23.02.1978
Sameinað þing: 48. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2621 í B-deild Alþingistíðinda. (1902)

104. mál, framhaldsskólanám á Norðurlandi vestra

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Það eru nokkur almenn orð um þetta mál í heild, þ. e. a. s. framhaldsskólaskipanina í heild.

Mér kemur nokkuð á óvart sú yfirlýsing hæstv. ráðh., að hann telji það ekki saka þó að hægt fari og lítið miði í átt til nýrrar löggjafar á þessu sviði. Ég hygg að hæstv. ráðh. sé ekki eiginlegt að lýsa slíku yfir og stafi af því, að hann muni telja á því tormerki að koma málinu fram, óeining sé um það innan hæstv. ríkisstj., hvernig eigi að skipa þessum málum, og hann komi þessu máli hreinlega ekki fram. Ég segi þetta vegna þess að hæstv. ráðh. hefur áður lýst því yfir, að hann telji mikla nauðsyn á því, að lög um framhaldsskólamenntun komi sem fyrst, einmitt í tengslum og í beinu framhaldi af þeirri framkvæmd grunnskólalaganna sem nú gengur yfir og eins og hann réttilega benti á hefur verið unnið allvel að nú á þessu tímabili. Ég hygg því að þetta sé ástæðan, en ég dreg hins vegar ekkert úr því, að hér sé um vandasama löggjöf að ræða þar sem að mörgum þáttum þurfi að hyggja.

Ég veit að álit skólamanna almennt er mjög eindregið í þá átt, að það fari mjög illa á því, hve hægt þessu máli miðar, og sannarlega liggi á því að fá á þessu eitthvað fastari skipan en nú er. Í raun og veru svífur þetta mál, nám eftir grunnskólanámið meira og minna í lausu lofti, því miður, og álit skólamanna er eindregið í þá átt, að því er ég hef best heyrt, enda áskoranir fjölmargar um það, að þessari löggjöf verði komið á sem fyrst. Það er hins vegar rétt, að meðal skólamanna er nokkur ágreiningur um það, með hvaða hætti þessi löggjöf eigi að vera.

Þegar við hv. þm. Ragnar Arnalds fluttum till. um framhaldsskólanámið á sínum tíma, gerðum við grein fyrir því í grg. okkar, að við álitum að hér yrði að vera í fyrstunni um rammalöggjöf að ræða, rúma löggjöf sem gæti aðlagast nýjum aðstæðum eðlilega og að sjálfsögðu. Við bentum þar á það, að finna þyrfti eðlilegan farveg um, til þess að stunda ekki bara hið hefðbundna nám, sem það getur stundað í dag, heldur þyrfti einnig að finna nýjar námsleiðir. Að því hefur verið unnið, eins og hæstv. ráðh. sagði, að nokkru af einstökum aðilum í skólakerfinu, en óskipulagt er það allt saman. Þar vinnur eiginlega hver í sína áttina. Í þessari till. okkar varbent á það, að tengja þyrfti námið atvinnulífinu meira, og um það hafa verið mjög ákveðnar raddir meðal skólamanna nú á síðustu árum. að það þyrfti að gera og framhaldsskólafrv., sem kom fram í fyrra, benti einmitt mjög eindregið í þá átt. Þar var einnig að því vikið, að samræma þyrfti hinar ýmsu námsbrautir og koma á veg fyrir blindgötur í skólakerfinu. Ég sá ekki betur en í nýja frv. í fyrra, sem sýnt var hér þá, væri í mjög verulegum atriðum komið til móts við þessar till., sem við vorum þarna að benda á og reyndar eru ekki bara okkar till., heldur till. skólamanna í landinu yfirleitt. Það er hins vegar rétt að breytingar eru örar í okkar þjóðlífi og við höfum auðvitað aldrei reiknað með því, að þó að löggjöf yrði sett um framhaldsskólamenntunina, þá yrði hún óumbreytanleg. Það er auðvitað alltaf sjálfsagt að hafa á henni nauðsynlega endurskoðun, nákvæmlega eins og á grunnskólalöggjöfinni, eins og þar er ráð fyrir gert. Það afsakar út af fyrir sig ekki þann drátt sem hefur á þessu orðið. Ég hygg að það séu m. a. s. ekki hin raunverulegu menntunarlegu sjónarmið sem ráða ágreiningi um þetta mál nú. Það sé spurningin um kostnað, kostnaðarskiptingu t. d. milli ríkis og sveitarfélaga, sem ráði miklu meira um það, að þetta frv. hefur ekki enn séð dagsins ljós, og hæstv. ráðh. á e. t. v. í erfiðleikum með að ná því fram innan ríkisstj.

Ég skora á hæstv. ráðh. að koma frv. fram sem fyrst, reyna að fá um það einingu innan stjórnarflokkanna. Þó að hún verði ekki í þá veru alla sem ég eða ýmsir skólamenn aðrir hefðum e. t. v. helst kosið, þá er þessi löggjöf nauðsynleg til þess að skapa vissa festu eftir grunnskólanámið, þannig að menn svífi ekki í lausu lofti eins og þeir gera í dag. Á henni er því brýn nauðsyn.

Aðeins út af því, sem hæstv. ráðh. sagði um fræðsluráðin, að þar væri eðlilegur vettvangur að vinna að þessum málum. Um það vildi ég aðeins segja það, að samkv. grunnskólalögunum nær valdsvið fræðsluráðanna í raun og veru eingöngu til grunnskólanna. Það er hins vegar rétt hjá hæstv. ráðh., að fræðsluráðin hafa farið út í það að skipta sér meira og minna í hinum einstöku fræðsluhéruðum af málum ofan við grunnskólann, sem betur fer, vil ég segja, og að mörgu leyti til góðs, einmitt vegna þess að þarna hefur vantað löggjöf til að fara eftir og fræðsluráðin hafa þess vegna orðið í raun og veru, vil ég segja, að gripa í taumana. Sannleikurinn er auðvitað sá, að þarna eru þau engu að síður komin út fyrir sitt raunverulega verksvið, sem þeim er ætlað samkv. grunnskólalögunum, og einmitt þetta, sem hæstv. ráðh. sagði um fræðsluráðin, undirstrikar nauðsyn þess að færa valdsvið þeirra yfir á framhaldsskólastigið með nýrri framhaldsskólalöggjöf.