21.02.1978
Sameinað þing: 46. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2522 í B-deild Alþingistíðinda. (1850)
341. mál, jöfnun símgjalda
Landbrh. (Halldór E. Sigurósson):
Herra forseti. Út af fsp. hv. 2. þm. Reykn. á þskj. 137 vil ég gefa svo hljóðandi svar:
Fyrri liðurinn: „Má bráðlega vænta framkvæmda á eftirfarandi málslið 11. gr. laga um póst og símamál: Stefnt verði að því við gjaldskrárgerð að sömu gjöld gildi innan hvers númerasvæðis?“
Við þessu er því til að svara, að 12. jan. s. l. voru á fundi með okkur í samgrn. tveir fulltrúar frá samtökum sveitarfélaga sem höfðu sérstaklega verið kjörnir til þess að fjalla um þessi mál fyrir hönd sveitarfélaganna Það voru Guðmundur Gunnarsson verkfræðingur og Guðjón Ingi Stefánsson verkfræðingur, en Guðmundur var kjörinn af Sunnlendingum og Guðjón er starfandi á Vesturlandi. Þriðji maðurinn átti að vera framkvæmdastjóri sambandsins á Vestfjörðum, en hann mætti ekki á fundinum. Þá stóð til að breyta gjaldskrá Landssímans og var það mál til umr. á þessum fundi. Með leyfi hæstv. forseta, ætla ég að lesa upp úr þessari fundargerð það sem þetta mál varðar:
„Guðmundur Gunnarsson kvað landshlutasamtökin vilja jafna símgjöldin þannig að fjölga skrefum sem mest í fábýlinu. Hann fór lofsamlegum orðum um þær upplýsingar, sem þeir hefðu fengið frá Póst- og símamálastofnuninni, ég ósakaði frekari aðstoðar við fast „kontakt“ á milli landshlutasamtakanna og Póst- og símamálastofnunarinnar. Póst- og símamálastjóri ræddi þetta nokkuð, en fulltrúi hans, Guðmundur Björnsson, taldi að með því að lengja skref úr 45 í 60 sekúndur, úr 30 í 45, og úr 24 í 30 mundi kostnaðurinn í heild verða um 60 millj. kr. eða 2% af gjaldskrárhækkun þeirri sem beðið hafði verið um.
Nokkurt hlé varð á fundinum með þeim Guðjóni Inga og Guðmundi Gunnarssyni, en eftir að við hinir höfðum ráðgast varð, það niðurstaðan, að ráðh. skýrði aðstöðu sína um 2% til jöfnunar samkv. þeim meginlínum sem Guðmundur Björnsson hafði drepið á. Þau 2% yrði að taka af þeirri ca. 30% hækkun sem leyfð yrði á gjaldskrá Landssímans, þar sem ekki væri unnt að skerða hlut annarra notenda meira en gert hefði verið á undanförnum árum með gjaldskrárhækkunum og stofnunin mætti engar tekjur missa. Þeir Guðmundur og Guðjón Ingi töldu þetta báðir góða lausn, eins og staðan er.“
Þetta varð svo niðurstaðan við, þá ákvörðun sem tekin var um gjaldskrárhækkanir. Þetta þýðir, ef ég má lesa upp hvaða, stöðvar hér er um að ræða, því að tæknimálin í þessu er ég lítt fær um að skýra, — það þýðir, að milli Hvalfjarðar og Akraness fer skrefið úr 30 í 60 sekúndur, milli Hvanneyrar, og Borgarness úr 45 í 60, Grundarfjörður-Stykkishólmur breytist úr 24 í 60, Bíldudalur-Patreksfjörður úr 30 í 60, Tálknafjörður-Patreksfjörður úr 30 í 60, Bolungarvík-Ísafjörður úr 30 í 60, Flateyri-Ísafjörður úr 30 í 60, Súðavík-Ísafjörður úr 30 í 60, Suðureyri-Ísafjörður úr 30 í 60 og Þingeyri-Ísafjörður úr 30 í 60, Búðardalur-Brú úr 45 í 60, Hólmavík-Brú í 45 í 60, Hvammstangi-Brú úr 45 í 60, Laugarbakki, Brú úr 45 í 60, Reykir-Brú úr 45 í 60, Bólstaðarhlíð-Blönduós úr 45 í 60, Skagaströnd-Blönduós úr 45 í 60, Hofsás-Sauðárkrókur úr 45 í 60, Varmahlíð-Sauðárkrókur, úr 45 í 60, Grenivík-Akureyri úr 30 í 60, Hjalteyri-Akureyri úr 30 í 60, Árskógur-Dalvík úr 45 í 60, Hrísey-Dalvík úr 45 í 60, Ólafsfjörður-Dalvík úr 45 í 60, Breiðamýri-Húsavík úr 45 í 60, Rein-Húsavík úr 45 í 60, Reykjavík-Húsavík