28.02.1978
Sameinað þing: 50. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2678 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)

178. mál, uppbygging strandferðaþjónustunnar

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Þetta verða fá orð. Ég hlýt að styðja megintilgang og efni þessarar till. Ég vek einmitt að þessu fyrr í vetur vegna fsp. þá, en einkum þó í framsögu á síðasta þingi fyrir till. um deildaskiptingu, sem við bárum fram þá hv. þm. Karvel Pálmason og ég. Þá var það einmitt undirstrikað sérstaklega af okkur í grg., hver nauðsyn væri á eflingu þessarar nauðsynlegu þjónustu og að þessi þjónusta væri áfram í höndum þess aðila sem hefur annast hana, þ. e. a. s. Skipaútgerðar ríkisins. Í þessari nýbreytni, sem þótti alldjörf, bentum við einmitt á, að það þyrfti að hlúa að starfseminni og grundvellinum þó fyrst og fremst, þ. e. a. s. skipunum, að þau væru sem best, að þau væru sem hagkvæmust og einnig að sem best væri fyrir aðstöðunni í landi séð.

Það ber að fagna öllum till. um Skipaútgerðina og eflingu hennar. Þær eru vel þegnar, þó að okkur í stjórnarandstöðunni, sem ekki þekkjum til gangs mála innan hæstv. ríkisstj., hefði þótt eðlilegra og sjálfsagðara að hæstv. viðkomandi ráðh. hefði flutt þessar till. hér eða þær hefðu náð fram að ganga í gegnum ríkisstj., sem þessir hv. þm. allir, sem þessa till. flytja, styðja. En viðleitni þeirra er engu að síður hin ágætasta, þegar þeir sjá að hvorki gengur né rekur á vegum sjálfrar ríkisstj.

Ég tek það fram, vegna þess að Skipaútgerð ríkisins kemur á dagskrá, að ég álit að það væri sjálfsagt að til umr. og athugunar kæmu þær áætlanir, sem uppi eru hjá framkvæmdastjóra Skipaútgerðarinnar, og þær kæmust helst til vissra framkvæmda áður en ég hreyfði aftur því máli sem ég flutti í fyrra varðandi deildaskiptinguna, því að það er langt í frá að við flm. séum orðnir andhverfir þeirri hugmynd. Við hefðum einmitt haldið það eftir þá umbreytingu og eflingu, sem framkvæmdastjóri Skipaútgerðarinnar hefur lagt til, og eftir framkvæmdir þar á eftir, að eðlilegt framhald gæti verið að hyggja næst þar að, þó að við höfum ekkert fullyrt um það, hversu auðvelt eða hvort mögulegt væri að framkvæma þessa till. okkar frá í fyrra.

Ég hef áður minnt á mikla áherslu okkar Austfirðinga og stuðning í raun og veru við þessar áætlanir framkvæmdastjóra Skipaútgerðarinnar. Það eru að vísu, eins og segir í grg. með þessari till., allróttækar till. um endurskipulagninguna og við fyrstu sýn finnst manni kannske að þarna séu ansi djarfar áætlanir uppi, sérstaklega um það að hægt verði að losna við hallann af þessu ágæta fyrirtæki. Ég er sannfærður um að framkvæmdastjórinn hefur engu að síður mikið til síns máls, og það var almenn skoðun á þingi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi í haust er leið, að Skipaútgerðina bæri að efla, og samþykktir voru gerðar mjög í þessa átt. Og það fór ekki hjá því, að við afgreiðslu fjárl. í vetur væri þetta erindi Skipaútgerðarinnar eða framkvæmdastjóra Skipaútgerðarinnar lagt fyrir okkur í fjvn. Það eru sannarlega vonbrigði, að það skyldi ekkert — blátt áfram ekkert — tillit vera tekið þar til þessara till. og það því fremur sem mér hefur virst að afstaða a. m. k. hæstv. ráðh., sem fer með þessi mál, væri nokkuð ljós og hann vildi fylgja málinu eftir. Mér hefur heyrst hann styðja þessar fram komnu till. framkvæmdastjórans í megindráttum, og ég efa ekki að hann hafi viljað reka á eftir þessu máli. Ég vil ekki heldur draga það neitt í efa, að hæstv. samgrh. hafi viljað fá staðfestingu í fjárl. á þessu eða þá a. m. k. í lánsfjáráætlun eða sjá einhverja möguleika á því, að af einhverjum framkvæmdum yrði á þessu ári. Hvorugt hefur greinilega tekist. Og það hefur áreiðanlega ekki síður orðið hvati til flutnings þessarar till. af hálfu hv. flm., ð svo skyldi til takast, eins og hv. frsm. benti réttilega á áðan, að þarna hefði ekkert fjármagn fengist.

