06.03.1978
Neðri deild: 64. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2758 í B-deild Alþingistíðinda. (2016)
101. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Flm. (Sighvatur Björgvinsson) :
Virðulegi forseti. Frv. það til l. um breyt. á lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl., sem við hv. þm. Benedikt Gröndal flytjum á þskj. 117, er þess efnis, að gerð verði breyting á því fyrirkomulagi sem ríkir varðandi verðábyrgð ríkissjóðs á útfluttum landbúnaðarafurðum. Það er nokkuð síðan þetta frv. var lagt fram hér í hv. d., og ég hef ítrekað óskað eftir því við virðulegan forseta, að frv. yrði ekki tekið til umr. Ástæðan var sú, að ég hafði óskað eftir ákveðnum tölulegum upplýsingum í sambandi við útflutning á landbúnaðarafurðum sem ég vildi gjarnan geta gert grein fyrir við umr. um þetta mál hér. Vegna þess, hve mikið hefur verið að gera í stjórnarstofnunum nú að undanförnu, af ástæðum sem alþm. og þjóðinni eru vel kunnar, þá dróst það hins vegar að ég gæti fengið þessar upplýsingar og hef því miður ekki getað fengið þær enn. Ég tel þó ástæðulaust að fresta þessu máli öllu lengur, þar sem ég tel mjög eðlilegt að sú n., sem fær þetta frv. til athugunar, afli sér viðkomandi upplýsinga.
Það, sem ég spurðist fyrir um einkum og sér í lagi, var tvennt: Í fyrsta lagi, hver væri gjaldeyrisjöfnuðurinn hjá landbúnaðinum, hversu mikið af gjaldeyri landbúnaðurinn notaði til framleiðslu sinnar og hversu mikið af gjaldeyri skilaðist aftur vegna útfluttra landbúnaðarafurða. Ég bað sérstaklega um að athugað yrði, hvað útflutningurinn á landbúnaðarafurðunum þyrfti mikinn gjaldeyrisinnflutning á móti. Mér var tjáð að þetta verkefni væri talsvert erfitt að vinna. Það var unnið fyrir nokkrum árum, þegar meginhlutinn af landbúnaðarútflutningi frá Íslandi var mjólkurafurðir, smjör, ostar o. s. frv. Þá var gerður samanburður á því, hversu mikill gjaldeyrir væri notaður til þeirrar umframframleiðslu, sem flutt var út, og hversu mikill gjaldeyrir skilaðist inn í staðinn. Kom í ljós við þá athugun, að þessi samanburður, þessi gjaldeyrisjöfnuður var landbúnaðarframleiðslunni óhagstæður, landbúnaðurinn notaði meiri gjaldeyri til þess að framleiða þessa umframframleiðslu en fékkst fyrir útflutninginn. Nú hefur hins vegar orðið nokkur breyting á þessu, þar eð megnið af útfluttri landbúnaðarframleiðslu á síðustu árum hefur verið dilkakjöt, en ekki mjólkurafurðir, smjör og ostar. Þá er þessi samanburður mun erfiðari vegna þess, að þá koma inn í gjaldeyrisnotkun sauðfjárframleiðslunnar miklu hæpnari tölur, sem verða að byggjast á áætlunum sem að fróðra manna sögn er ekki auðvelt að gera. Ég fékk af þessari ástæðu og öðrum ekki svar við þessari spurningu. Hins vegar hlýtur að sjálfsögðu að liggja fyrir, hversu mikinn gjaldeyri landbúnaðurinn notar til sinna þarfa og hversu miklum gjaldeyri hann skilar til þjóðarbúsins fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir.
Tilgangurinn með þessum samanburði, sem ég óskaði eftir að fá, var að sjálfsögðu að komast að raun um hvort það gæti með einhverju móti talist hagkvæmt að stefna landbúnaðarframleiðslu svo hátt að þyrfti að flytja mjög verulega út. Ef gjaldeyrisjöfnuðurinn í þessum samanburði er mjög óhagstæður, þá segir það sig sjálft, að það borgar sig alls ekki að stefna landbúnaðarframleiðslunni mjög hátt. Ef hins vegar gjaldeyrisjöfnuðurinn er hagstæður eða ekki mjög óhagstæður, skiptir kannske ekki mjög miklu máli þó umframframleiðsla sé allverulega mikil.
