01.03.1978
Efri deild: 67. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2699 í B-deild Alþingistíðinda. (1971)
204. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins
Flm. (Stefán Jónsson) :
Herra forseti. Við hv. þm. Geir Gunnarsson flytjum hér öðru sinni í deildinni frv. til l. um breyt. á lögum nr. 97 frá 1976, um Framkvæmdastofnun ríkisins. Þetta frv. varð ekki útrætt í fyrra. Við flytjum það óbreytt frá því sem það var flutt þá, en með nokkuð breyttri grg., sem ég leyfi mér að lesa hér:
„Svo sem kunnugt er hafa þjóðir, svo sem Sovétmenn, Japanir, Bretar og Norðmenn, þegar byrjað fiskeldi í sjó með góðum árangri. Eru þegar tiltækar upplýsingar um niðurstöður erlendra rannsókna á þessu sviði og um árangur þar sem fiskirækt hefur verið komið upp á grundvelli þeirra. Nefna má laxeldi sem Norðmenn stunda nú í sjó með furðugóðum árangri og nota úrgang frá fiskiðjuverum til fóðrunar. Hefur nýting þessa ódýra fóðurs verið sérlega drjúg, þannig að 4–6 kg af fiskúrgangi nægja til framleiðslu á einu kg af laxi. Miðað við núgildandi verðlag á þessu fóðri og markaðsverð á laxi mun óhætt að fullyrða, að í engri búskapargrein sé fóðurkostnaður jafnlítill og í fiskeldi, enda mun fiskúrgangurinn, sem Norðmenn nota í þessu skyni, gefa meira verð en sjálf matvaran sem fiskiðjuverin skila frá sér í beinni framleiðslu.
Ljóst er að hér á landi fellur til fiskúrgangur sem nægja mundi til framleiðslu á þúsundum lesta á dýrmætum matfiski — og ef reiknað er með hagnýtingu loðnu og annars bræðslufisks í þessu skyni, þá til framleiðslu á tugþúsundum lesta af laxfiski. Tilraun, sem gerð hefur verið hér á landi á vegum Fiskifélags Íslands til laxeldis í sjó, bar ekki þann ávöxt sem menn gerðu sér vonir um, enda var til hennar stofnað af vanefnum í ýmsum skilningi. Þó má til sanns vegar færa, að þar hafi ekki verið með öllu til einskis unnið, því sannreynt var að sjór á svæðinu frá Austfjörðum norður um landið alla leið í Hvalfjörð er of kaldur til þess að þar verði alinn laxfiskur svo einhlítt sé, þar eð fiskurinn horast á vetrum og nær ekki að vaxa. Þetta á við um allt strandsvæðið þar sem firðir og vogar bjóða upp á nauðsynlegt skjól fyrir haföldu til þess að haga mætti fiskeldinu með svipuðum hætti og þeim sem Norðmenn hafa upp tekið. Þrátt fyrir athyglisverðan árangur, sem náðst hefur við laxeldi í sjó á Fáskrúðsfirði, má þetta heita algild ályktun, og því sýnt að við hljótum að bregða á annað ráð hérlendis.
Nú hafa verið gerðar merkilegar undirstöðutilraunir á þessu sviði af hálfu Líffræðistofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við embætti veiðimálastjóra, þar sem einkum er fjallað um áhrif umhverfisþátta á vöxt og þroska laxfiska. En fjárskortur hefur staðið í vegi fyrir því, að þær tilraunir yrðu til lykta leiddar, og torveldar jafnframt uppsetningu þeirra eldisstöðva sem nauðsynlegar eru til sannprófunar á niðurstöðum þessara tilrauna.
Fyrrgreindar tilraunir, sem gerðar hafa verið af hálfu íslenskra líffræðinga, hafa m. a. beinst að kynblöndun laxfiska þeirra sem best sameina vaxtarhraða og saltþol tveggja tegunda, og einnig að því, hvert vera muni æskilegt hlutfall seltu og hitastigs eldisvatnsins. Enda þótt lokaniðurstöður fyrrgreindra rannsókna liggi ekki fyrir þykja líkur benda til þess, að fiskaeldi með þessum hætti nái ekki fullri hagkvæmni annars staðar en þar sem hægt er að hita upp sjóinn, annaðhvort með jarðvarma eða heitu afrennslisvatni frá fiskiðjuverum og þá jafnframt að stjórna seltustigi afrennslisvatnsins. Hins vegar hagar svo til mjög víða, að tiltækt er heitt vatn í þessu skyni. Við flest fiskiðjuverin utan jarðhitasvæðanna er bæði aðstaða til að koma upp eldisþróm og nægilegt heitt vatn frá vélum til þess að halda eldissjónum volgum, og má heita að nú vanti ekki nema þann herslumun, sem fjárveitingavaldið eitt getur látið í té, til þess að hægt sé að ljúka tilraununum og hefja fiskirækt í stórum stíl í volgum sjó víðs vegar um landið.