Þetta rifjar það auðvitað upp fyrir okkur, hvað mikil andstaða hefur oft og tíðum verið við þessa stofnun og skilningsleysi á þörfum hennar og þörfum landsbyggðarinnar fyrir þá þjónustu sem Skipaútgerðin hefur veitt, veitir enn og getur veitt í auknum mæli nú, ef nútímaleg vinnubrögð eru þar upp tekin. Ég veit að ég þarf ekki að rifja það upp fyrir mönnum, hvaðan þessi andstaða hefur aðallega komið, en það er þó mjög misjafnt um þá andstöðu, og ég veit að landsbyggðarþm. Sjálfstfl. munu áreiðanlega ekki verða sama sinnis og sumir aðrir þm. þess flokks, sem stundum hafa látið út úr sér heldur leiðinleg ummæli um þessa ríkisstofnun. Eflaust tilheyrir þessi stofnun líka þeim stofnunum, sem þeir, sem vilja báknið burt, vilja leggja niður, þó að það kunni kannske að vera, að hún sé aftarlega í röðinni, af því að hún er rekin með halla og því ekki eins ábatasöm fyrir þá aðila sem ættu þar við að taka. Það er e. t. v. þess vegna sem þetta hefur ekki náðst fram greinilega, að innan hæstv. ríkisstj. mun einhver ágreiningur vera. Þessi till. er í raun og veru undirstrikun óánægju með það, að mínu viti, og bendir á það, að þarna vilji þm. Framsfl. skera sig nokkuð úr, því að þeir dragi ekkert úr því, að mikil nauðsyn sé á að hraða þessu. Mætti þó auðvitað með takmarkaðri góðgirni vegna skyldleika þeirra við hæstv. samgrh. í flokkspólitískum efnum, kalla þetta hálfgerða vantrauststill. á þann hæstv. ráðh., sem hér er og á að vera eðli málsins samkv. framkvæmdaaðili. En ég hygg að það sé nú ekki, vegna þess að hæstv. ráðh. hefur, að því er ég best veit, rekið allvel á eftir þessu og viljað styðja þessar till. sem fram hafa komið frá forstjóra Skipaútgerðarinnar.

Hv. frsm. vék að árekstrum við vöruflutninga á landi. Það hefur auðvitað oft verið bent á það, að í raun og veru þyrfti að færa þungaflutningana, a. m. k. til vissra staða, meira til skipanna frá vörubifreiðum. Það hefur verið bent á það oft í umr. hér, m. a. með stuttum, ljósum rökum frá þeim vegagerðarmönnum um mikla þýðingu þessa, að margir hinna stóru bila með tengivagna sína væru á þeim vegum, sem við höfum enn þá slæma, — þeir væru þar skaðvaldar og erfiðleikar á viðhaldi og eins að takmörkuð færð til þessara staða ylli því, að þeir gætu ekki sinnt þessari þjónustu sem skyldi og Skipaútgerðin væri þá þar hinn eðlilegi aðili. Margir staðir eru einnig þannig settir, að fyrir þá eru þessar samgöngur, samgöngurnar á sjó, eins og hv. frsm. benti á, öruggastar. Hér er ekki betra vegasamband á vetrum en það. Og í heild er hér auðvitað um ódýrari og hagkvæmari lausn á flutningum okkar að ræða og því ber að styðja að því svo sem mögulegt er.

