07.03.1978
Sameinað þing: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2790 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

83. mál, raforkusala á framleiðslukostnaðarverði til stóriðju

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Í þessari ræðu fólst að vísu ekki mikil viðbót við allt það langa mál, bæði í ræðu og riti, sem viðhaft hefur verið um álbræðsluna í Straumsvík, stóriðju og orkusölu til hennar. Ég ætla ekki í þessum umr. að flytja langa ræðu, en hins vegar vildi ég taka nokkuð fram, sem mér finnst skipta verulegu máli.

Það getur vel verið, að sumt sé rétt sem fram kom hjá hv. 1. flm., t. d. um takmarkanir á orkusölusamningum, hvað þeir eigi að vera til langs tíma og hvenær þeir eigi að vera endurskoðaðir, með hvað stuttu millibili o. s. frv. Það er sjálfsagt að hafa það til athugunar í framtíðinni. En það segir í þessari till. og í upphafi grg. þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Dapurleg reynsla af þeim samningum, sem Íslendingar hafa gert um sölu á rafmagni til orkufreks iðnaðar gerir það brýna nauðsyn að sett verði löggjöf á þann hátt sem hér er lagt til og tryggi sú löggjöf að þannig verði ekki á málum haldið í framtíðinni.“

Það er einnig sagt, að orkusölusamningar við stóriðjufyrirtæki hafi verið gerðir þannig, að við Íslendingar þurfum að greiða niður þessa orku. Þetta er á ákaflega miklum misskilningi byggt, annaðhvort vankunnáttu á því, sem raunverulega hefur gerst hér á landi, eða einhverjum misskilningi, sem væri ágætt að leiðréttur yrði af þeirri nefnd sem fær þetta mál til meðferðar. Mundi ég vilja leggja til, að sú nefnd, sem fær þetta mál til meðferðar, athugaði alveg sérstaklega, svo að það lægi fyrir, hvað bað eru miklar hreinar gjaldeyristekjur sem við Íslendingar höfum haft af álbræðslunni, en það hefur verið reynsla okkar um mörg undanfarin ár, að hreinar gjaldeyristekjur skapi margföldun á þjóðartekjum Íslendinga. Þetta er að vísu búið að ræða áður og setja fram í grg. og ræðum um álbræðsluna þegar umr. um hana fóru fram, en það væri rétt að þetta kæmi fram og yrði athugað af nefndinni sem fær þetta mál til meðferðar.

Ég kvaddi mér hljóðs vegna þess, að ég rakst á tímarit sem gefið er út á vegum ÍSAL,s, en bar er talað um rafmagnsverðið til ÍSALs í ákaflega stuttri grein. Þar er sérstaklega vitnað í það, að 21. febrúar 1977 hafði birst í Dagblaðinu yfirlýsing frá Landsvirkjun um þetta mál, undirrituð af Halldóri Jónatanssyni framkvæmdastjóra og Jóhanni Má Maríussyni yfirverkfræðingi. Grg. þeirra nefnist: Orkuverð Landvirkjunar til álbræðslunnar í Straumsvík. Ég álít að n., sem fær þetta mál til athugunar, ætti vissulega að kynna sér vel það sem kemur fram í þessari grg., því niðurstaða þessara tveggja manna er auðvitað allt önnur en fram kom hjá 1. flm. varðandi raforkusölusamninginn við ÍSAL. En þessi grg. Landsvirkjunar var gerð, eins og sagt var þar, til þess að upplýsa að hvað miklum hluta orkusölusamningurinn við ÍSAL stendur undir þeirri greiðslubyrði sem öxluð var með byggingu Búrfellsvirkjunar. Það var lögð fram hér í þinginu grg., þegar rætt var um raforkusölusamninginn til ÍSALs á sínum tíma sem sýndi fram á það, að ef ekki væri seld þessi raforka, sem þar var um að ræða, til stóriðju, þá mundi verða miklu dýrara, hvernig svo sem væri farið að, að virkja með smærri virkjunum eða stórum virkjunum, en ef raforkan væri seld til álbræðslunnar. Það var svo mikið, að það var fyrstu árin margfaldur kostnaðurinn af orkunni ef ekki yrði gerður samningurinn um stóriðjuna. En með þessari stuttu grein sem ég vitnaði til, og grg. framkvæmdastjóra Landsvirkjunar og yfirverkfræðings hennar þá fylgir skýrsla um greiðslubyrðina og hvernig hún mundi vera án ÍSALs eða með ÍSAL. Þar segir m. a.:

„Í ofangreindum greiðslubyrðum“ — sem ég skal ekki fara út í hér til að orðlengja ekki um of — „hefur verið reiknað með vöxtum og afborgunum af öllum lánum, sem tekin hafa verið vegna Búrfellsvirkjunar, aðalspennistöðvarinnar við Geitháls, gasaflsstöðvarinnar við Straumsvík ásamt báðum háspennulínunum frá Búrfelli og Þórisvatnsmiðlun, hér nefnd einu nafni Þjórsárvirkjun — eftir þessu er reiknað, svo og öllum öðrum kostnaði við rekstur þessara mannvirkja.“

Og hér lýkur tilvitnuninni í grg. þessara tveggja manna sem ég nefndi áðan.

