22.02.1978
Neðri deild: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2564 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)
189. mál, búnaðarfræðsla
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins segja nokkur orð í sambandi við þetta frv., sem hér er til umr. Það er rétt sem hæstv. ráðh. sagði áðan, frv. er búið að vera nokkuð lengi í deiglunni. Nefndin, sem hæstv. ráðh. skipaði, skilaði af sér í fyrra öðru frv. og hefur því nú verið talsvert breytt. Ég vil segja að því hafi ekki verið breytt til hins verra, en það hafi verið gert á ýmsan hátt einfaldara í sniðum og hafi kannske minni kostnað í för með sér en fyrra frv.
Ég vil lýsa því, að ég mun styðja þetta frv. í því formi sem það nú er, tel að það geti komið að nokkru gagni ef það verður samþ. Það er vitanlega rétt sem hér var tekið fram áðan, að búnaðarfræðslan í landinu hefur gert þjóðinni mikið gagn, ekki aðeins bændum, sem búin hafa rekið, heldur þjóðinni allri. Það hefur verið kostað talsverðu til í búnaðarfræðslunni. Búnaðarfræðslulöggjöfin hefur verið endurskoðuð alltaf öðru hverju og síðast 1963, þá voru sett lög um almenna búnaðarmenntun. Þá hafði nefnd starfað í tvö ár til þess að endurskoða löggjöfina. Í nefndinni voru skólastjórar búnaðarskólanna og fleiri sérfróðir menn. Frv. nefndarinnar var samþ. og þótti á þeim tíma vera mikil bót á búnaðarfræðslunni að lögfesta það. Síðan eru 15 ár og tímarnir breytast og löggjöf þarf ávallt að endurskoða og breyta í samræmi við þær breytingar sem verða í þjóðlífinu.
Í landbúnaðinum er það eins og í öðrum atvinnugreinum, breytingar eru örar. Landbúnaðurinn er, eins og sagt hefur verið, vísindagrein og þeir, sem við búskap fást, þurfa helst að vera fróðir um þau atriði til þess að geta komið á hagræðingu og rekið búskapinn með hagkvæmni.
Einu sinni var sett það takmark, að allir bændur ættu að hafa verið á búnaðarskóla, en ég er hræddur um, að það verði seint þannig. Og einu sinni var talað um að bændur ættu að hafa búnaðarskólapróf til þess að fá leyfi til að reka búskap, fá lán til búrekstrar o. s. frv. Það þótti ekki meira að gera þessa kröfu til bænda en þá kröfu til iðnaðarmanna, að þeir yrðu að hafa próf frá iðnskóla í þeirri grein sem þeir ætluðu sér að starfa í. En þetta verður ekki þannig. Það virðist vera óframkvæmanlegt, þótt alltaf verði þeir fleiri og fleiri sem stunda þetta nám hlutfallslega af þeim sem við búskap fást.
Það er eftirtektarvert, að einstakir menn reka bú sín mjög vel þótt þeir hafi aldrei á búnaðarskóla farið. Bændur hafa stundum sagt að þeir þyrftu ekki að fara á búnaðarskóla til þess að verða fróðir í sinni atvinnugrein, það væri reynslan sem kenndi best, og svo væri aðgangur að tímaritum, alls konar fræðiritum um landbúnað, sem þeir gætu lesið. Og þetta er áreiðanlega rétt að vissu marki. En þrátt fyrir það held ég að það verði að vera stefnan að sem flestir, sem ætla sér að verða bændur, eigi kost á því að hafa verið á búnaðarskóla. Það er skoðun mín, að þrátt fyrir fræðiritin og þrátt fyrir heimalestur hafi skólagangan margt í för með sér sem bóndinn hafi bæði beint og óbeint gagn af.
Eins og ég sagði áðan, voru búnaðarfræðslulögin endurskoðuð og lögfest 1963. En það er eðlilegt að nú sé enn reynt að breyta lögunum til samræmis við það sem breyst hefur á þessu 15 ára tímabili. Að vísu má segja, að í þessu frv. felist ekki nein stórbreyting á lögunum. Það kom fram í ræðu hæstv. ráðh., að ekki er gert ráð fyrir miklum kostnaði sem afleiðingu af þessari löggjöf, en eigi að síður eru nokkrar breytingar, sem geta verið til bóta. og kennaraliði verður að fjölga nokkuð, bæði við búnaðarskólana og eins við framhaldsdeildina. til þess að fullnægja þeim lagabókstaf sem gert er ráð fyrir að lögfesta.