Hitt atriðið, sem ég óskaði eftir upplýsingum um, var talsvert annars eðlis. Ég óskaði eftir að fá að vita, hversu mikill hluti af þeim framlögum, sem látin eru af hendi rakna í fjárl. hverju sinni til landbúnaðarins, eru beinlínis til þess fallin að ýta undir aukna framleiðslu landbúnaðarafurða og hve stóran hluta af því fé, sem veitt er til landbúnaðarins á fjárl., má skoða sem fjárveitingu til þess að auka hagræðingu og koma við sparnaði. Mér var tjáð þegar ég spurðist fyrir um þetta, að það væri tiltölulega auðvelt að fá upplýsingar þar að lútandi, en því miður hef ég ekki fengið þær enn. Það, sem ég var að spyrjast fyrir um í þessu efni, var einfaldlega það, hvort aðstoð ríkisvaldsins, aðstoð sem veitt er með fjárlagaafgreiðslu hverju sinni við landbúnaðinn, sé fyrst og fremst þann veg gerð að hún ýti undir aukna framleiðslu fremur en aukna hagkvæmni. Þessum upplýsingum tel ég að sjálfsögðu nauðsynlegt að sú n., sem fær þetta frv. til athugunar, kalli eflir. Ég fæ ekki séð annað en hún hljóti að taka talsvert mið af þeim upplýsingum við umfjöllun um mál eins og þetta.
Tilgangurinn með flutningi þessa frv. er að benda á leið út úr þeim ógöngum sem þjóðarbúið er komið í vegna greiðslu verðábyrgðar úr ríkissjóði á útfluttar landbúnaðarafurðir. Í þeim efnum hefur stöðugt sigið á ógæfuhliðina að undanförnu uns í algjört óefni er nú komið þegar flytja getur þurft út yfir 40%, að því er síðast fregnir fara af, af framleiðsluafurðum einnar búgreinar og greiða úr ríkissjóði í verðbætur af þeim sökum upphæðir, sem taldar eru í þúsundum millj. kr. Í frv. til fjárl. fyrir árið 1978 er þannig talið að verja þurfi 2963 millj. kr. í þessu skyni. Hér er um að ræða mjög háa upphæð, sem best sést af því, að þetta mun vera nálægt því sama tala og áætlað heildarútflutningsverðmæti alls loðnuaflans sem komið hefur á land á árinu. Sem sé, heildarútflutningsverðmæti allrar loðnuframleiðslunnar, sem tugir og hundruð Íslendinga hafa unnið við í allan vetur, framleiðslu sem talin er geta ráðið mjög miklu um afkomu þjóðarbúsins, — heildarútflutningsverðmæti þessarar framleiðslu er því næst sama upphæð og ríkissjóður ver til útflutningsuppbóta á landbúnaðarafurðir. Þegar menn horfa á dæmið út frá þessum sjónarhóli þá sést að sjálfsögðu hvílíkt vandamál hér er á ferðinni; þegar samanlagt verðmæti alls loðnuafla á einu ári fer beinlínis til þess að greiða með útfluttum landbúnaðarafurðum, sem er umfram neyslu á þessum afurðum hérlendis. Það sést auðvitað að við svo búið má ekki standa, hvað þá þegar það liggur fyrir að þetta fé dugar ekki til. Og þegar lítið er til þess, hversu mikil aukning hefur orðið á greiðslu útflutningsuppbóta á allra síðustu árum, og ekki aðeins í krónum, heldur líka í raunverðmætum, þá er auðséð að við svo búið má ekki standa.
Í grg. með frv. þessu á þskj. 117 fylgja nokkrar töflur sem varpa mjög skýru ljósi á þróunina í þessum málum að undanförnu. Töflur þessar hafa verið unnar samkv. upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Þar kemur t. d. fram í töflu I. að hámarksverðábyrgð útflutningsbóta, 10% af samanlagðri heildarframleiðslu landbúnaðarins, verður hvorki meira né minna en í átta skipti á árunum frá 1963–1977. Hámarksverðábyrgð er náð verðlagsárið 1963–1964, verðlagsárið 1965–1966, verðlagsárið 1966–1967, verðlagsárið 1967–1968, verðlagsárið 1968–1969, verðlagsárið 1969–1970, verðlagsárið 1973–1974 og verðlagsárið 1976–1977. Ég vil vekja athygli á því, að í blaðaskrifum hefur því verið haldið fram, að þessari 10% verðábyrgð hafi aðeins verið náð fimm eða sex sinnum. Þetta er rangt. Eins og þessi tafla sýnir, sem unnin er af Hagstofu Íslands hefur verðlagsábyrgðin á þessu árabili, 1964–1976, náð hámarki alls átta sinnum, þannig að á þessu tímabili eru þau fleiri árin, sem ábyrgðin hefur náð hámarki, heldur en hin.