úr 45 í 60, Staðarhóll-Húsavík úr 45 í 60. Kópasker-Raufarhöfn úr 24 í 60, Þórshöfn-Raufarhöfn úr 24 í 60, Grímsey-Siglufjörður úr 24 í 60, Borgarfjörður-Egilsstaðir úr 24 í 60, Seyðisfjörður-Egilsstaðir úr 24 í 60, Vopnafjörður-Egilsstaðir úr 24 í 60, Breiðdalsvík-Reyðarfjörður úr 24 í 60, Eskifjörður-Reyðarfjörður úr 24 í 60, Fáskrúðsfjörður-Reyðarfjörður úr 24 í 60, Neskaupstaður-Reyðarfjörður úr 24 í 60, Stöðvarfjörður-Reyðarfjörður úr 24 í 60, Djúpivogur-Höfn úr 24 í 60, Ásgarður-Selfoss úr 45 í 60, Brautarholt-Selfoss úr 45 í 60, Eyrarbakki-Stokkseyri-Selfoss úr 45 í 60, Flúðir-Selfoss úr 45 í 60, Hveragerði-Selfoss úr 45 í 60, Laugarvatn-Selfoss úr 45 í 60, Þorlákshöfn-Selfoss úr 45 í 60, Búrfell-Hvolsvöllur úr 45 í 60, Hella-Hvolsvöllur úr 45 í 60, Þykkvibær-Hvolsvöllur úr 45 í 60, Kirkjubæjarklaustur-Vík úr 24 í 60.
Af þessum upplestri sést að hér er gerð veruleg breyting á. Er áætlað að þessi 2%, sem voru tekin til þess að jafna niður, sem svari 100 millj. kr. lækkun fyrir þá neytendur sem hér eiga hlut að máli. Með þessu tel ég mig hafa svarað fyrri lið fsp. og þar með sýnt fram á að verulegt átak hefur verið gert til breytingar á þessum þætti, og kemur það sér sérstaklega vel fyrir þá sem versta höfðu aðstöðuna áður, því að þetta er allt jafnað.
Um 2. liðinn segir póst- og símamálastjóri þetta :
Að því er varðar það atriði í nefndri grein, er snertir heimild ráðh. til að krefja sama gjald fyrir símtal við helstu stjórnsýslustofnanir ríkisins í Reykjavík, hvaðan sem talað er af landinu, skal hér með hent á, að með sjálfvirka símakerfinu vantar nú þann búnað sem gæti gert þetta kleift, og mundi það kosta gífurlega fjárhæð ef slík sjálfvirk afgreiðsla yrði áformuð og sýnist margt vera nauðsynlegra svo sem sjálfvirkur sími í sveitum landsins. Með handvirkri afgreiðslu er þetta fyrirkomulag framkvæmanlegt, og tel ég eðlilegt að viðkomandi stjórnsýslustofnanir borgi samtalið eftir því sem við á hverju sinni. Væri þá um sams konar afgreiðslu að ræða og tíðkast nú á milli landa og nefnist það sérstök símtöl. Í síðustu mgr. í hinni tilvitnuðu 11. gr. segir enn fremur, með leyfi forseta:
„Að því skal stefnt að tekjur samkv. gjaldskrá nægi til þess að rekstursjöfnuður, náist, miðað við að rekstur og fjárfestingar fari eftir meginstefnu 1. mgr. 3. gr. og fyllsta aðhalds sé gætt:
Hér er skýrt tekið fram, að stofnunin þarf á öllum gjaldskrártekjum sínum að halda. Ef taka ætti upp einhverja sérstaka taxta fyrir umrædd símtöl og þá hugsanlega lægri en almennt gilda í gjaldskránni, mundi þyngri byrði leggjast á hinn almenna símnotanda, ef ívilna ætti með slíkum hætti þeim sem hringja í áðurnefndar stofnanir. Þetta tel ég hæpið og mjög óeðlilegt, en hið áðurnefnda samtalsform leysir vandann á réttilegan hátt.
Við þetta svar póst- og símamálastjóra vil ég bæta því, að sú gjaldskrárhækkun, sem nú fékkst, mun illa nægja til þess að standa undir þeim kostnaði sem orðið hefur hjá þessari stofnun, því að launagjöld eru um 60% af heildargjöldum Póst- og símamálastofnunarinnar og þau hækkuðu verulega á síðasta ári, svo sem kunnugt er. Hins vegar fækkaði þar um 70 starfsmenn á s. l. ári vagna breytts skipulags, og verður reynt að halda áfram á þeirri braut eftir því sem stöður losna. En ég tel að það hafi verið gert verulegt átak í því að jafna um í fyrri liðnum og það muni í heild kosta um 100 millj.
Að öðru leyti get ég ekki gefið frekari svör við þessum fsp.