23.02.1978
Sameinað þing: 48. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2584 í B-deild Alþingistíðinda. (1891)

183. mál, ríkið virkur aðili að kjarasamningum vinnumarkaðarins

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér liggur frammi til umr., er ósköp sakleysisleg að orðalagi, rúmar þrjár línur prentaðar. En ef í stuðningi við hana og hugsanlegri samþykkt fælist samþykkt á þeirri ítarlegu grg. sem fylgir, þá fer málið að vandast frá mínum bæjardyrum séð. Ég er ekki hagmæltur og ég er ekki góður í kvæðum, því miður, en einhvers staðar hefur það komið inn í mitt hugskot að í ljóði eftir mjög byltingarsinnaðan mann hafi staðið þetta: „Sovét-Ísland, óskalandið, — hvenær kemur þú?“

Ef þau atriði og sú stefna, sem mörkuð er í grg. sem fylgir þessari till., yrðu samþykkt, þá verð ég að segja það, að þeir hv. flm., sem standa að þessari till., hafa sannarlega skotið öðrum hv. þm., sem ég hef staðið í þeirri meiningu að væru allbyltingarsinnaðir, ref fyrir rass. Frá mínum bæjardyrum get ég ekki séð annað en að eftir samþykkt þessarar þáltill. og þá um leið grg. og þeirri stefnu, sem mörkuð er í þessari grg., sé það aðeins lítilmótlegt og lítilfjörlegt framkvæmdaatriði að setja á stofn Sovét-Ísland hér hjá okkur, því að þegar þau atriði eru komin í framkvæmd, sem gerð er grein fyrir í þessari ítarlegu grg., þá er gersamlega búið að útiloka hlutverk hins frjálsa atvinnurekanda í þjóðfélaginu. Öll þau mál, sem snerta vinnumarkaðinn, yrðu þá orðin eingöngu málefni, sem snerta ríkið og launþegasamtökin.

Til stuðnings þessum ummælum mínum vil ég lítillega staðnæmast við nokkur atriði, sem tilgreind eru í þeirri grg. sem hér liggur fyrir.

Hér er því t. d. slegið föstu í upphafi, að ríkisvaldið eigi að gerast beinn þátttakandi í gerð kjarasamninga og taka þannig fulla ábyrgð á framkvæmd þeirra og þá náttúrlega um leið að bera ábyrgð á öllum atvinnurekstri. Þá get ég ekki séð hvað er að gera með nokkurn atvinnurekanda. Ríkið vitanlega yfirtekur það líka. Flm. þessarar till. fullyrða að atvinnurekendur hafi raunverulega gefist upp á að hamla gegn kauphækkunum, af því að það sé óvinsælt í landi kunningsskaparins, og fyrir þá sé ekki um annað að gera, ef illa gangi, en að ganga ríkisfarveginn. Í þessari grg. eru uppi hugleiðingar um að setja á stofn stofnun á vegum ríkisvaldsins, sem á hverjum tíma ætti að hafa það hlutverk á hendi að reikna út hvað væri hægt á hverjum tíma að skammta launþegum. Flm. gera ráð fyrir því, að launþegasamtökin gætu einnig reiknað út þetta dæmi. En það er hvergi minnst á það, að atvinnuvegirnir, sem eiga að greiða þessi laun, hefðu hugsanlega eitthvað um þetta að segja, þeir gætu eitthvað reiknað. Ég get ekki skilið, svo að maður haldi áfram að vitna í þessa grg., annað en þær hljóti að verma mjög einhverjum byltingarsinnuðum manni, þessar undirtektir grg., kaupgjaldsbaráttan inn í kjörklefann og að fá það staðfest á Alþ., að með þeirri breytingu, sem hér er rætt um yrði þetta að raunveruleika. Einhvern tíma hefði verið talað um að þetta væri töluvert mikil bylting. En hann fer fram mjög hljóðlátlega, þessi bylting, hún er ekki blóðug. Nei, menn eiga að koma ómeiddir út úr henni.