En þetta þýðir, að ÍSAL mun á samningstímabilinu um raforkuna greiða nær allan kostnað eða 96.9% virkjunarinnar, en notkun ÍSALs er nú um 2/3 af uppsettu afli. Það segir enn fremur í þessari grg., að ekki sé reiknað í dæminu með verðbólgu eða væntanlegri stækkun álversins um 20 mw. Segir orðrétt þar á eftir, með leyfi forseta:

„Í ofangreindum tölum er langstærsti hlutinn vextir og afborganir lána, sem ekki breytast með verðbólgu í framtíðinni. Tekjur frá ÍSAL vaxa hins vegar með verðbólgu. Þegar gerð er núvirðisathugun á tekju- og gjaldeyrisstreymi og 5–10% árleg verðbólga tekin með í reikninginn, sem hefur nú verið miklu meiri, kemur í ljós, ef litið er yfir 25 ára tímabil eða til ársins 1994, að tekjurnar frá ÍSAL á þessu tímabili gera meira en greiða upp stofnkostnað Þjórsárvirkjunar ásamt öllum fjármagnskostnaði og einnig allan rekstrarkostnað á sama tímabili.

Aðeins ef teknar eru þær tekjur sem menn hafa af raforkusölusamningnum til ársins 1994, segir hér. Og þá er búið að greiða að fullu upp, bara með raforkusölusamningnum, Þjórsárvirkjunina. Að lokum segir svo í þessari áður tilvitnuðu grg.:

„Dæmið er í rauninni enn hagstæðara en þetta því Þórisvatnsmiðlun nýtist jafnt fyrir Sigölduvirkjun og Hrauneyjafossvirkjun og einnig hluti háspennulínanna og spennistöðvarinnar við Geitháls, en ekki er tekið tillit til þess að framan. Þá má ekki gleyma því, að virkjanirnar mala gull eftir að lán vegna þeirra hafa verið greidd upp.“

Og það er auðvitað öllum ljóst, enda ekki bornar á það neinar brigður, að þessar virkjanir munu geta starfað marga áratugi eftir þetta og malað gull fyrir Íslendinga, þegar búist er við að þær séu algjörlega fullgreiddar bara af raforkusölunni. En það er miklu meira en raforkusalan sem við Íslendingar fáum frá þessari stóriðju ÍSALs. Það eru bæði skattgjaldstekjur og það er fyrir vinnu sem þar er unnin. Það er fyrir flutninga, — mjög miklar upphæðir fyrir flutninga á flutningaskipum vegna álbræðslunnar. Einnig hafa mörg fyrirtæki haft ákaflega mikinn hagnað af ýmiss konar vinnu fyrir ÍSAL og á ég þar sérstaklega við járnsmíðafyrirtæki sem hafa unnið verulega notadrjúg verk, sem eru mikils virði, bæði meðan þau voru unnin og eins fyrir framtíðina.

Það lítur kannske fljótt á litið vel út, að það megi aldrei selja, hvorki stóriðjufyrirtækjum né öðrum, raforku undir kostnaðarverði. Eigendum álverksmiðjunnar var seld raforkan á kostnaðarverði, ekki undir kostnaðarverði. Hins vegar er alveg augljóst, að það er mjög auðvelt að benda á þau tilfelli að mjög hagkvæmt gæti verið fyrir Íslendinga að selja einhvern hluta af raforku sinni undir kostnaðarverði vissan tíma, takmarkaðan tíma, til stóriðjufyrirtækja, í stað þess að láta vatnið renna til sjávar og fá ekki neitt greitt fyrir það sem þessar virkjanir geta þó gefið, jafnvel þótt rafmagnið sé borgað undir kostnaðarverði, sem þó hefur ekki verið raunin á. Þessir samningar við ÍSAL hafa svo verið endurskoðaðir og raforkuverðið hækkað. Ég hygg, að þeir séu yfirleitt og hafi alltaf verið mjög í hag okkur Íslendingum. — Þó að ég ætli mér ekki að fara út í það nú og hafi ekki upplýsingarnar hjá mér, þá bar ég saman á sínum tíma, og það liggur fyrir í Alþingistíðindum, hagnað þann sem Norðmenn hefðu haft af álbræðslum við Husnes sem var nákvæmlega jafnstór og þessi álbræðsla eftir að hún var fullgerð. Þar var gífurlega mikill munur. Hagnaður Íslendinga var miklu meiri en Norðmanna af Husnesverksmiðjunni. Þetta liggur fyrir í skjölum Alþ. og eldri ræðum um þetta mál. og vænti ég að n., sem fær þetta mál til athugunar, muni kannske athuga þetta mál líka. En ég legg megináherslu á það, vegna þess hvernig þessi þáltill. um raforku á framleiðslukostnaðarverði til stóriðju er orðuð að n., sem fær málið til meðferðar, kynni sér hver sé hreinn gjaldeyrishagnaður Íslendinga af ÍSAL verinu í heild og hve það skapar miklar auknar þjóðartekjur fyrir okkur Íslendinga miðað við reynslu okkar Íslendinga undanfarin ár. Þetta væri mjög æskilegt að lægi fyrir.

