16.02.1978
Neðri deild: 60. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2514 í B-deild Alþingistíðinda. (1840)
182. mál, ráðstafanir í efnahagsmálum
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er á dagskrá, hefur hlotið ítarlegar umr. hér í hv. d. og því sé ég ekki ástæðu til þess að fara að endurtaka efnisatriði úr þeim umr. sem hv. þdm. eru kunnugir. Ég vil þó aðeins láta það koma fram, að mér urðu það vonbrigði þegar hv. 7. þm. Reykv., Eðvarð Sigurðsson, sagði að 3. gr. væri ekkert höfuðatriði, þar sem hún væri yfirlýsing um það sem gera skal. Að vísu má segja, að að því leyti sem 3. gr. er stefnuyfirlýsing og kemur þar af leiðandi ekki til framkvæmda fyrr en um n. k. áramót, þá hafi hún ekki haft þýðingu nú alveg á næstunni. En um stefnuatriðið, sem í henni fólst, var í umr. hér í hv. d. rætt sem meginatriði frv., og það verður að segjast eins og er, að þegar ríkisstj. vill koma til móts við þær ábendingar hv. stjórnarandstöðu að ræða þessi mál nánar og á breiðari grundvelli, — ábendingar sem komu raunar fram frá fleirum, — þá eru það vonbrigði, að rætt sé um að hér sé um að ræða fyrsta undanhald ríkisstj. Það er sem sagt óskað eftir samráði af hálfu ríkisstj. við hagsmunasamtök vinnumarkaðarins. Þegar ríkisstj. verður við þeim óskum, þá er talað um undanhald. Mér finnst þetta strákslegt orðbragð og mjög ólíkt hv. 7. þm. Reykv. Það kemur hins vegar fram, að ríkisstj. er sama sinnis efnislega, þótt hún á hinn bóginn vilji gjarnan nota tímann fram til áramóta til þess að ræða við aðila og taka fleiri þætti málsins til meðferðar á þeim tíma.
Það er rætt um það hér og raunar áður í umr., að annar stjórnarflokkurinn eigi fremur en hinn heiðurinn af því að hafa átt frumkvæði að efni 3. gr. eða þeirri till., að óbeinir skattar falli burt úr verðbótavísitölu. Ég verð að segja það eins og er, að ég held að hvorugur stjórnarflokkanna geti fremur hinum eignað sér heiður af þeirri tillögugerð. Ég hygg að það hafi verið almennt álit, að æskilegt væri einmitt að endurskoða verðbótavísitöluna með það fyrir augum að óbeinir skattar, þar með taldar niðurgreiðslur, yrðu ekki í verðbótavísitölu. Við erum reiðubúnir, með því að fella brott þessa 3. gr., að taka málið upp til endurnýjaðrar meðferðar ásamt með hagsmunasamtökum vinnumarkaðarins og kanna málið út í ystu æsar, þannig að sem viðtækust samstaða náist um nýjan grundvöll sem byggt yrði á í kjarasamningum í framtíðinni. Á nauðsyn þessa hefur verið bent af fulltrúum allra flokka hér á Alþ. Um nauðsyn þessa er enginn ágreiningur, þótt skoðanir manna, hvernig á að leysa vandann, geti verið skiptar.
Ég hlýt því að segja eins og er, að þegar gengið er til móts við þá sem gagnrýnt hafa þetta frv., þá eru mér vonbrigði að það skuli einskis metið, og þarf ekki fleiri orð um það að hafa. Ég vil aftur á móti undirstrika það, að hv. 2. landsk. þm. Benedikt Gröndal, og hv. 5. þm. Vestf., Karvel Pálmason, töldu ávinning að þeirri breytingu sem hér hefði á orðið. Ég skal láta það koma hér fram, að sé það rétt, að þessi grein frv. hafi vakið mesta undrun og verið óvænt og verið ögrun, þá ætti það að vera fallið burt með brottfalli gr., því að ég trúi því ekki, að skynsamir menn í jafnvægi líti ekki á efnisinnihald máls og láti sig það mestu skipta.
Það er fjarri öllum sanni hjá hv. 8. landsk. þm., að ríkisstj. hafi ekki tekið tillit til þeirra till. sem fulltrúar í verðbólgunefnd gerðu. Till. ríkisstj., eins og hún birtist í frv., er í öllum höfuðatriðum byggð á 5. dæminu, sem auðkennt hefur verið með bókstafnum b. En einmitt í umsögn um það dæmi er getið um að ýmiss konar frávik þurfi á að hafa, þegar öll kurl koma til grafar, til þess að dæmið gangi upp og fjárhag ríkissjóðs sé borgið, peningamál og lánamál séu í jafnvægi og viðskiptin við útlönd.
Það er talað hér um að það sé merkilegt, að sterkasta ríkisstj., sem hefur verið að störfum um langan tíma, miðað við þann þingmannameirihl. sem hún styðst við, gefi eftir og dragi til baka lagagr. í frv. sem hún flytur. Ég vil einmitt halda því fram, að það beri vitni um styrkleika að geta gengið til móts við andstæð sjónarmið og leitað samninga og sátta. Hins vegar tek ég það skýrt fram, að ríkisstj. hefur látið það koma vel í ljós, bæði gagnvart fulltrúum launþegasamtakanna og hér á hv. Alþ., að því miður er vandinn, sem leysa þarf, svo stór, að ekki verður hjá því komist að breyta reglum þeim sem gilda um verðbætur samkv. gildandi kjarasamningum. Þar greindi fulltrúa ríkisstj. og fulltrúa launþegasamtakanna á, og ríkisstj. hlaut því að velja þá leið sem hún taldi mildasta í þeim efnum og tryggja best kjör launþega bæði í nútíð og nánustu framtíð. Á því byggist það val sem eðli málsins samkv. hlaut að þessu marki að vera einhliða ákvörðun ríkisstj. En ríkisstj. hefur tekið tillit til ábendinga fulltrúa launþegasamtakanna, og það er merkilegt að þeir, sem gagnrýna ríkisstj. fyrir að taka ekki meira tillit til þeirra sjónarmiða, gagnrýna hana líka fyrir að taka þó að því marki sem ríkisstj. tekur tillit til sjónarmiða launþega og tala þá gjarnan um flótta og undanhald. Þetta er ekki stórmannlega mælt, en er auðvitað ekkert aðalatriði, hreint aukaatriði, og ríkisstj. lætur sér það í léttu rúmi liggja.
Ég vil aðeins að lokum segja það, að þótt auðvitað sé mikið traust sýnt ríkisstj. að vísa þessu frv. til hennar, eins og fram komin till. ber vitni um, þá legg ég til að þessi frávísunartill. verði felld og frv. samþ. hér í hv. deild.