Frá því frv. þetta var flutt í upphafi hér á hv. Alþ., hefur það gerst, að tveir íslenskir líffræðingar, þeir Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur og prófessor Sigurður St. Helgason, sem stýrt hefur fyrrgreindum tilraunum af hálfu Háskólans, hafa af eigin rammleik ráðist í það að koma upp nauðsynlegri eldisstöð sem nýti heitan jarðsjó. Til þess hafa þeir ekki fengið annan styrk af opinberri hálfu en þann, að ríkið leigir þeim 20 ha landssvæði úr Húsatóftalandi í grennd við Grindavík, og sjálfir hafa þeir orðið að selja íbúðarhúsnæði sitt og kosta til aleigu sinni að öðru leyti til þess að geta hafið þær framkvæmdir, og er þó borin von að til hrökkvi ef ekki verður greitt fyrir þeim af opinberri hálfu svo um munar.
Svo sem fyrr segir hafa tilraunir sérfræðinga okkar á þessu sviði fyrst og fremst beinst að eldi lax og silungs, en líkur benda til þess að þeirra dómi, að hægt sé að rækta á sama hátt í stórum stíl ýmiss konar verðmæt skeldýr og krabbadýr, og hentaði sá búskapur vel með eldi fyrrgreinds sporðfénaðar. Auk þess liggja fyrir upplýsingar um tilraunir erlendis með ræktun ýmissa verðmætra sjávarfiska sem vel mundu henta til eldis hér á landi og þá einkum, sem að líkum lætur, á þeim svæðum þar sem tiltækur er heitur jarðsjór. Í þessu sambandi er eðlilegt að hugleiða sérstaklega möguleika á því að nýta jarðsjó þann, sem til mun falla í sambandi við fyrirhugaða sjóefnaverksmiðju á Reykjanesi — og geta má þess, að líkur þykja benda til þess að álíka aðstaða muni vera til fiskiræktar í Öxarfirði norður.
Að endingu má geta þess, að margt bendir til þess að dómi líffræðinga, að nytja megi þessa sérstöku aðstöðu, sem heiti jarðsjórinn myndar, til þess að tryggja okkur gegn áföllum af völdum breytilegra náttúruskilyrða í sambandi við hrygningu ýmissa helstu nytjafiskanna á grunnslóðinni kringum landið. Þannig má ætla, að ef fjármagn fengist til þess að fullgera rannsóknir með kjörfæðu þorsklirfunnar, þá yrði unnt að ala upp þorsklirfur í volgum sjó í tiltölulega litlum eldistjörnum og flytja síðan á þau hafsvæði þar sem skilyrði væru örugg til uppvaxtar kringum landið og tryggja með þeim hætti viðgang þorskstofnsins, svo að við þurfum ekki að eiga afkomu okkar svo mjög sem nú er undir duttlungum veðráttu á hrygningarstöðvunum og óviðráðanlegum umhleypingum sjávarstrauma. Að dómi flm. nær það engri átt, að ekki skuli varið verulegu fjármagni til þess að ljúka megi tilraunum á þessu sviði.“
Þess skal getið, að í viðræðum við sérfræðinga um þessi mál og ýmsa áhugamenn hefur það komið berlega í ljós, að menn eru þeirrar skoðunar að eðlilegt væri að öll þau mál, er lúta að fiskeldi í söltu vatni hér við land, falli undir sjútvrn. Ég þarf ekki að orðlengja það, að við Íslendingar höfum verið heldur tregir á fjárútlát til rannsóknarstarfa í sambandi við auðlindir þessa lands og náttúrugæði, hversu nytja skuli á fleiri sviðum en þeim sem að fiskiræktinni lúta. Og mín skoðun er sú, að við séum einmitt að bíta úr nálinni með það nú þessi síðari árin, hversu mjög hefur skort á skynsamlegt örlæti okkar á þessu sviði, þar sem mjög hefur skort á það, að við höfum séð sérfræðingum okkar, sem við höfum þó menntað til þeirra starfa, fyrir nauðsynlegum fjármunum til þess að þeir gætu unnið störf sín hér með eðlilegum hætti.
Ég hef fengið tækifæri til þess að fylgjast lítillega með áætlunum þeim, sem líffræðingarnir tveir, sem við nafngreindum í grg., hafa unnið að síðustu missirin, og þeir hafa látið mér í té upplýsingar, sem lúta að sambærilegum athugunum og rannsóknum sem erlendis hafa verið framkvæmdar á þessu sviði. Þeir leggja aftur á móti á það áherslu, að sérstaða okkar, hin sérstaklega góða aðstaða sem við höfum á þessu sviði, þ. e. a. s. fiskeldi í vermdum sjó, einkanlega hér á Reykjanessvæðinu þar sem við eigum tiltækan heitan jarðsjó, og sennilega einnig á Öxarfjarðarsvæðinu, — þessi aðstaða sé svo sérstök að við getum ekki nema að mjög litlu leyti stuðst við áætlanir erlendra sérfræðinga um ýmis atriði sem varða útfærslu þessara tilrauna í „praxis“. Ég er þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að vinda að því bráðan bug að leysa úr fjárhagsvandræðum þeirra sérfræðinga, sem unnið hafa að því nú hin síðari árin að framkvæma grundvallarrannsóknir í sambandi við fiskeldismálið hér á landi, og að þeir peningar, sem hið opinbera legði af mörkum í þessu skyni. séu líklegir til þess að bera fljótt ávöxt.
Ég vil svo að endingu óska þess, að frv. þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til fjh.- og viðskn.