22.02.1978
Neðri deild: 61. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2570 í B-deild Alþingistíðinda. (1886)

191. mál, félagsheimili

Flm. (Gunnar Sveinsson) :

Herra forseti. Við flytjum frv. til l. um breyt. á l. um félagsheimili, nr. 107 1970. Meðflm. mínir eru þeir Þórarinn Sigurjónsson og Gunnlaugur Finnsson. Efni frv. er það, að upphaf 3. mgr. 2. gr. laganna orðist svo:

,,Af tekjum félagsheimilasjóðs skulu 10% renna í menningardeild félagsheimilasjóðs. Skal því fé varið til að stuðla að menningarstarfsemi á vegum almennra félagssamtaka svo og ungmenna og æskulýðsfélaga, kvenfélaga og annarra menningarsamtaka. Eigi skal styrkveiting bundin því skilyrði, að sú menningarstarfsemi sem styrkt er, fari fram í félagsheimili, þó slíkt sé æskilegt. Styrkveitingu til menningarstarfsemi“ o. s. frv. eins og heldur áfram í gr. En í núv. lögum er gr. þannig orðuð: ,,Af tekjum félagsheimilasjóðs skal 10% renna í menningarsjóð félagsheimila. Skal því fé varið til að stuðla að menningarstarfsemi í félagsheimilum.“

„2. gr.: Í stað 1. og 2. mgr. 3. gr. laganna komi:

Stjórn félagsheimilasjóðs er í höndum menntmrh. Veitir hann byggingarstyrki úr sjóðnum samkv. tillögum íþróttanefndar, íþróttafulltrúa og deildarstjóra byggingardeildar menntmrn.

Menntmrh. skipar þriggja manna nefnd til þriggja ára, er geri till. um styrki úr menningardeild félagsheimilasjóðs. Skal svo nefnd skipuð tveimur mönnum samkv. tilnefningu einum frá Ungmennafélagi Íslands og Kvenfélagasambandi Íslands, einum frá Bandalagi ísl. listamanna og Bandalagi ísl. leikfélaga. Formann skipar ráðh. án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Nefndin er ólaunuð. Framkvæmdastjóri nefndarinnar skal vera æskulýðsfulltrúi ríkisins.

Umsóknir um styrki skal senda menntmrn. Ef um er að ræða umsókn um byggingarstyrk, skal fylgja nákvæm lýsing á húsi því, sem fyrirhugað er að byggja, ásamt grg. fyrir þörfinni á félagsheimili á viðkomandi stað og um fyrirhugana notkun þess. Sé sótt um styrk úr menningardeild félagsheimilasjóðs, skal gerð nákvæm grein fyrir, hvernig fyrirhugað er að verja styrknum.“

Í núgildandi lögum hljóðar þessi grein svona: „Stjórn félagsheimilasjóðs er í höndum menntmrh. Veitir hann styrki úr sjóðnum samkv. 2. nr. að fengnum till. fræðslumálastjóra og íþróttanefndar. Umsóknir um styrki skal senda íþróttanefnd“ o. s. frv. Er það nokkuð samhljóða því sem er í þeim lögum sem lagt er til að verði.

„3. gr.: Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Sú breyting, sem hér er lagt til að gerð verði á lögum um félagsheimili, á aðallega við um menningarsjóð félagsheimila og felur í sér þrjár meginbreytingar. Í fyrsta lagi er lagt til að sá hluti sjóðsins, sem veitir fé til menningarmála, sé kallaður menningardeild félagsheimilasjóðs og til úthlutunar úr menningardeild sjóðsins skipi ráðh. þriggja manna nefnd. Í öðru lagi sé það ekki bundið í lögum, að styrkveitingar gangi til ákveðinna húsa, heldur sé styrkurinn veittur til félagssamtaka. Í þriðja lagi er lagt til, að æskulýðsfulltrúi ríkisins verði framkvæmdastjóri og starfsmaður þeirrar nefndar sem sér um úthlutun úr menningardeild sjóðsins.

