21.02.1978
Sameinað þing: 46. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2521 í B-deild Alþingistíðinda. (1848)

330. mál, reglugerð um rekstur heilsugæslustöðva

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir greinagóð svör við þessari tiltölulega einföldu spurningu. Ég þykist ekki þurfa að hafa mörg orð um hana. Þetta er einn liður í þeim mörgu spurningum, sem ég hef lagt fram fyrir ráðh. um ýmsar fjáraflanir til ríkissjóðs til sameiginlegra mála þjóðarinnar til þess m. a. að sýna svart á hvítu, að sú villukenning stenst ekki, sem hefur verið haldið fram á undanförnum árum og þó kannske öllu frekar á undanförnum missirum hér á Alþ., að Reykjavík og Reykjanes eða íbúar og fyrirtæki, sem búsetu eiga á þessu landssvæði, séu nánast ómagar í þjóðarbúinu og skili ekki sínum hlut og vel það til þeirra þarfa sem þjóðfélagið krefst. En á þessu svari fjmrh. sást, að mismunurinn á innheimtum og endurgreiddum skemmtanaskatti er á þann veg, að úr þessum tveim kjördæmum, Reykjanesi og Reykjavík, koma 74 millj. kr. í þennan skatt, en annars staðar frá 11 millj.