22.02.1978
Neðri deild: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2569 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)

189. mál, búnaðarfræðsla

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) ; Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka þeim hv. þm., sem hér hafa tekið til máls, stuðning við málið. Ég vil taka það fram, af því ég mun ekki hafa gert það í framsöguræðu minni áðan, að ég treysti hv. landbn. til þess að hraða störfum sínum, því ætlun mín er að þetta mál verði að lögum á þessu þingi. Og ég efast ekkert um það, eftir þær góðu undirtektir sem frv. hefur fengið, að svo muni verða. Ég ítreka það, að ég þakka undirtektirnar og treysti n. til að taka málið nú þegar til meðferðar og hraða störfum, en þingtíminn liður oft hratt þegar áliðið gerist vetrar.