07.03.1978
Sameinað þing: 53. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2794 í B-deild Alþingistíðinda. (2043)

83. mál, raforkusala á framleiðslukostnaðarverði til stóriðju

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að segja nokkur orð í sambandi við þetta mál, enda þótt það kunni að verða að ýmsu leyti líkt því sem sagt var hér í fyrra, þegar sams konar mál var á dagskrá. Ég er hér með Alþingistíðindi, umræðuhefti frá umr. í fyrra, og mér virðist að fátt komi nýtt fram í umr. nú, a. m. k. það sem af er. En eigi að síður þykir mér rétt að fara nokkrum orðum um málið. Till., sem flutt var hér í fyrra af sömu þm. og sú till. sem nú er flutt, var svipuð og sami tilgangurinn er með þeim báðum.

Ég tel rétt að minna á að á Íslandi hefur alla tíð verið einhæft atvinnulíf og framleiðslan yfirleitt of lítil og farið mikið eftir árferði. Landbúnaður og sjávarútvegur hafa haldið lífinu í þjóðinni á liðnum árum og öldum, en tekjur þjóðarbúsins og almennings voru yfirleitt litlar meðan atvinnutæki voru afkastalítil og framleiðslan fábreytt. En með véltækni og auknum afköstum hafa fjárráð manna aukist og lífskjörin batnað með meiri þjóðartekjum, eftir að farið var að nýta orkulindir og auðlindir landsins, virkja vatnsföllin, virkja jarðhitann og reyna að láta þessa orkugjafa mala gull til hagsbóta fyrir þjóðina. Það má segja, að eftir að vélaöldin gekk í garð hafi iðnaðurinn orðið þróttmesti atvinnuvegurinn í mörgum löndum. Iðnrekstur hefur margfaldað þjóðartekjur víða um heim og staðið undir kostnaði við margvíslegar framkvæmdir og þjónustu við almenning. En við Íslendingar tókum tæknina í þjónustu okkar löngu seinna en flestar aðrar þjóðir og þess vegna bjuggum við í fátækt við úrelt vinnubrögð, þegar aðrar þjóðir höfðu í áratugi notið aukinnar framleiðslu og framfara vegna véltækninnar og verktækni. Í seinni tíð hafa Íslendingar tileinkað sér véltækni og stuðlað að fjölbreytni í framleiðslu. Tekjur hafa aukist, lífskjör og framfarir hafa orðið miklar á tiltölulega stuttum tíma og má því segja. að lífskjör hér á landi séu að mestu leyti og kannske öllu leyti sambærileg við það sem gerist hjá nágrannaþjóðunum. En það verður því aðeins til frambúðar að við reynum að nýta þær auðlindir, sem í landinu eru, og auka framleiðsluna. Allt er undir því komið, að tekjur í þjóðarbúið verði miklar og mikið til skiptanna.

Iðnaðurinn hefur á s. l. árum orðið þýðingarmikill í þjóðarbúskap okkar. Að mestu leyti er um mörg og smá fyrirtæki að ræða, en þau veita fjölda manna atvinnu og framleiða fjölbreyttar vörur til nota í landinu, sem áður þurfti að flytja inn í landið. Útflutningur iðnaðarvara hefur aukist í seinni tíð og er umtalsverður, sérstaklega á ullar- og skinnavörum og er gott að minnast þess þegar rætt er um landbúnaðinn af misjafnlega miklum skilningi. Gjaldeyristekjur fyrir útfluttar iðnaðarvörur eru verulegar og fara árlega vaxandi.

Menn hafa misjafnar skoðanir á svonefndri stóriðju, sérstaklega ef útlendingar koma við sögu. Það er sjálfsagt að vera varkár gagnvart útlendingum, en að vera með mikla minnimáttarkennd, þegar um samninga við þá er að ræða, held ég að sé tæplega hollt. Það er nauðsynlegt að nota alla skynsemi og varúð og tryggja að samningar, sem gerðir verða, séu okkur í hag. Fiskiðnaður, sements- og áburðarframleiðsla telst til stóriðju og er að öllu leyti í eigu Íslendinga. Við þyrftum að stækka sementsverksmiðjuna, og ef það væri gert gæti vel komið til mála að framleiða sement til útflutnings. Við þurfum að endurbæta áburðarverksmiðjuna og spara með því gjaldeyri og jafnvel framleiða ódýrari áburð á þann hátt, eins og minnst var á áðan, en þetta hefur dregist vegna þess að okkur vantar fjármagn.

