28.02.1978
Sameinað þing: 49. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2649 í B-deild Alþingistíðinda. (1929)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Hv. 2. landsk. þm., Benedikt Gröndal, hefur kvatt sér hljóðs utan dagskrár til þess að fjalla um hlutleysisbrot í Ríkisútvarpinu, sjónvarpinu í gærkvöld. Þetta hlutleysisbrot á ég að hafa framið. Þessi hv. þm. sýnir mér ekki þá kurteisi að tjá mér fyrir fram erindi sitt í ræðustól hér í hv. Sþ. Hann brýtur þar hefð og venju og sjálfsagða kurteisi sem menn hafa ávallt sýnt þeim er ráðist skyldi að. Ég vísa árásum hv. þm. á bug. Ég svaraði fyrirspurnum spyrils eins og ég hef skýrt mál hér á hv. Alþingi.
Ég ítreka og endurtek, að sú leið, sem hv. stjórnarandstaða og fulltrúar BSRB og ASÍ hafa bent á til lausnar efnahagsvanda, sem allir þm. eru sammála um að sé fyrir hendi, er óraunhæf. Í fyrsta lagi, eins og ég hef áður getið um, vegna þess að hún leysir ekki vandann sjálfan eins og hann blasir við. Í öðru lagi vegna þess að þar er um sjónhverfingar að ræða.
Efnislega ætla ég ekki að ræða þessi mál hér og nú. En um leið og ég vísa því algjörlega á bug, að ég hafi framið hlutleysisbrot, þá vil ég einnig taka það fram, að hvorki stjórnarandstaða né launþegasamtök geta kvartað yfir því, að í fréttaflutningi eða öðrum flutningi í ríkisfjölmiðlum sé brotið í bága við hagsmuni þeirra eða þeim ekki sýnd tilhlýðileg virðing eða rúm í dagskrá. Ég vísa til dagskrár hljóðvarps í gær „um daginn og veginn“ m. a. því til sönnunar. Ég held að í ríkisfjölmiðlunum hafi þessi sjónarmið fengið vel að njóta sín og ef einhver getur kvartað yfir því, að sjónarmiðum þeirra hafi ekki verið nægilega gaumur gefinn, þá hygg ég að það sé frekar ríkisstj. sem geti gagnrýnt, en ekki aðrir, og því sé algjörlega ástæðulaust af hv. þm. Benedikt Gröndal að kveðja sér hljóðs utan dagskrár.