06.03.1978
Neðri deild: 64. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2770 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)

101. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Páll Pétursson:

Herra forseti. „Þessu var aldrei um Álftanes spáð, að ættjörðin frelsaðist þar,“ sagði skáldið. Ég á raunar ekki von á því, að hv. þm., flm. þessa frv., Sighvatur Björgvinsson eða Benedikt Gröndal, né heldur forveri þeirra, hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason, leysi farsællega vanda landbúnaðarins þegar hann steðjar að. Ég er ekki með því að halda því fram, að stefna okkar í landbúnaðarmálum sé alfullkomin og það megi engu breyta eða ekkert megi breytast. Ég er þvert á móti á því, að þar þurfi ýmsu að breyta. En ég er ekki sammála anda þessa frv. og held ekki að það væri spor í rétta átt að samþykkja það.

Ég er sammála flm., frsm., hv. þm. Sighvati Björgvinssyni, að landbúnaðarframleiðslan væri minni á Íslandi og bændur færri ef farið hefði verið að ráðum Alþfl. í gegnum árin. Þá væru bændur þó ekki enn þá helmingi fleiri en bankamenn — en það dregur nú óðum saman með þessum tveimur stéttum. Það er hins vegar nokkru dýrara fyrir þjóðfélagið að halda úti bankamönnum, því að þeir hafa að vísu ekki helmingi hærra kaup en bændur, en þeir hafa talsvert miklu hærra kaup en bændur. Í Hagtíðindum, októberhefti 1977, birtist tafla, sem er gott að komi í þennan tilvitnanabunka sem hv. þm. gerði glögglega grein fyrir áðan. Þar, á bls. 185, er tafla 3, um tölu kvæntra framteljenda eftir byggðastigi og meðalbrúttótekjur þeirra á árinu 1976 eftir samandregnum starfsstéttum. Þar kemur í ljós, að starfslið banka og sparisjóða hafði 2 millj. 678 þús. í meðalbrúttótekjur. Hins vegar höfðu bændur ekki nema 1558 þús. Þetta var árið 1976. En þetta kerfi, sem við búum nú við og hv. þm. var að gagnrýna hér hörðum orðum, var ekki sett í neinu ógáti. Þetta var sett í stjórnartíð Alþfl. af sjálfri viðreisnarstjórninni, og það sem meira var: þetta var sjálfsögð og skynsamleg ráðstöfun. Að vísu munu Alþfl.- menn ekki eiga meginheiðurinn af þessu, heldur fyrrv. hæstv. landbrh. Ingólfur Jónsson, en sú breyting, sem gerð var þá, var alveg tvímælalaust spor í rétta átt, — alveg tvímælalaust, því að það náði auðvitað engri átt að jafna þeim halla, sem af og til kom af sölu útfluttra landbúnaðarafurða, niður á neyslu innanlands. Það fyrirkomulag hafði gilt áður og það hafði meira að segja staðist fyrir dómi. Neytendafulltrúar höfðu farið í mál út af þessu og það hafði gengið dómur um að þetta væri heimilt. Viðreisnarstjórnin og þá sérstaklega þáv. hæstv. landbrh., Ingólfur Jónsson, á þakkir skildar fyrir að kippa þessu til betri vegar.

Það er eðlilegt, að eitthvað sé flutt út af landbúnaðarvörum á hverjum tíma, því að markmið landbúnaðarins hlýtur að sjálfsögðu að vera það í fyrsta lagi að fullnægja þörfum þjóðarinnar fyrir þær búvörur, sem unnt er að framleiða í landinu, framleiða í öðru lagi hráefni í iðnaðarvörur til sölu innanlands og til útflutnings og framleiða svo búvörur til útflutnings og til gjaldeyrisöflunar, þegar henta þykir og þegar hinum tveimur þáttunum er fullnægt, — þ. e. a. s. að fullnægja þörfum þjóðarinnar fyrir búvörur og fullnægja þörfum iðnaðarins fyrir landbúnaðarafurðir.

Það náttúrlega gefur auga leið, og það veit ég að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson veit og sér við rólega yfirvegun, að ekki er hægt að framleiða gærur nema kjöt fylgi. Og þó að sagan segi að einum ræðugarpi hafi dottið í hug í þessum ræðustól, að það væri unnt, þá veit ég að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson er ekki á sama máli.