Þá sagði ég einnig áðan í ræðu minni, að það væri ekki aðeins að hækkanir hafi orðið í krónutölum, heldur einnig í raunverðmætum, eins og sést í töflu II á bls. 7. Þar eru í töflunni útflutningsuppbætur úr ríkissjóði í millj. kr. á hverju ári verðlagsárin 1963–1976. Í krónum hafa útflutningsuppbæturnar á þessu árabili hækkað úr 160 millj. kr. í 2301 millj. kr. Til samanburðar er síðan sett framfærsluvísitala 1. febr. ár hvert. 1. febr. 1964 er hún sett 100. Framfærsluvísitalan á þessum árum hefur hækkað úr 100 í 965 stig. Í þriðju töluröð eru síðan útflutningsbæturnar eins og þær voru í upphafi þessa tímabils, 1963–1964, umreiknaðar með tilliti til framfærsluvísitölunnar á hverju ári, og sú upphæð, sem skráð er fyrir hvert ár, er sú upphæð sem útflutningsuppbæturnar á árinu 1963–1964 mundu hafa numið með fullri verðtryggingu, þannig að töluröðin sýnir á hverju ári um sig, hvaða útflutningsuppbætur hefðu verið greiddar úr ríkissjóði ef útflutningsuppbæturnar 1963–1961 hefðu notið fullrar verðtryggingar. Það kemur í ljós, að öll árin frá 1964 til ársins 1976 hafa útflutningsuppbæturnar, sem greiddar hafa verið, verið hærri en nemur þessari verðtryggingu, þó að þær hafi ekki náð hámarki á öllum árunum. Þær hafa farið allt upp í 68.9% fram yfir verðtrygginguna verðlagsárið 1973–1974, og verðlagsárið 1976–1977 voru útflutningsuppbæturnar í raunverðmætum 49% meiri en þær voru verðlagsárið 1963–1964 þegar útflutningsuppbæturnar námu þó fullri verðábyrgð. Þetta sýnir hver þróunin hefur verið með þessu kerfi, þ. e. a. s. að útflutningsbæturnar hafa ekki aðeins vaxið í krónutölu, heldur líka vaxið mjög stórkostlega í raunverðmætum og dugar þó ekki til.
Þegar litið er til þeirra staðreynda, hver útflutningurinn var á landbúnaðarafurðum fyrir gildistöku þeirrar verðábyrgðar, sem er fólgin í ákvæðum laga um framleiðsluráð landbúnaðarins, þá verður dæmið enn þá ljótara, því þá hafði það aldrei komið fyrir, að verðmæti útfluttra landbúnaðarafurða næði meiru en innan við 6% af heildarframleiðsluverðmæti landbúnaðarafurða á Íslandi. Á því tímabili, sem liðið hefur frá því þessi verðábyrgð ríkissjóðs tók gildi, hefur sem sé breytingin orðið sú að áður en lögin um verðábyrgðina voru sett hafði samanlagt verðmæti allra útfluttra landbúnaðarafurða aldrei numið yfir 6% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar í landinu. En eftir að lögin voru sett, og liðu reyndar ekki nema örfá ár þangað til, þá nægðu ekki einu sinni 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar til þess að greiða mismuninn á verðinu sem þurfti að fást fyrir þessar afurðir hérlendis, og því verði sem fékkst fyrir þær afurðir sem út voru fluttar. Þetta skipulag, sem hér hefur verið, hefur þannig beinlínis orðið þess valdandi að hvetja bændur til mjög mikillar framleiðsluaukningar, miklu meiri framleiðsluaukningu en þjóðarbúið raunar gat borið, eins og sést af því, að talið er að nú í ár þurfi að flytja út 35–40% af allri dilkakjötsframleiðslunni. Þetta eru auðvitað hryllilegar staðreyndir, en staðreyndir sem engu að síður verða ekki umflúnar.