Hv. frsm. vék að breytingum á leiðakerfinu og sagði réttilega, að það þyrfti frekari og nákvæmari athugunar við. Nú hefur verið farið út í það af hálfu Skipaútgerðarinnar að breyta um leiðakerfi án þess þó að Skipaútgerðin hefði fengið þann nauðsynlega skipakost, sem hún taldi vera undirstöðu þess að hún gæti með hagkvæmum hætti breytt leiðakerfi sínu. Þarf því að nota óhentugan skipakost enn og líka aðstöðu sem er alls ófullnægjandi. Þetta hefur skapað erfiðleika víða. Og þó að ég sé mjög hlynntur þessari ágætu stofnun og öllum þeim tilraunum, sem þeir eru að gera þar til þess að efla starfsemina og gera hana hagkvæmari og betri, þá verður ekki komist hjá að vekja athygli á því, að við þm. Austurl. höfum fengið einmitt bréf austan að, eftir að þetta nýja leiðakerfi var tekið upp, þar sem segir m. a., með leyfi hæstv. forseta, í bréfi frá Sigmari Torfasyni, oddvita Skeggjastaðahrepps: „Þjónusta Skipaútgerðar ríkisins virðist mér ekki fara batnandi, hvað sem síðar kann að verða.“

Og enn ákveðnara aftur í bréfi frá Kaupfélagi Vopnfirðinga. Stjórn kaupfélagsins hefur sent harðorð mótmæli til Skipaútgerðar ríkisins út af þessari breytingu, þar sem segir að stjórnin mótmæli „þeirri óskiljanlegu ákvörðun útgerðarinnar að skera niður á versta tíma árs án fyrirvara tíðni ferða til Vopnafjarðar úr 4 í 2 á mánuði. Vér teljum, að miðað við núverandi skipakost séu hringferðir, eins og þær hafa verið að undanförnu, það eina skipulag, sem til greina komi.“ Þetta skiljum við vel, Austfjarðaþm., að eru sjónarmið þeirra Vopnfirðinga, og kom reyndar fram mjög skýrt á fundinum í haust austur á Hallormsstað, þar sem forstjóri Skipaútgerðarinnar var einmitt staddur. Þeir halda áfram að segja það, að í þessu sambandi ætti öllum, sem þekkja til samgangna til Vopnafjarðar, að vera ljóst að við búum við hvað erfiðastar samgöngur á landi sem um getur á Íslandi, og er ekki um aðrar flutningaleiðir að ræða en sjóleiðina. Og þeir segja hins vegar hér — til þess að undirstrika það, að þeir eru ekki bara með mótmæli, — þeir segja svo aftur, með leyfi hæstv. forseta: „Skoðun vor er sú, að uppbygging eða öllu heldur uppbyggingarleysi Skipaútgerðar ríkisins hafi á liðnum árum einkennst af stöðnun og fjármagnsskorti. Lýsum við fullum stuðningi við uppbyggingaráform útgerðarinnar og teljum að hún verði aldrei þess megnug að uppfylla sitt þjónustuhlutverk við landsbyggðina án þriggja skipa og góðrar afgreiðsluaðstöðu í Reykjavík og úti á landi, þar sem hægt verði að koma við allri þeirri tækni sem tiltæk er til lestunar og losunar. Léleg samkeppnisaðstaða útgerðarinnar hefur einmitt leitt af sér hinn mikla flutning með bifreiðum:

Ég taldi rétt að láta þetta koma fram í tilefni af þessari till., en tek það mjög skýrt fram, að ég styð þessa till. mjög eindregið, þó að auðvitað hefði ég kosið, eins og hv. frsm. kom sjálfur inn á, við hefðum kosið í verki að sjá framkvæmd einhvers þess sem Skipaútgerðin hefur lagt til og hér er að vikið.