08.03.1978
Efri deild: 69. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2817 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)

210. mál, eftirlit með skipum

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Þetta frv. er fylgifrv. með því frv., sem var á dagskrá hér áðan, en eins og þá var greint þá er það eitt af nýmælunum, sem í því frv. felst, að gert er ráð fyrir því, að tilteknir sérdómstólar séu lagðir niður. í þessum frv. er lagt til, að sjó- og verslunardómur svokallaður verði lagður niður, en gert ráð fyrir að sakadómur taki við hlutverki hans eða taki við sjóferðaprófum eða sjóprófum, sem svo eru kölluð, af þessum sjó- og verslunardómi. Greinar þær, sem í frv eru, eru afleiðing af þessu höfuðefni frv.

Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn. Ég leyfi mér að undirstrika að þetta er fylgifrv. með frv. sem rætt var um áðan, þannig að ekki mundi vera eðlilegt að afgreiða það sjálfstætt.