Okkur sem flytjum þetta frv., er ljóst, að þótt brýna nauðsyn beri til að breyta hér til og það verðábyrgðarkerfi vegna útflutnings á landbúnaðarafurðum, sem í gildi hefur verið s. l. 18 ár, hafi gersamlega gengið sér til húðar, þá fylgir því mikill vandi að breyta til. A því er ekki nokkur vafi, eins og ég lýsti hér áðan, að verðábyrgðarkerfið hefur beinlínis ásamt með öðru stuðlað að mjög óæskilegum framleiðsluháttum í íslenskum landbúnaði, þannig að framleiðsla fyrir innanlandsmarkað með eðlilegum og óhjákvæmilegum sveiflum milli ára sökum árferðis og markaðsaðstæðna hefur ekki reynst markmið framleiðslunnar. Þess í stað hefur verið stofnað til mikillar offramleiðslu á ákveðnu sviði landbúnaðarframleiðslunnar í skjóli þess að ríkissjóður tryggi framleiðendum lágmarksverð fyrir framleiðsluna þótt mjög verulegan hluta hennar verði að flytja úr landi fyrir miklum mun lægra verð en íslenskum neytendum er ætlað að greiða. Þannig hefur í raun réttri verið horfið frá því markmiði landbúnaðarframleiðslunnar, sem var fyrir gildistöku ákvæðanna um verðábyrgð ríkissjóðs frá 1959, að taka mið af þörfum innanlandsmarkaðarins, og ég er sannfærður um að einmitt framkvæmd verðábyrgðarinnar á stóran hlut að því máli. Enda þótt nú sé fyrir allnokkru orðið ljóst að við svo búið verður ekki staðið, þá er okkur engu að siður ljóst, að ýmsum erfiðleikum er bundið að hverfa frá þeirri stefnu í útflutnings bótamálunum sem svo rík áhrif hefur haft á framleiðslustefnu í landbúnaði á s. l. 18 árum. T. d. er ljóst að ef snúið verður við blaðinu í einu vetfangi og breytt um kerfi verðábyrgðar ríkissjóðs vegna útflutnings landbúnaðarafurða, þannig að útflutningsbætur lækki mjög í einni svipan, þá mun slíkt hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir bændur. Viðbrigðin yrðu svo snögg að jafnvel enn alvarlegri vandi mundi skapast í landbúnaðarmálum — sá vandi, að ekki yrði með nokkru móti unnt að losna við verulegan hluta af framleiðslu búvara, einkum sauðfjárafurða, sem yrði að sjálfsögðu óskaplegt áfall fyrir íslenska bændastétt. Einmitt vegna þess, hversu lengi menn hafa látið viðvaranir Alþfl. um hvert stefndi í landbúnaðarmálum með óbreyttu útflutningsbótakerfi sem vind um eyru þjóta, er nú komið út í þær ógöngur sem raun ber vitni og ekki verður snúið á rétta braut nema með mikilli varúð og á talsverðum tíma.
Með frv. þessu er bent á færa leið með breytingu á núverandi kerfi verðábyrgðar sem er í senn varfærnisleg og tekin í áföngum á talsvert löngum tíma. Ég býst við að þm. sé öllum kunnugt um það, að núverandi skipan verðábyrgðar vegna útflutnings landbúnaðarafurða var tekin upp með brbl. frá 15. des. 1959, en þau voru í formi viðauka við lög nr. 94 frá 5. júní 1947, um framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl. Brbl. voru staðfest á Alþ. efnislega óbreytt síðar um veturinn. Tildrög þessarar lagasetningar voru þau. að fulltrúar neytenda og framleiðenda höfðu ekki komið sér saman um nýjan verðlagsgrundvöll landbúnaðarafurða þá um haustið, m. a. vegna þess að í þágildandi lögum voru ákvæð:. um að heimilt væri að hækka útsöluverð á landbúnaðarafurðum innanlands til þess að bæta upp halla á útfluttum vörum. Fulltrúar bænda höfðu krafist þess, að þessi heimild yrði notuð við verðákvörðunina haustið 1959, en það hafði þá aðeins örsjaldan verið gert, þar eð það sætti af eðlilegum ástæðum mikilli andstöðu að halli vegna útfluttra landbúnaðarafurða sökum meiri framleiðslu en samsvaraði innanlandsneyslu væri borinn af neytendum í formi hækkaðs útsöluverðs á búvörum innanlands. Þessari kröfu bænda svo og öðrum kröfum þeirra um hækkanir mótmæltu fulltrúar neytenda í verðlagsnefnd og hurfu úr nefndinni, svo að ekki reyndist unnt að verðleggja landbúnaðarvörur eins og lög stóðu til. Var þá ákveðið með brbl. að verð þeirra skyldi standa óbreytt.
