27.02.1978
Neðri deild: 62. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2635 í B-deild Alþingistíðinda. (1923)
62. mál, grunnskólar
Ingvar Gíslason:
Hæstv. forseti. Það er rétt, sem hér hefur komið fram, að ég sem formaður menntmn. þessarar hv. d. var ekki viðstaddur afgreiðslu þessa máls í nefndinni, sem stafaði af því, að þá var ég erlendis, raunar á vegum Alþ., en við mig var haft samband, þar sem ég var staddur í erlendri borg, af hálfu flm. þessa frv. með ósk um að þetta mál yrði tekið sem fyrst fyrir í menntmn. Ég sá enga ástæðu til þess, þó ég væri fjarverandi, að þetta mál mætti ekki koma fyrir n. í fjarveru minni, enda hefur n. sér varaformann, og sé ég ekkert óeðlilegt við það, þó að þetta hafi verið gert, og þetta var gert í fullu samráði við mig, að n. tók málið fyrir í fjarveru minni. Að sjálfsögðu setti ég n. engin fyrirmæli um það, hvort hún afgreiddi þetta mál þá eða síðar. Nú hefur n, afgreitt þetta mál á fullkomlega löglegan máta og með minni vitund og í samráði við mig að forminu til. Hitt vil ég taka skýrt fram, að ég er andvígur þessu frv. og mun greiða atkv. gegn því. Hitt vil ég þó minna á þrátt fyrir allt, að þetta mál er engan veginn undarlega til komið. Þetta er flutt samkvæmt sérstakri beiðni bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, og þetta er flutt af þingmönnum úr fjórum þingflokkum. Ég sé að þarna eru flm. þrír þm. Reykn, og hv. hm. Benedikt Gröndal. Þetta mál er ekki neitt flokkspólitískt mál á nokkurn hátt. heldur sýnist það vera áhugaefni þm. þarna syðra að gegna þeirri skyldu sinni að fylgja fram ýmsum beiðnum, sem koma úr þeirra kjördæmi, eins og við þm. gerum gjarnan. En sem sagt, ég vil aðeins segja þetta í tilefni af þeim orðum. sem hér hafa fallið um þetta. og tek jafnframt fram, að ég mun greiða atkv. gegn frv.