26.10.1977
Efri deild: 9. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (188)
37. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Flm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Það gætir nokkurs misskilnings hjá hv. þm. Albert Guðmundssyni, 12. þm. Reykv., að hér sé um að ræða till. um nýjan skatt á fyrirtæki í Reykjavík. Samkv. þessu frv., ef það er vandlega lesið, munu þau fyrirtæki, sem nefnd eru í frv., ekki greiða meiri gjöld en þau greiddu áður. (Gripið fram í.) Já, frv. snýst um það að fyrirtækin sleppi við að greiða aðstöðugjöld, en þau greiði samsvarandi fjárhæð sem landsútsvör til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þá yrði sú regla viðhöfð eins og verið hefur, að fjórðungur greiðslunnar kæmi í hlut viðkomandi sveitarfélags, en 3/4 færu til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og af þessum 3/4 fengi síðan Reykjavíkurborg sinn réttláta hlut, væntanlega um 40% af þessum 3/4 í hlutfalli við íbúatölu sína miðað við íbúafjölda landsins. Það er hins vegar alveg rétt til getið hjá hv. þm., að frv. felur það í sér að í hlut Reykjavíkurborgar kemur heldur minni upphæð en Reykjavíkurborg fær í dag. Ég taldi mig rökstyðja það allítarlega, að þrátt fyrir þessa breytingu yrði áfram um að ræða allverulega forréttindaaðstöðu Reykjavíkurborgar í tekjuöflun og breytingin fæli ekki í sér þá verulegu röskun á tekjum Reykjavíkurborgar sem leiddi til þess að sveitarfélögin sætu öll við sama borð. Því miður teljum við flm. ekki raunhæft að stilla dæminu á þann veg. Við viljum fyrst láta á það reyna, hvort menn teldu ekki sanngjarnt að þau fyrirtæki, sem þarna eru nefnd, greiddu til Jöfnunarsjóðs.
Ég vildi minna á það, að í frv. er hvergi minnst á Reykjavíkurborg. Frv. á almennt við félög af þessu tagi. T.d. ef Samband ísl, samvinnufélaga ákvæði að hafa aðalskrifstofur sínar í einhverju öðru sveitarfélagi með hliðsjón af því að sennilega er talsverður meiri hluti af viðskiptum Sambands ísl. samvinnufélaga við íbúa í öðrum sveitarfélögum en í Reykjavík, þá mundi það vera það sveitarfélag sem missti spón úr aski sínum. Einnig er vel hugsanlegt að einhver fyrirtæki, sem nefnd eru í þessari upptalningu, eigi aðsetur í öðrum sveitarfélögum en Reykjavík. Það hef ég ekki kannað neitt sérstaklega, enda skiptir það í sjálfu sér ekki máli. Frv. er þess vegna mjög almenns eðlis og snertir ekki Reykjavíkurborg nema óbeint.
Ég tel hins vegar mjög nauðsynlegt að hv. þm. Albert Guðmundsson, sem þar að auki er borgarráðsmaður í Reykjavík, fái tækifæri til að kynna sér efni þessa frv. Ég vil með hliðsjón af orðum hv. þm. mælast til þess við forseta að umr. verði frestað, þannig að hv. þm. fái tækifæri til að kynna sér betur frv., því að eins og menn heyrðu áðan var ekki um að ræða rökstuddar aths. hjá honum og kannske ekki að vænta þess, þar sem hv. þm. hafði ekki haft neitt tækifæri til að kynna sér þessar tölur. Þess vegna fer ég þess á leit við hæstv, forseta að hann fresti umr.