28.02.1978
Sameinað þing: 49. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2661 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
179. mál, skuldir fiskiskipaflota landsmanna
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Svörin eru tekin saman af Seðlabanka Íslands og eru svar við bréfi rn. frá 10. febr., en bréf Seðlabankans er dags. 14. febr.
Við a-lið fyrri fsp.: Skuldir togara hjá Fiskveiðasjóði Íslands námu 31. des. 1977 12 381271 442 kr. Innistæða sömu aðila nam hins vegar 5 957 739 837 kr. — B-liður : Skuldir togara hjá Byggðasjóði námu um s. l. áramót um 1 milljarði og 300 þús. kr., þ. e. eftirstöðvar og afborganir í vanskilum. — C-liður: Skuldir fiskiskipa annarra en togara hjá Fiskveiðasjóði Íslands námu um s. l. áramót 11 milljörðum 182 millj. 11 182 271 751 kr., en innistæða sömu aðila nam 1 596 871 843 kr. — D-liður: Skuldir fiskiskipa annarra en togara hjá Byggðasjóði námu á áramótum alls um 2 milljörðum 220 millj. kr. Um aðra stofnlánasjóði var ekki að ræða hvað snertir b- og d-lið.
2. fsp.: Erlendar skuldir voru á síðustu áramótum vegna alls fiskiskipaflotans sem hér segir: Skuttogarar 13 milljarðar 480 millj., þar af Fiskveiðasjóður vegna níu Japanstogara 1905 millj., önnur fiskiskip 1 milljarður 120 millj. Lán vegna lenginga, endurbóta og tækjakaupa 1 milljarður og 200 millj. Samtals eru því erlendar skuldir um síðustu áramót 15 milljarðar og 800 millj. kr.