Fyrir tilhlutan þáv. ríkisstj. tóku fulltrúar bænda og neytenda, þ. e. a. s. verkalýðshreyfingarinnar, upp viðræður sín á milli um endurskoðun á lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins með það að markmiði að koma sér niður á skipan verðlagsmála sem báðir aðilar gætu við unað. Slíkt samkomulag tókst. Samdar voru breytingar á framleiðsluráðslögunum sem ríkisstj. setti síðan með umræddum brbl. frá 15. des. 1959. Eitt atriðið í þeirri lagasetningu, sem samkomulag náðist um milli neytenda og bænda, var ný skipan á verðábyrgð vegna halla á útfluttum landbúnaðarafurðum, og hefur sú skipan staðið óbreytt síðan. Hana er að finna í 12. gr. laga um framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl., sem nú eru nr. 101 frá 1966. Í 1. mgr. þessarar 12. gr. segir, að óheimilt sé að bæta upp söluverð landbúnaðarafurða á erlendum markaði með því að hækka söluverð þeirra innanlands, Þar er sem sé lagt bann við því fyrirkomulagi, sem í lögum var fram til ársins 1959 og olli því ósamkomulagi sem áður var um getið.
Í 2. og 3. mgr. 12. gr. eru svo ákvæði um það, sem koma á í staðinn — verðábyrgð ríkissjóðs — og hljóða þau svo, með leyfi forseta:
„Tryggja skal greiðslu á þeim halla, sem bændur kunna að verða fyrir af útflutningi landbúnaðarvara, en þó skal greiðslan vegna þessarar tryggingar ekki vera hærri en svarar 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar viðkomandi verðlagsár, miðað við það verð, sem framleiðendur fá greitt fyrir afurðir sínar.
Hagstofa Íslands reiknar fjárupphæð þá, er ber að greiða framleiðendum vegna ákvæðis 2. mgr. þessarar greinar.“
Þegar hér er komið ber að hafa í huga. að fram til ársins 1959 þegar þessi ákvæði um verðbætur voru í lög leidd, hafði landbúnaðarframleiðslan ávallt tekið mið af markaðsþörfinni innanlands. Fram til þess tíma hafði útflutningurinn, þegar hann var allra mestur, aðeins numið 5.45% af heildarverðmæti framleiðslunnar. Það er því ekki undarlegt þótt engum hafi til hugar komið, þegar þessi lög voru sett, að það gæti gerst, að framleiðsla landbúnaðarafurða tæki slíkt stökk umfram innanlandsþarfir, að hámark verðábyrgðar yrði notað. Þegar um það mál var rætt á Alþ. í febrúarmánuði árið 1960, þótti þm. algjörlega fráleitt, að til slíks gæti komið og því þarflaust að samþ. brtt. sem fram kom frá einum af þm. Alþfl., Jóni Þorsteinssyni, þess efnis að verðábyrgðinni yrði skipað með öðrum hætti — sem sé þeim, að hún næði til mismunarins á því verði, sem fengist á erlendum markaði fyrir allt að 10% framleiðslunnar, sem út yrði flutt, og því verði, sem fengist innanlands fyrir sama magn.
Það er mjög lærdómsríkt að lesa umr. um þessa verðábyrgð frá vetrinum 1960, því þar kemur ljóslega fram hversu fráleitt menn töldu það, að til þess gæti komið að þessi verðábyrgð yrði nokkurn tíma nýtt að hámarki. T. d. lét þáv. landbrh. Ingólfur Jónsson svo um mælt í ræðu í Bd. Alþ. 11. mars árið 1960:
„Og nú er öllum sú staðreynd ljós, að landbúnaðarframleiðslan vex ekkert í hlutfalli við aukna notkun innanlands, ekkert í samræmi við fjölgun fólksins í landinu, og þess vegna er það rétt ... að það eru litlar líkur til þess, að útflutningsbæturnar verði þungur baggi á ríkissjóði ...“
Sem sé kemur það fram í umr., sem voru á Alþ. við setningu þessara laga, að engum alþm., ekki ráðh. og engum þm., sem þátt tók í umr. kom það til hugar þá, að útflutningurinn á íslenskum landbúnaðarafurðum gæti nokkurn tíma orðið svo mikill, að hámarki verðábyrgðar, 10% af samanlögðu heildarframleiðsluverðmæti landbúnaðarins, þurfti að beita. Þeim fannst þetta fjarstætt, enda var eðlilegt að mönnum fyndist það, þegar tillit er tekið til þess, að fram til þess tíma þegar lögin voru sett nam heildarútflutningur á landbúnaðarafurðum á Íslandi aldrei hærra en 5.45% af heildarverðmæti allrar framleiðslunnar.