Með þessum breytingum er stefnt að því, að sjóðurinn komi betur að þeim notum er honum var ætlað í byrjun, en í reglugerðum um menningarsjóðinn frá 1. mars 1972 segir m. a., að sjóðurinn skuli stuðla að flutningi á leikhúsverkum, þ. e. leikritum, söngleikjum, blönduðum leikdagskrám og listdanssýningum, tónleikahaldi, bókmenntakynningum og annarri menningarstarfsemi.

Á fundi, er menntmrn. boðaði til 8. des. 1975 að Hótel Sögu, voru málefni sjóðsins rædd og gerðar áætlanir um starfrækslu sjóðsins. Á þeim fundi voru mættir um 32 fulltrúar félagsheimila, rn. og félagssamtaka. Kom berlega í ljós, að mikil þörf væri á nánari kynningu á störfum sjóðsins, og var forráðamönnum félagsheimila ekki nógu ljóst, hvernig þeir gætu notfært sér sjóðinn.

Tekjur sjóðsins hafa verið sem hér segir: 1970 til 1974 11 millj. 529 þús. kr., 1975 5 millj. 259 þús., 1976 7 millj. 232 þús. og 1977 8 millj. 100 þús. Á árinu 1978 má gera ráð fyrir nærri 10 millj. kr. tekjum í sjóðinn.

Aðalgallinn við það fyrirkomulag, sem verið hefur á rekstri sjóðsins, sem ég kem að hér síðar, er að hann hefur ekki verið í beinum tengslum við þá aðila sem njóta áttu styrkja úr honum, þ. e. a. s. almenna félagsstarfsemi í landinu. Einnig hafa háð starfsemi sjóðsins þau ákvæði í lögum að miða styrkveitingar við hús, en ekki félagssamtök.

Eins og áður er sagt, voru lög um menningarsjóð félagsheimila sett á Alþ. 1971 að tilhlutan þáv. menntmrh., Gylfa Þ. Gíslasonar, en reglurnar um sjóðinn eru frá 1. mars 1972. Sjóðshugmyndin var á sínum tíma góðra gjalda verð, en þó tel ég að hún hafi verið byggð á þó nokkurri vanþekkingu á því starfi sem fram fór í félagsheimilum á þeim tíma eða bæði fyrr og síðar, því að ég tel að þeir menn, sem stóðu að þessari hugmynd um menningarsjóð félagsheimila, hafi ekki verið virkir þátttakendur í því starfi, sem fram fór í félagsheimilunum, og hafi ekki gert sér grein fyrir því, hvað það var raunverulega mikið menningarstarf sem þar fór fram og hefur farið fram. Sá áróður hefur oft komið upp og verið töluvert magnaður, að í félagsheimilunum færi ekki fram annað en dansleikir og drykkjusamkomur. Hafa menn viljað túlka það þannig að þar færi fram mjög takmörkuð menningarstarfsemi. Þeir, sem til þekkja, vita að þetta er algerlega út í bláinn, því að þarna fer fyrst og fremst fram almenn menningarstarfsemi og félagsstarfsemi í þeim byggðarlögum þar sem félagsheimili eru.

Á þeim tíma, sem þessi lög voru sett, var menntamálaráð einnig með hvers konar starfsemi í svipuðum dúr og menningarsjóði félagsheimila var ætlað að vera með, sem þeir kölluðu „List um landið“ og veittu til þó nokkurt fé, þannig að á þessum tíma voru tvær ríkisstofnanir eiginlega með sama verkefnið. Ýmis félagssamtök, svo sem kvenfélög, ungmennafélög og íþróttafélög, sem um langan aldur hafa verið uppistaða í félagsstarfi utan Reykjavíkur, höfðu síður en svo á móti því að fá þarna aukið fé til menningarstarfsemi, en þau voru aftur mjög mikið á móti því, að það fé væri tekið af því fé sem kom til félagsheimilasjóðs, því að þörf fyrir byggingu og styrk við byggingu og rekstur félagsheimilanna var geysilega mikið og er enn þá, en eins og mönnum er vel ljóst vantar mikið á að félagsheimilasjóður geti enn þá fullnægt þeim umsóknum sem til hans koma um byggingu og endurbætur á félagsheimilum.