Álverksmiðjan er að öllu leyti í eign erlendra aðila, en kísilgúrverksmiðjan er sameign Íslendinga og útlendinga. Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga verður að meiri hluta í eigu okkar Íslendinga, 55%, en 45% í eigu Norðmanna.

Það eru ýmsir, sem spá illa fyrir Grundartangaverksmiðjunni. Ég er einn af þeim sem greiddu atkv. með lögunum og samningnum við Elkem-Spigerverket í því skyni að reisa verksmiðju á Grundartanga. Það er rangt, sem sagt var hér áðan, að það hafi verið hálfgerðir nauðungarsamningar sem þar voru gerðir. Ég vil vænta þess, að verksmiðjan við Grundartanga gefi þjóðarbúinu góðan arð. Það er lægð í verðlagi stáls á þessum tímum, en þetta hefur verið alltaf öðru hverju. Norðmenn, sem best þekkja til rekstrar járnblendiverksmiðja í 50 ár, segja að það hafi alltaf verið verðsveiflur á járnblendi. (Gripið fram í.) Ég hef talað við þá og þarf ekkert að láta aðra segja mér hvað þeir segja. Ég hef talað við forstöðumenn Spigerverket, og ég veit að þeir hafa ekkert verið að skrökva að mér eða öðrum sem þeir hafa talað við. (StJ: Ég er að tala um grg. sem fylgdi frv.) Og þeir hafa talað um fimm ára tímabil. Á 50 ára starfstíma norsku verksmiðjanna hafa alltaf komið vond ár inn á milli, eitt og tvö í einu. En hvert 5 ára tímabil hefur jafnað sig upp og gefið fyrirtækinu arð. Það er best að byggja, þegar lægð er í verðlaginu, og hafa lokið við að byggja og byrja framleiðslu þegar verðlagið fer að rísa. Meðan nauðsynlegt er að hafa járnblendi við stálframleiðslu, meðan ekki hefur fundist annað efni til stálframleiðslu heldur en járnblendi, þá verður markaður fyrir það, misjafnlega mikill á hverju ári og verðið misjafnlega hátt. Norðmenn hafa grætt á þessari framleiðslu, og þess vegna vildu þeir leggja peninga í þetta fyrirtæki á Grundartanga. (Gripið fram í.) Reynslan sker úr því, hvernig verksmiðjan gengur. Ég held að það sé ástæðulaust að vera með svona miklar hrakspár eins og sumir ágætir alþm. hafa verið með, og ekki væri skynsamlegt að stöðva framkvæmdir nú og láta það fjármagn, sem komið er í verksmiðjuna, sem er umtalsvert, liggja rentulaust. Það er með þessa verksmiðju eins og aðrar byggingarframkvæmdir dýrast að vera lengi að byggja. Það er ódýrast og hagkvæmast að hafa byggingartímann sem stystan, ef ekki þarf að yfirborga mönnum til þess að stytta tímann. Þess vegna er það alger fjarstæða, sem hér hefur komið fram, að leggja til að framkvæmdum sé hætt eða þær séu tafðar. Það er ekki búmannleg tillaga.

Iðnaður er nú þegar ríkur þáttur í atvinnulífi þjóðarinnar og stendur undir kostnaði við nýbyggingu í landinu og eykur þjóðartekjurnar. Í fámennu þjóðfélagi ber margt að varast, þegar ráðist er í fjárfrekar framkvæmdir og stofnað er til atvinnurekstrar í stórum mæli. Þetta gera Íslendingar sér ljóst, að það þarf að fara með varkárni, þegar ráðast skal í miklar og stórar framkvæmdir, en sú varkárni má ekki ganga það langt, að það stöðvi allt og verði til þess, að menn þori ekki að gera það sem getur orðið hagkvæmt fyrir þjóðarheildina.