En þannig voru spádómarnir þegar sett voru lögin um útflutningsuppbætur sem nú er verið að víkja að hugmyndum um breyt. á m. a. með flutningi þessa frv. þó liðu ekki nema rösk tvö ár frá því að þessi lög voru sett - eða fram til verðlagsársins 1963–1964 — þar til greiðsla verðábyrgðar úr ríkissjóði vegna útflutnings á landbúnaðarafurðum var komin í leyfilegt hámark, 10% af heildarverðmæti framleiðslunnar. Á svo stuttum tíma eftir setningu laganna tók landbúnaðarframleiðslan á Íslandi slíkt stökk. Og þessu hámarki hefur verðábyrgðin náð í sjö önnur skipti, eða í alls 8 ár af 14 frá árinu 1963–1964 til yfirstandandi árs, eins og sjá má í töflu I. Og í raungildi hafa útflutningsuppbæturnar einnig vaxið ár frá ári og orðið allt að 69% hærri í raunverulegum verðmætum en þær voru árið 1963–1961 þegar þær náðu þó 100% verðábyrgðarhámarki, þegar þær náðu 10% af samanlögðu heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Slík áhrif hefur sú leið, sem valin var í sambandi við verðtryggingu ríkissjóðs á útfluttri landbúnaðarvöru, haft á framleiðslustefnuna í landbúnaði. Og ég er ekki í nokkrum vafa um að einmitt það, hvernig þessari verðábyrgð er hagað í lögunum, er orsök þess, ein af fleirum, að þeirri framleiðslustefnu hefur verið fylgt, sem nú hefur leitt okkur út í það að þurfa að losa okkur við 35–40% af framleiðslu einnar stærstu búgreinarinnar í landbúnaði út úr landinu með ærnum tilkostnaði, vegna þess að ekki er til markaður fyrir framleiðsluna hér á landi.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að engum þm., hvorki þáv. hæstv. landbrh. Ingólfi Jónssyni né nokkrum öðrum þm., sem greiddi þessari lagasetningu atkv. á þinginu 1960, hafi þá til hugar komið að niðurstaðan yrði þessi. Ég er ansi hræddur um, að með þessari afgreiðslu á þinginu 1960 og með því að daufheyrast sífellt við öllum varnaðarorðum um hvert þessi stefna mundi leiða hafa þeir sem ábyrgðina báru á slíku, leitt yfir bændur meiri erfiðleika en menn gera sér grein fyrir, erfiðleika sem ég er hræddur um að taki íslenska bændastétt mörg ár að losa sig frá. En ýmislegt annað kemur einnig hér til. Sumir — jafnvel þeir sem áttu hlut að því samkomulagi bænda og neytenda sem gert var haustið 1959, og þeir, sem beittu sér fyrir lagasetningu í framhaldi af því — stóðu í þeirri trú þegar lögin voru sett, að með því væri aðeins verið að tryggja, að útflutningsuppbætur úr ríkissjóði gætu á ári hverju ávallt numið sem svaraði 10% af verðmæti hverrar útfluttrar afurðar fyrir sig — t. d. 10% af verðmæti útfluttra osta, 10% af verðmæti kindakjötsframleiðslunnar o. s. frv. En eins og bókstafur laganna hljóðar er ekki um slíkt að ræða. Framkvæmdin er sú, að fyrst er áætlað heildarframleiðsluverðmæti allrar landbúnaðarframleiðslu, hliðarbúgreinar þar með taldar og hlunnindi, það síðan lagt saman og reiknuð 10% af þeirri upphæð, sem samkv. bókstaf laganna er sú fjárhæð sem verðábyrgð ríkissjóðs á að nema. Eins og sjá má af töflu I á bls. 6, eru þannig ekki aðeins inni í heildarframleiðsluverðmætistölunni allar afurðir af nautgripum og sauðfé, heldur jafnframt framleiðsluverðmæti annarra afurða, svo sem afurða af hrossum, afurða af geitum afurða af svínum, afurða af loðdýrum, afurða af alifuglum, afurða af garð- og gróðurhúsarækt og tekjur af hlunnindum, svo sem af laxveiðum, svo sem af sölu veiðileyfa svo sem af silungsveiðum, svo sem af hrognkelsaveiðum, svo sem af selveiðum, svo sem af æðardúni. svo sem af eggjatöku, svo sem af fuglaveiðum og svo sem vegna rekatöku. Ef vel árar hjá dúnbændum, þá hækkar sem sagt verðábyrgð ríkissjóðs á útflutt lambakjöt. Ef vel gengur með rekatöku, þá hækkar verðábyrgð ríkissjóðs á útflutt lambakjöt. Ef vel gengur með geitarækt, svínarækt, loðdýrarækt, alifuglarækt, garð- og gróðurhúsaafurðir o. s. frv., o. s. frv., þá hækkar verðábyrgð ríkissjóðs á útfluttu dilkakjöti. Framleiðsluverðmæti allra þessara greina er sem sé reiknað út, lagt saman og síðan tekin 10% af heildartölunni og það er verðábyrgð ríkissjóðs. Sú tala, sem þá kemur út, er sem sé sú fjárhæð sem lögum samkv. verður það árið að koma úr ríkissjóði vegna verðábyrgðar á útfluttar landbúnaðarafurðir, sem fyrst og fremst eru kindakjöt og mjólkurvörur að einhverju leyti. Þannig verða tekjur, sem hljótast af starfsemi eins og alifuglarækt, tómata- og gúrkuframleiðslu, lax- og silungsveiðum, hrognkelsaveiðum, töku æðardúns, eggjatínslu og hirðingu rekaviðar, til þess að hækka greiðslur bóta úr ríkissjóði vegna útflutnings á lambakjöti, með þeim afleiðingum, að verðtryggð offramleiðsla á þessari einu afurð getur numið um eða yfir 30% af heildarframleiðslunni.