Framhaldsdeildin við Bændaskólann á Hvanneyri var sett á stofn 1947 og þá var gert ráð fyrir aðeins tveggja ára námi. Það var miðað við þær kröfur sem þá voru gerðar til framhaldsnáms. En 1965 var það alls ekki talið nægilegt að vera tvo vetur í framhaldsdeild til þess að komast yfir það námsefni, sem þá var krafist, og þá var framhaldsdeildin gerð að þriggja ára námsdeild. Síðan má segja að framhaldsdeildin hafi starfað á háskólastigi. Ég hef gert fsp. um það, hvernig væri með kennarana við framhaldsdeildina, hvort þeir uppfylltu þær kröfur sem gerðar væru til prófessora, hvort kunnáttu þeirra væri nægilega mikil til þess að þeir gætu raunverulega kennt á háskólastigi. Svarið hefur verið játandi, og reynslan hefur sýnt að þetta er rétt, með því að nemendur frá framhaldsdeildinni hafa átt greiðan aðgang að framhaldsnámi við búnaðarháskóla erlendis.
Nú er svo komið, að það, sem þótti alveg fullnægjandi með þriggja ára námi 1965, er talið að ekki sé hægt að komast yfir nú á skemmri tíma en fjórum árum. Þess vegna er lagt til að nám við framhaldsdeildina á Hvanneyri megi verða hér eftir fjögur ár. Framhaldsdeildin á Hvanneyri hefur áreiðanlega gert mikið gagn á undanförnum árum og áratugum. Frá deildinni hafa komið tiltölulega vel menntaðir menn, sem ern flestir í starfi í landbúnaðinum. Það hefði verið dýrt ef það hefði þurft að senda alla þessa menn ,úr landi til náms. Nám þeirra hefði ekki verið eins gott fyrir íslenskan landbúnað ef þeir hefðu eingöngu stundað háskólanám erlendis, vegna þess að námið hér heima hlýtur að verða betra þegar það er stundað við íslenskar aðstæður. Skilyrði við landbúnað erlendis eru náttúrlega á margan hátt allt önnur en hér á Íslandi.
Það er í sjálfu sér ástæðulaust að fara að ræða þetta frv. Það hefur verið gert, því hefur verið lýst, hvað í frv. felst. Ég ætla ekki að endurtaka það sem sagt hefur verið um málið. Kostnaðurinn við að lögfesta frv. verður auðvitað nokkur. Það má reikna með, að það verði 3–4 kennarastöður sent þarf að bæta við miðað við báða skólana. Einn kennara vantar í viðbót á Hólum, einn kennara við búnaðarskólaun á Hvanneyri og svo einn til tvo við framhaldsdeildina. En þó fer þetta nokkuð eftir því, hversu mikil samvinna verður við Háskóla Íslands, hvort auka þarf kennaraliðið við framhaldsdeildina á Hvanneyri. Það er beinlínis gert ráð fyrir því að hafa aukið samstarf við Háskóla Íslands. Það verða kannske einn eða tveir nemendur á þessu ári í vissum námsgreinum á Hvanneyri, þá getur verið eðlilegt og sjálfsagt að þeir fari til Reykjavíkur og stundi þessar greinar, t. d. eðlisfræði, efnafræði o. fl. námsgreinar í Reykjavík. Það gæti vel verið, að framhaldsdeildin á Hvanneyri tæki svo aftur við nemendum frá háskólanum í Reykjavík í vissum greinum. Ýmsar greinar í búvísindum geta verið undirstaða að margs konar námi. og með því að hafa aukna samvinnu við Háskóla Íslands gætu sparast fjármunir og kennslukraftar. En það er aðeins sagt hér í frv., að samstarf skuli vera við Háskóla Íslands, eftir því sem henta þykir. En það er vitanlega reglugerðarákvæði, hversu langt verður gengið í því efni, og reynslan sem sker úr því, hversu mikið þetta samstarf verður. Það hefur verið rætt við háskólarektor um þetta og hann hefur skilning á málinu, og þess vegna held ég að hugsa megi gott til samstarfsins.
Herra forseti. Ég ætla ekki að orðlengja þetta meira að svo stöddu, sé ekki ástæðu til þess, en vildi lýsa stuðningi mínum við þetta mál. Ég tel að rétt sé stefnt að endurskoða búnaðarfræðslulögin frá 1963, þótt þau hafi þótt góð og fullkomin á þeim tíma þegar þau voru sett.