01.03.1978
Sameinað þing: 51. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2724 í B-deild Alþingistíðinda. (1994)

163. mál, umboðsmenn erlendra framleiðenda eða heildsala

Svar:

Hér með fylgja tveir listar, sem gjaldeyriseftirlitið styðst við til upplýsingaöflunar um gjaldeyrisskil íslenskra innflytjenda og umboðsmanna. Óskast listarnir afhentir fyrirspyrjanda, en ég tel fyrir mitt leyti ekki ástæðu til að kosta upp á prentun slíkrar fyrirtækjaskrár.

2. Fyrir hvaða vörur hafa þessir aðilar umboð hver um sig?

Svar: Upplýsingar liggja ekki fyrir um þetta.

3. Hvernig skiptust þær 2517 milljónir króna í umboðslaunum, sem skil voru gerð fyrir í vörum eða gjaldeyri á síðasta ári, milli þessara aðila?

Svar: Í spurningunni er gengið út frá 2517 milljónum króna umboðslaunaskilum, en það voru skilin fyrstu 11 mánuði ársins 1977.

Heildarumboðslaunatekjur, sem aðilar þessir skiluðu á öllu árinu 1977, námu 3156 milljónum króna, þar af var varið 550 milljónum króna til vörukaupa. Bein umboðslaunaskil í peningum námu því 2606 milljónum króna, sem 866 umboðsmenn skiluðu. Skipting skila umboðslauna á milli einstakra aðila hefur ekki fengist gefin upp, þar sem um trúnaðarmál er að ræða.

4. Hvaða reglur gilda um það, hverjir Íslendingar megi taka að sér erindrekstur fyrir erlenda framleiðendur og heildsala?

Svar: Að því er verslun snertir vísast til laga nr. 41/1968, um verslunaratvinnu. Til umboðsverslunar fyrir erlenda aðila þarf annaðhvort heildsöluleyfi eða sérstakt leyfi til umboðsverslunar.