Stóriðju fylgdi áður mengun og atvinnusjúkdómar, en þekking og tækni hefur aukist og er nú talið, að með nýjustu hreinsitækjum megi útiloka mengun og óhollustu í verksmiðjum innanhúss og utan. Þannig verður það með Grundartangaverksmiðjuna. Þannig verður það með álverksmiðjuna, þegar nýju hreinsitækin eru þar komin upp.

Álverksmiðjan í Straumsvík er stærsta stóriðjufyrirtæki hér á landi. Þegar samið var við Svisslendinga um byggingu verksmiðjunnar, var mikil mótstaða gegn því af þáv. stjórnarandstöðu. Síðan hafa ýmsir þm. og fleiri haldið áfram áróðri gegn álverksmiðjunni í Straumsvík. Þeirri fjarstæðu er haldið fram, að Íslendingar hafi skaðast á samningunum um verksmiðjuna og raforkan sé seld til verksmiðjunnar undir kostnaðarverði. Þessu er enn haldið fram og má það merkilegt teljast, þar sem staðreyndirnar segja allt annað. Sannleikurinn er sá, að Íslendingar hafa hagnast mjög á því að verksmiðjan var byggð hér á landi, eins og tölur sýna. Vegna verksmiðjunnar var mögulegt að virkja Þjórsá í einum áfanga við Búrfell. Þess vegna var virkjað afl um 60% ódýrara en orðið hefði í smærri virkjun á hagstæðasta stað. Það eru ýmsir hér í hv. d. sem minnast þess, að þegar rætt var um frv. til l. um virkjun Þjórsár við Búrfell, þá voru hér þm., sem fluttu till. um að virkja litla á — sem réttara væri að kalla læk — í Árnessýslu í stað þess að vera að ráðast í þetta dýra fyrirtæki, virkjun við Búrfell. En það var meiri hl. á Alþ. sem skildi, að það var ekki búmannslegt að fara að gera þessa litlu virkjun og skapa þannig orkusvelti um langa framtíð hér á Suðurlandi.

Raforka til almenningsnota hefði orðið allt að því 60% dýrari frá smærri virkjun en reynst hefur frá Þjórsárvirkjun. Það er einnig líklegt, að hérna sunnanlands væri svipað ástand í orkumálum nú og er í ýmsum öðrum landshlutum. Ef ekki hefði verið stigið þetta heillaspor, ef brautin hefði ekki verið rudd með fyrstu stórvirkjun í Þjórsá, væri sennilega orkuskortur hérna sunnanlands eins og er og verið hefur viða annars staðar. Að vísu hefur nú verið bætt úr orkuskortinum norðanlands með orku frá Sigölduvirkjun. En hverjum dettur í hug, að Sigölduvirkjun væri nú fyrir hendi, ef ekki hefði verið byggð álverksmiðja? Ef ekki hefði verið hér orkufrekur kaupandi, þá væri engin Sigölduvirkjun. Þá hefði verið tilgangslaust að leggja í þann kostnað að leggja byggðalínu norður og þá hefði orkuskortinum fyrir norðan ekki verið afstýrt. Vegna álverksmiðjunnar hefur Landsvirkjun getað afskrifað virkjanir og línur og haldið áfram fjárfrekum framkvæmdum til hagnaðar fyrir þjóðarheildina. Það er vegna álverksmiðjunnar, að nú er ljós og hiti fyrir norðan, annars væri þar orkuskortur og ekki straumur á byggðalínunni. Yfirverkfræðingur Landsvirkjunar hefur sagt: Eftir að samningurinn var gerður við ÍSAL hafa tekjur af orkusölunni staðið undir öllum lánum vegna virkjunarinnar við Búrfell. ÍSAL notar 60% af orkunni frá Búrfellsvirkjun, en tekjur af orkusölunni frá ÍSAL standa undir öllum lánum og meira en það, standa undir öllum lánum af linu frá Búrfelli að Geithálsi, öllum lánum af aðveitustöðvum, þessari dýru spennistöð og öllum lánum vegna kostnaðar við vatnsmiðlunina í Þórisvatni. En vatnsmiðlunin við Þórisvatn er ekki einungis gerð fyrir Búrfellsvirkjun. Hún er ekkert síður gerð fyrir Hrauneyjafossvirkjun og hún er einnig gerð fyrir væntanlega virkjun við Sultartanga. Þess vegna er ekki rétt að skrifa allan kostnað af vatnsmiðluninni í Þórisvatni á virkjunina við Búrfell. En þrátt fyrir það standa greiðslurnar frá ÍSAL undir öllu þessu, vatnsmiðluninni við Þórisvatn línu til Reykjavíkur, aðveitustöð á Geithálsi og öllum virkjunarkostnaði við Búrfell. Virkjunin er afskrifuð mjög hratt, hún er afskrifuð á 25 árum, og þá hefur ÍSAL borgað þessa virkjun með því að kaupa 60% af því sem virkjunin framleiðir. Virkjun sem talið er að geti starfað í 80–100 ár eða lengur með litlum tilkostnaði. En þrátt fyrir þessar staðreyndir eru enn til menn, alþm. og ýmsir utan Alþ., sem halda því fram, að Íslendingar hafi beinlínis skaðast á samningnum við Svisslendinga, þegar álverksmiðjan var reist. Það liggur einnig tölulega fyrir, að ef álverksmiðjan hefði ekki verið reist, væri raforka til almenningsnota miklu dýrari en hún er nú. Áburðarverksmiðjan og álverksmiðjan borga sama verð fyrir raforkuna.