Þó að markmið sjóðsins væri á þessum tíma og sé enn mjög gott og nytsamlegt, þá var sjóðurinn á sínum tíma mörgu af þessu félagsheimilafólki ekki beint aufúsugestur. Menn höfðu líka töluverða vantrú á ríkisskipuðum menningarflutningi. Eins og menn vita er orðið „menning“ býsna viðtækt og skilgreining á því getur farið vítt og breitt. Ég held að menn hafi ekki verið sannfærðir um að þessi skipan, sem þarna var tekin upp, hafi verið spor í þá átt sem raunverulega átti að fara. En sjóðurinn hefur nú starfað í rúm 6 ár og af honum hefur nú fengist nokkur reynsla. Ég tel að félagssamtökin, sem fyrst og fremst áttu að njóta starfs sjóðsins, hafi sætt sig við hann sem slíkan og telji að hann geti verið til gagns og nytsemdar, þau hafi sætt sig við það, að byggingarsjóðurinn var skertur á sínum tíma til þess að sinna þessu verkefni. Benda má á það, að menntamálaráð hefur hætt þeirri starfsemi, sem það var með á þessum tíma, þannig að þessi sjóður er nú raunverulega einn um þetta verkefni, að styrkja þessa menningarstarfsemi, sem er að flytja list um landið, eins og menntamálaráð orðaði það á sínum tíma.

En reynslan af starfsemi sjóðsins er alls ekki nógu góð. Ég tel að það byggist fyrst og fremst á því, að skipulag sjóðsins er ekki nógu gott og skipulag hans hefur raunar ekki reynst eins og menn ætluðust til. Starfræksla sjóðsins hefur farið þannig fram, að einn ágætur maður í menntmrn. hefur haft með sjóðinn að gera. Hann hefur tekið á móti umsóknum og úthlutað til þeirra sem hefðu rétt til þess að fá styrk úr sjóðnum. En þessi maður, — sem er Kristinn Hallsson, og ég vil á engan hátt kenna honum um hvernig komið er, því að ég held að flestir, sem hafa haft einhver samskipti við hann, hafi látið vel af því og hann hafi reynt að leysa þörf þeirra eftir bestu getu, — hann hefur verið algerlega sambandslaus við þá aðila sem áttu að nota sjóðinn, sem sagt félagssamtökin í landinu og þá fyrst og fremst félagsheimilin eða húsin. Það voru sem sagt ekki félagssamtökin, heldur húsin, sem áttu að fá styrk.

Sjóðurinn hefur haft nokkrar tekjur, eins og fram kom hér á undan, en hann hefur ekki notað allt það fé, sem hann hefur fengið, vegna þessa sambandsleysis og eins vegna þess að umsóknir um styrki úr sjóðnum hafa ekki verið nægar. Við vitum að í flestum sjóðum er kvartað um að fé sé ekki til og það sé ekki hægt að veita þeim sem um styrki sækja úr sjóðunum. Það virðist hafa verið með þennan sjóð, að þarna hafi verið til fé sem ekki hafi beinlínis verið notað, af þeim ástæðum sem ég hef nefnt hér að framan.