Hann hafði uppi, hv. 1. flm., hroðalegar spár um magn af óseldu dilkakjöti, sem væri til hér í landinu. Mér er kunnugt um að það er til nokkuð mikið af dilkakjöti í landinu þessa dagana. En þá þarf að snúa sér að því að koma þessu kjöti í lóg, ekki að fárast yfir því að þarna sé upprisið eitthvert voðalegt vandamál sem kalli á örþrifaráð. Það, sem fyrst þarf að gera, er einkum að hnekkja þeim rógi sem gengið hefur um óhollustu landbúnaðarafurða og m. a. er beint runnin undan rifjum framleiðenda gervifæðu. Það þarf að gera landbúnaðarvörur aðgengilegri fyrir kaupendur, m. a. með því að greiða þær niður. Síðan þurfa bændur að gæta hagsýni og sparnaðar í búrekstrinum. Það er þó nokkuð af búum á Íslandi, sem eru orðin of stór, þau eru orðin óhagkvæmar rekstrareiningar, menn hafa farið út í verksmiðjubúskap, sem við höfum ekkert við að gera, og alla vega bæði félagslega og fjárhagslega mjög óhentugar og óskynsamlegar rekstrareiningar. Þar á reyndar stjórnunarþátturinn, lánakerfi og leiðbeiningaþjónusta ofurlitla sök að hafa ekki gripið fyrr í taumana til að stöðva þá þróun, því að hún var orðin augljós nokkru áður en gripið var til stöðvunaraðgerða eða reynt að bremsa. En þetta hafðist upp úr skinnvæðingarfjasinu sem reið hér húsum í landbúnaðarumr. fyrir svona 10 árum. Síðan þarf að kippa tollamálum landbúnaðarins í lag. Það er að sjálfsögðu óviðunandi, að landbúnaðurinn sitji ekki við sama borð í tollamálum og hvað varðar söluskatt og vörugjald af vélum og tækjum sem flytja þarf inn til landbúnaðarframleiðslu. Það þarf að lækka byggingar- og ræktunarkostnað í sveitum með stöðlun bygginga og félagslegum framkvæmdum á því sviði, og það þarf að endurgreiða eða fella niður tolla og söluskatt af efni til þessara framkvæmda á sama hátt og t. d. er gert vegna skipakaupa. Það eru hliðstæð framleiðslutæki sem þarna er verið að setja upp.

Ég er ekkert viss um að það útflutningsbótakerfi og sá háttur, sem hafður hefur verið á útflutningsbótum og niðurgreiðslum og framlögum til landbúnaðarframkvæmda, sé sá heppilegasti. Hv. frsm. gerði allmikið veður út af því í upphafi ræðu sinnar, að hann vantaði upplýsingar bæði um „ballansinn“ á gjaldeyri í gjaldeyrismálunum og hvernig væri notað það fjármagn, sem til landbúnaðar færi, hvort það væri beinlínis til þess að skapa umframframleiðslu. Það er tiltölulega lítið, held ég, af því fjármagni, sem fer til landbúnaðarins, sem verður þess beinlínis valdandi, að birgðasöfnun verði mjög mikil. Mér finnst það þó orka tvímælis, hvort rétt er, t. d. þegar ekki er um kal að ræða, að greiða styrk á ræktun fóðurkáls. En sú upphæð er sáralítill hluti af heildarframlögum til landbúnaðarmála. En ég gæti vel ímyndað mér, að heppilegra væri að sameina þessi framlög að meira eða minna leyti í einhvers konar stjórnunarsjóð landbúnaðarins, sem síðan yrði fenginn t. d. framleiðsluráði í hendur og notaði þessa fjármuni til þess að hafa stjórn á sölunni innanlands og þá útflutningi búvöru eftir efnum og ástæðum hverju sinni. Það er auðvitað sjálfsagt og þarf ekki að taka það fram og um það eigum við allir að vera sammála, að það er rétt að nota hverja krónu, sem til þessara mála fer, á sem allra hagkvæmastan hátt. Og ég hygg að þetta væri leið sem væri vænlegri, að sameina þetta á eina hendi og undir hatti bænda sjálfra, heldur en með þeim hætti, sem nú er, að hafa þetta greint sundur í útflutningsbætur og í niðurgreiðslur.

Þá þarf að skapa svigrúm til þess að hagræða framleiðslu landbúnaðarafurða í landinu, þannig að ef þarf að flytja út, þá sé hægt að flytja út þær vörur sem skynsamlegt er að flytja út og gefa skásta verðið. En þess hefur ekki verið gætt. Sum af okkar framleiðslufyrirtækjum og vinnslufyrirtækjum hafa ekki haft fjárhagskringumstæður til þess að einbeita sér að þeirri framleiðslu, sem besta verið hefur gefið á erlendum mörkuðum.

Það er rétt, að núna er vandinn nokkur hvað varðar framleiðslu dilkakjöts og það eru nokkrar birgðir dilkakjöts í landinu, sem hafa safnast upp á undanförnum árum. En ég vil taka það sérstaklega fram, að ekki er hægt að kenna sauðfjárbændum eða framleiðslu sauðfjárafurða sérstaklega um það, því að sauðfjárframleiðslan hefur í sjálfu sér vaxið mjög lítið undanfarin ár. Það er neyslan, sem hefur dregist saman, og hæstv. ríkisstj. hóf að greiða niður nautgripakjöt. Það varð framleiðslubreyting: Menn fóru að setja á kálfa og framleiddu mikið nautgripakjöt á fáum árum og voru svo í vandræðum með að selja það. Síðan var farið að greiða nautakjötið niður og þá þrengdist náttúrlega markaðurinn að sama skapi fyrir dilkakjöt.

Ég vitnaði í upphafi máls míns í Þorstein Erlingsson, ljóðlinur hans eða efasemdir hans um að ættjörðin frelsaðist á Álftanesinu. Ég er ekkert að fullyrða það á þessu stigi málsins, að hv. þm. Alþfl. kunni ekki að koma til með að leysa einhvern tíma í framtíðinni vanda landbúnaðar á Íslandi, en ég held að þeir geri það ekki í þetta skiptið.