Auðvitað felur þetta ekki í sér eðlilega framleiðslustefnu með þarfir innanlandsmarkaðar og fjárhagsgetu þjóðarinnar fyrir augum. Vandinn er hins vegar sá, að við þetta kerfi höfum við Íslendingar búið. Sú staðreynd verður ekki umflúin og hún getur haft þau áhrif, að ekki verði til baka snúið nema með varúð og gætni, svo að stórkostlegt tjón hljótist ekki af fyrir landbúnaðinn og þjóðarbúið í heild.
Eins og áður er sagt byggist frv. það, sem hér er flutt, á því meginviðhorfi, að beygt verði frá hinni röngu stefnu og haldið til réttrar áttar, en þó með aðgát og varfærni sem nauðsynlegt er að beita eins og málum er nú komið. Ef fyrr hefði verið gripið á vandanum og ráðamenn hefðu ekki daufheyrst við varnaðarorðum Alþfl.manna hefði sjálfsagt verið hægt að gripa til fljótvirkari og útgjaldaminni ráða en felast í þessu frv. En staðreyndin er sú, að í hreinar ógöngur er komið þar sem fara verður að með gát, og í augu við þær staðreyndir verða menn að horfast.
Frv., eins og það er úr garði gert gerir ráð fyrir því, að þær breytingar verði gerðar á 12. gr. laganna um framleiðsluráð — þeirri grein sem fjallar um verðábyrgð ríkissjóðs vegna útfluttra landbúnaðarafurða — að miða ekki verðábyrgðina við samanlagt heildarverðmæti allrar landbúnaðarframleiðslunnar að hlunnindum meðtöldum, heldur aðeins við framleiðsluverðmæti þeirra aðalbúgreina tveggja — nautgriparæktar og sauðfjárræktar — sem útflutningsbætur eru einskorðaðar við. Þannig er lagt til, að verðábyrgð ríkissjóðs nái til útflutnings á afurðum hvorrar þessarar búgreinar um sig, þannig að hún megi mest verða sem samsvarar 10% af heildarverðmæti nautgripaafurða gagnvart útflutningi á afurðum þeirrar búgreinar og 12% af heildarverðmæti sauðfjárafurða vegna útflutnings á afurðum þeirrar búgreinar. Þannig yrðu útflutningsbæturnar gerðar upp fyrir hvora búgrein um sig og ekki leyfður flutningur verðábyrgðar milli búgreina, t. d. ef verðábyrgð yrði ekki að fullu notuð gagnvart útflutningi afurða annarrar búgreinarinnar, en útflutningur á afurðum hinnar yrði meiri en næmi verðábyrgð hennar. Þá er eigi heldur hægt samkv. frv. að flytja verðábyrgðargreiðslur milli ára frekar en nú á sér stað, þannig að verðábyrgð sem ekki nýtist eitt árið, fellur þá niður.
