27.02.1978
Neðri deild: 62. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2633 í B-deild Alþingistíðinda. (1921)
62. mál, grunnskólar
Frsm. 2. minni hl. (Ellert B. Schram):
Virðulegi forseti. Þegar frv. til l. um grunnskóla var til meðferðar hér á Alþ. fyrir nokkrum árum, þá drógu margir þm. í efa að réttmætt væri að fela landshlutasamtökum stofnun og stjórn fræðsluskrifstofa. Var það einkum með hliðsjón af tvennu: Annars vegar vegna þess, að þá lá ekki fyrir hvort slík landshlutasamtök yrðu stofnuð og engin lög voru til um þau samtök, og hins vegar töldu menn vafasamt að taka þetta frumkvæði af viðkomandi sveitarfélögum sjálfum, ef á annað borð væri óskað eftir því af þeim að setja upp slíkar fræðsluskrifstofur. Nú að nokkrum árum liðnum liggur fyrir, að lög um landshlutasamtök sveitarfélaga eru ekki enn til og virðist ekki fyrirsjáanlegt að þau muni verða sett í náinni framtíð. Eins er hitt, að Hafnarfjarðarbær hefur ávallt haft mikinn áhuga á því að setja upp eigin fræðsluskrifstofu, gerði það reyndar á árinu 1969 og hefur sýnt myndarlegan áhuga í þessum málaflokki.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er flutt skv. áskorun frá bæjarstjórn Hafnarfjarðar, einróma samþykkt þeirrar bæjarstjórnar, um að stofna sérstakt fræðsluumdæmi í Hafnarfirði, og er þá frv. almenns eðlis um að sveitarfélag með 10 þús. íbúa eða fleiri verði sérstakt fræðsluumdæmi og fái að setja upp eigin fræðsluskrifstofu.
Með hliðsjón af þessum rökum og stöðu málsins í dag mælum við þrjú, ég ásamt hv. þm. Sigurlaugu Bjarnadóttur og Eyjólfi K. Jónssyni, með því að þetta frv. verði samþykkt óbreytt.