Það er dálítið einkennilegt, þegar talað er um niðurgreiðslur á raforku, að það er eins og sumir gleymi því að gera mun á heildsöluverði og smásöluverði, mismunur á söluverði raforku til heimilisnota annars vegar og til stóriðju hins vegar hljóti að jafngilda niðurgreiðslum til stóriðjunnar. Með því er sagt í raun, að það kosti rafveiturnar ekki neitt að dreifa raforkunni til notendanna. Það liggur fyrir að rafveiturnar selja orkuna á fjórföldu til fimmföldu verði miðað við innkaupsverð, en það er vegna þess, hversu dýrt er að dreifa orkunni. Þess vegna er alveg rangt að vera að tala um niðurgreiðslur á raforku, þótt stóriðja borgi lægra verð fyrir hverja kwst. en selt er til heimilisnota. Það er líka reginmunur, þegar stóriðjan notar orkuna í 8500 stundir á ári, en almenningsveitur aðeins 4500 stundir. Það þarf að hafa aflið til reiðu, en því betri sem nýtingin er, því lægra verð getur orðið á hverri seldri kwst. Áburðarverksmiðjan og álverksmiðjan borga sama verð fyrir raforkuna. Aflþörf ÍSALs nemur 30.8% af uppsettu afli Landsvirkjunar.

Greiðslur ÍSALs fyrir raforku á árinu 1977 námu 26.6% af heildarorkusölutekjum Landsvirkjunar eða 980 millj. kr. af 3700 millj. kr., sem var heildarorkusala Landsvirkjunar. Greiðslur til innlendra aðila frá álverksmiðjunni á árinu 1917 voru í krónum sem hér segir: Framleiðslugjald 295.4 millj. kr. Raforka 978.2 millj. kr. Vextir og afborganir af hafnarkostnaði í Straumsvík 400.7 millj. kr. Launagreiðslur og launatengd gjöld 2110.7 millj. kr. Farmgjöld til Eimskips 276.2 millj. kr. Ýmsar greiðslur, mötuneyti o. fl. 805.5 millj. kr. Heildargreiðslur ÍSALs á árinu til innlendra aðila voru því 4866.7 millj. kr.