Okkur flm. þessa frv. er ljóst, að hér er um að ræða talsvert stórt skref í átt til eðlilegrar skipunar á þessum málum, sem m. a. mundi hafa það í för með sér að greiðslur vegna verðábyrgðar verðlagsárið 1976–1977 mundu lækka um 1 milljarð kr. frá því sem nú er, ef þessi breyting hefði tekið til þess verðlagsárs. Ef slík breyting yrði gerð í einu vetfangi — útflutningsuppbætur yrðu lækkaðar um 1 milljarð kr. — mundi sú ráðstöfun að sjálfsögðu koma mjög harkalega við bændastéttina, jafnvel lama að verulegu leyti sauðfjárbúskap í landinu. Einmitt þess vegna er lagt til í 2. gr. frv., að sett verði bráðabirgðaákvæði í lög um framleiðsluráð, þannig að markmiði 12. gr. eins og hún yrði ef frv. yrði samþykkt, væri náð í áföngum gagnvart þeirri búgrein — sauðfjárrækt — sem erfiðast ætti með að una þessum breytingum. Á verðlagsárinu 1977–1978 mætti verðábyrgð ríkissjóðs samkv. því, sem frv. leggur til, vegna útfluttra sauðfjárafurða nema allt að 20% af leiðsluverðmæti búgreinarinnar á þar næsta verðlagsári lækkaði hámark ábyrgðarinnar niður í 18% og svo áfram koll af kolli uns hún yrði komin niður í 12% á fjórum árum. Með þessu móti væri markinu náð í áföngum og breytingin ekki tilfinnanleg. Að sjálfsögðu erum við flm. reiðubúnir til að fylgja endurskoðun á áfangaskiptingunni og hlutfallstölum verðábyrgðarinnar, ef samstaða tækist um það hér í þinginu, enda skiptir slíkt engum sköpum, heldur hitt, sem er aðalatriði, að horfið verði til verðábyrgðarkerfis, sem hefur ekki þau óæskilegu og óeðlilegu áhrif á framleiðslustefnuna í landbúnaði, sem það kerfi hefur haft, er í gildi hefur verið s. l. 18 ár.
Með sama hætti viljum við flm. þessa frv. benda á, að í frv. felst ekki hin endanlega lausn þessara mála, heldur aðeins lausn í takmarkaðan tíma, til þess fallin að snúa af rangri braut yfir til réttrar áttar. Sem framtíðarstefnu í þessum málum má t. d. benda á verðábyrgðarkerfi, sem yrði þannig hugsað, að áætlað yrði hverjar sveiflur í framleiðslumagni landbúnaðarafurða telja mætti eðlilegar með hliðsjón af árferðissveiflum og þörfum innanlandsmarkaðar og ríkissjóður ábyrgist síðan þann mismun, sem kynni að skapast vegna útflutnings, innan eðlilegra umframframleiðslumarka, á því verði sem fengist fyrir útflutninginn annars vegar, og innanlandsverðinu hins vegar. Takmarkið er auðvitað það, að landbúnaðarframleiðslan sé ávallt fyrst og fremst í samræmi við innanlandsmarkaðsþarfir hvað varðar magn, gæði og fjölbreytni og ráðstafanir hins opinbera til stuðnings landbúnaði taki mið af óskum neytenda og þörfum atvinnuveganna fyrir aukna hagræðingu, bætta hagkvæmni og aukna framleiðni ásamt með eðlilegum launakjörum bænda miðað við aðrar stéttir þjóðfélagsins fyrir þá miklu vinnu og ábyrgð sem á þeim hvílir. Núverandi stefna í landbúnaðarmálum hefur ekkert af þessu getað tryggt, heldur þvert á móti. Það er því kominn tími til að gera þar á breytingu, ekki aðeins hvað varðar verðábyrgð á útfluttar landbúnaðarafurðir heldur einnig hvað varðar það fjármagn, sem ríkissjóður veitir með einum eða öðrum hætti til stuðnings við atvinnuveginn og til stuðnings við þá, sem þann atvinnuveg stunda, þannig að tryggt sé hvort tveggja í senn, að neytendur fái þá vöru, sem þeir óska eftir, á viðráðanlegu verði og bændur beri úr býtum eðlileg laun fyrir sín störf og sína miklu ábyrgð.
Á bls. 8 er tafla II, þar sem gerður er samanburður á greiddum útflutningsbótum úr ríkissjóði samkv. núverandi kerfi og bótagreiðslum eins og þær hefðu verið, ef ákvæði frv. um verðábyrgð hefðu verið í gildi í stað þeirra ákvæða sem gilt hafa undanfarin ár. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þá töflu. Hún skýrir sig sjálf og sýnir, eins og ég sagði áðan, annars vegar verðábyrgð, sem eingöngu er bundin við nautgripa- og sauðfjárafurðir, og hvenær slík verðábyrgð nær hámarki fyrir hverja búgrein um sig hvert ár um sig frá 1963–1977.
Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um frv. þetta að þessu sinni. Mér er ljóst að það getur verið umdeilanlegt, hvort gera á till. um að frv. fari til hv. landbn. eða hv. fjh.- og viðskn. Mér finnst á margan hátt eðlilegt að frv„ sem varðar svo miklar fjárhæðir og breytingu á lögum sem skuldbinda ríkissjóð fjárhagslega, fari til fjh.- og viðskn., og geri því um það tillögu.