög þröngur stakkur skorinn hvað snertir húsnæði og alla aðstöðu. Líklegt er að úr því rætist innan tíðar, enda er það nánast óhjákvæmilegt þegar vegna starfsemi Fræðslumyndasafnsins sjálfs. Það var hugsanlegt að tengja starfsemi Kvik myndasafns Íslands við Ríkisútvarpið — sjónvarp, því sjónvarpið hlýtur alltaf að eiga verulegt og vaxandi safn kvikmynda sem varðveita þarf til framtíðarinnar. En af ýmsum ástæðum þótti eðlilegra að tengja Kvikmyndasafn Íslands Fræðslumyndasafninu, eins og hér er lagt til.
Höfuðviðfangsefni Kvikmyndasafnsins verður að safna íslenskum kvikmyndum og varðveita þær. En einnig er gert ráð fyrir, að til greina komi að safna eftirgerðum af vönduðum erlendum kvikmyndum sem hafa listrænt og kvikmyndasögulegt gildi, eins og segir í frv. Í frv. er ákvæði um að ríkissjóður kosti búsnæði, þ. e. geymslurými fyrir kvikmyndirnar, og skal veita til þess sérstakt fjárframlag á fjárl. Þá er svo fyrir mælt, að Fræðslumyndasafn annist rekstur Kvikmyndasafns gegn hæfilegri borgun, a. m. k. fyrst um sinn, og ráðinn verði sérhæfður starfsmaður vegna Kvikmyndasafnsins í a. m. k. hálfa stöðu og greiðist þá laun hans beint úr ríkissjóði. Loks er kveðið svo á, að greiða skuli til Kvikmyndasafnsins árið 1979 5 millj. kr. og svo árlegt framlag eftir því sem ákveðið verður í fjárl., eins og ég sagði áðan. Þá er og ákvæði um sérstaka stjórn Kvikmyndasafns Íslands, hversu hún skuli mynduð, og ég fer ekki nánar út í það.
Í II. kafla frv. er svo fjallað um kvikmyndasjóð. Hann skal stofna með 30 millj. kr. framlagi úr ríkissjóði árið 1979, þ. e. á næsta ári, en síðan skal greitt árlegt framlag til sjóðsins eftir Því sem ákveðið verður í fjárlögum. Kvikmyndasjóðnum er ætlað að styrkja íslenska kvikmyndagerð jöfnum höndum með beinum fjárframlögum og með lánum til kvikmyndagerðar. Hér er einnig að finna ákvæði um stjórn Kvikmyndasjóðs. Gert er ráð fyrir tengingu milli þessara tveggja aðila.
Þetta frv. er stutt og fáort og það yrðu þá rammalög og ráð fyrir því gert, að menntmrn. setji reglugerð um framkvæmd laganna, bar sem m. a. yrði kveðið á um samstarf Kvikmyndasafns og Fræðslumyndasafns, um úthlutun úr Kvikmyndasjóði og hversu háttað skuli reikningshaldi hans og ávöxtun.
Töluverð umræða hefur orðið innan n. og svo hjá rn. menntamála og fjármála um öflun tekna til Kvikmyndasjóðs. Um það segir n. í athugasemdum sínum.
„N. velti mjög fyrir sér hvaðan tekjur til Kvikmyndasjóðsins skyldu fengnar. Til greina hefur komið hluti af skemmtanaskatti, sætagjald af kvikmyndahúsum o. fl. Eftir talsverða könnun, upplýsingaleit og umr. komst n. að þeirri niðurstöðu, að beint framlag á fjárl. væri hreinlegast og árvissast. Telur n. margs konar erfiðleika á framkvæmd annars konar fjáröflunar beint í sjóðinn, þótt henni sé að sjálfsögðu ljóst að ríkissjóður þurfi að afla þess fjár, og leggi ekki dóm á innheimtuleiðir.“
Þó að ég geti að vissu leyti tekið undir það álit n. og ákvæði frv. eru á því byggð, þá vil ég ekki með öllu slá striki yfir þann möguleika að afla Kvikmyndasjóði sérstakra tekna á annan hátt en hér er gert ráð fyrir. Ég vil geta þess, að ég skipaði á sínum tíma n. til að endurskoða lög um skemmtanaskatt og hún hefur skilað áliti sínu. En ég hef þó ekki treyst mér til að flytja frv. um það efni án frekari athugunar og mun láta kanna það mál enn nánar, áður en til þess kæmi að fram yrði lagt frv. um það efni. Ég tel það hugsanlegt — ég segi: hugsanlegt, að út úr þeirri könnun kæmi, að skynsamlegt teldist að verja hluta af skemmtanaskatti til Kvikmyndasjóðs. En ég tel það ekki sérstaklega sennilegt, m. a. vegna þeirra mörgu og stóru verkefna sem skemmtanaskatti er ætlað að standa undir nú þegar.
Í aths. n. segir enn fremur um þetta, ég vil vekja athygli á því, af því að það er þetta atriði sem breytt er í frv.:
En n. leggur áherslu á, að þessi stuðningur við íslenska kvikmyndalist verði fast framlag á fjárl., endurskoðað árlega vegna verðbreytinga.“
Þetta var sem sagt till. n. En ekki þótti fært að leggja til að þessi háttur yrði á hafður, nema hvað kveðið er á um að sjóðurinn fái árlegar greiðslur, en að öðru leyti er gert ráð fyrir að ákveða þær í fjárl. hverju sinni.
Ég vænti þess, að hv. alþm. taki þessu frv. með skilningi og séu á eitt sáttir um að ekki megi draga öllu lengur að veita íslenskri kvikmyndagerð skipulegan stuðning. Og ég vænti nú þess, að takast megi að afgreiða þetta mál á þessu þingi. Hins vegar er mér ljóst, að það hljóta að vera skiptar skoðanir um ýmis atriði í frv„ og ég hef auðvitað síður en svo nokkuð við það að athuga að þær þn., sem um þetta fjalla, og þm. yfir höfuð að tala brjóti þetta mál til mergjar og kanni hvort um betri leiðir kynni að vera að ræða til að leysa það farsællega. En fyrst og fremst vænti ég þess, að þm. geti verið sammála um að það sé orðið tímabært að veita þessari ungu starfsgrein, kvikmyndagerðinni, skipulegan stuðning á einhvern hátt. Ég vil svo leggja til að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til menntmn.