Það var talað um það hér áðan, að sú n., sem fær þessa till. til athugunar, þyrfti að kynna sér hversu miklar heildargreiðslur hafi orðið frá ÍSAL til innlendra aðila frá því að rekstur byrjaði í Straumsvík. Mér reiknast svo til — ég hef þetta ekki alveg nákvæmlega — að það séu 33.5 milljarðar, — þetta er hægt að leiðrétta síðar, það munar ekki miklu, ef það er ekki rétt, — 33.5 milljarðar í heildargreiðslur til innlendra aðila frá ÍSAL frá því að rekstur byrjaði miðað við gengi og verðlag um síðustu áramót. En það munar um þetta í þjóðarbúið, vegna þess að hér er um erlendan gjaldeyri að ræða. Íslendingar væru fátækari, ef þeir hefðu ekki fengið þessar greiðslur. Íslendingar væru fátæk þjóð, ef þeir hefðu ekki tekið tæknina í sína þjónustu, ef ekki væri nú þegar kominn hér margþættur iðnaður. Íslendingar verða fátækir í framtíðinni, ef ekki verður haldið áfram að byggja upp arðvænlegan atvinnurekstur í landinu til þess að auka framleiðsluna. Hér eru mjög miklir möguleikar, við eigum orkugjafa og við eigum auðlindir sem betur fer, sem eru að litlu leyti nýttar. Þess vegna getum við verið bjartsýn í dag þótt talsvert hallist í efnahagsmálum. Við höfum mikla möguleika til að bjarga málunum og leiðrétta það sem aflaga fer. En varkárni er nauðsynleg og þannig mun takast að nýta möguleikana þjóðinni til hags í nútíð og ekki síður í framtíð.

Í Straumsvík unnu árið sem leið 655 manns. Talað var um það hér áðan, að launin væru há í Straumsvík, spenntu upp launakostnaðinn almennt hér á landi. Það mun vera rétt, að laun greidd í Straumsvík eru talsvert hærri en gerist á almennum markaði hér á landi. Ekki er ástæða til að sjá eftir því, þótt erlendur aðili, sem á álverksmiðjuna, borgi dálítið hátt kaup, því stefnan er nú sú, að kaupið geti orðið það hátt, að það megi verða vel lífvænlegt. En það er eigi að síður ekki hyggilegt að íþyngja atvinnuvegunum of mikið með of háum kröfum. Það gæti leitt til atvinnuleysis og til þess að lífskjörin versnuðu. En eigi að síður hlýtur það að vera stefnan að hækka launin eftir því sem greiðslugeta atvinnuveganna leyfir hverju sinni.

Herra forseti. Ég held að ég hafi þetta mál ekki miklu lengra. Þess gerist tæplega þörf. Ég er hér um bil sannfærður um að þessir ágætu hv. alþm., sem ár eftir ár telja það skyldu sína að mæla gegn samningnum, sem gerður var við álverksmiðjuna í Straumsvík, og helst mæla gegn frekari stóriðju hér á landi, hafi nú sannfærst um að samningurinn um álverksmiðjuna hafi verið harla góður, að þjóðin hafi þénað vel á þessum samningi. Álsamningurinn var fyrsti samningurinn, sem gerður var við útlendinga um orkusölu. Og áreiðanlega höfum við Íslendingar lært ýmislegt í samskiptum við útlendinga. Við vitum að Svisslendingarnir eru ábyggilegir menn. Þeir eru kaupsýslumenn og þeir gera vitanlega ekkert gustukaverk á okkur. Þess gerist heldur ekki þörf sem betur fer. En þótt þeir vilji eiga sitt og vilji semja vel fyrir sig, þá tókst giftusamlega áð þessu leyti um samningana við ÍSAL. Vegna þess að brautin var rudd, fyrsta stórvirkjunin var gerð í Þjórsá, hafa fleiri stórvirkjanir komið í Þjórsá og á eftir munu koma fleiri stórvirkjanir í landinu. Vegna þess að byrjað var á því að fá stóriðnað, sem gefur þjóðinni arð, mun verða haldið áfram, með allri varúð þó, að gera fleiri samninga á þessu sviði.

Ég læt svo máli mínu lokið um leið og það liggur ljóst fyrir, að hagnaður Íslendinga af rekstri álverksmiðjunnar er öllum augljós, þótt ýmsir virðist enn eiga erfitt með að viðurkenna þessar staðreyndir. Það er einnig augljóst, að almenningur hefur ekki greitt niður raforkuna fyrir stóriðjuna, heldur hefur stóriðjan stuðlað að því, að almenningur hér á landi hefur fengið miklu ódýrara rafmagn en ef stóriðja hefði ekki verið fyrir hendi.