Grg. þessarar till. endar með eftirfarandi orðum, með leyfi forseta:

„Flm. fluttu till. til þál. um þetta efni í fyrra, en hún varð ekki útrædd þá. En þeir telja enn, að þetta ástand sé óviðunandi og óhjákvæmilegt sé að sett sé sérstök löggjöf um þetta efni hið bráðasta, þannig að tryggt verði að aldrei geti komið til þess, að almennir notendur greiði niður raforkuverð til orkufreks iðnaðar og glati þannig því hagræði sem við ættum að geta haft af okkar dýrmætu orkulindum.“

Svo lýkur grg. En af þessu tilefni vil ég fullyrða það, að Íslendingar hafa aldrei greitt niður raforkuverð til stóriðjunnar vegna álbræðslunnar í Straumsvík. Hún hefur hins vegar gert raforkuverð miklu ódýrara Íslendingum en það ella mundi hafa orðið. Það liggja fyrir skýrslur um það í skjölum þingsins frá því að þetta mál var til umr. á sínum tíma, og er auðvelt fyrir n., sem fær málið til athugunar, að kynna sér það ítarlega og nánar.

Þó að ýmislegt kunni að hafa verið rétt í því, sem hv. 1. flm. sagði að rétt væri að hafa til athugunar — eins og ég nefndi í upphafi — við gerð orkusölusamninga þá er hér einnig haldið fram alröngum skilningi á orkusölusamningnum við ÍSAL, miðað við þá reynslu sem fyrir liggur. Þetta er augljóst. Það er gengið út frá því hérna — eða það virðist gengið úr frá því bæði hér og í umr. um aðra raforku á Íslandi að það kosti ekkert að dreifa raforkunni um allt landið. En auðvitað verður að taka þann mikla kostnað með í reikninginn þegar verið er að bera saman raforku til stóriðju og almennrar notkunar í landinu, hvort sem er til húsahitunar eða annarrar notkunar landsmanna.

Ég ætla þá ekki að hafa þessa ræðu lengri og skal nú ljúka máli mínu, en vil benda hv. flm. á þessa skýrslu framkvæmdastjóra Landsvirkjunar og yfirverkfræðings, sem birtur er kafli úr — styttur kafli um rafmagnsverð til ÍSALs í málgagni sem ÍSAL stendur að og gefur út og kallað er ÍSAL-tíðindi. Að öðru leyti skal ég ekki lengja umr. með því að ræða frekar um það sem margoft er búið að taka fram, en virðist að litlu leyti vera tekið tillit til, því að haldið er áfram að segja sömu vitleysurnar aftur og aftur, hversu oft sem þær hafa verið leiðréttar.

Fleiri orð skal ég svo ekki um þetta hafa, en ég bæti því við að ég sé ekki ástæðu til að segja neitt um það, sem hv. 1. flm. sagði um raforkusöluna til járnblendiverksmiðjunnar. Því máli er ég of ókunnugur til þess. Af sérstökum ástæðum hef ég ekki getað fylgst nógu vel með því máli. Aftur á móti vil ég að það komi fram nú, að þegar það mál var til atkvgr. gerði ég grein fyrir atkv. mínu, ég væri á móti því, að Íslendingar ættu 55% af hlutafénu og Norðmenn 45%. Íslendingar ættu ekki að eiga nema kannske svona 5%, en tryggja sér rétt til þess að auka hlut sinn eftir því sem aðstæður leyfðu og við hefðum peninga til. Því miður höfðum við á þessum tíma ákaflega lítið fé og höfum ekkert fé haft til þess að leggja í það að eiga 55% af hlutafé svo dýrs fyrirtækis. Þess vegna hefur orðið að taka það allt að láni erlendis og það verður náttúrlega mjög þungt í vöfum í framtíðinni og getur ekki vel farið nema verksmiðjan eigi eftir að sýna, er fram í sækir, að hún skili góðum árangri, sem ég auðvitað óska að hún geri og geti orðið þannig til velfarnaðar fyrir landsmenn. Ég tel að það hafi verið ákaflega óvarlegt og sé ákaflega óvarlegt að hugsa sem svo, að það sé einhver ávinningur fyrir okkur Íslendinga að eiga endilega meiri hluta af hlutafénu. Hins vegar ættum við að geta tryggt okkur það í samningum, að við eignuðumst smátt og smátt meira í stóriðjuverunum en í upphafi, og tryggt okkur rétt til þess að eignast allt að helmingi eða a. m. k. rúman helming, ef svo ber undir, ef mönnum þykir það henta í það skipti. — Ég skal svo ekki tefja umr. frekar um þetta mál að svo komnu.