Starfræksla eða skipulag á rekstri sjóðsins hefur verið þannig, að ef t. d. leikfélög úti á landi hafa ætlað að fara í ferðalög um sinn landsfjórðung eða til Reykjavíkur eða hópur úr Reykjavík ætlað að sýna kannske á 5–10 stöðum úti á landi, þá varð hvert félagsheimili, sem hann heimsótti, að sækja um styrk úr sjóðnum til þess að greiða þessum leikflokki eða skemmtikrafti söng- eða myndlistarsýningu eða hvað það var. Húsið þurfti sem sagt að greiða þessum aðila. Þetta var náttúrlega mjög þungt í vöfum og hefur, eins og ég sagði áðan, haft þessar afleiðingar, því að ráðamenn félagsheimila eru venjulega húsnefndir. Í flestum tilfellum eru félagsheimilin raunverulega byggð upp af mörgum félögum og þau félög kjósa húsnefndir til þess að reka húsin. Þessar nefndir hafa því raunverulega ekki beint með menningarstarfsemi að gera í húsinu, heldur eru það félögin, sem eru aðilar að félagsheimilinu, sem sjá um þá starfsemi og nota húsin undir þá starfsemi sem þau ætla að vera þar með. Því er það, að ef eitt ungmennafélag ætlar að sækja um styrk úr sjóðnum, þá getur sjóðurinn sem slíkur ekki veitt því styrk. Sama er ef um er að ræða leikfélag, kvenfélag eða íþróttafélag. Það er sem sagt húsið sem á að fá styrkinn. Og það er dálítið kaldhæðnislegt, að þessi sjóður getur ekki styrkt menningarstarfsemi t. d. sem fram fer í kirkju eða í skólum, af því að það eru ekki félagsheimili.

Starfsmaður sjóðsins hefur í sumum tilfellum reynt að sigla fram hjá þessum agnúum sem eru á lögunum, en sú sigling hefur verið býsna erfið og þar hefur verið vandratað. Það er því full þörf á því, að þessi skipulagsbreyting, sem hér er um að ræða í sambandi við menningarsjóð félagsheimila, fari fram. Ég veit að hæstv. menntmrh. hefur hugsað það mál þó nokkuð, því að raunverulega gæti hann með reglugerðarbreytingu sett upp nefnd til þess að stjórna sjóðnum. En sú nefnd væri í sömu vandræðum og þessi starfsmaður, sem er núna, að því leyti að ekki má veita úr sjóðnum nema til félagsheimilis eða hússins.

Við flm. bindum vonir við, að ef þessi breyting nær fram að ganga verði í fyrsta lagi hætt að miða styrki við hús, heldur verði miðað við fólk og félög. Sjóðsstjórn, sem væri skipuð á þann hátt, sem hér er farið fram á, af Bandalagi ísl. listamanna, Bandalagi ísl. leikfélaga, Kvenfélagasambandinu og Ungmennafélagi Íslands, vonum við að muni hafa við þau gott samband, ekki síst með því, eins og hér er lagt til, að æskulýðsfulltrúi ríkisins, sem er í beinu sambandi við öll þessi félagssamtök í landinu, verði starfsmaður sjóðsins. Þarna mundi því ekki myndast neitt sambandsleysi. Ég er eiginlega viss um það, að ef þetta form yrði tekið upp, þá yrði þessi sjóður tómur, eins og allir aðrir sjóðir, sem við þurfum að leita til, og þá mundi það gagn, sem átti að verða af þessari sjóðsstofnun fyrst og fremst koma í ljós.

Ég tel líka fullkomlega eðlilegt að ungmennafélagshreyfingin og íþróttahreyfingin, kvenfélagahreyfingin, leikfélögin og öll þessi frjálsa félagsstarfsemi úti um land, sem leggur fram mikla vinnu til þess að halda uppi menningarstarfsemi í hinum dreifðu byggðum eða á öllum svæðum utan Reykjavíkur, fái raunverulega að stjórna þessum sjóði, sem á að vera til þess að lyfta undir starfið sem þar er unnið. Fullkomlega er eðlilegt að þessi breyting eigi sér stað. þetta fólk fái ráð yfir þessum sjóði og hann verði nýttur í þeim tilgangi sem honum var ætlað í byrjun.

Ég vil svo ekki hafa þessi orð öllu fleiri. En ég vænti þess, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.