Það á að koma á beinu sambandi milli raunverulegs kaupgjalds og kaupmáttar o g viðkomandi ríkisstj. í landinu. Þetta er auðvelda lausnin. Og ekki er hætta á víxlgengi kauplags og verðlags. Það er úr sögunni, því að kominn er einn aðili, sem getur stjórnað þessu öllu, og það er blessað ríkið. Samkv. þeirri stefnu sem mörkuð er í þessari grg., er ósköp þægilegt um áframhaldið, því að með þessum breytingum tengist saman raunverulegt vald og ábyrgð, og sú ríkisstj., er á hverjum tíma sæti, fengi sinn dóm um það, hvernig afkoma heimilanna hafi verið undir hennar stjórn. Einhvern tíma var mér kennt það, að hversu slæm og ill sem stjórnvöld gætu verið, þá færi afkoma heimilanna í landinu töluvert mikið eftir árferði, árgæsku, aflabrögðum, veðurfari og slíku, en ekki endilega eftir því hversu vinsæl og góð stjórnvöld væru á hverjum tíma.

Ég vil strax í upphafi umr. um þessa þáltill. taka það skýrt fram og lýsa þeirri skoðun minni, að ég held einmitt að afskipti hins opinbera í sambandi við samninga og vinnudeilur hafi undanfarið verið of mikil og beinlínis skaðleg. Ég held að sívaxandi afskipti hins opinbera af ríkjandi vinnudeilum á hverjum tíma hafi einmitt skapað grundvöllinn fyrir því, að í sívaxandi mæli hefur af hálfu bæði atvinnurekenda og launþega verið gerð sú krafa til ríkisvaldsins, að það væri stjórnvalda að skapa svofelldan rekstrargrundvöll. Þetta er algerlega á móti minni lífsskoðun.

Ég hef þá lífsskoðun, að ef menn ráðast út í atvinnurekstur, þá geri þeir það fyrst og fremst sjálfum sér til framdráttar, það sé frumhvötin, og ég er stuðningsmaður þess, að menn fái að njóta ávaxtanna af sínu starfi. En við skulum þá líka láta þá sjálfa bera erfiðleikana og taka afleiðingunum af því, ef illa gengur. Ég held að Alþ. gæti á miklu frjórri hátt orðið til hjálpar og aðstoðar í sambandi við þau miklu vandræði og truflanir sem skapast í þjóðfélaginu í sambandi við deilur sem kunna að rísa á hinum frjálsa vinnumarkaði. Og þá held ég að nærtækast væri og kannske eitt mest aðkallandi hlutverk Alþ. að setja þjóðinni skynsamlega vinnulöggjöf. Sú vinnulöggjöf, sem við nú búum við, er nærri hálfrar aldar gömul, og það er viðurkennt, bæði af fulltrúum launþegastéttanna í landinu og atvinnurekendanna, að þessi vinnulöggjöf sé bæði vanmáttug og úrelt fyrir löngu.

Mig langar í þessu sambandi að skjóta því hér inn í, að í okkar litla, fámenna þjóðfélagi, — ég veit ekki hvað það eru taldar margar vinnandi hendur eða vinnuaðilar í okkar þjóðfélagi, en Ísland er ekki einn sameiginlegur vinnumarkaður. Við erum sífellt að tengjast nánari og nánari samstarfsböndum nágrannaþjóðum okkar, og er gleggsta dæmi um það, að nú hafa fulltrúar okkar setið hið árlega þing Norðurlandanna. Og það er alltaf í víðtækara og víðtækara mæli verið að ræða um sameiginlega stefnu og sameiginlegar aðgerðir meðal hinna norrænu landa. Þetta er verið að ræða um á sama tíma sem þjóðfélag okkar býður ekki þegnunum unn á það, að þeir geti leitað sér vinnu og haft heimild til þess að vinna í hvaða hluta landsins sem er á hverjum tíma. Þetta og margt fleira held ég að væri full ástæða fyrir hv. Alþ. og yfirvöld að taka til nánari athugunar áður en við förum að rasa um ráð fram og samþykkja þá stefnu sem felst í þeirri grg. sem liggur til grundvallar þessari þáltill., sem hér er til umr. Ef skynsamleg vinnubrögð væru tekin upp í því sambandi, þá held ég að við gætum bætt verulega úr og minnkað þær stórkostlegu truflanir og það stórkostlega efnahagstjón, sem hefur vissulega orðið í sambandi við þær miklu vinnudeilur sem því miður hafa þjakað okkur undanfarið okkur öllum til tjóns.